Morgunblaðið - 17.01.1995, Qupperneq 42
42 ÞRIÐJUDAGUR 17. JANÚAR 1995
MORGUNBLAÐIÐ
Dýraglens
Smáfólk
IT's 60INS TO 0E COL0 T0NI6HT
50 MAVBE y’OU'P 8ETTER COME
ANP SLEEP INSIPE..
Það verður kalt í nótt, svo það
er eins gott fyrir þig að koma
og sofa innandyra..
Við hvern ertu að tala?
BREF
TIL BLAÐSEMS
Kringlan 1103 Reykjavík • Sími 691100 • Símbréf 691329
Þér veitist
innsýn
Frá Gunnari Kvaran:
EITT HIÐ allra eftirsóknarverð-
asta í lífinu að mínum dómi er
sálar- eða hugarró. Þetta ástand á
ekkert skylt við sljóleika, leti eða
athafnaleysi, því eðli lífsins er
hreyfing og sífelldar breytingar.
Til þess að nálgast þessa hugarró
þurfum við að hafa okkur öll við,
ekki síst í vestrænu nútíma þjóðfé-
lagi þar sem hraði og spenna eru
svo einkennandi. í þvílíkum hraða
og slíkri spennu er auðvelt að tapa
áttum, verða rótlaus, eirðarlaus,
spenntur og ráðvilltur. Eitt af því
sem róar hugann og getur þroskað
manneksjuna er lestur góðra bóka.
Þessu greinarkorni er ætlað að
vekja athygli lesanda á einni slíkri
bók. Hún heitir á íslensku „Þér
veitist innsýn“ í lögmál lífsins og
þýðingin var gerð úr ensku sem
ber titilinn „Unto thee I grant“.
Hér er á ferðinni mikil lífsspeki
um fjölbreytilegustu hliðar mann-
legs lífs. Talið er að Ammendhetop
IV. Faraó Egyptalands, öðru nafni
Akhnaton, sem var uppi fyrir
umþ.b. 3300 árum, hafi samið
þetta rit, en hann var mjög merki-
legur hugsuður og talinn höfundur
fyrstu eingyðistrúarbragða mann-
kynsins. Bókin er í tveim hlutum
sem skiptast í tólf bækur. Það
hefur ekki verið auðvelt verk að
þýða þessa bók yfir á íslensku.
Efnið allt er mjög vandmeðfarið
og framsetningin bæði háleit og
oft og tíðum skáldleg.
Islenski textinn kemur mjög vel
út og er greinilegt að þýðandinn
Sveinn Ólafsson hefur lagt í verk
sitt ómælda vinnu, smekkvísi og
vandvirkni. Bókin var fyrst gefin
út árið 1979 af Bókaútgáfunni
Þjóðsögu, en hefur nú verið endur-
útgefin af Bókaútgáfunni Hörpu á
Akranesi. Við lestur þessarar bók-
ar er maður sífellt minntur á
grundvallaratriði mannlegs lífs og
enda þótt stöku sinnum finnist
fyrir aldarhætti og sérstökum þjóð-
félagslegum aðstæðum höfundar,
sem ekki eiga við okkur þjóðfélags-
gerð, þá er þetta rit sígillt og stór-
merkilegt í sinni innblásnu leiðsögn
til fegurra og betra lífs.
Ég mæli sterklega með þessari
bók, sem þarf að lesa hægt og
íhuga gaumgæfilega
Þetta er bók sem hægt er að
nálgast aftur og aftur á ýmsum
æviskeiðum sér til uppbyggingar
og hvatningar.
GUNNARKVARAN,
sellóleikari.
Jólagjafir R-listans
til Reykvíkinga liggja
gegnum holræsin
Frá Sigrúnu Halldórsdóttur:
ÞAÐ VAR að vonum að R-listinn
sýndi sína réttu ásjónu. „Fátt er
’svo með öllu illt, að ekki boði nokk-
uð gott.“ Þarna er sýnt í hnot-
skum hvað koma skal. Hærri álög-
ur á borgarbúa. Það er eigi nokkur
von til þess, að þeir, sem sitja í
filabeinstumunum, og eru ekki í
nokkmm tengslum við hinn al-
menna borgara skilji þessa hluti.
Auknar álögur á þegna þessa lands
þ.e.a.s. þeirra er minnst mega sín.
Álögur á miðlungstekjur eru of
háar. Ráðstöfunartekjur of litlar.
Ungt fólk á ekki neinar fúlgur af
sparifé er það lýkur námi.
Það er varla mögulegt fyrir
þetta fólk að eignast íbúðir á frjáls-
um markaði. Það er njörvað niður
af skuldaklafanum, sem orsakaðist
af löngu háskólanámi. Það er
þrautalendingin að leita á náðir
hins félagslega kerfis. Það hefur
sína annmarka fyrir ungt fólk. Það
hefði átt að byggja upp öðruvísi
lánastofnanir, önnur lánsform sem
hentað hefði betur til kaupa á
fijálsum markaði. Það ætti að vera
keppikefli stjórnvalda á hveijum
tíma að búa sem best að æsku
þessa lands. Gera henni kleift að
feta sig áfram án íhlutunar. At-
vinnuleysisvofan er miklu nær, en
tölur og stöðluð súlurit gefa til
kynna. Lítil atvinnuauglýsing
leiddi til 100 hringinga. Það blæddi
mörgum manninum, að hafa ekk-
ert að starfa. Þetta er alvarlegt
ástand, sem verður að breyta.
Stjórnvöld verða að taka á þessum
málum með festu. Hér duga engin
vettlingatök! Hér þarf að huga
langt fram í tímann. Þetta er
ástand sem ekki er hægt að þola!
Vinnan er lífið, iðjuleysið er dauð-
inn. Nauðsynlegt er að hugsa um
þá, sem lægstu launin hafa. Þeirra
vandi er brýnastur.
Stjórnmálamönnum er hollt, að
hafa það í huga að þarna eru at-
kvæðin. Þau munu láta til sín taka
á kjördag. Stjórnmálaflokkar ættu
að huga að því að hér á landi
nægir tveggja flokka kerfi. Það
nægir þjóðum með milljónum íbúa.
Það er mál til komið að minnka
yfirbyggingu þessa lands. Sterkir
flokkar áorka miklu, dreifðir kraft-
ar litlu. Þjóðin er ekki lengur þö-
gull áhorfandi. Tímamir hafa
breyst og fólkið líka. Það heldur
um slagæð stjómmálanna.
SIGRÚN HALLDÓRSDÓTTIR,
Erluhólum 3, Reykjavík.
Allt efni sem birtist f Morgunblaðinu og Lesbók verður framvegis varðveitt í
upplýsingasafni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu það-
an, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu
efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.