Morgunblaðið - 17.01.1995, Page 1
64 SÍÐUR B
11.TBL.83.ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR17. JANÚAR1995 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Átta látnir í Súðavík og- sjö enn saknað eftir snjóflóð
• Um 500 manns á Vestfjörðum rýma hús sín • Fjöl-
mennar björgunarsveitir leita við erfiðar aðstæður
Morgunblaðið/Guðjón Þorsteinsson
SLASAÐIR, sem björguðust úr snjóflóðinu á Súðavík, fluttir úr Fagranesinu um borð í sjúkrabíla við ísafjarðarhöfn. Fagranesið er nú sfjórnstöð hjörgunaraðgerða.
Fjórtán ára stúlka fannst
á lífi eftir 15 tíma leit
ÁTTA manns fórust og sjö var enn saknað
klukkan 2 í nótt eftir að tvö hundruð metra
breitt snjóflóð féll á Súðavík við ísafjarðar-
djúp snemma í gærmorgun og tók með. sér
fimmtán hús í miðju þorpinu.Húsin voru flest
utan þeirra marka sem skilgreind voru sem
hættusvæði vegna snjóflóða, en fyrr um nótt-
ina höfðu hús í grennd við Traðargil verið
rýmd vegna snjóflóðahættu. Tuttugu og sex
manns voru í húsunum sem fyrir flóðinu
urðu, þar af mörg börn. Strax um morgun-
inn tókst að bjarga tíu manns og voru sjö
slasaðir fluttir á sjúkrahúsið á ísafirði. í
gærkvöldi fannst 14 ára gömul stúlka á lífi.
Björgunar- og leitarstörf stóðu yfir í allan
gærdag og var haldið áfram í nótt við gífur-
lega erfiðar aðstæður vegna ofsaveðurs sem
geisaði á þessum slóðum. Björgunarmenn frá
Isafirði og annars staðar af Vestfjörðum
fóru sjóveg til Súðavíkur til að vinna að leit-
arstörfum og varðskipið Týr fór frá Reykja-
vík um miðjan dag í gær með lækna, hjúkrun-
arfólk, björgunarsveitarmenn og hjálpargögn
innanborðs.
Um 500 manns urðu að flýja hús sín vegna
snjóflóðahættu í mörgum þorpum á Vest-
fjörðum og fengu flestir inni hjá ættingjum
og vinum.
Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins
var 14 ára stúlkan sem fannst í gærkvöldi
óslösuð og þokkalega á sig komin er hún
fannst eftir að hafa verið um 15 tíma undir
snjónum, en foreldrar hennar höfðu fundist
heilir á húfi fyrr um daginn.
Ætlaði að leita barna sinna
I einu húsi við Túngötu var húsmóðirin í
fastasvefni í svefnherbergi sínu ásamt yngsta
barni sínu, tveggja ára gömlum dreng, þegar
flóðið féll og lagði húsið í rúst. Eldri börn
hennar, sjö ára stúlka og fjögurra ára gam-
all drengur, voru sofandi annars staðar í
húsinu. Móðir barnanna komst út úr húsinu
og var á meðal þeirra fyrstu sem bjargað var
í gærmorgun. Hún hafði þá farið úr axlarlið
en ætlaði að ráðast til atlögu við snjófargið
til að leita barna sinna þegar að henni var
komið.
Nokkru síðar fannst yngsta barnið með
lífsmarki, en það lést skömmu síðar. Eldri
börnin tvö voru ófundin seint í gærkvöldi.
Móðirin var flutt sjóleiðis á Sjúkrahús ísa-
fjarðar þar sem hún lá í gærkvöldi.
Maður á fertugsaldri var einn þeirra sem
sluppu ómeiddir úr snjóflóðinu. Þegar flóðið
reið yfir var hann sofandi í húsi efst í þorp-
inu ásamt tengdaforeldrum og 12 ára syni
þeirra. Hann svaf í herbergi sem sneri upp
að hlíðinni þaðan sem snjóflóðið kom, í her-
bergi við hlið tengdaforeldra sinna. Hann
vissi ekki af sér fyrr en hann vaknaði úti í
snjónum á nærklæðunum.
Um leið og hann rankaði við sér og áttaði
sig á því hvað hafði gerst, heyrði hann grát-
hljóð skammt frá sér. Hann hófst strax
handa, gróf sig niður á hljóðið og fann þar
drenginn heilan á húfi. Hann kom honum í
öruggt skjól áður en hann fór að leita tengda-
foreldra sinna, en án árangurs. Hann gerir
sér ekki grein fyrir því hvernig hann komst
út úr húsinu, segir það kraftaverk og þakkar
Guði að hafa bjargast svo giftusamlega því
húsið, sem var múrsteinshlaðið einingahús á
einni hæð, splundraðist í snjóflóðinu.
Annað snjóflóð í gærkvöldi
Annað snjóflóð féll á Súðavík í gærkveldi
úr svonefndu Traðargili og skemmdi húseign-
ir, þar á meðal kaupfélagið, en fólki varð
ekki meint af. Snjóflóð úr Traðargili eyði-
lagði bæinn Saura fyrir tæplega mánuði.
Mjög slæmt veður var á Vestfjörðum í
gær, mikið hvassviðri, ofankoma og skaf-
renningur og er áfram spáð slæmu veðri í
dag og næstu daga.
Ríkisstjórnin kom saman á neyðarfundi í
forsætisráðuneytinu í gærmorgun þar sem
ákveðnar voru aðgerðir vegna hamfaranna
í Súðavík. Að fundi loknum lýsti forsætisráð-
herra, sem verður í beinu sambandi við fram-
kvæmdastjóra Almannavarna ríkisins meðan
neyðarástandið varir í Súðavík, því yfir að
ekkert yrði til sparað svo bjarga mætti fólki
úr snjóflóðinu og bættur sá skaði sem bætt-
ur yrði. •
■ Siýóflóð og ilIviðri/2/4/6/12-15/28-29/56