Morgunblaðið - 17.01.1995, Page 12

Morgunblaðið - 17.01.1995, Page 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 17. JANÚAR 1995 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ Morgunblaðið/Árni Sæberg Fjölmenn bænastund í Dómkirkjunni HALDNAR voru bænastundir í gærdag víðs vegar um land vegna snjóflóðsins í Súðavík. Meðal ann- ars var athöfn í Dómkirkjunni þar sem flutt voru huggunarorð. Um 400 manns sóttu kirkjuna, að sögn séra Jakobs Hjálmarssonar dóm- kirkjuprests. Mikil sorg ríkti í Dómkirkjunni og komu nokkrir nánir aðstandendur þeirra sem saknað er að máli við prestana að athöfn lokinni að sögn séra Jakobs. Frú Vigdís Finnbogadóttir, for- seti Islands, var í kirkjunni, auk Davíðs Oddssonar forsætisráð- herra, Þorsteins Pálssonar dóms- og kirkjumálaráðherra og Ingi- bjargar Sólrúnar Gísladóttur borgarstjóra. Fjöldi Vestfirðinga var einnig viðstaddur, þár á með- al þingmennimir Matthías Bjarnason og Einar K. Guðfinns- son. Herra Ólafur Skúlason biskup ávarpaði viðstadda en einnig flutti séra Jakob Ujálmarsson huggunarorð. Sagði hann meðal annars: „Við viljum sýna fólkinu sem er í raunum sínum þar vestur við Álftafjörð að það sé ekki eitt um að mæta ósköpunum. Okkur langar mest til að fara til þeirra og taka þau til okkar, burt úr hættunni." „Nágrannarnir hafa komið en við emm fjær. Okkur eru engar leiðir færar að sinni, svo við send- um þeim þau boð að við viljum hjálpa og við biðjum til Guðs. Mannleg hjálparhönd nær svo ógnarskammt. Hún getur rétt sig fram með styrk en hún getur ekki skapað líf að nýju sem dáið er. Hún getur ekki fært hin burt- hrifnu til ástvina sinna aftur. Aðeins faðmað og stutt.“ Séra Jakob, sem var sóknar- prestur á ísafirði til 1989, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að meðal kirkjugesta hefðu verið margir brottfluttir Súðvíkingar og ættingjar þeirra sem lentu í snjó- flóðinu. Að athöfninni lokinni var aðstandendum boðið að ræða við prestana og sagði séra Jakob að margir hefðu átt um sárt að binda. Meðal annars hefðu náin skyld- menni bama og fullorðinna sem saknað er tekið sig tali. Biskup segir mikla þörf fyrir sálgæslu Þjóðin á eina sál þegar eitt- hvað kemur upp MIKIL þörf er fyrir sálgæslu á hamfarasvæðinu við Súðavík, fyrir aðstandendur fórnarlamba snjóflóðanna og einnig fyrir björgunarmenn á staðnum, að sögn herra Olafs Skúlasonar biskups. Tveir prestar eru nú á leið til Súðavíkur og fleiri eru tilbúnir til farar þegar veður gengur niður. Ólafur segir að þegar eitthvað komi upp á eigi þjóðin eina sál. Það sjáist m.a. af ijölmörgum upphringingum til biskups þar sem almenningur hefur boðið fram aðstoð sína. Ólafur segir að biskupsembættið hafi verið í sambandi við séra Magn- ús Erlingsson á ísafirði og séra Agnesi Sigurðardóttur í Bolungar- vík. Um borð í varðskipinu Tý var séra Sigfinnur Þorleifsson sjúkra- húsprestur. Að auki er um borð í Tý séra Kristján Björnsson prestur á Hvammstanga, en hann er jafn- framt félagi í Landsbjörg. Séra Jak- ob Ágúst Hjálmarsson dómkirkju- prestur mun einnig fara vestur um leið og fært verður til flugs. Hann var áður sóknarprestur í Súðavík og verður hann séra Magnúsi til aðstoðar eins lengi og þörf krefur, að sögn Ólafs Skúlasonar. Þá er séra Karl Matthíasson prestur á Tálknafirði um borð í togaranum Júlíusi Geirmundssyni á leið til Súðavíkur ásamt hópi björgunar- sveitarmanna. „Heimamenn voru orðnir ör- magna í morgun [gæmorgun] þegar Fagranesið kom með fólkið frá ísafirði og nú er sá mannskapur einnig orðinn uppgefinn. Aðstæður eru það erfiðar. Mikið mæðir á prestinum á staðnum þannig að það var mjög nauðsynlegt að koma að- stoð til hans og fyrst og fremst til aðstandenda og sjúkra. Björgunar- mennirnir sjálfir þurfa á ákveðinni sálgæslu að halda og styrk,“ segir biskup. Fjölmargir hafa boðið fram aðstoð sína Ólafur segir að síminn hafi ekki stöðvast á Biskupsstofu. „Fólk hef- ur hringt og fjöldi presta og al- menningur héðan úr borginni og utan af landi hefur boðið fram hjálp sína og vill vita hvort það geti kom- ið að einhveijum notum.“ Bænastund var í Dómkirkjunni í gær sem var útvarpað beint og önnur í Landakirkju í Vestmanna- eyjum en biskup sagði að Vest- mannaeyingar þekktu hörmungar náttúruhamfara af eigin raun. vHvað sem sagt verður um okkur Islendinga, einstaklingshyggju- menn eins og við oft erum, þegar eitthvað kemur upp þá á þjóðin eina sál. Það er enginn vafi á því að það er að gerast núna,“ sagði Ólafur. Davíð Oddsson forsætisráðherra um náttúruhamfarirnar í Súðavík Snj óflóðavarnir á þessum slóðum endurmetnar Morgunblaðið/Árni Sæberg BÆNASTUNDINA sóttu m.a. frú Vigdís Finnbogadóttir, Ebba Sigurðardóttir, eiginkona biskups, Davíð Oddsson forsætisráð- herra og Þorsteinn Pálsson, dóms- og kirkjumálaráðherra. Forseti íslands „Missir eins, missir allra“ DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra segir náttúruhamfarirnar í Súðavík í gærmorgun verða til þess að snjó- flóðavarnir á þessum slóðum verði endurmetnar. Segir hann fjölgun snjóflóða á svæðinu áhyggjuefni en ríkisstjórnin fjallar um frekari aðgerðir á fundi sínum í dag. Legg- ur rikisstjómin áherslu á að ekkert verði til sparað og hafa formenn Framsóknarflokks og Alþýðu- bandalags lýst stuðningi við sjónarmið hennar, að sögn Davíðs. Eitt versta slys aldarinnar „Meðan nokkur von er munu menn leita í þaula. Aðstæður eru náttúrlega afskaplega erfiðar og það er ljóst að þetta er orðið eitt af hinum verri slysum hér á þess- ari öld. Þjóðin er samstiga í því að vilja beija í þessa bresti og gera eins gott úr þessu og hægt er, með mikilli hlýju og samúð til þeirra sem eiga um sárt að binda í þessu litla samfélagi.“ „Á sama tíma hefur allt lagst á eitt, veðrið verið með versta móti og aðstæður til að koma aðstoð við um langan veg nánast ekki verið fyrir hendi. Þannig að þetta hefur reynt gríðarlega á fólk og sem betur fer hafa heimamenn í næsta nágrenni sýnt mikla þraut- seigju." Davíð sagði aðspurður hvert næsta skref yrði að teknar yrðu frekari ákvarðanir á ríkisstjómar- fundi í dag. „Það verður farið yfir nýjustu upplýsingar, sem liggja fyrir. Það er allt gert af hálfu almannavama ríkisins og svæðisins sem hægt er, viljinn er fyrir hendi en aðstaðan afskaplega takmörkuð vegna óveð- ursins. Aðalatriðið er að þetta hef- ur gengið alveg samkvæmt því skipulagi sem Almannavarnir rík- isins starfa eftir og mest áríðandi að hafa ekki truflandi áhrif á gang málá' meðan svo er.“ Mikið áhyggjuefni Aðspurður hvort ekki væri áhyggjuefni að svæðið þar sem snjóflóðið féll í gærmorgun væri utan kortlagðra hættusvæða á þessum slóðum sagði forsætisráð- herra: ,,-Þetta er mikið áhyggjuefni og einnig hvað snjóflóð hafa auk- ist mikið að undanförnu. Eg held að menn hafi reynt að sýna ár- vekni en þegar náttúran fer slíkum hamförum og þarna gerðist vill margt bresta, líka sú þekking sem menn hafa búið yfir. Það er hins vegar enginn vafi á því að þessir atburðir verða til þess að menn munu endurmeta þessa hluti. Snjó- flóðavarnir heyra undir umhverfis- ráðuneytið en það munu öll ráðu- neyti koma að því máli,“ sagði forsætisráðherra. FRÚ Vigdís Finnbogadóttir for- seti íslands flutti þjóðinni ávarpsorð í gær vegna atburð- anna í Súðavík og var einnig við- stödd bænastund í Dómkirkj- unni. Kvaðst hún i samtali við Morgunblaðið hafa orðið djúpt snortin. „Þetta var mjög falleg athöfn og snerti mig djúpt. Það er þjóðarharmur þegar heilt byggð- arlag á íslandi verður fyrir slík- um náttúruhamförum. Land og þjóð eru samofin á ættjörð okkar og atburðir af þessu tagi snerta okkur 311. Eg grét í hjarta mínu með þeim landsmönnum sem eiga um sárt að binda. Á slíkum stund- um bið ég Guð að veita öllum styrk sem þurfa að horfast í augu við það sem orðið er og ekkert fær breytt,“ sagði forseti íslands. Forsetinn fylgist að eigin sögn með framvindunni fyrir vestan frá stundu til stundar og sendi frá sér eftirfarandi ávarpsorð síðdegis í gær: „Á stundum sem þeim, sem við höfum gengið til móts við í dag, finnum við svo vel, íslendingar, hve mikil ítök við eigum í hjörtum hver annars og hve samstaða okkar og samhugur er einlægur á raunastundum. Því hvort sem við erum nær eða fjær því svæði sem orðið hefur fyrir miskunnar- lausum náttúruhamförum, dvelur hugur okkar hjá öllum þeim sem að hefur verið höggvið. Missir eins er missir okkar allra. Við lifum í von um að enn verði mannslífum bjargað og ég bið blessunar öllum þeim sem um sárt eiga að binda.“ Veita fórn- arlömbum sálræna áfallahjálp MEÐAL hjálparliðs sem fór með varðskipinu Tý til Súðavíkur í gær var sérþjálfað hjúkrunarlið og björgunarsveitarmenn, auk presta, sem eiga að veita sálræna áfalla- hjálp þeim sem lentu í snjóflóðinu í Súðavík í gærmorgun. Rúdolf Adolfsson geðhjúkrunar- fræðingur sagði í samtali við Morg- unblaðið í gær að hlutverk hópsins yrði að veita Súðvíkingum sálfræði- lega skyndihjálp og undirbúa þann stuðning sem veita þyrfti fórn- arlömbum snjóflóðsins og ættingj- um þeirra þegar frá líður. Rúdolf og Tómas Zoega geð- læknir sögðu að vænta mætti þess að eðlileg viðbrögð fólks sem lenti í lífsreynslu af þessu tagi brytust fram með tvennum hætti. Hjá sum- um mætti vænta líkamlegra kvíða- einkenna og eirðarleysis og jafnvel ýmissa einkenna sem minnt gætu á líkamlega sjúkdóma en aðrir yrðu ótrúlega sinnulitlir og virtust mjög rólegir. Rúdolf sagði að þótt við- brögð fólks, sem gengið hefði í gegnum hörmungar af þessu tagi, virtust oft lítil mætti ekki láta blekkjast. Næstu einn til þrjá sólar- hringana þyrfti að aðstoða fólk við að vinna úr fyrsta áfallinu. Tómas Zoega sagði að læknar og hjúkrunarfólk myndu við með- ferð fórnarlamba snjóflóðanna leggja áherslu á að bijóta upp venjulega _ deildaskiptingu sjúkra- stofnana. í stað þess að skipa kon- um sér og körlum sér í stofur yrði lögð höfuðáhersla á að fjölskyldur gætu verið sem mest saman á stof- um, sé þess nokkur kostur og ef heilsa viðkomandi leyfir slíka með- höndlun.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.