Morgunblaðið - 17.01.1995, Side 18

Morgunblaðið - 17.01.1995, Side 18
18 ÞRIÐJUDAGUR 17. JANÚAR 1995 MORGUNBLAÐIÐ Veishieldhús Harðar ÞÓRSGÖTU 17 - SÍMI 623495 Sjáutn um: Arshátíðir —fermingarveislur — brúðkaup — þorrablót - afmœlisveislur — erfisdrykkjur og hvers kyns mannfagnaði. ® Heimsendingarþjónusta ^ Vistlegir veislusalir fyrir 20-250 manns Veislueldhús Harðar Þórsgötu 17 — sínii 623495 Klukkan 17:00 föstudaginn 20. janúar eru síðustu forvöð að panta auglýsingu í Símaskrá 1995. Forðist biðraðir og gangið frá auglýsingapöntunum tímanlega. ÚRVERINU Fiskverðsdeilan á Eskifirði SSÍ líklega í mál við Hólma hf. LÍÚ segir aðgerðir skipverja ólögmætar SJÓMANNASAMBAND íslands mun að líkindum höfða mál gegn útgerðarfélaginu Hólma hf. vegna fiskverðsdeilunnar á Eskifirði. Hólmgeir Jónsson hjá sambandinu segir að fiskverð eigi að vera frjálst sem þýði að seljendum og kaupend- um beri að koma sér saman um verðið. „í þessu tilviki er það því forkastanlegt að kaupandinn skuli ákveða einhliða hvað hann ætli að borga fyrir fiskinn. Þarna er því um samningsbrot að ræða því það segir skýrt að útgerðarmaður eigi að tryggja sjómönnum hæsta gangverð fyrir aflann og við lítum svo á að það sé ekki gert í þessu tilviki og því engin ástæða til ann- ars en að láta á það reyna.“ Báðir togararnir farnir út Allir úr áhöfn togarans Hólma- tinds mættu til skips á laugardags- kvöld en fýrr um daginn hafði Hólmanes látið í haf án tveggja skipverja. Áhafnirnar voru boðaðar til skips á grundvelli fiskverðstil- boðs útgerðarinnar frá 9. janúar síðastliðnum. Emil K. Thorarensen útgerðarstjóri hjá Hólma hf. segir að deilan hafi verið komin í óleys- anlegan hnút sem nauðsynlegt hafí verið að skera á og að hans mati var þorri skipverja ánægður með þessar lyktir. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem deilur af þessu tagi spretta upp á Eskifirði eftir að fiskverð var gefið frjálst. „Þetta hefur verið að ger- ast allsstaðar í kringum landið enda er hvergi nákvæmlega söma verð greidd fyrir aflann og þá vilja þeir sem fá lægra verð fyrir ein- hveijar tegundir bera sig saman við staði þar sem hærra verð er greitt fyrir sömu tegundir,“ segir Emil. Hann kveðst ekki muna hversu oft deilur sem þessi hafa komið upp eystra en segir að það hafi gerst alltof oft. Fellur undir ráðningasamninginn Emil segir að álit Landssam- bands íslenskra útvegsmanna sem óskað var eftir fyrir helgi hafi flýtt fyrir lausn deilunnar en sambandið lýsti því yfir í bréfi til Hraðfrysti- húss Eskifjarðar, dagsettu 13. jan- úar 1995, að vinnustöðvun skip- veija á Hólmatindi og Hólmanesi væri ólögmæt og varðaði skipveija skaðabótum. LIÚ rökstyður mál sitt meðal annars með þessum hætti: „Þrátt fyrir að aðilum sé fijálst að semja um nýtt fiskverð sín á milli og samningar útrunnir, þá veitir það hvorúgum rétt til að knýja fram nýjan samning um nýtt fiskverð með aðgerðum, nema þær séu lögmætar. Sú staðreynd liggur fyrir, sem er miður, að eng- ar reglur hafa verið settar milli hagsmunasamtaka þessara aðila, m.a. um það til hvaða aðgerða megi grípa til að knýja gagnaðila til samninga, sem viðkomandi er þóknanlegt." í álitinu kemur fram að fiskverð sé hluti af ráðningarkjörum skip- veija og teljist falla undir ráðning- arsamninginn en ekki kjarasamn- inginn og því hafi sjómenn þann eina möguleika að segja upp störf- um með löglégum fyrirvara séu þeir ekki sáttir við það fiskverð sem stendur til boða. Samkvæmt álitinu hafði útgerðin fullan rétt til að boða skipveija til skips og má því „með sanni segja að'skip- veijamir hafi í raun rift ráðningu sinni með þessum ólögmætu að- gerðum, sem hófustþann 2. janúar 1995, enda var þeim strax mót- mælt af hálfu útgerðar.“ 198. bindi ICES Marine Symposia series Ritg’erðir um þorsk- inn og veðurfarið 198 BINDI vísindaritsins ICES Marine Symposia series kom nýlega út á ensku. Rit þetta hefur um ára- bil verið gefið út af Alþjóðahafrann- sóknaráðinu og hefur hvert hefti að geyma erindi og niðurstöður ráðstefnu á ákveðnu sviði hafrann- sókna sem ráðið hefur staðið fyrir. í 198 bindinu birtast ritgerðir sem kynntar voru á ráðstefnu sem fjall- aði um þorsk og umhverfisbreyting- ar í Norður-Atlantshafi (Cod and Climate Change) og haldin var í Reykjavík í ágúst 1993. Ákvörðun um að halda ráðstefn- una var tekin á ársfundi Alþjóða- hafrannsóknaráðsins 1990 og síðan annaðist tíu manna nefnd sérfræð- inga frá Bandaríkjunum, Bretlandi, Færeyjum, Kanada, Þýskalandi og íslandi undirbúning hennar. Jakob Jakobsson var förseti ráðstefnunn- ar og er hann einnig ritstjóri þessa heftis ICES Marine Symposia seri- es, ásamt níu öðmm sérfræðingum á sviði haf- og fiskirannsókna. í ritinu koma fram allar helstu niðurstöður víðtækra rannsókna á þorskinum og stöðu hans í vistkerf- um Norður-Atlantshafsins. í frétta- tilkynningu frá Hafrannsókna- stofnuninni segir að ljóst sé að lang- tímabreytingar á umhverfisþáttum hafi haft mikil áhrif á vöxt og við- gang þorsksins. Þá hafi hörð sókn tæknivædds fiskiskipaflota valdið ofveiði á flestum helstu þorskstofn- um í Norður-Atlantshafi hin síðari ár. 61 grein um átta efni Ritið er 693 blaðsíður að stærð og þar er að fmna 61 grein um átta efni, sem era: Söguleg yfírlit um þorskstofna fyrr á öldum, þorskveið- ar og stofnstærðarbreytingar á hin- um ýmsu svæðum við Norður Atl- antshaf á 20. öldinni, hafeðlisfræði- legir ferlar í Norður Atlantshafi, lík- ön af hafeðlis- og líffræðilegum ferl- um sem áhrif kunna að hafa á við- fang þorsks í Norður-Atlantshafi, Iíffræði hinna ýmsu þorskstofna, líf- eðlisfræði og erfðafræði þorsks, staða þorsks í vistkerfinu og rann- sóknir á þorski í tilraunastöðvum. Þá eru í ritinu níu ritgerðir um stofnstærð, líffræði, fæðu og um- hverfi þorsks við ísland sem ritaðar eru af sérfræðingum Hafrann- sóknastofnunarinnar. Meðal annars ritay Jón Jónsson um þorskveiðar við Ísland á árunum 1600-1900, Sigfús Schopka um áhrif umhverfis og veiða á stofnstærð þorsks á 20. öldinni og Ólafur K. Pálsson um fæðu þorskstofna við Norður-Atl- antshaf. Ritið fæst hjá Hafrannsókna- stofnun en einnig er hægt að panta það frá skrifstofu Alþjóðahafrann- sóknaráðsins í Kaupmannahöfn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.