Morgunblaðið - 15.02.1995, Qupperneq 2
2 MIÐVIKUDAGUR 15. FEBRÚAR 1995
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Kennarar segja að afgreiðsla memitamálanefndar geti skaðað samningaviðræður
„Eins og að hella olíu á eld“
SAMNINGANEFND ríkisins (SNR) og viðræðu-
nefndir kennarafélaganna komu saman til fund-
ar síðdegis í gær. Forystumenn kennarafélag-
anna brugðust hins vegar ókvæða við þegar
þeir fréttu um kvöldmatarleytið að menntamála-
nefnd Alþingis hefði afgreitt frumvarp um
grunnskóla út úr nefndinni og óskuðu kennarar
strax eftir að fundi yrði frestað til morguns.
Eiríkur Jónsson, formaður Kennarasambands
íslands, segir að þessi skilaboð hafi neikvæð
áhrif á samningaviðræðumar og séu kaldar
kveðjur til kennara.
Forystumenn kennarafélaganna segja að rétt-
indamál kennara séu algerlega óútkljáð ef
grunnskólafrumvarpið verður samþykkt en það
felur í sér að rekstur grunnskólans færist yfir
til sveitarfélaganna. Eiríkur sagði að kennarar
hefðu gengið á fund menntamálanefndar í gær-
morgun og þar hefði komið í ljós að menntamála-
nefnd hefði ekki séð frumvarp sem ætti að taka
á réttindamálum kennara. Engu að síður hefði
meirihluti nefndarinnar afgreitt grunnskóla-
frumvarpið út úr nefndinni. „Okkur finnst þetta
vera ákveðin yfirlýsing af hálfu menntamála-
nefndar um að nefndarmenn láti sér í léttu rúmi
liggja hvað verður um þessi réttindamál," sagði
hann.
Samningafundur boðaður í dag
„Þetta er hluti af kjarapakka kennara og
þegar þessu er hent út úr nefndinni á sama tíma
og kjaraviðræður okkar eru á mjög viðkvæmu
stigi þá hefur það mjög slæm áhrif á þessi mál
öll,“ sagði Eiríkur ennfremur.
Elna K. Jónsdóttir, formaður Hins íslenska
kennarafélags, sagði að afgreiðsla menntamála-
nefndar þingsins væri mjög alvarlegt mál. „Það
er eins og að hella olíu á eld að senda kennurum
í grunnskólum landsins þau skilaboð að meðferð
á þeirra réttindamálum og réttindastöðu við
flutning grunnskólans skipti svo litlu máli að
það eigi að handboxa grunnskólafrumvarpið í
gegnum þingið án þess að hafa unnið sína heima-
vinnu í því efni,“ sagði hún.
Ríkissáttasemjari hefur boðað til annars
samningafundar með kennurum og SNR í dag.
■ Fresta gildistöku til áramóta/6
Kennarar blésu í herlúðra á fundi á Akureyri í gær
Hungurmarkalauna-
stefnu mótmælt
Akureyri. Morgunbladið.
SAMEIGINLEGUR fundur félags-
manna í Kennarasambandi íslands
og Hinu íslenska kennarafélagi
sem haldinn var á Hótel KEA í gær
skoraði á fjármálaráðherra fyrir
hönd ríkissjóðs „að ganga nú þeg-
ar til móts við sanngjamar kröfur
kennarafélaganna og koma að
samningum um kaup og kjör fé-
laga þeirra af fullri alvöru og heil-
indum,“ eins og segir í ályktun
fundarins.
Már Vilhjálmsson sem sæti á í
samninganefnd sagði að sér virtist
engin flötur vera á að aðilar næðu
saman. Beðið væri tilboðs frá rík-
inu sem kæmi til móts við kröfur
kennara en svo virtist sem þeir
ættu í viðræðum við aðila sem
ekki hefði skilning á starfinu.
Hólmfríður Sigurðardóttir
sagði sífellt auknar kröfur gerðar
til kennara, uppeldishlutverkið
hefði í auknum mæli flust til skól-
anna, æ fleiri þættir væru teknir
Díana prinsessa verndarí göngu yfir ísland
60 daga góðgerðar-
ganga yfir hálendið
Grunnskóli Súðavíkur flytur heim daginn fyrir verkfall
Bjargtangar
inn í skólastarfið og kröfur væru
gerðar frá fleiri aðilum um að
þeir stæðu við sitt. Hún sagði
kennara nú fara fram á skilning
og að efnd yrðu gefin fyrirheit
um launahækkun. Vegna lágra
launa og einsetningar skóla væri
kennarastarfið að verða að hluta-
starfi.
Aukin menntun kennara virtist
hafa Ieitt af sér lægri Iaun, i eina
tið hefðu kennaralaun dugað til
að framfleyta fjölskyldu en ekki
lengur. Skammsýni þeirra sem
stjórna sé ótrúleg. Kennarar yrðu
að geta haldið sjálfsvirðingu sinni
ættu þeir að geta uppfrætt aðra.
Starfið yrði að gera eftirsóknar-
vert, en það væri það siður en svo
með þeirri „hungurmarkalauna-
stefnu" sem nú væri rikjandi.
Hörmulegt væri ef til verkfalls
kæmi, en hún lýsti fullri ábyrgð á
hendur viðsemjenda kennara
kæmi til þess.
Bann við
barnaklámi
ÞORSTEINN Pálsson dómsmálaráð-
herra hefur ákveðið að hefja undir-
búning að setningu laga um bann
við því að hafa barnaklám undir
höndum.
Þetta kom fram á Alþingi í svari
ráðherra við fyrirspurn frá Valgerði
Sverrisdóttur. Aðrar Norðurlanda-
þjóðir hafa eða eru að setja löggjöf
um þetta efni.
Mannréttindanefnd SÞ, Evrópu-
ráð og Norðurlandaráð hafa skorað
á aðildarríki sín að gera vörslu á
bamaklámi refsiverða.
Norðmenn hafa sett lög um þetta
efni. Sænska þingið hefur samþykkt
lög um barnaklám, en nauðsynlegt
er að breyta sænsku stjórnarskránni
til að þau öðlist gildi. Lagt var fram
frumvarp um barnaklám á danska
þinginu í nóvember sl.
Brú í Hrútafiröi
og Egiisstaöir
eru birgbastaöir
Morgunblaðið/Rúnar Þór
KENNARAR af Norð-
urlandi fjölmenntu til
fundarins.
ATLI Guðlaugsson blés
kennurum baráttuanda
í bijóst í upphafi sam-
eiginlegs fundar fé-
lagsmanna í kennara-
félögunum á Akureyri
í gær.
Lesendaþjónusta Morgunblaðsins
Spurt og svarað um
tilvísunarkerfið
HEILBRIGÐISRÁÐHERRA hefur
gefið út reglugerð um tilvísunar-
kerfí í heilbrigðisþjónustunni. Til
að auðvelda lesendum að átta sig
á þessari breytingu mun Morgun-
blaðið taka á móti spurningum
þeirra í síma 691100 milli kl. 10
og 11 árdegis, mánudaga til föstu-
daga. Spumingunum verður kom-
ið á framfæri við heilbrigðis- og
tryggingaráðuneytið, svo og Sé
fræðingafélag íslenzkra lækn
eftir því, sem efni þeirra gefí
tilefni til, og verða svörin birt s\
fljótt sem unnt er. Lesendur ge1
beint spurningum sínum til anna:
hvors aðilans eða beggja ef þ
er að skipta. Nauðsynlegt er i
nöfn og heimilisföng fylgi spuri
ingum lesenda.
Ekið á Fokker
Flugleiða í Svíþjóð
Sá seki
ófundinn
EKIÐ var á Fokker 50 flugvél,
sem Flugleiðir hafa leigueign á
og framleigja til sænska flugfé-
lagsins Skyways, á föstudags-
kvöld í borginni Borlánge í Sví-
þjóð. Skrúfublað skemmdist og
er talið að flutningatæki hafí
rekist á það, en tjónvaldurinn
hefur ekki gefíð sig fram.
Höfuðstöðvar Skyways eru í
Linköping en vélin annast flug
milli Stokkhólms og Borlánge
að sögn Sigfúsar Erlingssonar
sem hefur yfirumsjón með leigu
véla Flugleiða. íslensk áhöfn
og flugvirki fylgja vélinni.
Engin vitni
Ekki hafa fundist vitni að
atvikinu, sem talið er að hafí
átt sér stað á flugbraut eða
inni í flugskýli meðan vélin var
í vörslu starfsmanna Skyways.
Skemmdimir uppgötvuðust
þegar færa átti vélina úr skýli
síðdegis á sunnudag.
Sigfús segist eiga von á að
sökudólgamir muni fínnast,
enda sé svæðið afmarkað og
því ekki torvelt að rannsaka
umferð flutningatækja.
Hann segir ekki búið að
áætla tjónið og það verði ekki
gert fyrr en blaðið berst í hend-
ur þeirra sem annast viðgerðir.
Þegar skemmdir verða á
skrúfublaði þarf að fjarlægja
hitt blaðið einnig, þótt óskemmt
sé, vegna þess að stilla þarf
blöðin miðað við að þau séu í
jafnvægi hvort á móti öðru, sem
eykur kostnað. Flugleiðir sendu
út ný skrúfublöð á aðfaranótt
mánudags með vél sem flaug
innanlandsflug í Svíþjóð meðan
gert var við skemmdir á hinni
vélinni. Hún kom aftur til lands-
ins í fyrrinótt.
Undanþága til umræðu
FJÓRIR breskir landgönguliðar
ætla að ganga á skíðum þvert yfir
Isiand í fjáröflunarskyni fyrir
rannsóknasjóð mænuskaddaðra.
Gengið verður frá Bjargtöngum á
Vestfjarðakjálka að Gerpi á Aust-
urlandi, með viðkomu á Brú og
Egilsstöðum.
Þetta mun vera í fyrsta sinn sem
þessi leið er farin á skiðum, að
sögn Friðþórs Eydals upplýsinga-
fulltrúa varnarliðsins, sem verður
leiðangursmönnum innan handar
ásamt innlendum aðilum, þar á
meðal björgunarsveitarmönnum
ogreyndum fjallamönnum.
Ástæða þess að Island varð fyr-
ir valinu er sögð sú að landið sé
eitt af fáum sem státað geti af
óspilltri náttúru en einnig séu
harðneskjuleg vetrarveður há-
lendisins kjörin áskorun fyrir
landkönnuði og ævintýramenn.
Gert er ráð fyrir að ferðin taki
sextíu daga og hefst leiðangurinn
5. mars. Koma þátttakendur til
landsins 28. febrúar.
Díana prinsessa af Wales er
verndari átaksins og vonast að-
standendur þess til að hægt verði
að safna áheitum að jafnvirði tíu
milljóna íslenskra króna. Kostnað-
ur vegna fararinnar er ráðgerður
tvær miHjónir króna. Leiðangurs-
stjóri verður landgönguliðinn
Sean Chapple.
SKÓLANEFND grunnskóla Súða-
víkur og hreppsnefnd Súðavíkur
ræddu í fyrradag þann möguleika
að sækja um undanþágu fyrir skól-
ann frá verkfalli kennara sem boðað
hefur verið 17. febrúar. Heiðar
Guðbrandsson, sem sæti á í hrepps-
nefnd og skólanefnd, segir að böm-
in séu búin að missa mikið úr námi
og megi tæpast við frekari áföllum.
Ákveðið hefur verið að grunn-
skólinn verði fluttur til Súðavíkur
á morgun, en skólinn hefur starfað
á ísafírði frá því að snjóflóð féll á
Súðavík 16. janúar. Skólasálfræð-
ingar, sem fylgst hafa með börnun-
um, em á leið til bæjarins og verða
með bömunum um helgina.
Heiðar sagði að engin ákvörðun
hefði verið tekin um það hvort sótt
yrði um undanþágu frá verkfallinu.
Hann sagði að allir vonuðust enn
eftir því að kjaradeilan leystist áður
en til verkfalls kæmi.
Málið yrði hins vegar rætt í
hreppsnefndinni á föstudaginn,
daginn sem verkfallið á að hefjast.
„Bömin eru búin að missa mjög
mikið úr námi vegna þeirra hörm-
unga sem yfir þau hafa dunið,“
sagði Heiðar. Það væri auk þess
ekki gott fyrir börnin að missa þá
kjölfestu sem skólinn væri svo
skömmu eftir að snjóflóðið féll.
Foreldrar barna í Súðavíkurskóla
komu saman til fundar í gærkvöldi
á Isafirði til að ræða flutning skól-
ans og ýmis mál tengd honum.