Morgunblaðið - 17.01.1995, Blaðsíða 22
22 ÞRIÐJUDAGUR 17. JANÚAR 1995
ERLENT
Fjórar milljón-
ir á messu páfa
Skemmti hundruðum þúsunda ung-
linga á bænafundi á laugardagskvöld
Manila. Reuter, The Daily Telegraph.
íhalds-
menn
í fjar-
kröggum
BRESKI íhaldsflokkurinn,
sem á í fjárhagserfiðleikum,
varð fyrir nokkru áfalli í gær
þegar stórfyrirtækið United
Biscuits tilkynnti, að það hefði
hætt stuðningi sínum við hann
og hefði ekkert látið af hendi
rakna á síðasta ári. 1993
studdi það flokkinn með rúm-
lega fjórum miiljónum kr. en
næstum 18 millj. 1992. Yfir-
drátturinn á reikningum
íhaldsflokksins nemur nú
nærri 1,6 milljörðum kr.
Verkamannaflokkurinn vill
setja lög, sem gerðu skylt að
skýra frá framlögum til stjórn-
málaflokka, og setja takmörk
við fjárútlátum í kosningum.
Kvennalisti í
Þýskalandi
HÓPUR þýskra kvenna
hyggst stofna sérstakan
stjómmálaflokk fyrir konur í
júní í sumar. Verður megin-
markmið hans að auka áhrif
kvenna í landsmálum en kon-
urnar segja, að nú séu flokk-
amir allir í höndum karla og
konur fái því aðeins tækifæri,
að þær séu körlunum þægar.
Verður flokknum gefið nafnið
Femínistaflokkurinn — kon-
urnar.
Breytingar
hjá The Fin-
ancial Times
TALSMENN breska dagblaðs-
ins The Financial Times sögðu
í gær, að alþjóðleg útgáfa þess
yrði endurskipulögð til þess
að auka söluna. Verður efnið
miðað meira við lesendur er-
lendis en gert hefur verið og
laugardags- og mánudagsút-
gáfan verður alþjóðleg en hún
hefur verið sú sama og í Bret-
landi.
JOHANNES Páll páfi kom til
Papúa Nýju Guineu í gær eftir vel
heppnaða heimsókn til Filippseyja,
þar sem metfjöldi, fjórar milljónir
manna, kom saman á sunnudag til
að hlýða á messu hans.
Embættismenn Páfagarðs sögðu
þetta fjölmennustu messu páfa,
jafnvel fjölmennari en þegar hann
heimsótti heimaland sitt, Pólland,
í fyrsta sinn sem páfi árið 1979.
Messan var í Rizal-garði í miðju
Manila og allir vegir að garðinum
voru svo fullir af fólki að hætt var
við áform um að aka páfa í bifreið
í garðinn. Fólk stóð upp á bílum
og umferðarljósum í von um að sjá
páfa í bifreiðinni. Hann var þess í
stað fluttur með þyrlu á hátt svið
í garðinum.
Tugir manna hnigu í ómegin í
mannhafinu og rútur, sem fluttu
klerka og biskupa í garðinn, stöðv-
uðust. Biskupunum tókst þó að
mjaka sér að sætum sínum á svið-
BÚIST er við að Lamberto Dini,
sem útnefndur var forsætisráð-
herra Ítalíu í síðustu viku, muni
kynna ríkisstjórn sína í dag. Dini,
sem gegndi embætti fjárlagaráð-
herra, var beðinn um að láta hend-
ur standa frammi úr ermum til
að binda endir á rúmlega tuttugu
daga stjórnarkreppu, sem hófst
er Silvio Berlusconi, forsætisráð-
herra Ítalíu, sagði af sér.
Erfitt verkefni
Talið er að Dini muni skipa
óflokksbundna sérfræðinga til að
skipa svokallaða griðastjóm.
Hennar bíða erfið verkefni. Stjórn-
in verður að taka í gegn lífeyris-
sjóðakerfið sem rambar á barmi
inu með því ganga í röð að sviðinu
og halda í skikkjur hvers annars.
Þúsundir manna höfðu tjaldað í
garðinum í nokkra daga til að geta
séð páfa sem best.
Páfi var augljóslega í sjöunda
himni yfir móttökunum á Filipps-
eyjum þótt hann virtist stundum
þreyttur. Hann skemmti jafnvel
hundruðum þúsunda ungmenna á
bænafundi á laugardagskvöld með
því að sveifla göngustaf sínum eins
og Charles Chaplin.
Ávarp til Kína
Páfi átti fund með filippeyskum
biskupum og vék þar að deilu þeirra
við stjórn Fidels Ramos um þá
stefnu hennar að beita sér fyrir
aukinni notkun getnaðarvarna til
að draga úr barnsfæðingum. Hann
sagði að þeir mættu hvergi hvika
í andstöðunni við „aðgerðir sem á
einhvern hátt er ætlað að stuðla
að fóstureyðingum, ófijósemi og
gjaldþrots. Hún verður að koma
saman fjárlagafrumvarpi sem
dregur úr fjárlagahallanum um
3300 milljarða kr. í stað 2100
milljarða kr. Ennfremur verður ný
stjórn að láta gera breytingar á
kosningareglum í sveitarstjórnar-
kosningum og að veita öllum
flokkum jafnan aðgang að sjón-
varpi.
15-20 í stjórn
Búist er við að 15-20 manns
verði í stjórn Dinis en ráðherrar
Berlusconis voru 31. Antonio di
Pietro, fyrrum rannsóknardómari
í Mílanó, mun ekki eiga sæti í ríkis-
stjórn Dinis.
Búist við stjórn óflokks-
bundinna sérfræðinga
Róm. Reuter.
Utsalan
hefst
kl 8.00
Kringlunni
sími 33300
MORGUNBLAÐIÐ
Reuter
JÖHANNES Páll páfi á leið frá flugvellinum til Port Moresby,
höfuðborgar Papúa Nýju Guineu. Tugþúsundir þorpsbúa söfnuð-
ust saman á veginum til að fagna komu páfa.
einnig getnaðarvörnum".
Sendinefnd frá kaþólsku kirkj-
unni í Kína tók í fyrsta sinn þátt
í bænafundi með páfa og var það
álitið til marks um batnandi sam-
skipti Páfagarðs við kaþólsku kirkj-
una í Kína, sem hlýðir kínversku
stjórninni en viðurkennir ekki
æðsta vald Páfagarðs. Páfi flutti
útvarpsávarp til kínverskra kaþó-
likka á laugardag þar sem hann
sagði að þeir yrðu að viðurkenna
vald Páfagarðs til að geta talist
raunverulegir kaþólikkar.
Kínverska sendiráðið í Manila
sagði í gær að ekki kæmi til greina
að hefja viðræður um formleg
tengsl við Páfagarð nema hann rifti
sambandinu við Tævan.
Lögreglan í Papúa Nýju Guineu
hófu í gær viðamikla ieit að tveim-
ur mönnum frá íran sem grunaðir
eru um aðild að meintu samsæri
um að ráða Jóhannes Pál páfa af
dögum. Tveir menn voru handtekn-
ir í Manila áður en páfí hélt þaðan
og sakaðir um aðild að múslimskum
öfgahópi sem hygðist myrða hann.
Karl miður sín
vegna svika
einkaþjónsins
Sakaður um
framhjáhald und-
ir berum himni
Lundúnum. Reuter, The Daily Telegraph.
KARL Bretaprins er miður sín
eftir að einkaþjónn hans sveik
hann og skýrði frá meintum
leyndarmálum um samband
hans við hjákonu hans, Camillu
Parker Bowles, að sögn breskra
dagblaða í gær.
Ken Stronach, sem hafði verið
einkaþjónn prinsins í 15 ár, var
vikið frá á sunnudag en hann
heldur launum sínum meðan
blaðafulltrúi prinsins rannsakar
frétt sem birt var í dagblaðinu
IVews of the World á sunnudag.
Þar var haft eftir Stronach að
hann hefði þurft að þvo moldug
náttföt Karls eftir að prinsinn
hefði laumast út úr sveitasetri
sínu að næturlagi til að liggja
hjákonu sína undir berum himni
meðan kona hans, Díana prins-
essa, svaf í húsinu.
„Hann er augljóslega særður.
Hann hefði aldrei trúað því að
Ken, af öllum mönnum, myndi
gera þetta,“ hafði dagblaðið
Daily Mirror eftir embættis-
manni í Buckingham-höll. „Þeg-
ar Karl bannaði honum að koma
í Balmoral-kastala mun hann
hafa verið miður sín eftir að
hafa komist að því að helsti
einkaþjónn hans hafi gerst svik-
ari,“ sagði Daily Express.
News of the World hafði eftir
Stronach að þegar Díana hefði
ekki verið á sveitasetrinu hefði
Camilla laumast inn í svefnher-
bergi hans úr gestaherberginu.
„Okkur var sagt að koma fram
við hana sem húsfreyjuna. Það
var eins og prinsessan væri ekki
til,“ var haft eftir einkaþjónin-
um.
The Sun birti í gær frétt um
nýja útgáfu af bókinni „Camilla,
hjákona konungsins" þar sem
fjallað er um „næturheimsóknir
Karls í himinsæng Camillu".
Samkvæmt fréttinni hittust Karl
og Camilla reglulega í sveita-
setri hennar. Karl hefði laumast
inn til hennar að næturlagi,
nokkrum mínútum eftir að eig-
inmaðurinn hefði haldið að
heiman til Lundúna. „Karl var
þekktur sem „Myrkrahöfðing-
inn“ vegna þess að hann kom
aldrei að degi til,“ sagði blaðið.
Karli hafnað
í tveimur skoðanakönnunum,
sem birtar voru um helgina,
kemur fram mikil andstaða með-
al Breta við þá hugmynd að
Karl kvænist Camillu, sem til-
kynnti nýlega að hún og eigin-
maður hennar hygðust skilja.
í könnun Sunday Express
sögðust aðeins 22% aðspurfðra
geta sætt sig við Camillu sem
drottningu. 54% aðspurðra sögð-
ust vilja að Vilhjálmur prins, 12
ára sonur Karls og Díönu, yrði
næsti konungur ef hann næði
18 ára aldri áður en Elísabet
drotning fellur frá. 42% vildu
Karl sem næsta konung. Meiri-
hluti aðspurðra var einnig þeirr-
ar skoðunar að Anna prinsessa,
systir Karls, væri betri kostur
sem ríkisarfi.
Samkvæmt könnun The
Sunday Times eru 47% Breta
andvíg því að Karl verði krýndur
konungur ef hann kvænist Cam-
illu.
Könnun um framtíð
konungdæmisins
Embættismenn Buckingham-
hallar hafa óskað eftir áliti opin-
berra fulltrúa drottningar í
hverri sýslu á stöðu og framtíð
konungdæmisins í kjölfar deil-
unnar um framlijáhald Karls og
skilnaðar hans við Díönu. Emb-
ættismennirnir leggja áherslu á
að þetta sé óformleg könnun, en
hún þykir samt sem áður endur-
spegla áhyggjur þeirra af ímynd
konungsfjölskyldunnar frá því
Karl skýrði frá því í sjónvarps-
viðtali að hann hefði haldið
framhjá konu sinni.