Morgunblaðið - 31.01.1995, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 31. JANÚAR 1995 11
FRÉTTIR
Fundur norrænna forsætisráðherra í Kaupmannahðfn
FYRIRTÆKI OG
SAMNINGAR
Siðumúli 15 * Páll Bergsson - Sími 812262 • Fax 812539
Snjóflóða-
rannsóknir
styrktar
Kaupmannahöfn. Morgunblaðið.
DAVÍÐ Oddsson forsætisrðáherra
segist ekki óttast að norrænu sam-
vinnuna dagi uppi, meðan almennur
áhugi sé í löndunum til að halda
henni áfram. Tillaga Norðmanna um
snjóflóðarannsóknir sýni einnig í
verki þann samhug, sem ríki meðal
þeirra.
I samtali við Morgunblaðið sagði
Davíð Oddsson að varðandi hugsan-
legt áhugaleysi Svía og Finna gæti
hann ekki annað en trúað því sem
forsætisráðherrar þessara landa
hefðu sagt á fundinum. „Þeir undir-
strikuðu eindregið að þeir vildu halda
í norræna samvinnu og ég trúi því.
En þeir eru líka raunsæir, þegar
þeir segjast vera uppteknari nú en
áður. Samvinna landanna er þó ekki
aðeins bundin við Evrópumálin, held-
ur einnig á öðrum vettvangi, til
dæmis á vettvangi Sameinuðu þjóð-
anna. Fleiri skuldbindingar þrengja
eðlilega hið samnorræna svigrúm.
Með norrænni samvinnu vilja ESB-
löndin þrjú tryggja að Island og Nor-
egur hafi rýmri aðgang að ESB-
umræðum en aðrar þjóðir, sem
standa utan ESB. Formlega mun það
auðvelda að ávallt verði eitt ESB-land
í forsæti Norðurlandasamstarfsins.“
Davíð benti ennfremur á að tillaga
Norðmanna um að norrænu fé yrði
varið til snjóflóðarannsókna í kjölfar
snjóflóðanna á Súðavík segði meira
en niörg orð um þann samhug, sem
ríkti meðal þjóðanna. Allir hinir for-
sætisráðherrarnir samþykktu tillög-
una, sem felst í því að hrint verður
í framkvæmd norrænu rannsóknar-
verkefni um snjóflóð.
Línurnar lagðar fyrir
samstarf í framtíðinni
Útgáfufyrirtæki
Lítið en gamalt og rótgróið útgáfufyrirtæki er nú boðið
framtakssömum og traustum aðilum til kaups. Velta
fyrirtækisins og hagnaður er mjög háð framtaki og
dugnaði þess sem á og rekur. Fyrirtækið þarf skrifstofu-
aðstöðu og ca 30 fm lagerpláss. Verð fyrirtækisins með
lager og viðskiptavild er 6,9 millj. og til greina kemur
að lána það í nokkur ár gegn góðum tryggingum.
Upplýsingar aðeins veittar á skrifstofunni.
Samningar og fyrirtaekjasala í 10 ár - Fyrirtækjasalan Varsla.
Blab allra landsmanna!
ffHiptTigiVWXl)lltítjl- kjarni málsins!
eftir að þú hœttir að vinna?
Kaupmannahöfn. Morgunblaðið. *
UM LEIÐ og norrænu forsætisráð-
herrarnir undirstrikuðu að loknum
fundi sínum í Kaupmannahöfn á
sunnudag að fast yrði haldið við
norrænt samstarf liggur þó í loftinu
að fé til þess verði skorið niður.
Á blaðamannafundi eftir forsætis-
ráðherrafundinn kynnti Davíð Odds-
son forsætisráðherra niðurstöður
ráðherranna. Svíar hafa lagt til að
á þremur árum verði norrænu fjár-
lögin, sem hljóða upp á 706 milljón-
ir danskra króna, skorin niður árlega
um fimmtíu milljónir, samtals 150
milljónir. Hin Norðurlöndin fjögur
eru ekki ánægð með slíkan niður-
skurð, sem enn er óútkljáð mál, þó
langflestir reikni með einhverjum
niðurskurði.
Aðspurður undirstrikaði Ingvar
Carlsson að tillaga þeirra væri hluti
af allsheijar endurskoðun Svía á
fjármálum sínum, þar sem skorið
væri niður á öllum sviðum, jafnt
félagsmálum sem skuldbindingum
Svía erlendis. Norrænt samstarf
stæði ekki og félli með fjárframlög-
um, heldur með pólitískum vilja.
En norrænt samstarf á ekki að-
eins að verða einfaldara í sniðum
og ódýrara en áður heldur verða
svið þess afmörkuð, eins og reyndar
hefur verið gert undanfarin ár.
Löndin munu því áfram vinna náið
saman á sviði menningarmála, rann-
sókna, umhverfismála og hvað varð-
ar samvinnu við Eystrasaltslöndin,
Rússland og önnur nágrannasvæði.
Gro Harlem Brundtland, forsætis-
ráðherra Noregs, undirstrikaði að
þrátt fyrir að Noregur og ísland
stæðu utan ESB hefðu Norðurlöndin
fimm aldrei verið jafn samannjörvuð
og nú, þar sem öll væru þau hluti
hins opna evrópska markaðar. Sví-
þjóð, Danmörk og Finnland í krafti
ESB-aðildar og Island og Noregur
í krafti EES-samningsins.
Sveigjanleiki og markvissa
Tillögur þær sem Davíð Oddsson
kynnti fela meðal annars í sér að tvö
lönd í stað eins leiði Norðurlandasam-
starfið hveiju sinni. Með því að hafa
tvö lönd í forsæti verði tryggt að
annað landið verði eitt ESB-landanna
þriggja, þannig að alltaf verði hægt
að fylgjast með bæði á hinum nor-
ræna og evrópska vettvangi. Einnig
er Iagt til að Norðurlandaráðsþingið
verið haldið einu sinni á ári í stað
tveggja þinga nú, en auk þess verði
haldin þing um einstök efni, þegar
ástæða þyki til. Einnig er talað um
að slegið verði saman skrifstofum
Norrænu ráðherranefndarinnar í
Kaupmannahöfn og Norðurlandaráðs
í Stokkhólmi.
tyumt börnin þín halda þér uppi
eða sýnir þú þá fyrírhyggju að greiða
í lífeyrissjóð? Frjálsi lífeyrissjóður-
inn er lutgsaðurfyrir þá sem ekki eru
skyldaðir til að greiða
í hefðbundna lífeyris-
sjóði og þá sem gera
kröfu um hœrri lífeyri
en fœst úr tryggingakerfinu
og almennum lífeyrissjóðum.
Sjóðurinn er þín eign, þú rœður
iðgjaldinu og þú rœður hvernig
greiðslum úr sjóðnum er háttað.
Hafðu samband við okkur hjá
Skandia og fáðu sendan
bœkling ogforritsem
reiknar út þínar lífeyris-
greiðslur. Haltu vel á
þtnum lífeyrismálum og njóttu
lífsins með Ftjálsa lífeyrissjóðnum.
FRJALSI
LÍFEYRISSJÓÐURINN
- til aðnjóta Ufrim
■KANCHA • LAUOAVm 170 • BlMI B1 07 OO
J7 Skandia
HVER HELDUR
ÞÉR UPPI