Morgunblaðið - 17.01.1995, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 17. JANÚAR 1995 19
FRÉTTIR: EVRÓPA
Framkvæmda-
stjómiii ræðir
gagnrýni þingsins
Brussel. Reuter.
JACQUES Santer, forseti fram-
kvæmdastjórnar ESB, boðaði í gær
verðandi framkvæmdastjórn til
aukafundar, vegna gagnrýni Evr-
ópuþingsins á hana. Eftir yfir-
heyrslur yfir tilnefndum fram-
kvæmdastjórnarmeðlimum komust
Evrópuþingmenn að þeirri niður-
stöðu að fimm af tuttugu væru
vart hæfir í starfið. Þeirra á meðal
eru allir fulltrúar Norðurlandanna.
Evrópuþingið greiðir atkvæði um
nýju framkvæmdastjórnina á morg-
un. Það getur ekki hafnað einstaka
fulltrúum í henni heldur verður að
samþykkja eða hafna fram-
kvæmdastjórninni i heild.
Ef Santer neitar að gera þær
breytingar sem þingið fer fram á
er talin hætta á að framkvæmda-
stjórninni verði hafnað, sem myndi
valda upplausn innan ESB. Ef hann
aftur á móti lætur undan þrýstingi
þingsins gæti hann virst veikur og
áhrifalaus.
Samstarfsnefndir þings og
framkvæmdastj órnar?
Sérfræðingar telja líkiegt að
Santer muni því reyna að semja við
þingið um að það fái að fylgjast
náið með störfum framkvæmda-
stjórnarinnar og jafnvel að stofnað-
ar verði samstarfsnefndir á ákveðn-
um sviðum. Þá muni hann reyna
að sannfæra þingmenn um að nýju
fulltrúarnir muni reynast starfi sínu
vaxnir, þegar upp er staðið.
Reuter
Fj ármálaráðherrar
ræða atvinnuleysi
FJÁRMÁLARÁÐHERRAR aðildarríkja ESB funduðu í gær og
voru atvinnumál efst á baugi. Frakkar, sem nú fara með for-
mennsku ráðherraráðsins, hafa gert baráttuna gegn atvinnu-
leysi að helsta stefnumálinu og var fátt annað rætt á fundin-
um. Ráðherrarnir gerðu lítið úr þeim vanda, sem spænski peset-
inn og portúgíski escúdóinn hafa átt við að stríða á gjaldeyris-
mörkuðum síðustu daga, og sögðu málið vart hafa verið rætt
á fundinum. Ekki væri nein hætta á nýrri kreppu evrópska
gengissamstarfsins. Fjármálaráðherra Spánar sagði Spánverja
staðráðna í að standa við skuldbindingar sínar og Henning
Christophersen, sem fer með efnahagsmál í framkvæmdasljórn-
inni, sagði bætt efnahagsástand í heiminum auðvelda öllum
ríkjum auðvelda að bæta stöðu ríkisfjármála. Hér ræða þeir
Iiro Viiranen frá Finnlandi og Þjóðverjinn Theo Waigel málin.
Pólveijar
stefna enn
á ESB og
NATO
• WALDEMAR Pawlak, for-
sætisráðherra Póllands, ítrekaði
um helgina þá stefnu stjórnar
sinnar að koma Póllandi eins
fljótt og auðið væri í hóp aðild-
arrikja Evrópusambandsins og
Atlantshafsbandalagsins. Pawl-
ak var að svara gagnrýni
Andrzej Olechowski, fyrrver-
andi utanríkisráðherra, sem
sagði af sér á föstudag. Olec-
howski hafði sagt að vegna
deilna innan stjórnarinnar væri
ekki unnið nógu hratt að aðild
Pólverja að þessum vestrænu
samtökum.
• EUROPOL, evrópska lög-
reglustofnunin, ætlar að setja á
fót gagnabanka með upplýsing-
um um sakaskrár i öllum Evr-
ópusambandsríkjunum. Samtök,
sem kenna sig við vernd borg-
aralegra réttinda, hafa látið í
ljós áhyggjur af þessum áform-
um og telja friðhelgi einkalífs í
hættu.
• FRAMKVÆMDASTJÓRN
ESB hefur gefið út skýrslu, þar
sem því er spáð að eftir 25 ár
muni Evrópusambandið þurfa
að flytja inn 70% af þeirri orku,
sem aðildarríkin nota, í stað 20%
nú.
• FORSETI sjálfstjórnar-
svæðisins Galisíu á Spáni fer
síðar í vikunni til Brussel og
mun leggja fyrir framkvæmda-
stjórnina tillögur um það hvern-
ig útfæra megi „nálægðarregl-
una“ (subsidiarity) við stjórn
héraðsins. Héraðsstjórnir víða
um Evrópu hafa bundið vonir
við nálægðarregluna, sem skráð
er i Maastricht-sáttmálann og
kveður á um að ákvarðanir skuli
taka á sem lægstu stjórnstigi.
Ríkissljórnir flestra ESB-ríkja
lita aftur á móti á hana sem
reglu um valdskiptingu milli
miðstjórnar Evrópusambands-
ins og aðildarríkjanna.
UTSALA
-fierra-
GARÐURINN
Kringlunni
Sértilboð á helgarferðum
Vei 2-F,'U)0 kt. a mann i tvsbyii * tvær uætur L Ú X U S
MffSAS
Vei 20.000 kf.
á maun > unby' fjorar nætur AMSTERDAM *****
Innifalið: Flug gisting og flugvallarskattar.
Hafðu samband við söluskrifstofur Flugleiða,
umboðsmenn um land allt, ferðaskrifstofurnar
eða í slma 690300
(svarað mánudaga til föstudaga kl. 8-19
og laugardaga kl. 8-16).
Fimm stjörnu lúxushótel á besta stað í miðbænum.
Frægustu söfnin og bestu verslunargöturnar
í göngufæri.
★ ★ ★ ★ ★
FLUGLEIDIR
Traustur t'slenskur ferðafélagi
l ífebrúar til i
Ainsterdam