Morgunblaðið - 31.01.1995, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 31.01.1995, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 31. JANÚAR 1995 37 MINNINGAR GUÐMUNDUR BJÖRNSSON -4- Guðmundur Björnsson • fæddist í Þingeyjarsýslu 14. september 1899. Hann lést í Reykjavík 6. janúar síðastlið- inn og fór útför hans fram frá Lágafellskirkju í dag. ÆVISTARFI afa míns lokið. Það var langt ævistarf og mikilsvert. Hann var fæddur á seinustu öld og líklega kallast það að andast 95 ára að aldri að andast í hárri elli. Samt var einhvem veginn eins og afi væri aldrei neitt sérstaklega gamall þrát að árin hans væru mörg. Afi var hraustur og ótrúlega liðugur miðað við sín mörgu ár. Hann var með stálminni og hugs- unin var skýr allt undir það síð- asta. Það eru einungis nokkur ár síðan hann hætti að sækja vinnu daglega til Reykjavíkur frá Mos- fellsbæ. Næstum því heil öld er löng mannsævi og breytingarnar sem afi hefur upplifað eru gífurleg- ar, bæði á tækni og þjóðfélagi. Þegar hann fór til náms á Hvan- neyri í kringum tvítugsaldurinn gekk hann milli landshluta, frá Melrakkasléttu, þar sem hann ólst upp og til Hvanneyrar og þótti þetta svo sem ekkert stórafrek í þá daga. Nú er það einungis talið á færi afreksmanna að stunda slík- ar gönguferðir. Afi bar virðingu fyrir mannkost- um og gáfum manna en ekki ver- aldlegri auðæfasöfnun. Oft hef ég heyrt hann minnast fólks vegna mannkosta þess en aldrei vegna dugnaðar í lífsgæðakapphlaupinu. Sjálfur var hann mjög vel menntaður og sérstaklega vel að sér um hugðarefni sín. Þó að afí hafi gengið í framhaldsskóla á sín- um tíma held ég að mest af mennt- un sinni hafi hann aflað sér sjálfur án aðstoðar skóla eða kennara. Meðal annars í öllum bókunum hans var sá fróðleikur sem hann sóttist eftir og hann vissi nákvæm- lega hvar hvaða bók var í bókahill- unum og á hvaða blaðsíðum þeir kaflar voru sem honum þóttu áhugaverðir, þó að sjónin væri döpur síðustu árin. Það er gott að minnast hlýjunn- ar heima hjá afa, hlýja faðmlagsins og allra frásagnanna frá liðnum + Steinn Ágúst Baldursson fæddist í Reykjavík 25. október 1994. Hann lést á Landspítalanum 20. janúar síð- astliðinn og fór útför hans fram frá Stykkishólmskirkju 28. janúar. MIG LANGAR að minnast litla frænda míns með fáeinum orðum, með ósk um að góður Guð geymi hann. Hann staldraði ekki lengi við hér á jörð. Ég fékk þó að sjá hann og halda á honum stutta stund og þá stund geymi ég í hjarta mínu. tímum, sem nú er skylda þeirra sem eftir lifa af varðveita. Það er líka gott að muna eftir þeim tímum sem ég var í fóstri hjá ömmu og afa á Hraunteignum og möndlun- um tuttugu sem afi færði mér óvænt og voru mikil auðævi. Seinast þegar við mamma heim- sóttum afa í Mosfellsbæinn sýndi hann okkur mynd af ömmu í brúð- arkjólnum. Myndin hafði komið í leitimar nokkru áður og það var hlýja í augunum á afa þegar hann sagðist vera svo feginn því að myndin væri komin í leitimar því að hann hefði saknað hennar. Þetta fannst mér segja meira en mörg orð um þeirra. samband, en amma lést fyrir rúmum fjórum árum. Við mamma biðjum guð að varð- veita afa, með kærri þökk fyrir allt og sendum fjölskyldunni inni- legar samúðarkveðjur. Helga Sigríður Böðvarsdóttir. Elsku Gyða og Baldur, ég og fjöl- skylda mín hugsum til ykkar og biðjum góðan Guð að styrkja ykkur. Þei, þei og ró. Þögn breiðist yfir allt. Hnigin er sól í sjó. Sof þú í blíðri ró. Við höfum vakað nóg. Værðar þú njóta skalt. Þei, þei og ró. Þögn breiðist yfir allt. (Jón Magnússon) Með þessum fáu orðum kveð ég þig, elsku frændi. Katrín Baldvinsdóttir. STEINN ÁGÚST BALD URSSON yt't-i'rr’t'VSi ÍÍÍÉÉiSÍI Jjþ ' Í 1 iP’T-'W: m 1 | 1 Morgunblaðið/Amór SIGURSVEITIRNAR í parakeppninni, talið frá vinstri: Sigurður Sverrisson, Sverrir Ármannsson, Anna Þóra Jónsdóttir, Ragnar Hermannsson, Ljósbrá Baldursdóttir, Jón Ingi Björnsson, frú Soffía Guðmundsdóttir, Guðný Guðjónsdóttir og Jón Hjaltason. Otrúleg lokastaða í parasveitakeppninni BRIDS II ú s B r i d s s a m b a n d s i n s ÍSLANDSMÓT í PARA- SVEITAKEPPNI 28. og 29. janúar - Aðgangur ókeypis Sveit Ljósbrár Baldursdóttur sigraði í parasveitakeppninni í brids 1995 en mótið fór fram um helgina og tók 21 sveit þátt í keppninni. Lokastaðan í mótinu var hreint ótrúleg því tvær sveitir voru efstar og jafnar og því ekki vitað hveijir höfðu unnið mótið fyrr en tölvan hafði reiknað út árangur andstæðinganna hjá hvoru liði fyrir sig. Sveit Ljósbrár fékk 790 punkta en sveit Hörpu Jónsdóttur, sem leitt hafði mótið nær allan tímann, fékk 789 punkta. í sigursveitinni spiluðu Ljósbrá Baldursdóttir, Sigurður Sverris- son, Anna Þóra Jónsdóttir, Ragnar Hermannsson og Sverrir Ár- mannsson. í sveit Hörpu Jónsdótt- ur spiluðu Guðný Guðjónsdóttir, Jón Hjaltason, Soffía Guðmunds- dóttir og Jón In'gi Björnsson. Lokastaða efstu sveita: Ljósbrá Baldursdóttir 135 HarpaJónsdóttir 135 Svenniogfélagar 129 Sekasveitin 117 Suðurlandsvídeó 117 HJÁB 113 Bryndís Þorsteinsdóttir 112 Spilaðar voru 7 umferðir með Monrad-fyrirkomulagi. Keppnis- stjóri var Jakob Kristinsson en Elín Bjarnadóttir framkvæmda- stjóri Bridssambandsins afhenti verðlaun. Arnór G. Ragnarsson + Þökkum af alhug nærveru ykkar, kveöjur, blóm og hlýhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, GUÐRÚNAR PÁLSDÓTTUR, Hávegi 14b, Siglufirði. Sérstakar þakkir til starfsfólks Elli- og sjúkrahúss Siglufjarðar fyrir einstaka umönnun. Ásta Þorvarðsdóttir, ^Þorvaldur Ö. Vigfússon, Stefán Þorvarðarson, ’Laufey Ólafsdóttir, systkini, barnabörn og barnabarnabörn. Útför föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, STEFÁNS HALLSSONAR fyrrverandi kennara, Vfðihlið, Grindavik, áðurtil heimilis á Ásabraut 16, Keflavík, ferfram frá Fossvogskirkju miðvikudag- inn 1. febrúar kl. 15.00. Þórhalla Stefánsdóttir, Örn Geirdal Gíslason, Margrét Stefánsdóttir, Alfreð Árnason, Auður Stefánsdóttir, Sæmundur Gunnólfsson, Sigrún Hochheiser, Ron Hochheiser, Hreinn Stefánsson, barnabörn og barnabarnabörn. + Hugheilar þakkir fyrir auösýndan hlýhug og samúð við fráfall og útför ástkærs eiginmanns míns, föður okkar, tengda- föður, afa og langafa, KARLS ÞORLEIFS KRISTJÁNSSONAR verkstjóra, Seljahlíð, áður Hrefnugötu 7. Sérstakar þakkir til starfsfólks á deild B-5 Borgarspítalanum fyrir einstaka umönnun og umhyggju. Svava Lárusdóttir, Ragnheiður Karlsdóttir, Örn Árnason, Svala Karlsdóttir, Jón Þórðarson, Hafdis Karlsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. + Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ELÍSABET SVEINBJÖRNSDÓTTIR fyrrverandi Ijósmóðir, dvalarheimilinu Höfða, áðurtil heimilis á Heiðarbraut 55, Akranesi, sem lést 24. janúar, verður jarðsung- in frá Akraneskirkju miðvikudaginn 1. febrúar kl. 14.00. Rútuferðir verða frá Akraborginni kl. 13.30 og að Akraborginni kl. 16.50. Steingrímur Bragason, Edda Guðmundsdóttir, Ragnheiður Hjálmarsdóttir, Sesselja Einarsdóttir, Gísli S. Einarsson, Rögnvaldur Einarsson, Elísabet H. Einarsdóttir, Reynir Elíeserson, Droplaug Einarsdóttir, Gústav A. Karlsson, Rósa Einarsdóttir, barnabörn, makar þeirra og barnabarnabörn. + Þökkum af alhug auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför móður minnar, tengdamóður, ömmu og langömmu, ÞYRÍ MÖRTU MAGNÚSDÓTTUR, Tjarnargötu 16, Reykjavík. Fyrir hönd aðstandenda, Erna Jónsdóttir. + Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför eigin- manns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, HÓLMSTEINS EGILSSONAR, Vfðilundi 25, Akureyri. Margrét Sveinbjörnsdóttir, Erla Hólmsteinsdóttir, Svanur Eiríksson, Hugrún Hólmsteinsdóttir, Hólmsteinn T. Hólmsteinsson, Rut Ófeigsdóttir, Margrét Hólmsteinsdóttir, Haukur Kristjánsson og afabörnin.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.