Morgunblaðið - 17.01.1995, Side 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 17. JANÚAR 1995
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI iLL¥IÐli 00 ÖFÆRÐ
Engin meiðsl á fólki en skemmdir á fasteignum í blindbyl
Bj örgunars veitarmenn
sinntu tugum beiðna
um aðstoð í óveðrinu
FJÖLDI björgunarsveitarmanna úr
Hjálparsveit skáta á Akureyri og
Fiugbjörgunarsveitinni á Akureyri
auk lögreglumanna aðstoðuðu fólk
við að komast milli staða á Akur-
eyri aðfaranótt mánudags og fram
undir hádegi, en blindbylur var í
Eyjafirði frá því um miðnætti og
fram eftir degi í gær, mánudag.
Veðrinu tók að slota upp úr hádeg-
inu. Engin meiðsl urðu á fólki, en
eitthvað var um skemmdir af völd-
um óveðursins. Öllum skólum var
frestað vegna veðurs, en m.a. áttu
nemendur í Menntaskólanum á
Akureyri að mæta í fyrsta prófið
í gærmorgun. Þá var ekki hægt
að senda öldruðu fólki mat heim
vegna ófærðar.
Glórulaus bylur
Björgunarsveitarmenn voru kall-
aðir út til aðstoðar lögreglu um
kl. 4 í fyrrinótt, en þá var glóru-
laus bylur á Akureyri og sást vart
út úr augum. Þá fór rafmagn af
Glerárhverfi sem gerði mönnum
enn erfiðar fyrir.
„Við höfum ekki tekið saman
fjölda beiðna um aðstoð en þær
eru fjölmargar og tugir manna
Klemmdist
milli fiski-
kassa og
lestarops
VINNUSLYS varð um borð í
togaranum Súlnafelli EA 840 í
Dalvíkurhöfn í gærmorgun.
Verið var að landa úr togaran-
um um kl. 9 þegar maður úr
löndunarflokki klemmdist á
höfði milli lestarops og fiski-
kassa, sem var 500-600 kíló
að þyngd. Að sögn lögreglu á
Dalvík var maðurinn fluttur á
slysadeild Fjórðungssjúkra-
hússins á Akureyri en meiðsl
hann voru ekki talin alvarleg.
Þá tók lögreglan á Dalvík
mann fyrir meinta ölvun við
akstur vélsleða í bænum. Mað-
urinn var auk þess að vera
grunaður um ölvun við akstur-
inn, réttindalaus.
hafa verið að hjálpa fólki úr
ógöngum. Við voru með langan
lista sem við reyndum eftir bestu
getu að aðstoða," sagði Ingimar
Skjóldal, varðstjóri lögreglunnar á
Akureyri, síðdegis í gær en þá var
veðrið gengið niður.
Einhveijar skemmdir urðu af
völdum óveðursins að sögn Ingi-
mars, m.a. brotnuðu rúður í húsum
og þá fylltist hæð í hús af snjó
eftir að rúða brotnaði eða fauk
upp. Enginn bjó á hæðinni, en tjón
hlaust af.
Fólk flutt í vinnuna
Koma þurfti starfsfólki á heil-
brigðisstofnunum til og frá vinnu
við vaktaskipti og voru miklar ann-
ir því samfara. Friðfinnur Guð-
mundsson í stjórnstöð Hjálpar-
sveitar skáta á Akureyri sagði að
frá því björgunarsveitarmenn
komu á vettvang um kl. 4 í fyrri-
nótt hefðu útköll verið stöðug.
Snjóbílar og öflugir jeppar voru á
ferðinni m.a. við að flytja fólk á
vinnustaði og eins var farið með
matvæli fram að Kristnesi í Eyja-
firði.
FJÓRIR félagar úr Hjálparsveit
skáta á Akureyri náðu í níu manns
sem sátu fastir í tveimur jeppum í
Bakkaselsbrekku í Öxnadal í gær.
Ferðin sóttist seint vegna óveðurs
sem þar geisaði en allir komust í
bæinn ómeiddir þrátt fyrir hrakn-
ingar. í hópnum voru tvö börn.
Fólkið hafðist við í bílum sínum á
heiðinni frá því í fyrrinótt þegar
vegurinn tepptist.
Allt svart
Örn Arnarson, einn þeirra sem
sótti fólkið, sagði að veður hefði
verið nokkuð gott þegar lagt var
af stað laust fyrir hádegi, en strax
þegar komið var að Moldhaugna-
hálsi utan Akureyrar hefði veður
versnað til muna, „það varð allt
svart og við sáum ekki neitt,“ sagði
„Það var alveg glórulaust veður
á tímabili, menn spiluðu sig á milli
húsa og eftir að rafmagnið fór af
í. Glerárhverfi sáu menn ekkert,
það þurfti að ganga á undan bílun-
um,“ sagði Friðfinnur. „Þetta hef-
ur verið mikið púl í langan tíma
og þeir sem verið hafa að allan
tímann eru að þrotum komnir.“
Mikill snjór í
utanverðum Eyjafirði
í Ólafsfirði er mikill snjór og him-
inháir ruðningar í bænum eftir að
moksturstæki hafa verið þar á
ferðinni að hreinsa götur. Lögregla
aðstoðaði þá ökumenn sem festu
bíla sína, en eitthvað var um _að
menn reyndu að bijótast milli Ól-
afsfjarðar og Dalvíkur. Þar voru
nokkrir bílar fastir.
Að sögn lögreglu á Dalvík voru
björgunarsveitarmenn að störfum
í bænum til að aðstoða fólk sem
lenti í vandræðum í óveðrinu, en
annars sagði lögreglumaður þar
að Dalvíkingar hefðu sloppið vel,
færð væri nokkuð góð og mokað
var milli Akureyrar og Dalvíkur í
gærmorgun þannig að fólk komst
ferða sinn milli þessara staða.
Örn. Frá Þelamörk og að Engimýri
í Öxnadal gekk vel, enda vegurinn
auður að mestu.
Mikill snjór hafði safnast saman
á veginum í Bakkaselsbrekkunni.
Snjóskafl, rúmlega tveggja metra
hár, var á miðjum veginum en veg-
rið er á þessum kafla og safnast
snjórinn saman undan því. „Við
lentum í nokkrum vandræðum
þama, við komumst ekki á bílunum
milli skaflsins og vegriðsins, það
var of mjór kafli og þá var heldur
ekki hægt að komast yfir skaflinn
þó við værum á vel útbúnum bíl-
um,“ sagði Örn, en gripið var til
þess ráðs að aka utan vegar, á
gömlu vegstæði ofan Bakkasels-
brekkunnar þar sem því varð við
komið en einnig þurftu björgunar-
FRIÐFINNUR Guðmundsson
í stjórnstöð Hjálparsveitar
skáta á Akureyri. Þaðan var
aðgerðum stjórnað.
sveitarmenn að bijóta sér leið
gegnum skaflinn að hluta.
Gangandi síðasta spölinn
„Það tók mikinn tíma að komast
þennan síðasta spotta að fólkinu,"
sagði Örn en hjálþarsveitarmenn
komust ekki alla leið akandi, þeir
gengu síðasta spölinn og fylgdu
fólkinu niður brekkuna eftir vegrið-
inu að bílum sínum. Allir komust
klakklaust í jeppa skátanna en
veðrið var afar slæmt á Öxnadals-
heiðinni í gærdag. Fólkið lenti í
sömu vandræðum við að komast
niður af heiðinni og var ekið utan
vegar hluta leiðarinnar. Síðdegis
birti upp og sóttist ferðin til Akur-
eyrar eftir það vel og kom fólkið
þangað nokkru fyrir kl. 17 í gær-
dag.
Mjólkurkýr
í ökklasnjó
í fjósinu
F.yjafjarðarsveit. Morgunblaðið.
í EYJAFJARÐARSVEIT gerði
mikið hávaðarok af suðvestri að-
faranótt mánudags með miklu
kófi og skafrenningi því látlaus
snjókoma hafði verið á sunnudag.
Aðkoma var víða ófögur í úti-
húsum þar sem hurðir eða
gluggar höfðu spennst upp. Stóðu
þá mjólkurkýr í ökklasnjó með
kófið yfir sig. Bændur þurftu því
víða að hefja morgunverkin með
snjómokstri í fjósum og fjárhús-
um. Sumir bjuggú svo svo vel að
eiga sag sem þeir notuðu til að
þurrka upp bleytuna eftir þetta
áhlaup.
Gera má ráð fyrir að hluti
kúnna geldist um stundarsakir í
kjölfar þessarar ónotalegu
reynslu.
Utigönguhross voru afar fann-
barin og stórir snjókleprar hang-
andi utan á þeim. Margir stóð-
bændur eiga það mörg hross að
þeir koma ekki nema litlum hiuta
þeirra í hús.
Björgnnarsveitarmenn náðu í níu manns í Bakkaselsbrekku
Gengu síðasta spölinn
;-0-
á mögnuðu innkaupsverði.
. aðeins til janúarloká