Morgunblaðið - 31.01.1995, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 31.01.1995, Blaðsíða 18
18 ÞRIÐJUDAGUR 31. JANÚAR 1995 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT FLOÐ I EVROPU Um 100.000 manns hafa oröiö aö flýja heimili sín í noröanveröri Evrópu vegna fióöa, hinna mestu á þessari öld. Brugge:--- Öll skipaumferö bönnuö á síkjum II Dinant: 50 manns fluttir í burt og 250 manns úr Lesse- dalnum suöur af Namur. 6 hafa látiö lífið. ! Austurhluti Hollands: 85.000 manns hvattir til aö yfirgefa heimili sín. f Lobith þar sem Rín rennur yfir landamærin frá Þýskalandi var búist viö því aö yfirborð árinnar færi í 16,45 m yfir sjávarmáli í dag, þriðjudag. Charleville-Mezieres: Hættuástandi lýst yfir er yfirborö árinnar Meuse fór í sex metra yfir sjávarmáli. flEUTER Köln: Yfirborö Rínar fór í 10,64 metra yfir sjávarmáli. Gamli borgar- hlutinn á kafi og um 30.000 íbúar yfirgefa heimili sin. ÍBÚAR Beuel, sem er úthverfi í Bonn, urðu að sigla á milli húsa. Flóð aldarinnar í Þýska- landi og Frakklandi Flóðasvæði girt af til að hindra ránsferð- ir og „flóðaferðamenn“ flykkjast að FLÓÐ víðs vegar um Evrópu vaxa enn og í gær hækkaði vatnsyfir- borð Rínar meira í Köln en í „flóð- um aldarinnar" í desember 1993. Að minnsta kosti 30.000 íbúar í gamla borgarhlutanum urðu að yfírgefa heimili sín og umhverfis- ráðherra Nordrhein-Westphalen hvatti „flóðaferðamenn" til að halda sig heima, þar sem þeir tru- fluðu björgunarstörf. Þá urðu um 65.000 manns í Geldenland í Hol- landi að yfírgefa heimili sín en það er mesti fjöldi sem hefur orðið að gera slíkt þar í landi í 40 ár. í Frakklandi er talið að um 40.000 hús hafi skemmst í flóðunum. Veðurfræðingar spá áframhald- andi úrkomu. „Það hækkar enn í Rín og menn óttast að vatnsyfirborðið fari yfir 11 metra en allar öryggisráð- stafanir í Köln, þar sem ástandið er einna verst, eru miðaðar við að ekki hækki meira í Rín en sem því nemur,“ segir Sigþór Einars- son, fréttaritari Morgunblaðsins í Darmstadt. Er rætt var við hann í gær rigndi enn og hækkaði í Rín um 2-3 sm á klukkustund. Ráðstafanir þær sem gerðar eru er Rín flæðir yfir bakka sína fel- ast í því að hús á hættusvæði eru rýmd en það gerist á nokkurra ára fresti. Ekki hefur hins vegar verið gert ráð fyrir að vatnsyfírborðið hækki yfir 11 metra og því er nú unnið hörðum höndum að því að skipuleggja hvaða svæði verði að rýma, komi til þess, auk þess sem reistir eru vamarmúrar, að sögn Sigþórs. Hörmungatúrismi Það vakti athygli að hópur manna fagnaði í Köln um helgina er Rín flæddi yfír varnargarðana sem miðaðir eru við flóð upp að 10,20 metrum. „Þetta skiptist í tvennt. Þeir sem hafa nýlokið við að lagfæra hús sín eftir flóðin í desember 1993 og sjá þau nú hverfa undir vatn að nýju, eru gráti nær en sumum þeim, sem hafa allt sitt á þurru, finnst þetta hins vegar bráðskemmtilegt. Þetta er í raun nokkurs konar hörmun- gatúrismi, fólk flykkist til svæða þar sem náttúruhamfarir eða önn- ur óáran hefur dunið yfir.“ Meðal þeirra vandamála sem komið hafa upp á flóðasvæðunum eru rán og gripdeildir. íbúar á flóðasvæðum verða að yfirgefa hús sín, einnig þeir sem búa á efri hæðum húsa. Ástæðan er sú að ekkert rafmagn er á flóðasvæð- unum. íbúar eiga að skilja eftir opna glugga og dyr, færist flóðið í aukana og hafa óvandaðir menn siglt um og rænt öllu fémætu úr íbúðum manna. Lögreglan hefur nú girt af gamla borgarhlutann til að koma í veg fyrir þjófnað. Sigþór segir ástandið í Þýska- landi verst við Rín á milli Dussel- dorf og Kolblenz. Þá eru einnig mikil flóð í Mosel, skammt frá Trier. Lísa Kristjánsdóttir í Trier segir að enn sem komið er sé ekki talin hætta á flóðum í borginni vegna staðsetningar hennar en hækki mikið meira í ánni sé hins vegar voðinn vís. Ástandið í Hollandi, Belgíu og Frakklandi er einnig slæmt. Edou- ard Balladur, forsætisráðherra Frakklands, sagði að víða um land væri um flóð aldarinnar að ræða. Þau hefðu haft áhrif í um helm- ingi landsins. Vatnsflaumurinn í vesturhluta Frakklands hefur sjatnað eitthvað en aukist í austur- hlutanum. Yfirborð árinnar Meuse fór í sex metra í bænum Charle- ville-Mezieres í Ardenna-héraði. Um 5.000 manns hafa orðið að yfírgefa heimili sín og um 40.000 hús hafa eyðilagst í flóðunum. íslendingar ekki í vanda Guðni Bragason sendiráðsritari í íslenska sendiráðinu í Bonn segir flóðin vissulega hafa sett sitt mark á daglega lífíð. Flóðin hafi áhrif á daglegt líf, einhveijir verði að flýja heimili sín, skólum og fyrirtækjum hafí verið lokað, ekki síst hótelum og veitingahúsum við árbakka Rínar. íslenska sendiráðið stendur það ofarlega að ekki er talin hætta á að rýma þurfl það og sagðist Guðni ekki vita til þess að íslend- ingar hefðu þurft að flýja hús sín. Svissneska lögreglan til atlögu gegn fíkniefnasölum „Nálagarði“ í Ziirich senn lokað ZUrich. Reuter. LÖGREGLAN í Ziirich hyggst í febrúar gera gangskör að því að binda enda á viðskipti með fíkniefni sem farið hafa fram fyrir opnum tjöldum í „Nálagarði", Lettner- skemmtigarðinum í grennd við járnbrautarstöð borgar- innar. Liðsafli lögreglunnar hefur verið aukinn og bætt við 120 fangaklefum sem hýsa eiga sölumennina. Fyrir þrem árum var farin herferð gegn sölumennskunni en viðskiptin hófust fljótlega aftur á nýjum stöðum í borginni. Yfirvöld segja að ekki sé búist við því að hægt verði að uppræta fíkniefnaviðskiptin en markmiðið sé að losna við glæpafárið sem fylgir við- skiptunum. Fjöldi fólks sem býr nálægt sölustöðunum hefur undan- farna mánuði sagt fjölmiðlum frá því hvernig fíkniefnasalar hafa í hótunum við það og fí- klarnir krefja gangandi veg- farendur um peninga eða sprauta sig úti á götu. Fyrir skömmu var sagt frá hliðar- götum við járnbrautarstöðina, notaðar nálasprautur og blóð- ugir baðmullarhnoðrar, sem heróín-neytendur hafa notað, liggja eins og hráviði um allt svæðið. Frá Líbanon ogKosovo Að sögn lögreglu eru flestir sölumennirnir frá Líbanon og Kosovo, héraði í Serbíu sem aðallega er byggt Albönum. Þeir eru þegar byrjaðir að leita að nýjum stöðum í borg- inni fyrir starfsemi sína en hyggjast ekki stunda viðskipt- in á götuhornum fyrir allra augum. Snemma á níunda áratugn- um var það stefna borgaryfir- valda að sýna lempni og var það látið óátalið þótt fíknieefni væru seld í Lettner-garði sem er skammt frá fjármálahverf- inu. Þetta var harðlega gagn- rýnt, íbúar í hverfinu og ríkis- sijórnin voru þar fremst í flokki, en neytendur og sölu- menn frá mörgum Evrópu- löndum voru þá farnir að flykkjast til Ziirich. Var garðinum þá lokað fyrir þess- um viðskiptum en erfiðlega hefur gengið að bijóta þau á bak aftur. Fjöldi Frakka óákveðinn SEXTÍU og eitt prósent fran- skra kjósenda hefur ekki enn gert upp hug sinn vegna for- setakosninganna, sem fram fara í lok apríl. Könnunin var birt í blaðinu Info-Matin í gær en aldrei áður hefur jafnstór hópur kjósenda verið óákveð- inn svo skömmu fyrir kosning- ar. í aldurshópnum 18-24 ára voru 80% enn óákveðin. Fyrir síðustu forsetakosningar, árið 1988, höfðu 66% kjósenda gert upp hug sinn. Búast við jarðskjálfta RÚSSNESKIR vísindamenn telja miklar líkur á að mikill jarðskjálfti muni verða í Austurlöndum ijær einhvern tímann á tímabilinu febrúar til nóvember. Er búist við að hann verði af sama styrkleika og jarðskjálftinn í Kobe fyrr í mánuðinum. Fréttastofan Itar-Tass segja sérfræðinga rússneskra stjórnvalda telja 80% líkur á skjálftanum. Mestar líkur eru á að skjálft- inn verði á Kamtsjaka eða Kúríleyjum. Fyrir tíu dögum mældist jarðskjálfti á Kúrí- leyjum á milli fímm og sex á Richter-mælikvarðanum. Engar skemmdir urðu þó á mannvirkjum og engin slys á mönnum. Kasparov í flugmálin GARRÍ Kasparov, einn besti skákmaður heims, ætlar að setja á laggirnar ráðgjafar- fyrirtæki sem þjónusta mun þá aðila, er áhuga hafa á að fjárfesta í flugrekstri í Rúss- landi. Fyrirtækið verður með skrifstofur í London og Rúss- landi og ætlar Kasparov að leiðbeina útlendingum um frumskóg rússneskra flug- mála. Er flug „Megnið af mínum tíma fer enn í skákina en kaupsýsla og stjórnmál sækja sífellt á,“ segir Kasp- arov. Afskrifa skuldir RÚSSAR og Pólveijar hafa undirritað samkomulag um að afskrifa nær alveg gagn- kvæmar skuldir ríkjanna frá því. á kommúnistatímanum. Alls námu þær 2,5 milljörðum Bandaríkjadala. Gregorz Ko- lodko, fjármálaráðherra Pól- lands, skýrði frá þessu í gær. Fleiri hlusta á einkastöðvar FLEIRI Bretar hlustuðu á einkareknar útvarpsstöðvar á síðasta ársfjórðungi ársins 1994 en á ríkisútvarpið BBC. Alls hlýddu að meðaltali 49% Breta á einkareknar stöðvar en 48,6% á einhveija af stöðv- um BBC. Á sama tíma árið 1993 hlýddu 54,9% á BBC.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.