Morgunblaðið - 15.01.1995, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 15. JANÚAR 1995 B 31
Kjarasamningar
í Danmörku
Ekki svig-
rúmtil
launa-
hækkana
Kaupmannahöfn. Morgunblaðið.
SAMTÖK atvinnurekenda í Dan-
mörku hafa áhyggjur af hugsanleg-
um launahækkunum í væntanleg-
um kjarasamningum, sem á að ljúka
í lok mánaðarins. Meðal þeirra eru
þó skiptar skoðanir um hvort og
hvernig hafa eigi áhrif á samning-
ana, sem nú eru að miklu leyti á
valdi einstakra atvinnurekenda.
Meðal hjúkrunarkvenna gætir mik-
illar óþolinmæði og samtök þeirra
standa nú fyrir auglýsingaherferð
í blöðum til að vekja athygli á erf-
iðri stöðu þeirra.
Ágreiningsmál atvinnurekenda
og launþega eru af ýmsum toga.
Deilt er um hvaða stéttir eigi að
taka með í rammasamningana, til
dæmis hvort samtök verslunarfólks
eigi að vera með í samningum
þeirra, sem starfa í iðnaði. Af hálfu
atvinnurekenda í iðnaði er aukinn
sveigjanleiki varðandi vinnutíma
ofarlega á blaði, auk lægri launa
til þeirra sem eru að koma inn á
vinnumarkaðinn í fyrsta skipti. Á
óskalista launþega eru meðal ann-
ars full laun í veikinda- og barn-
eignarfríum.
Skattalækkun dugi
Launahækkanir eru ekki sérstak-
lega á döfinni. Vegna hárra skatta
hafa þær um árabil verið lítt girni-
legur kostur fyrir launþega og því
iðulega samið um frí í stað yfír-
vinnugreiðslna og annað sem ekki
skilar krónum og aurum í vasa laun-
þega. Atvinnurekendur álíta að
launahækkanir nú stefni sam-
keppnisstöðu Dana í voða, þar sem
laun lækki í samkeppnislöndum
þeirra og segja að skattalækkanir,
sem metnar eru til 1,5% kauphækk-
ana í ár og 1,2% næsta ár verði
að duga.
Atvinnurekendur hafa hins vegar
áhyggjur af, að þar sem uppsveiflu
gæti í mörgum fyrirtækjum kunni
að verða freistandi að hækka laun
þar. Fyrir fjórum árum voru kjara-
samningar gerðir að viðmiðunar-
samningum, þannig að laun yrðu
ekki lægri en þeir, en um annað
væri síðan samið í einstökum fyrir-
tækjum. Fyrir breytinguna var
hægt að sekta fyrirtæki, sem
greiddu hærri laun en kjarasamn-
ingar kváðu á um. Ótti atvinnurek-
enda um kauphækkanir á einstök-
um vinnustöðum hefur orðið til þess
að sumir þeirra sakna gamla fýrir-
komulagsins.
Víða á vinnustöðum hafa verið
teknir upp einstaklingsbundnir
samningar, þar sem hveijum starfs-
manni er greitt eftir framlagi. Fyr-
irkomulagið. hefur mælst misvel
fyrir og er ákaft til umræðu. Þeir
sem mæla því bót segja að þannig
leggi starfsfólk sig allt fram, meðan
andmælendur þess segja það eyði-
leggja starfsandann, þar sem öf-
und, baknag og óheilbrigð sam-
keppni sé fylgifiskur þess.
Hjúkrunarkonur
hóta verkfalli
Yfírlit yfir launaþróun síðustu tíu
ára sýnir að ýmsar kvennastétir
hafa dregist aftur úr í launum, þó
lög um launajafnrétti hafi gilt í
Danmörku í tvo áratugi. Hjúkrunar-
konur hafa til dæmis lækkað í laun-
um sé miðað við fast verð og þær
segja að nú sé þolinmæði þeirra á
þrotum. Meðallaun þeirra eru tæpar
200 þúsund íslenskar krónur en um
helmingur þess fer í skatt. Þær
hafa því farið fram á að sérstakt
tillit verði tekið til þeirra en því
hafa önnur samtök eins og samtök
kennara hafnað. Hjúkrunarkonur
lýsa sig tilbúnar að fylgja kröfum
sínum eftir með verkfalli.
Nýja bílasalan, Bíldshöfða 8, s. 5673766
Ford Econoline 250 Club Wagon,
árg. ‘92, ek. 85 þús. km, 5.800 cc.
slagrými efi, sjálfskiptur, 12 manna,
ferðainnr. fylgir, loftlæstur fr/aft.,
1356 milligír, 1345 millikassi, Ranco
9000 demparar, Dana 60 fr./aft.,
4:10 hlutföll, 210 lítra tankur, Warn
9000 spil, tvöfalt rafkerfi o.s.frv.
Skipti mögul. á ódýrari.
Verð kr. 4.300 þús. stgr.
Toyota Corolla XLI Special Series,
árg. ‘94, ek. 12 þús. km, 5 d., 5 g.,
rafmagnsrúður, spoiler, ný Michelin
nagladekk, sem nýr, skipti mögul. á
ódýrari. Verð kr. 1.210 þús. stgr.
Renault Clio RN, árg. ‘92, ek. 26
þús. km, 5 d., 5 g., skipti mögul. á
ódýrari. Verð kr. 720 þús. stgr.
W
Ford Ranger 4x4 STX extra cab 4.0,
árg. ‘92, el. 36 þús. km, skráður 4
manna, rauður, 4 nagladekk, 5 g.,
álfelgur, innspýting, skipti mögul. á
ódýrari. Verð kr. 1.600 þús. stgr.
MMC Colt EXE GLXI, árg. ‘92, ek.
27 þús. km, hvítur, sjálfsk., einn með
öllu og lítiö ekinn, skipti mögul. á
ódýrari. Verð kr. 1.050 þús. stgr.
Eigum einnig árg. ‘89-’91 og GT1 ‘90.
ÞAR SEM BILARNIR SELJAST!
Rétt ákvörbun
er nú orbin ab
einni milljon
hjá Þor o§ Björgu
Meb því ah lcggja fyrir hvort iim sig uiii 5.000 krónur
á mánubi meb áskrift ab spariskírteinum ríkissjóbs,
hafa Þór og Björg safnab 1.007.000 kr. á abeins
fímm árum. Þab sama getur þú.
Þú getur líka, skref fyrir skref, byggt upp þinn eigin sparnab meö því að panta
áskrift ab spariskírteinum ríkissjóðs. Ef þú pantar áskrift núna færðu senda
möppuna Spamaö heimilisins - liandbók áskrifandans, þar sem [)ú getur gert
greiðsluáætlun fyrir fjárhagsmál þín og haldið áreiðanlegt heimilisbókhald.
I>ab þarf abeins citt símtal til ab byrja ab spara. Hringdu núna
og pantaöu áskrift að spariskírteinum ríkissjóös. Síminn er 562 6040,
grænt númer 99 66 99. Þú getur einnig hringt í Áskriftarsímann
99 65 75 sem er opinn allan sólarhringinn. Byrjaðu að spara á nýju ári.
aÞJÓNUSTUMIÐSTÖÐ
RÍKISVERÐBRÉFA
Hverfisgötu 6,2. hæð
Hjónin Þór og Björg geröust áskrifendur aö spariskírteinum ríkissjóös í apríl 1989 og hafa síöan keypt spariskírteini mánaöarlega fyrir um 5.000 kr. hvort.
Þessi inánaöarlegi sparnaöur, ásamt áföllnum vöxtum og veröbótum miöaö viö 1. janúar 1995, gerir 1.007.000 kr.