Morgunblaðið - 15.02.1995, Side 18
18 MIÐVIKUDAGUR 15. FEBRÚAR 1995
ERLEIMT
MORGUNBLAÐIÐ
Bandaríkin
og Kína
Reynt
að semja
um við-
skipti
Peking. Reuter.
LEE Sands, samningamaður
Bandaríkjastjómar í viðskiptamál-
um, kom í gær til Peking til við-
ræðna við kínverska ráðamenn um
lausn á viðskiptadeilu ríkjanna.
Sands fór þegar til viðræðna við
embættismenn þó formlegir fundir
ættu ekki að hefjast fyrr en í dag.
Engin tímamörk hafa verið sett á
samningafundina.
Ætlunin er að freista þess til
þrautar að ná samkomulagi áður
en refsiaðgerðir Bandaríkjastjómar
koma til framkvæmda 26. febrúar
næstkomandi.
Sands vildi ekki tjá sig um hvaða
möguleikar væm á að samningar
tækjust er hann kom til Peking.
Kínverskir og bandarískir emb-
ættismenn hafa reynt að leysa
ágreining landanna um viðskipta-
mál á átta samningafundum frá í
júní í fyrra. Báðir aðilar kenna stífni
og ósveigjanleika hins um.
Nýjar vísbendingar
Mickey Kantor, viðskiptafulltrúi
Bandaríkjastjómar, sagði í síðustu
viku, að vísbendingar hefðu borist
um að Kínveijar væm reiðubúnir
að koma til móts við kröfur Banda-
ríkjamanna.
Ágreiningur hefur staðið um
vemdun höfundaréttar, einkaleyfis-
réttar og vömmerkja, en Kínveijar
hafa verið tregir til að viðurkenna
vestrænar venjur í þeim efnum.
ísraelska lottóið
Fær ekki
auðæfin
Jerúsalem. Reuter.
SÚ ákvörðun stjórnvalda í ísrael
að loka landamæmm ríkisins og
hernumdu svæðanna til að koma í
veg fyrir hryðjuverk öfgamanna
hefur bitnað á manni, sem á óvenju-
brýnt erindi til landsins.
Maðurinn þarf að sækja þangað
meira en 100 milljónir króna, sem
hann vann í ísraelska lottóinu.
Talsmenn lottósins segja, að Pa-
lestínumaðurinn heppni þurfí ekki
að hafa neinar áhyggjur af auðæf-
unum, þeirra verði vel gætt þar til
hann fær að vitja þeirra hvenær
sem það nú verður.
Ekvador og
Perú boða
vopnahlé
Reuter
HERMENN Ekvadors beita sprengjuvörpu eftir að hafa heyrt
til hersveitar frá Perú á landamærasvæði sem ríkin greinir á um.
Lima. Reuter.
STJÓRNVÖLD í Perú og Ekvador
féllust í gær á vopnahlé eftir 19
daga átök um fjöllótt landamæra-
svæði sem ríkin hafa deilt um.
Bæði ríkin sögðust hafa þijár
landamærastöðvar, sem barist hef-
ur verið um, á valdi sínu.
Alberto Fujimori, forseti Perú,
tilkynnti að stjóm sín hefði lýst
yfir einhliða vopnahléi frá kl. 17 í
gær. Stjórn Ekvadors féllst síðan
á vopnahléð og fyrirskipaði her-
mönnum sínum að hætta að beij-
ast nema ráðist yrði á þá.
„Langri og spennuþrunginni bið
er lokið í dag með brottrekstri
hermanna Ekvadors af landsvæði
okkar,“ sagði Fujimori í stuttu
sjónvarpsávarpi.
Fujimori sagði að hersveitir Perú
hefðu náð þremur landamæra-
stöðvum af hermönnum Ekvadors
og fáni Perú væri þar aftur við
hún. Stjóm Ekvadors kvaðst hins
vegar ekki hafa misst landamæra-
stöðvamar og bauð fulltrúum er-
lendra ríkja að fara þangað til að
staðfesta það.
Fujimori sagði að 38 Perúmenn
hefðu beðið bana í átökunum og
Lundúnum. The Daily Telegraph.
KOSSAR geta kallað á meiri
vöðvanotkun en menn gera
sér grein fyrir, að sögn
breskra vísindamanna. Þeir
segja að því sem næst hver
einasti vöðvi líkamans sé not-
aður þegar varirnar mætast
í ástríðufullum kossum, sem
geti brennt um 150 kaloríum,
eða álíka mörgum og 15 mín-
útna skriðsund.
Læknarnir hafa verið að
rannsaka kossa með því að
skanna andlit sjálfboðaliða
með leysum, skoða vöðvana
með skönnum og festa raf-
skaut við varir og vanga
þeirra.
Sá hluti heilabarkarins,
sem nefndur hefur verið
„andlitstaugakjarni", stjórn-
ar kossunum, eins og öllum
svipbrigðum andlitsins. Til
þess sendir kjarninn bylgjur
af rafefnafræðilegum merkj-
um til tveggja tauga sem eru
með þræði til allra andlitsvöð-
vanna 34. Með þessari raf-
efnafræðilegu starfsemi geta
andlitstaugarnar stjórnað
vöðvunum til að halda stúti á
munninum og deplað augun-
um.
Kossar
geta kost-
að 150
kaloríur
Kossar eru mjög lostafull
reynsla vegna þess að varim-
ar eru með fjölda taugaenda
sem verka á miklu stærra
svæði í heilaberkinum en önn-
ur líffæri. Með því að festa
rafskaut við vamirnar gátu
læknarnir búið til „vöðvaraf-
rit“ sem sýna rafstrauma sem
fara um vöðvana við kossa.
Þessi líflegu rafrit sýndu að
við kossa á sér stað flókinn
„listdans" allra andlitsvöðva,
þannig að kossarnir eru
miklu viðameira og flóknara
fyrirbæri en samdráttur
„kossavöðva“.
Þegar fólk kyssist notar
það ekki aðeins andlitsvöðv-
ana. Til að mynda koma háls-
og bakvöðvar til sögunnar
þegar höfðinu er hallað til
hliðar svo nefin rekist ekki
saman. Með því að halda utan
um hvort annað nota elskend-
umir einnig útlimavöðva og
þeir verða að skipta um stell-
ingar til að halda jafnvægi.
Að lokum slær hjartað auð-
vitað örlítið hraðar. „Menn
nota því sem næst alla vöðva
líkamans," sagði einn vísinda-
mannanna, Gus McGrouther.
að minnsta kosti 70 særst. Stjóm
Ekvadors sagði að tíu Ekvador-
menn hefðu fallið og 37 særst, en
fregnir herma að mannfallið hafi
verið meira en ráðamenn ríkjanna
vilja viðurkenna.
Ný friðaráætlun
Ríkin hafa barist um 78 km langt
fjallasvæði við landamærin, sem
hafa ekki verið afmörkuð nákvæm-
lega á þessum slóðum eins og
stefnt var að samkvæmt samningi
frá árinu 1942.
Samningnum var ætlað að leysa
deilu ríkjanna um stórt frumskóga-
svæði sem ríkin börðust um árið
áður. Samningurinn var gerður
fyrir tilstilli Bandaríkjanna, Brasil-
íu, Chile og Argentínu en Ekvador-
menn höfnuðu honum árið 1960
og síðan hafa bardagar blossað upp
við landamærin með reglulegu
millibili. Sixto Duran Ballen, for-
seti Ekvadors, kvaðst geta fallist
á friðaráætlun, sem milligöngurík-
in fjögur hafa lagt fram. „Nýju
tillögurnar gætu leitt til vopnahlés
án þess að Ekvador þurfi að hörfa
hænufet."
Stórsignr
stjórnar-
andstöðu
í Mexíkó
STÆRSTI stjórnarandstöðuflokk-
urinn í Mexíkó, Þjóðlegi framfara-
flokkurinn, vann mikinn sigur um
síðustu helgi í kosningum í ríkinu
Jalisco. Féll ríkisstjóraembættið
honum í skaut auk meirihluta á
ríkisþinginu og í 90 af 124 sveitar-
stjómum. Þeirra á meðal var Guad-
alajara, önnur stærsta borg í Mex-
íkó. Að sögn AP-fréttastofunnar
eru úrslitin talin geta boðað enda-
lokin fyrir valdaskeið stjórnar-
flokksins, sem staðið hefur í 66 ár.
Ernesto Zedillo forseti hafði lof-
að heiðarlegum kosningum og
auknu lýðræði í Mexíkó og þykir
hafa staðið við það. Margir bjugg-
ust þó við, að harðlínumenn í
stjómarflokknum, Byltingar-
flokknum, myndu reyna að hag-
ræða úrslitunum en sagt er, að
þeir hafí látið það ógert vegna
ánægju með þá ákvörðun Zedillos
Fundur Alþjóðabankans í Luzem um vanda vegna fólksfjölgunar Sm1"aumpic£pS“pprcisn
Matarskortur fyrirséður
ALÞJÓÐABANKINN hefur varað við því að inn-
an tuttugu ára muni ekki verða nægur matur í
heiminum, dragi ekki úr hinni gríðarlegu fólks-
fjölgun í Áfríku og Asíu. Telur Alþjóðabankinn
stöðuna svo alvarlega að leiðandi matvælafram-
leiðendur voru boðaðir á neyðarfund sem haldinn
var í síðustu viku í Luzem.
Nú eru jarðarbúar um 5,6 milljarðar og mat-
vælaskorts gætir nú þegar í þróunarlöndum. Er
talið að um 700 milljónir líði nú þegar fyrir
hann, að því er segir í skýrslu Alþjóðabankans.
Það eru þó aðeins smámunir miðað við það
ástand sem skapast þegar mannkyninu hefur
fjölgað í 7,7 milljarða en gert er ráð fyrir að
það verði eftir tvo áratugi. Hvað þá eftir 50 ár
þegar margt bendir til þess að fjöldinn verði
kominn upp í 10 milljarða.
Ástandið er ekki síst slæmt vegna þess að
95% mannfjölgunar á sér stað í þróunarlöndum
þar sem ræktunaraðferðir í landbúnaði eru van-
þróaðar. Ismail Serageldin hjá Alþjóðabankanum
segir í samtali við Politiken að jafnvel þó að
lagt verði út í miklar fjárfestingar í landbúnaði
í þróunarlöndum, sé mikil kreppa yfirvofandi.
Segir hún að takmörk séu fyrir því hvað jörðin
geti fætt marga og að við séum komin upp að
þeim mörkum. Því er spáð að ástandið verði
verst í Afríku, á Indlandi og í Kína. Svo kunni
að fara að það verði kínversk börn sem sjónvarps-
áhorfendur sjái svelta.
Gjörnýting ekki til góðs
í skýrslunni er það gagnrýnt að framlög iðn-
ríkja til umbóta í landbúnaði í þróunarríkjum
hafa lækkað verulega frá 1980. Jafnvel þó fram-
farir hafi orðið í matvælaframleiðslu í þróunar-
ríkjum, séu þær ekki nægilegar. Þá er bent á
það að takist mönnum að gjörnýta jörðina til
matvælaframleiðslu, muni það hafa alvarlegar
afleiðingar. Aðvörunarbjöllurnar séu nú þegar
farnar að hringja: Fiskistofnar minnki og hverfi,
æ minna sé um vatn og fuglum hafi fækkað.
Sá fyrsti af mörgum
Þótt stjórnarflokkurinn hafi beð-
ið ósigur í Jalisco, eru kosningam-
ar taldar nokkur sigur fyrir Zedillo
vegna þess, að honum tókst að
tryggja, að þær færu heiðarlega
fram. Stjórnmálaskýrendur telja
hins vegar, að sigur stjórnarand-
stöðunnar hafi aðeins verið sá
fyrsti af mörgum og telja hana
eiga góða möguleika á að ná meiri-
hluta í neðri deild þingsins í alríkis-
kosningum 1997.
Ein af ástæðunum fyrir ósigri
stjórnarflokksins í Guadalajara var
sprengingin í holræsakerfi borgar-
innar 1992 en þá fórust 200
manns. Stafaði hún af gasleka en
stjómvöldum var kennt um.