Morgunblaðið - 17.01.1995, Síða 37
• MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 17. JANÚAR 1995 37
MIIMIMINGAR
þá blómgast enn, og blómgast ævinlega,
þitt bjarta vor í hugum vina þinna.
Sem sjálfur Drottinn mildum lófum lyki
um lífsins perlu í gullnu aupabliki.
Katrín, Jóhanna og Elínborg.
Nú þegar nýja árið gekk í garð,
lauk Mjöllin okkar baráttu sinni við
erfiðan sjúkdóm.
Við sem höfum verið henni sam-
ferða í hartnær 40 ár, höfum svo
margs að minnast. Árin okkar þegar
börnin voru ung og við fórum saman
í útilegur, oft með lélegan búnað eins
og títt var í þá daga. Við minnumst
daganna okkar á Þingvöllum, Laug-
arvatni og ótal fleiri stöðum. Með
árunum urðu ferðimar æ fleiri, utan-
lands og innan, og ætíð jafn ánægju-
legar. En bestu stundir okkar saman
eru eflaust árin í Kjósinni. Það verð-
ur erfitt að sitja við gluggann og sjá
ekki litlu konuna okkar trítla yfir
brána sína, ýmist að huga að blómun-
um eða bamabömunum, sem sóttu
til hennar og hún naut að fá í heim-
sókn. Eða kannske að koma eftir fjör-
unni til að fá tíu dropa og spjall.
Síðasta kveðjan frá henni og
Ragnari voru rósir sem þau sendu
okkur á nýárdag og við náðum að
þakka kvöldið áður en hún kvaddi.
Nú þegar Mjöll er horfin okkur,
hugsum við til hennar sem dýrmæts
vinar er færði ætíð gleði og hjálp-
semi.
„Skoðaðu hug þinn vel, þegar þú
er glaður, og þú munt sjá, að aðeins
það, sem valdið hefur hryggð þinni,
gerir þig glaðan. Þegar þú ert sorg-
mæddur, skoðaðu þá aftur huga
þinn, og þú munt sjá að þú grætur
vegna þess, sem var gleði þín.“ (Ka-
hlil Gibran)
Megi Mjöll hvíla í friði, blessuð
sé minning hennar.
Við vottum Ragnari, börnunum
og fjölskyldum þeirra okkar innileg-
ustu samúð.
Hrafnhildur og Gunnar.
Nú þjáist Mjöll ekki lengur, en við
sem þekktum hana emm full af sökn-
uði. Mjöll giftist föðurbróður mínum,
Ragnari Jóhannessyni, þegar ég var
lítil stelpa. Hún minntist oft á okkur
fyrstu kynni, þar sem ég hafði horft
á hana og sagt: „Þú ert svo falleg."
Og í mínum augum hefur Mjöll alltaf
verið ein fallegasta manneskja sem
ég hef þekkt. Ég hef oft sagt um
hana að hún væri ein af þessum fáu
mannverum sem virtust ekki einu
sinni hugsa ljótt. Þolinmæði, hlýtt
viðmót og falleg orð til allra voru
hennar einkenni. Ég hef verið búsett
í Bandaríkjunum í yfir 17 ár, og þau
eru ófá bréfín frá Mjöll sem hafa
yljað mér um hjartarætumar í gegn-
um árin, góðmennskan og hlýheitin
skinu í gegnum orðin. Hún sendi mér
fjögurra blaðsíðna bréf núna fyrir
jólin, með sömu umhyggju fyrir mér
og áður, þar sem hún var helsjúk og
notaði líklega þess dags kraft til að
skrifa mér. Móðir mín Sigríður Guð-
mundsdóttir, sem lézt um aldur fram
fyrir rúmum 14 árum, og Mjöll vom
svilkonur og vinkonur og mér þykir
vænt um hvað ég fékk að njóta hlýju
Mjallar eftir að móðir mín lézt. í síð-
asta bréfinu sagði Mjöll mér að hún
og Raggi og vinafólk þeirra ætluðu
að koma til Flórída 16. janúar og var
ég farin að hlakka til að fá þau í
heimsókn. Þegar Raggi frændi
hringdi í mig að kveldi 4. janúar,
sagði ég: „Eruð þig nú á leiðinni?"
En hann tjáði mér að það yrði ekki
því Mjöll hefði dáið þann dag.
Raggi og Mjöll voru einstaklega
samrýnd hjón, þau unnu á sama
vinnustað og nutu þess að ferðast
saman innanlands og utan. Síðasta
ár Mjallar var hún mikið veik, en
Raggi og börnin þeirra önnuðust
hana af ást og umhyggju. Ég votta
þeim öllum mína dýpstu samúð í
söknuði þeirra og veit að minningin
um þessa yndislegu konu lifir áfram
með okkur sem nutum návistar
hennar. Guð blessi minningu þína,
Mjöll mín.
Jóna Ingvadóttir Ferrante.
Flcirí mimingargreinar um
Mjöll Bergþóru Sigurðardóttur
bíða bii-tingar og nnmu birtast
næstu daga.
t
Útför elskulegrar systur okkar, mágkonu og fraenku,
SIGRÚNAR STURLAUGSDÓTTUR,
Ásvallagötu 39,
Reykjavfk,
fór fram í kyrrþey að hennar ósk þann 10. janúar sl.
Þökkum innilega samúð og hlýhug.
Sigríður L. Kester, Hjördís Sturlaugsdóttir,
Ása Sturlaugsdóttir, Edda Sturlaugsdóttir,
Anna S. Ackerman, Sigríður Ólafsdóttir
og systkinabörn.
t
Hjartkær móðir okkar og tengdamóðir,
JÓHANNA EINARSDÓTTIR LÖVDAHL,
verður jarðsungin frá Fossvogskikju miðvikudaginn 18. janúar
kl. 13.30.
Þeim, sem vildu minnast hinnar látnu, er bent á líknarstofnanir.
Fyrir hönd fjölskyldunnar,
Einar Lövdahl, Inga Dóra Gústafsdóttir,
Karen Lövdahl, Þórður Júlíusson,
Bergþóra Lövdahl, Einar Eyjólfsson.
t
Elskulegur eiginmaður minn,
EINAR VAGN BÆRINGSSON
pípulagningameistari,
Miðbraut 19,
Seltjarnarnesi,
sem lést 11. janúar sl., verður jarðsung-
inn frá Fossvogskirkju á morgun, mið-
vikudaginn 18. janúar, kl. 15.00.
Blóm vinsamlegast afþökkuð, en þeim,
sem vilja minnast hans, er bent á líknar-
stofnanir.
Fyrir hönd barna okkar og annarra vandamanna,
Ásta Árnadóttir.
t
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar,
dóttir og tengdamóðir,
BJÖRK THOMSEN
kerfisfræðingur,
Tunguvegi 20,
sem lést þann 6. janúar sl., verður jarð-
sungin frá Bústaðakirkju fimmtudaginn
19. janúar kl. 13.30.
Auðun Sæmundsson,
Arndís Hulda Auðunsdóttir,
Dögg Baldursdóttir,
Laufey Sigurðardóttir,
Bragi Björnsson.
t
Móðir mín, tengdamóðir, systir, amma
og langamma,
GUÐNÝ MAGNÚSDÓTTIR,
Háaleitisbraut 153,
Reykjavík,
verður jarðsungin frá Langholtskirkju
fimmtudaginn 19. janúar kl. 15.00.
Þeim, sem vildu minnast hennar, er
vinsamlega bent á Orgelsjóð
Langholtskirkju.
Guðmundur M. Jónsson, Jakobína Þ. Pálmadóttir,
Valgerður H. Magnúsdóttir, Guðrún Magnúsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Þökkum af alhug öllum þeim, sem
sýndu okkur samúð og hlýhug við and-
lát og útför móður okkar, tengdamóð-
ur, ömmu og langömmu,
MARGRÉTAR TÓMASDÓTTUR
frá Litlu-Heiði.
Erla Pálsdóttir,
Kjartan Pálsson,
Sigurbjörg Pálsdóttir,
Elsa Pálsdóttir,
Tómas Jens Pálsson,
Áslaug Pálsdóttir,
Guðlaug I. Pálsdóttir,
Páll Rúnar Pálsson,
Jón Sveinsson,
Ingibjörg l'varsdóttir,
Einar Kjartansson,
Jakob Ólafsson,
Steinunn Þorbergsdóttir,
Brynjólfur Gfslason,
Vigfús Þ. Guðmundsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
SIGURLAUG SVEINSDÓTTIR,
Hrafnistu, Hafnarfirði,
áður til heimilis í Krókatúni 15,
Akranesi,
er lést 10. janúar, verður jarðsungin frá
Akraneskirkju fimmtudaginn 19. janúar
kl. 14.00.
Rútuferð verður frá BSI’ kl. 11.45.
Helgi Jónsson, Björg Karlsdóttir,
Sveinn Jónsson, Maria Ólafsdóttir,
Guðrún Jónsdóttir, Vilhjálmur Þór Guðmundsson,
Rósa Jónsdóttir, Óskar Þórðarson,
barnábörn og barnabarnabarn.
t
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
INGUNN EIRÍKSDÓTTIR,
Hrafnistu,
Hafnarfirði,
áður Engihlíð 12,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 19. janúar
kl. 13.30.
Svanhildur Ólafsdóttir, Haraldur Jónasson,
Guðrún Ólafsdóttir,
Guðmundur Jóhann Ólafsson, Brynja Pétursdóttir,
barnabörn dg barnabarnabörn.
t
Hjartans þakkir fyrir kveðjur, samúð,
vinarhug og ómetanlega aðstoð vegna
fráfalls ástkærs eiginmanns míns,
REIMARS ÁGÚSTS
STEFÁNSSONAR
leigubifreiðastjóra,
Hörðalandi 12,
Reykjavík.
Guð blessi ykkur öll.
Oddný Guðnadóttir.
t
Þökkum innilega vinarhug og samúð við
andlát og útför
KRISTÍNAR D.
THORARENSEN.
Erla E. Thorarensen, Ólafur Sveinsson,
Jónína G. Thorarensen, Gunnar Pálsson,
Benedikt Thorarensen, Guðbjörg M. Thorarensen,
Bryndís G. Thorarensen,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Hugheilar þakkir til ykkar allra, sem
sýndu okkur samúð og vinarhug við
aldlát og útför ástkærrar móður okkar,
fósturmóður, tengdamóður, ömmu,
langömmu og langalangömmu,
GUÐMUNDU J. BÆRINGSDÓTTUR,
Austurgötu 36,
Hafnarfirði.
Sérstakar þakkir til starfsfólks, lækna
og hjúkrunarfólks á annarri hæð Sól-
vangs, Hafnarfirði, fyrir góða og kærleiksríka umönnun í veikind-
um hennar.
Marinó Sigurðsson, Jóhanna Jensdóttir,
Baldur Sigurðsson, Sigriður Ingvarsdóttir,
Guðrún Sigurðardóttir, Böðvar Daníelsson,
Kristin Sigurðardóttir, Hergeir á Myrini,
Ragnheiður Jónsdóttir, Þorvaidur Örn Árnason,
Kristrún Þorsteinsdóttir, Yngvi Harðarson,
Gréta Jónsdóttir, Hulda Jónsdóttir,
barnabörn, barnabarnabörn
og barnabarnabarnabarn.
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og
útför
HERMANNS JÓNSSONAR,
Amtmannsstfg 4.
Fyrir hönd aðstandenda,
GuðnýTh. Guðnadóttir.