Morgunblaðið - 08.03.1995, Síða 56
56 MIÐVIKUDAGUR 8. MARZ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
oniLaura Hughes
•w-i MARY SHELLEY’S T
trankensteiN
TILNEFND TIL ÓSKARSVERÐLAUNA
★ ★★ G.B. DV
„Kenneth Branagh og leikarar hans
fara á kostum í þessari nýju og
stórbrotnu útgáfu hinnar sigildu
sögu um doktor Frankenstein og
tilraunir hans til að taka að sér
hlutverk skaparans."
KENNETH BRANAGH
Á KÖLDUM KLAKA
Hann ætlaði í sólina á Hawaii, en hafnaði í
ísköldum faðmi drauga og furðufugla.
Gamansöm ferðasaga með ívafi spennu og
dularfullra atburða. Nýjasta kvikmynd
Friðriks Þórs Friðrikssonar um ævintýri
ungs Japana á Islandi.
ÍSLENSKUR BÍÓPAKKI
TVÆR MYNDIR - EINN MIÐI
Miðaverð 700 kr.
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
200 kr. afsláttarmiði á
pizzum frá HRÓA HETTI
fylgir hverjum bíómiða á
myndina Á KÖLDUM KLAKA.
Sýnd kl. 4.50, 9 og 11.15. B. i. 16 ára.
DE NIRO
AÐEINS ÞU
FRANKENSTEIN
★★★ A.l Mbl.
★★★ O.H.T. Rái 2.
★★★ Þ.O. Dagsljós
★★★ O.M. TIMINN
Leikstjori
Friðrik Þór Friðriksson
r Fisher Stevens Gisli Hall
rik Haraidsson Flosi Ólafssor
Stuttmynd Ingu Lísu
Middleton,
„I draumi sérhvers
manns", eftir sögu
Þórarins Eldjárns sýnd
Á KÖLDUM KLAKA".
Aðalhlutverk: Ingvar E. Sigurðsson.
Ó.H.T. Rás 2.
á undan
STJÖRNUBÍÓLÍNAN
SÍMI 991065
Taktu þátt í spennandi
kvikmyndagetraun.
Verðlaun: Boðsmiðará
myndir í STJÖRNUBÍÓI.
Verð kr. 39,90 mín.
Allt gert til
að slá í gegn
REGNBOGINN sýnir þessa dag-
ana bandarísku gamanmyndina
„Airheads", en í henni segir af
brokkgengri rokkhljómsveit „The
Lone Rangers" sem leggur sig alla
fram um að slá í gegn. Gallinn er
bara sá að enginn er reiðubúinn
til að gefa þeim það tækifæri sem
þeir þarfnast, en plötuútgefendur
vilja ekkert við þá tala og útvarps-
stöðvar gefa þeim langt nef. Þre-
menningarnir í hljómsveitinni eru
þó engan veginn á því að gefast
upp og skunda þeir á vinsæla
þungarokksstöð með það fyrir aug-
um að koma laginu sínu á öldur
ljósvakans hvað sem það kostar.
Svo fer að þessi meinleysisgrey
taka alveg óvart útvarpsstöðina
herskildi í beinni útsendingu og
geta þar með gert það sem þeir
vilja.
Með hlutverk þremenninganna
f hljómsveitinni fara þeir Brendan
Fraser, Steve Buscemi og Adam
Sandler, en Joe Mantegna leikur
plötusnúðinn á útvarpsstöðinni
sem þeir leggja undir sig. Brendan
Fraser hefur upp á síðkastið verið
að skapa sér nafn í Hollywood sem
einn af fjölhæfari leikurunum af
yngri kynslóðinni. Fyrir skemmstu
lék hann á móti Joe Pesci í kvik-
myndinni With Honors, en þar lék
hann metnaðarfullan háskóíanema
í Harvard, og á næstunni sést hann
á hvíta tjaldinu með Albert Brooks
í The Scout, sem íjallar um hafna-
boltahetjur. Fyrri myndir sem
Fraser hefur leikið í eru School
Ties, þar sem hann lék gyðing sem
varð fyrir ofsóknum í skóla, og þar
áður lék hann forsögulegan hell-
isbúa í gamanmyndinni Encino
Man. Fraser er fæddur í Indiana-
polis í Bandaríkjunum en hann ólst
að mestu upp í Evrópu og Kanada,
en þar hóf hann leiklistarferil sinn.
Fyrsta aðalhlutverkið sem honum
áskotnaðist var í sjónvarpsmynd-
inni Guilty Until Proven Innocent.
Steve Buscemi vakti verulega
athygli sem Mr. Pink í mynd Qu-
entins Tarantino, Reservoir Dogs,
en frumraun hans í kvikmyndum
var þegar hann lék hljómlistar-
mann með eyðni í myndinni Part-
ing Glances, sem vann til verðlauna
Aldarafmæli Kven-
félags Húsavíkur
► KVENFÉLAG Húsavíkur
varð 100 ára hinn 13. febrúar
síðastliðinn. I tilefni þess héldu
kvenfélagskonur mikið afmælis-
hóf 18. febrúar á Hótel Húsavík.
Hátt í tvö hundruð manns sátu
hófið og náðist ágæt stemmning
meðal gesta. Tónlistarfólk var
fengið að sunnan til að __
skemmta, þar á meðal Ásgeir
Steingrímsson, trompetleikari,
söngkonurnar Margrét Pálma-
dóttir, Kristjana Stefánsdóttir
og Anna Sigríður Helgadóttir
og loks Aðalheiður Þorsteins-
dóttir undirleikari.
HEILSUBÓTAR-
DAGAR
REYKHÓLUM í
SUMAR
UPPLÝSINGASÍMI 554-4413
MILLI KL. 18-20 VIRKA DAGA
SIGRÚN OLSEN OG hÓRlR BARÐDAL
Nokkrar kvenfélagskonur
stigu sín fyrstu ballettspor og
Karlakvartett Kvenfélagsins
söng við góðan orðstir. Formað-
ur félagsins er Svala Hermanns-
dóttir, en veislustjóri í hófinu
var Katrín Eymundsdóttir. Það
hefur fjölgað töluvert í Kvenfé-
laginu síðastliðin ár og horfa
konur fram á mikið og öflugt
starf næstu hundrað árin
SVALA Hermannsdóttir,
formaður Kvenfélags
Húsavíkur, flytur ræðu.
ADAM Sandler, Brendan Fraser og Steve Buscemi
í hlutverkum rokkaranna sem reyna allt hvað
þeir geta til aðdtoma sér á framfæri.
árið 1986. Ferill Buscemi hófst
þegar hann kom fram sem grínisti
í ýmsum leikhúsum í New York,
en þar kom hann einnig fram með
tilraunaleikhópum auk þess sem
hann lagði stund á leiklistarnám
við Lee Strasberg Institute. Fljót-
lega lá svo leiðin í kvikmyndimar,
en meðal mynda sem hann hefur
leikið í eru Rising Sun, Twenty
Bucks, Mystery Train, Barton
Fink, Miller’s Crossing, New York
Stories og Billy Bathgate.
Adam Sandler hóf að vinna með
Satyrday Night Live-hópnum sem
handritshöfundur og leikari árið
1990 og þar á bæ hefur hann skap-
að sér nafn sem gamanleikari og
eftirherma. Sandler ætlaði í fyrstu
að skapa sér frægð sem hljóm-
listarmaður en á námsárunum lék
hann í ýmsum hljómsveitum.
Fyrsta kvikmyndin sem hann lék
í var Coneheads, og fyrir
skemmstu lék hann í Lifesavers
með þeim Steve Martin og Juliette
Lewis. Næsta mynd sem Sandler
leikur í heitir Billy Madison, en
hann er einnig meðhöfundur hand-
ritsins að henni.
Morgunblaðið/Silli
BORÐFÉLAGARNIR Hjördís Sverrisdóttir, Valgerður
Sigfúsdóttir og Friðrika Baldvinsdóttir. Fyrir aftan
þær stendur Anna Vigdís Þorsteinsdóttir í þjóð-
búningi, en hún er veitingastjóri Hótels Húsavíkur.
GISLIG. Auðunsson, Katrín Eymundsdóttir,
Jónasína Pétursdóttir, Jóhanna Aðalsteinsdóttir
og Guðný Þorgeirsdóttir þjónar til borðs.
25 árfrá
stofnun
PBS
► SÖNGKONAN svipmikla
Bette Midler skemmti í stórveislu
í austursal Hvíta hússins á föstu-
daginn var. Tilefni veislunnar
var að tuttugu og fimm ár eru
liðin frá stofnun PBS sem er rík-
isstyrkt útvarpsstöð í Bandaríkj-
unum. Bill Clinton forseti og
Hillary voru á meðal gesta.
BETTE Midler sýndi mikil
tilþrif í veislunni.
Hopkins
í hlutverki
Picassos
► BRESKI leikarinn margverð-
Iaunaði Anthony Hopkins mun
leika málarann Picasso í væntan-
legri kvikmynd sem nefnist
„Surviving Picasso". David Wol-
per og Ismail Merchant munu
framleiða og James Ivory verður
leikstjóri. Þetta er ekki eina
spennandi verkefnið sem Hopk-
ins mun fást við á næstunni, þvi
hann hefur einnig fengið hlut-
verk Nixons í væntanlegri mynd
um þennan breyska forseta
Bandaríkj anna.