Morgunblaðið - 15.02.1995, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 15.02.1995, Blaðsíða 20
20 MIÐVIKUDAGUR 15. FEBRÚAR 1995 f MORGUNBLAÐIÐ Lágt flug á hálendingi KVIKMYNPIR Iláskólabíó Hálendingfurinn 3: Seiðkarlinn „The Highlander 3“ ★ Leíkstjóri: Andy Morahan. Aðalhlut- verk: Christopher Lambert, Mario van Peebles. FYRSTA myndin um Hálending- inn eða Skotann Connor MacLeod, sem ódauðlegur varð á miðöldum og barðist við fjendur sína í samtím- anum, var heilmikið og spennandi bíó og því kemur ekki á óvart að þriðja myndin í bálknum, Hálending- urinn 3: Seiðskrattinn, leitar aftur til upprunans í stíl og innihaldi. Hún hefur þó ekki erindi sem erfíði því eins og mynd númer tvö nær þessi ekki með tærnar þar sem frummynd- in hefur hælana. Tvær seinustu myndimar hafa snúist um baráttu góðs og ills um yfirráð yfir jörðinni hvorki meira né minna. Númer tvö minnir mig að hafi gerst í framtíðinni en nú erum við aftur komin til samtímans og Mario van Peebles leikur seiðskratta að nafni Kane, höfuðóvin hálendings- ins, er Christopher Lambert leikur að venju. Þetta er svona mynd þar sem hækkað er í rokktónlistinni í hasaratriðum og þegar kynlíf er stundað. Það er sjáifsagt tilraun til að fela spennuleysið í því fyrmefnda en álappalegheitin í því síðarnefnda. Nema verið sé að klippa saman tón- listarmyndbönd því fáránlega rýrt innihaldið gæti sannarlega rúmast í einu slíku. Leikstjórinn Andy Morahan leitar mjög í smiðju Russell Mulcahys, þess sem gerði íyrstu myndina, sprengir mikið rúðugier og hefur útlitið dökkt og drungalegt en nýmeti ef svo skyldi kalla felst í sjónhverfingum seið- skrattans Peebles, sem unnar em í tölvu. Lambert virðist hættur að nenna að leika hlutverkið á meðan Peebles ofleikur svo óþokkann að það hálfa væri nóg. Að auki gerast aukal- eikaramir æ verri eftir því sem fram- haldsmyndunum fjölgar. Hálending- urinn 3 er léleg hasarmynd að öllu leyti. Því er lofað í lokin að nú sé sagan öll. Bara að þeir standi við það. Arnaldur Indriðason TÓNOST Listasafn íslands MYRKIR MÚSÍKDAGAR íslensk kammertónlist leíkin af Caput hópnum. Sunnudagurinn 12. febrúar 1995. MYRKIR músíkdagar eru haldn- ir af Tónskáldafélagi íslands en í sumar eru liðin 50 ár frá stofnun þess. Jón Leifs var hugmyndasmið- urinn og hann stóð einnig fyrir stofnun Stefs og vann þar með merkilegt starf á sviði höfundar- réttarmála, sem þá voru mjög í lausu iofti og á ýmsan hátt fótum troðin. Nú hefur svo skipast, að núlifandi íslensk tónskáld eiga Jóni Leifs fleira að þakka en góða tón- list og sýnist sem ungu mennimir, er nú stjóma Tónskáldafélaginu, kunni þar betur um að búa og hlúa að en samtímamenn Jóns. Tónleikar Caput hópsins hófust á kvartett eftir Lárus H. Grímsson, ritaðan fyrir þrjá strengi og fagott og nefnir hann verkið Tales from a forlom fortress. Vera má að verk- ið sé að gerð eitthvað er minnir á frásagnir af yfirgefnu borgvirki og það að hefðbundið tónferli og stíll verksins sé eins konar gömul sögn. Sé svo, var sagan ekki mjög við- burðarík eða ef til vill of látlaus til að vekja áhuga, þrátt fyrir ágætan leik Brjáns Ingasonar, Hildigunnar Halldórsdóttur, Sígurðar Halldórs- sonar og Guðmundar Kristmunds- sonar. Strengjakvartett nr. 2 eftir LISTIR WILLIS og March í sálarháska. Sálar í háska KVIKMYNPIR Regnboginn Litbrigði næturinnar („Color of Night“) ★ ★ Leikstjóri Richard Rush. Handrit Barry May. Tónlist Dominic Fronti- ere. Aðalleikendur Bruce Willis, Jane March, Ruben Blades, Lesley Ann Warren, Lance Hendriksen, Kevin 0’ Connor, Brad Dourif, Jeff Corey, Shirley Knight, Kathleen Wilhoit, Scott Bakula. Bandarísk. Cinergi 1994. ORÐIÐ „sálfræðitryllir“ kallar nafn Alfreds Hitchcocks beint uppí hugann. Um þessar mundir er ein- mitt verið að sýna mörg hans bestu verk á annarri sjónvarpsstöðinni, það segir meira en nokkur orð að bera saman myndir meistarans við þau verk af sama toga sem gerð hafa verið á undanfömum árum. Þau standast þeim ekki snúning. Hver minnist í dag Jennifer 8, Fin- aI Analysis og annarra, nýlegra „sálfræðitrylla"? í samanburði við myndimar hans Hitchcocks kemur í ljós að þær em fyrst og fremst alltof snúnar og sálarlausar til að hrífa áhorfandann. Litbrigði næturinnar er fjarri því að vera slæm mynd, hún rís þó tæpast uppúr meðallaginu og er það ekki síst að kenna óhóflegri lengd. Samanþjappaðri hefði hún orkað betur á taugakerfið. Það er mikið um óþarfa málalengingar og lopa- teygingar, þá dettur myndin gjör- samlega niður í löngum ástarsen- um, sem em þó, aldrei þessu vant, erótískar og vel gerðar. Söguhetjan, leikin af Bmce Wilis, er sálfræðing- ur sem leitar hvíldar hjá gömlum skóla- og starfsbróðir í Los Angel- es, eftir að hafa lent í áfalli. En það á ekki af Willis að ganga því vinurinn er myrtur og tekur Willis þá við nokkrum sjúklingum hans, sem stunduðu hópmeðferð og það er ljóst að einn þeirra er morðing- inn. Inní uppljóstmnarsöguna flétt- ast eldheitt ástarævintýri Willis og dularfullrar kvenpersónu (Jane March). Litbrigðum næturinnar telst helst til tekna litríkur hópur skap- gerðarleikara sem kryddar inni- haidið og bætir. Leikstjóm Rush er einnig athyglisverð á köflum, en eins og fyrr segir þá er það lengdin sem er aðalhöfuðverkurinn hér, söguþráðurinn klaufalega flæktur í tengslum við aðra aðalpersónuna og sökudólgurinn því miður full fyrirsjáanlegur. Grimm skærisnotk- un hefði bjargað miklu. Sæbjörn Valdimarsson í hringiðunni LEIKLIST Rcimlcikar í Risinu LEIKFÉLAGIÐ SNÚÐUR OG SNÆLDA Leikfélagið Snúður og Snælda; Reimleikar í Risinu eftir Iðunni og Kristínu Steinsdætur. Leik- stjóm: Sigrún Valbergsdóttir. Lýsing: Kári Gislason. Leikendur: Brynhildur Olgeirsdóttir, Sigur- björg Sveinsdóttir, Sigrún Péturs- dóttir, Ragnheiður Þorstehisdótt- ir, Ársæll Pálsson Þorsteinn Ólafsson, Iðunn Geirdal, Anna Tryggvadóttir, Sveinn Sæmunds- son, Sigríður Söebech. Frnmsýn- ing 12. febrúar í Risinu við Hverfisgötu. EITT fyndnasta augnablikið í bráðskemmtilegu nýju leikriti Iðunnar og Kristínar Steinsd- ætra gerist á miðilsfundi þegar þvottavél treður sér fram fyrir alla sem bíða með skilaboð að handan. Og einhver löngu liðinn sjarmörinn vill minna Halldóm á ástarfundi á Kópaskeri fyrir margt löngu. En Halldóra, þótt ekki sé hún dauð úr öllum æðum, kveðst aldrei á Kópasker hafa komið hvað þá heldur ... Ölkær afturganga trítlar um í þessu leikriti sem hefur það umfram Intemetið að þurfa ekki ljósleiðara til að komast í samband hinum megin. Hér bregður líka fyrir skondnum persónum af holdi og blóði. Ein æðir um með kústinn og þarf að hafa allt í röð og reglu í kring um sig. Önnur ætlar að skrifa skáldsögur eins og Bar- bara Cartland. Fyrst vill hún læra á ritvél. Sú þriðja er art- isti og ámmeistari sem vinnur kauplaust fyrir flokkinn. Hver um sig verða þær að bregðast við tilteknum uppákomum sem mynda fléttu leikritsins. Hún verður ekki rakin hér en látið nægja að slá fram þeirri tilgátu hvort karlmenn séu yfir höfuð alandi einmitt vegna þess að þeir em ófeijandi. Víða gefst tilefni til hláturs. Höfundar gera grín að löstum mannsins og brestum. Hver þekkir sig þar sjálfur og brosir að. Þá skírskota þær til atburða í samtímanum að hætti revíu- höfunda á fyndinn hátt en ekki meinlegan. Þó felst styrkur þessa verks í allt öðm, ef grannt er skoðað. Hér er dauðinn nefni- lega sýndur sem eðlilegur hluti af lífi mannsins og ekkert feimnismál. Enda er hann nátt- úrulegur þáttur í framvindu sem er raunveraleg eins og blær á vanga þótt hún sjáist ekki öll á tölvuskermi raunhyggjunnar. Hveijum manni er hollt að minnast þessa þótt stundum þurfi kjark til. Leikendur gera þessum þætti verksins góð skil og umvefja hann húmornum svo úr verður hin besta skemmtun. Undir til- sögn Sigrúnar Valbergsdóttur em þau hreyfanleg á sviðinu og þeim tekst oft að verða t.d. Álfhildur, Katrín eða Fomólfur, en þeir sem til þekkja segja að auðveldara sé að hrista af sér fjósalykt en áhorfendur. Þeim vex öllum ásmegin þegar á líður leikritið og verða hæfilega kæmleysisleg þegar þau skella fram bröndumnum. Talsvert álag fylgir því að taka þátt í leiksýningu. Það er erfitt að koma sér af stað. Maður leggur mikið undir. Sjálfan sig. En eins og félagarn- ir í Snúð og Snældu vita (þau þurfa ekki mig til að segja þeim það) getur uppskeran verið ríkuleg. Maður uppsker sjálfan sig. Þetta hafa þau gert í Reim- leikunum í Risinu, áhorfendum til ánægju. Best af öllu er nátt- úmlega að vera þátttakandi í hringiðunni. Hringiðu lífsins. Guðbrandur Gíslason. Að kinka þrisvar kolli Iljálmar H. Ragnarsson ’Snorra Sigfús Birgisson er sagður vera þriggja þátta en það er í raun aðeins fyrsti þátturinn sem skiptir máli og er hann frábærlega vel gerður og á köflum rismikill. Seinni þættirnir sóma sér engan veginn í samfélagi við fyrsta þátt og sá síðasti, sem höfundurinn segir að „kinki þrisvar kolli til hinna tveggja", er vægast sagt eitt undarlegt uppátæki. Verkið var mjög vel flutt af Auði Hafsteins- dóttur, Sigurlaugu Eðvaldsdóttur, Helgu Þórarinsdóttur og Bryndísi Höllu Gylfadóttur. Næstu tvö verk eiga það sam- merkt að vera mjög þétt ofin og er það eins konar andsvar við gis: ofnum tónvef minimalistanna. í þessum þétta vef má oft merkja kontrapúnktísk vinnubrögð, þó megin áhersla hafi oft verið lögð á samhljómunina. Fyrra af þessum tveimur nefnist Skúlptúr og er eftir Hauk Tómas- son. Hugmyndinni er lýst sem eins konar „skekktri samhverfu" og er þessi samhverfa, sem ekki grópast saman, greinileg I upphafi verks- ins, þar sem fiðluraddimar hljóma ósamvirkar við sellóið og klarinett- ið. Gott verk, sem var vel leikið af Gerði Gunnarsdóttur, Hildi- gunni, Bryndísi, Guðmundi og Guðna Franzsyni. Seinna verkið ber nafnið Vink 2 og er eftir Atla Ingólfsson. Ágætt verk uppfullt af skemmtilegum tónhugmyndum, er sumar vísa til hefðbundins tónferlis, og jafnvel tónbilaleik með þríundir, sem minnti eitt augnablik á Beethoven. Vink var, eins og reyndar öll verk- in á tónleikunum, mjög vel flutt af Snorra S. Birgissyni, Auði, Kol- beini Bjamasyni, Guðna og Brynd- ísi. Rómansan, eftir Hjálmar H. Ragnarsson, er gamall kunningi, sem enn reynir nokkuð á hlust- unarþol hljómleikagesta. Nokkuð er um krómatískt tónferli og and- stæðumar, bæði er varðar tón- stöðu og styrk, eru ákaflega skarp- ar en boðskapur rómönsunnar á margt sameiginlegt með and-róm- antískum viðhorfum nútímans. Snorri, Guðni og Kolbeinn léku verkið og var leikur Guðna einkar ákafur. Elja heitir 10 manna kammer- verk eftir Áskel Másson og bar það nokkuð af þeim verkum sem hér vom flutt, fyrir fjölbreytileika tón- málsins og sterk leikræn tilþrif. Tónskáldið getur þess að gamalt stef, Eljakvæði, heyrist þrisvar í verkinu og var notkum þess veik- asti hlekkur þess og ekki að heyra, að það hafi haft aðra þýðingu fyr- ir verkið, en að bera fyrir eyru þrisvar sinnum. Sú merking orðs- ins „elja“, sem vitnað er til í efnis- skrá (ákafi, vinnusemi, barátta og stríð) mun ekki eiga hér við, því í kvæðinu er átt við hjákonu eða frillu, eins og stendur í Elja kvæði: Þreraur hefi eg verið mðnnunum gíft, allar hafa mig eljumar yndinu svipt. Sá er enginn glaður eftir annan þreyr. Lagið er úr safni er Thomas Laub gaf út í Kaupmannhöfn 1899 og var deilt um það hvort um væri að ræða íslensk eða samnorr- æn sönglög. Hvað um það og þrátt fyrir þennan veika „dönskuskotna" hlekk, er verkið mjög gott og auð- heyrt að Áskell er að heyja sér kraft til stórtækra átaka við gerð tónverka sinna og að hljóðfæra- leikaramir nutu þess að leika þetta ágæta verk undir stjóm Guðmund- ar Óla Gunnarssonar, sem lagði áherslu á að draga fram hinar leik- rænu andstæður verksins. Þeir sem komu nýir til leiks, auk stjórnand- ans, voru Eydís Franzdóttir, Emil Friðfinsson og Richard Korn. Síðasta verkið var gamansöm útfærsla á íslenskum þjóðlögum, sem Jón Leifs notaði í Rímnadöns- um sínum. Vandséð er hvort nafn- ið Rímnadansar eigi rétt á sér, því fræðimenn telja vafa leika á, að dansað hafi verið nokkurn tíma eftir rímum. Hvað sem þvi líður, var þessi gamansama útfærsla Atla Heimis Sveinssonar, mjög vel leikin af Snorra, Guðna, Áuði, Kolbeini og Bryndísi. í sambandi við sérkennilega tónmótun náðu Guðni og Bryndís oft að framkalla kátleg blæbrigði, er jók mjog á glettið yfirbragð verksins. Jón Ásgeirsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.