Morgunblaðið - 15.01.1995, Qupperneq 28
28 B SUNNUDAGUR 15. JANÚAR1995
MORGUNBLAÐIÐ
RAÐ AUGL YSINGAR
Húsfriðunarsjóður
Akureyrar
Umsóknir um styrki úr Húsfriðunarsjóði
Akureyrar á þessu ári þurfa að berast fyrir
1. mars nk.
Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrifstofu
byggingarfulltrúa, Geislagötu 9, og á skrif-
stofu menningarmála, Strandgötu 19b.
Á þeim stöðum eru einnig veittar nánari
upplýsingar um húsfriðunarsjóðinn.
Mermingarfulltrúi.
Afnot af íbúð í
Davíðshúsi, Akureyri
Eins og áður hefur komið fram, þá gefst fræði-
mönnum og listamönnum kostur á að sækja
um 1-6 mánaða dvöl í lítilli íbúð í Davíðshúsi,
til að vinna að fræðum sínum eða listum.
Ákveðið hefur verið að frestur til að skila
umsóknum um afnot af íbúðinni mánuðina
sept.-des. 1995 renni út 1. febrúar nk.
Urnsóknir ber að senda til Akureyrarbæjar,
c/o Ingólfur Ármannsson, menningarfulltrúi,
Strandgötu 19b, 600 Akureyri.
Nánari upplýsingar á skrifstofu menningar-
mála, sími 96-27245.
Menningarfulltrúi.
|| Heilbrigðiseftirlit
" J f Reykjavíkur
Hundaeigendur
/hestamenn
hundar í Elliðaárdal
Vegna þrálátrar veru hunda á bannsvæðinu
í Elliðaárdal, sérstaklega í hesthúsahverfi
Reykjavíkurborgar (Faxaból og Víðidalur), vilj-
um við vekja athygli á að samkv. samþykkt
nr. 305/1989 um hundahald í Reykjavík er
slíkt bannað. Brot gegn samþykktinni geta
varðað afturköllun undanþágu frá banni við
hundahaldi í borginni og viðurlögum. Rétt
er að minna á að slysahætta stafar af lausum
hundum sem hlaupa frjálsir innan um hross.
Heilbrigðiseftirlitið vill eindregið vara hunda-
eigendur við að vera með hunda sína á bann-
svæðinu í Elliðaárdal. Framvegis verða hund-
ar á svæðinu handsamaðir án frekari viðvör-
unar og færðir í hundageymslu.
Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur.
KENNSIA
Fjölbreytt námskeið í boði fyrir 6-14 ára
nemendur.
Upplýsingar og innritun í dag í síma 628283
kl. 13-16. Síðasta innritunarhelgi.
Frönskunámskeið
Alliance Francaise
Byrjenda-, framhalds- og barnahópar frá 16.
janúar til 21. apríl.
Innritun alla virka daga frá kl. 15-19 á Vestur-
götu 2, sími 23870.
ALLIANCE FRANCAI8E
Myndlistarskóli
Garðabæjar
Innritun á vorönn í Kirkjuhvoli 16.-18. janúar
kl. 17-19. Sími 659050.
Námskeið
Hópur áhugamanna um andleg málefni gengst
fyrir námskeiði sem hefst 21. janúar og lýkur
28. maí. Á námskeiðinu verðurfjallað um geisl-
ana sjö, Hvíta bræðralagið, heilun o.m.fl.
Kynningarkvöld veðrur haldið 17. janúar nk.
kl. 20.00 í Hamri, Hamraborg 38, Kópavogi.
Gengið inn frá Neðstutröð. Sími 884532.
Ljósblik.
Frá Tölvuskóla Stjórnun-
arfélagsins og Nýherja
Tölvunotkun ífyrirtækjarekstri -
fyrri hluti
Innritun er hafin í þetta vinsæla tölvunám,
fyrstu 11 námsvikurnar. Kennsla hefst 6.
febrúar. Unnt er að stunda námið með vinnu.
Seinni hluta námsins má taka næsta skóla-
ár. Þetta er einstakt tækifæri til að öðlast
yfirgripsmikla þekkingu á einkatölvubúnaði
fyrirtækja fyrir mjög hagstætt verð.
Nánari upplýsingar í síma 697769, 697770
eða 621066.
KENNARA-
HÁSKÓU
ÍSLANDS
Ökukennaranám
Ökukennaranám, 15 einingar, hefst í Kenn-
araháskóla íslands í maí nk.
Námið er skipulagt í samræmi við samstarfs-
samning Umferðarráðs og Kennaraháskólans.
Kennt er í lotum sem dreifast á 12 mánuði:
Þrjár vikur í júní 1995, tvær vikur í septem-
ber 1995 og síðan um helgar og í stuttum
lotum veturinn 1995-1996.
Skólagjald er áætlað 220.000,- krónur og er
greiðslum jafnað á námstímann.
Inntökuskilyrði eru lokapróf úr framhalds-
skóla eða náms- og starfsreynsla, meðal
annars á sviði umferðaröryggismála, sem
meta má sem hliðstæðan undirbúning.
Umsóknum skal skilað á þar til gerðum eyðu-
blöðum sem fást á skrifstofu skólans.
Umsókn skal fylgja afrit af prófskírteinum
og meðmæli.
Umsóknarfrestur er til 24. febrúar.
Nánari upplýsingar fást á skrifstofu skólans,
Stakkahlíð, 105 Reykjavík, sími 5633800.
Rektor.
Málverkauppboð
Höfum hafið móttöku á verkum fyrir mál-
verkauppboð í byrjun febrúar. Vantar sér-
staklega verk eftir gömlu meistarana.
Vinsamlegast hafið samband við Gallerí Borg
við Austurvöll í síma 24211 eða 14215.
BOBG
Módel íhárgreiðslu
Þann 30. janúar til 4. febrúar verður breskur
hárgreiðslumeistari, Mark Atkinson frá Wella
Studio í Lundúnum, með sýnikennslu í klipp-
ingum og hárlitun hjá Halldóri Jónssyni hf.
Við óskum eftir módelum áðurnefnda daga.
Áhugasamir eru vinsamlega beðnir um að
hafa samband við skrifstofu okkar í síma
91-568-6066 kl. 9-17 næstu daga.
Fjáröflunarverkefni
Útskriftarnemendur, líknarfélög, önnur fé-
lög/samtök eða einstaklingar. Hafið þið hug-
leitt bóksölu til fjáröflunar? Höfum ýmsar
bækur, nýjar, gamlar og ritsöfn til umboðs-
sölu. Góð sölulaun.
Vinsamlegast sendið fyrirspurnir til af-
greiðslu Mbl. merktar: „R - 18043“.
(Geymið auglýsinguna).
Sölumenn sjávarafurða
Undirritaður hefur áhuga á að mynda
samskiptanet um aðila sem við höfum skað-
ast á hérlendis og erlendis.
★ Engar greiðslur.
★ Óvægar kvartanir.
★ Léleg gæði eða vörusvik o.fl.
Þetta yrði hinn „svarti kladdi“ okkar
viðskipta.
Áhugasamir um þetta samskiptanet vinsam-
lega hafið samband eða faxið upplýsingar
með nafni og símanúmeri/faxi til Guðmundar
Ingasonar, sími 653523, fax 654044.
G. Ingason Seafood
Seafood Export & Quality Control
Fornubúdir 8, 220 Hafnarfjördur, lceland
Tel. (354)-1-653525 - Telex 3176 GING IS -
Telefax (354)-1-654044
Styrkurtil Noregsfarar
Stjórn sjóðsins Þjóðhátíðargjöf Norðmanna
auglýsir eftir umsóknum um styrki úr sjóðn-
um vegna Noregsferða á árinu 1995.
Samkvæmt skipulagsskrá fyrir sjóðinn er til-
gangur hans „að auðvelda íslendingum að
ferðast til Noregs. í þessu skyni skal veita
viðurkenndum félögum, samtökum og skipu-
lögðum hópum ferðastyrki til Noregs í því
skyni að efla samskipti þjóðanna t.d. með
þátttöku. í mótum, ráðstefnum eða kynnis-
ferðum, sem efnt er til á tvíhliða grundvelli,
þ.e.a.s. ekki eru veittir styrkir til þátttöku í
samnorrænum mótum, sem haldin eru til
skiptis á Norðurlöndum. Ekki skal úthlutað
ferðastyrkjum til einstaklinga, eða þeirra sem
eru styrkhæfir af öðrum aðilum.“
í skipulagsskránni segir einnig, að áhersla
skuli lögð á að veita styrki, sem renna til
beins ferðakostnaðar, en umsækjendur beri
sjálfir dvalarkostnað í Noregi.
Hér með er auglýst eftir umsóknum frá þeim
aðilum, sem uppfylla framangreind skilyrði.
í umsókn skal getið um hvenær ferð verður
farin, fjölda þátttakenda og tilgang fararinn-
ar. Auk þess skal tilgreina þá fjárhæð, sem
farið er fram á.
Umsóknum óskast beint til stjórnar sjóðsins
og sendar forsætisráðuneytinu, Stjórnarar-
áðshúsinu við Lækjartorg, 150 Reykjavík,
fyrir 15. febrúar 1995.
I forsætisráðuneytinu, 13. janúar 1995.