Morgunblaðið - 15.07.1995, Qupperneq 10
10 LAUGARDAGUR 15. JÚLÍ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
/“".........
3ja herb. íbúð í Hafnarfirði
Til sölu falleg 63 fm 3 herb. efri sérhæð við Skerseyrar-
veg. Áhv. góð lán 3,2 millj. Verð 5,8 millj.
Opið í dag Árni Gunnlaugsson hrl.,
kl. 12-17 Austurgötu 10, sími 555 0764.
7
Stakf&ll
Fasleignasala Sudurlandsbraut 6
568-7633 if
Lögfrædmgur
Þórhildur Sandholl
Solumenn
Gísli Sigurb/örnsson
Sigurbjorn Þorbergsson
Heimasfmi á kvöldin og um helgar 553-3771.
VESTURBÆR - SELTJARNARNES
Óskum eftir til kaups góðri 3ja herb. íbúð á 1. hæð eða jarð-
hæð. Þarf að vera laus fljótlega. Stór 2ja herb. íbúð kemur
einnig til greina. Leyfi til að hafa kött þarf að vera hendi.
Upplýsingar á skrifstofunni.
* ..........................................*
Öldutún 18 - Hafnarfirði
Til sölu einkar aðlaðandi steinhús með tveimur íbúðum,
upphaflega byggt sem einbýlishús 1957. Á efri hæð
er: 5 herb. íbúð 101 fm auk þvottahúss og geymslu á
jarðhæð. Ný eldhúsinnrétting og nýtt parket. Stórar
svalir. - Á jarðhæð er: 2ja-3ja herb. íbúð með sérinn-
gangi, alls 87 fm með þvottahúsi og geymslu. Eignin er
í ágætu ástandi. - Afgirt 500 fm lóð með miklum trjá-
gróðri. Selst helst í einu lagi. Verð 11,6 millj.
Opið f dag Árni Gunnlaugsson hrl.,
kl. 12-17 Austurgötu 10, sími 555 0764.
Frábært verð
Vegna sérstakra aðstæðna
er til sölu stórglæsilegt
rúmlegaa 360 fm einbýlis-
hús í Háahvammi í Hafnar-
firði. Húsið er steinhús á 3
hæðum klætt með timbri.
Allar innréttingar eru mjög vandaðar. Lóðin er fullfrágeng-
in. Verðið er einstakt, kr. 16.900.000,00. Áhvílandi geta
verið hagstæð lán frá veðdeild og húsbréfadeild. Til greina
kemur að taka minni eign upp í kaupin.
Eigendur taka á móti áhugasömum kaupendum á milli
kl. 16.00 og 19.00 í dag, laugardag.
LÖGMENN
SELTJARNARNESI
Austurströnd 6, sfmi 562 2012
11RII 1Q7ÍI Þ VALÐIMARSSON, framkvamoasijÓRÍ
UUL I luUUUL lu/U KRISTJAN KRISTJÁNSSON, tOGGiLiUR fasieignasali
Ný á fasteignamarkaðinum m.a. eigna
Fyrir smið eða laghenta
Sólrík rishæð 3ja herb. Eldhús og bað endurbætt. Litlar suðursvalir.
Þarfnast nokkurra endurbóta. Langtímalán kr. 2,7 millj. Tilboð óskast.
Upplýsingar aðeins á skrifstofunni.
Úrvalsíbúð - hagkvæm skipti
Mjög stór 5 herb. íbúð 133,6 fm á 1. hæð við Hjallabraut Hf. Stór
skáli. Nýtt eldhús. Sér þvottahús í íb. Rúmg. sólsvalir. Geymsla í kj.
Ágæt sameign. Skipti æskileg á 3ja herb. íb. helst í nágr.
Vesturborgin - skipti - tilboð óskast
Sólrík 4ra herb. góð íb. á 4. hæð skammt frá sundlaug Vesturbæjar.
Sólsvalir. Langtímalán kr. 4,2 millj. Skipti möguleg á minni íb. Ein bestu
kaup á markaðinum í dag. Nánari uppl. á skrifstofu.
Sumarhús á Stokkseyri
Timburhús rúmir 70 fm auk sólskála. Lóð um 1100 fm. Vinsæll staöur
I þorpinu. Hentar einnig til ársdvalar. Tilboð óskast.
Sumarhús á Vatnsleysuströnd
Nýlegt timburhús grunnfl. um 40 fm. Hæð og portbyggt ris. Vönduð
viðarklæðning. Góð viðbygging 50 fm með 3ja metra vegghæð. Eignar-
land 6.000 fm. Uppsátur fyrir bát i fjöru. Ýmis konar skipti.
Við Bólstaðarhlfð - nágrenni
óskast góð 3ja herb. íb. Góðar greiðslur fyrir rétta eign m.a. kr. 3,0
millj. strax. Vinsamlegast leitið nánari uppl.
Á söluskrá óskast
3ja herb. íbúð í Heimum eða nágr. Má vera í lyftuhúsi.
3ja herb. íbúð við Birkimel eða nágr.
Skrifstofuhúsn. 120-150 fm Sérhæð í Vesturborginni, 4-6 herb., með
rúmgóðum bílskúr.
Húseign í gamla bænum, má þarfn. endurbóta.
j meira en hálfa öld hefur Almenna fasteignasalan útvegað traustum
viðskiptavinum sínum íbúðir og aðrar fasteignir.
• • •
Opið t dag kl. 10-14.
Fjöldi eigna í skiptum.
Almenna fasteignasalan sf.
var stofnuð 14. júlí 1944.
ALMEIMIUA
FASTEIGNASALAN
LAU6AVEG118 S. 552 1158-552 1370
FRÉTTIR
Veislan
heldur
áfram
«
LAXINN er ekki eina bráðin sem
stangaveiðimenn eltast við á hinu
stutta íslenska sumri. Urriðar og
bleikjur fá lítinn frið, en það er ekki
á vísan að róa í þeim veiðiskap frem-
ur en öðrum. Víða að berast þó góð-
ar aflafréttir.
Glæðist í
Kvíslaveitum
Veiði hófst í Kvíslaveitum á
Sprengisandi um síðustu mánaða-
mót og gekk veiðiskapur rólega fyrst
í stað. Að undanförnu hefur veiðin
þó glæðst verulega og undir lok vik-
unnar voru komnir milli 40 og 50
urriðar á land. Um miðja viku töldu
þeir 35, þar af 13 á tvær stangir
um helgina. Var það einkar glæsileg-
ur afli, því stærstir voru tveir 8
punda, einn 7 punda og tveir 6
punda. Enginn var minni en 2,5
pund. Veiðisvæði Kvíslaveita er engu
líkt, umhverfi er nánast gróðurlaust,
en hermt er að fiskur lifí þarna m.a.
á skötuormi og það sé m.a. skýring-
ENGLENDINGURINN Tony
Lawson með þrjá, þar af einn
15 punda, á Alley’s Shrimp
nr. 8 á Rangárflúðunum í
Ytri-Rangá.
in á því hversu feitur og þungur
hann er.
Góð veiði í Köldukvísl
Ekki langt frá Kvíslaveitum er
Kaldakvísl sem rennur í Tungnaá.
Þar hefur um nokkurra ára skeið
verið stór og góð bleikja, en síðustu
árin var mál manna að hún hefði
eitthvað smækkað. í sumar er hins
vegar stór og góður fiskur í Kvísl-
inni og menn hafa verið að fá mjög
góða veiði. Bleikjan oft stór, allt að
6-7 pund, en oftast 2-4 pund. Mest
veiðist neðarlega í ánni og niður
undir vatnamótin. Algengast er að
menn noti spón, en fluga og maðkur
hafa einnig reynst vel.
Mikil sjóbleikjuveiði
í Breiðdalsá
Mikil sjóbleikjuveiði hefur verið á
ósasvæði Breiðdalsár að sögn Skafta
Ottesen á Hótel Bláfelli í Breiðdals-
vík. Segir Skafti að milli 500 og 600
bieikjur hafi veiðst það sem af er
og metið sé 42 bleikjur á eina stöng
á einum degi. „Þetta er mikil veisla
og fiskurinn auk þess óvenjuvænn,
all margar 5-6 punda bleikjur eru
stærstar,“ sagði Skafti.
Lax hefur veiðst í ánni, síðla vik-
unnar voru komnir fimm á land, 10
til 14,5 punda og taldi Skafti það
góða bytjun, þar sem Breiðdalsá
færi yfirleitt ekki að gefa lax að
ráði fyrr en upp úr miðjum júlí.
Veiðist í Vola
Góð veiði hefur verið í Vola fyrir
austan Selfoss að undanförnu, sér-
staklega hafa menn fengið góð sjó-
birtingsskot og þá einkanlega í ósn-
um. Hafa allt að 7,5 punda birtingar
veiðst, einnig nokkrir laxar og væn-
ar bleikjur.
Hér og þar
Fyrstu laxarnir hafa veiðst í Miðá
í Dölum og bleikjan er farin að gera
vart við sig. Einmitt um þetta leyti
bytjar veiðin yfirleitt fyrir alvöru í
Miðá. Frést hefur af veiðimanni sem
skrapp í ána í einn dag, dró lax og
sá nógu mikið líf í ánni til þess að
festa kaup á öðrum degi.
Fyrstu laxarnir hafa veiðst á
Hrauni í Laxá í Aðaldal. Um miðja
vikuna voru að minnsta kosti þrír
komnir á land. Á Staðartorfu og
Múlatorfu létu þeir fyrstu hins vegar
enn bíða eftir sér. Á öllum svæðun-
um hefur hins vegar verið þokkaleg
silungsveiði.
Gallup-könnun
Helmingur landsmanna
ánægður með ráðherrana
UM helmingur landsmanna er
ánægður með störf ráðherra Sjálf-
stæðisflokksins að því er fram kem-
ur í Gallupkönnun og sagt var frá
í fréttatíma Ríkisútvarpsins á
fimmtudag. Niðurstöðurnar gefa til
kynna að forsætisráðherra njóti
langmests álits og dálæti kjósenda
Alþýðubandalagsins á Davíð Odds-
syni hefur fjórfaldast á hálfu ári.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur bætt
við sig talsverðu fylgi frá því kosið
var í vor. Flokkurinn fengi tæp 43%
atkvæða ef kosið væri nú en fékk
í kosningunum rúm 37% atkvæða.
Fram kom í fréttunum að Fram-
sóknarflokkurinn hefði líka bætt við
sig fylgi, þ.e. farið úr rúmum 23%
í 26%. Fylgi Alþýðuflokks breytist
lítið, mælist tæp 12%, Alþýðu-
bandalag fellur úr 14% í 11%,
Kvennalisti bætir aðeins við sig,
með 5,1% en fylgi Þjóðvaka er að-
eins 2,7%. Þjóðvaki fékk 7% at-
kvæða í apríl. Ofangreindar niður-
stöður eru, að því er fram kom, í
samræmi við könnun Gallups í síð-
asta mánuði og líkar niðurstöðum
DV frá því á miðvikudag.
Fæstir aðdáendur ráðherra
fylgja Kvennalista
Samkvæmt könnun Gallups er
helmingur kjósenda ánægður með
störf annarra ráðherra en Davíðs
Oddssonar. Um 70% kjósenda voru
ánægðir með hann. Kjósendur AI-
þýðuflokks voru ósáttastir við Þor-
stein Pálsson af ráðherrum Sjálf-
stæðisflokksins. Þeir eru hins vegar
ánægðastir með Friðrik Sophusson.
Sjálfstæðismenn gera ekki mjög
upp á milli ráðherra sinna en þykir
minnst til starfa Þorsteins Pálsson-
ar koma en 94% þeirra eru ánægð-
ir með Davíð. Ráðherrarnir eiga
fæsta aðdáendur í hópi stuðnings-
manna Kvennalista. Um þriðjungur
var ánægður með ráðherrana en
þó eru um 40% ánægðir með verk
Þorsteins og Halldórs.
Skipulag ríkisins
Nýr vegur við Bláa
lónið samþykktur
SKIPULAGSSTJÓRI hefur úrskurð-
að um mat á umhverfisáhrifum
vegna fyrirhugaðrar vegagerðar við
Bláa lónið.
Samkvæmt upplýsingum frá
Skipulagi ríkisins hefur verið fallist
á fyrirhugaða vegagerð við Bláa lón-
ið. Þar er um tvíþætta vegagerð að
ræða, annars vegar frá Grindavíkur-
vegi norðan Bláa lónsins að norðaust-
urhorni byggingasvæðis Heilsufé-
lagsins við Bláa lónið. Umræddur
vegur er rúmlega 2 km að lengd og
er nefndur nyrðri leið. Hins vegar
er um að ræða syðri leið, frá Grinda-
víkurbæ, vestur með Þorbirni, að
suðvesturhorni byggingasvæðis
Heilsufélagsins, um 3 km að lengd.
Þegar framkvæmdum er lokið verður
hægt að aka að lóninu og þaðan
hálfan hring í kringum Þorbjöm á
leið til Grindavíkur.
Heilsufélagið við Bláa lónið hefur
gert áætlanir um starfrækslu með-
ferðar- og ferðaþjónustu við lónið.
Til að svo megi verða reynist nauð-
synlegt að færa lónið norðar við þann
stað sem fyrirhugaður er í aðalskipu-
lagi Grindavíkur, viðauka 1990 -
2010. Samhliða þessu óskaði félagið
eftir breytingu á aðalskipulaginu sem
staðfest var af skipulagsstjórn ríkis-
ins í nóvember 1994.
í úrskurði skipulagsstjóra vegna
mats á umhverfisáhrifum hefur verið
fallist á framkvæmdir með þeim skil-
yrðum að ekki verði tekið efni til
framkvæmdanna í Arnarsetri og að
samráð verði haft við eftirlitsmann
Náttúruverndarráðs um efnistöku-
staði. Einnig er það skilyrði að sam-
ið verði um tengingu varnarliðsins
við Vatnsveitu Grindavíkur áður en
að framkvæmdir hefjast.
Nýr sóknar-
prestur á
Grenjaðarstað
Laxamýri. Morgunblaðið.
• SR. SIGURÐUR Ægisson hefur
verið vígður til prestakallsins á
Grenjaðarstað í Aðaldal og hefur
ásamt fjölskyldu
sinni hafið ábúð á
staðnum.
Auk þess að
þjóna Grenjaðar-
stað, þjónar sr.
Sigurður Nes-
kirkju í sömu sveit,
Einarsstaðakirkju
í Reykjadal og
Þverárkirkju í Laxárdal.
Enginn var í prestbústaðnum um
tíma í vetur þar sem sr. Sigurður
var að ljúka störfum í Noregi og
voru þá gerðar umtalsverðar lag-
færingar á íbúðarhúsinu.
Sóknarbörnin hafa fagnað nýjum
ábúendum og segir sr. Sigurður að
starfið leggist vel í sig.
>
I
i
T
I
I:
D
I
!
I
L'
I
f
!
I
I
t
I
l
i
6
I
t:
i
i
I