Morgunblaðið - 15.07.1995, Qupperneq 32
32 LAUGARDAGUR 15. JÚLÍ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
Dýraglens
BG HEF EKJCf,
HÆFíLEtkCA A
pesso Sl/!E>1 /
1-/3 Cj^f^
Grettir
Ferdinand
BREF
HL BLAÐSINS
Kringlunni 1103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 5691329
Já, en háttvirtur
heilbrigðisráðherra...
Frá Axel Haugen:
MÉR fannst athyglisvert að hlusta
á viðtal við yfírmann heilsugæslu í
landinu í aðalfréttatíma Ríkissjón-
varpsins sl. miðvikudagskvöld.
í máli hennar kom fram að lokan-
ir geðdeilda s.s. bamadeildar Lsp.
væru teknar af fagfólki og gaf þann-
ig í skyn að það væri fagleg ákvörð-
un.
Þetta er athyglisverð fullyrðing.
Ef það er fagleg ákvörðun að
neita sjúku fólki sem þarfnast að-
stoðar um þá hjálp sem það þarf á
að halda, og ætla ég þá ekki að
ræða einstök tilfelli frekar en heil-
brigðisráðherra, langar mig að
spyrja: Í hvaða skóla gekk það fólk
sem tekur slíkar ákvarðanir?
Ég held að allir sjái að sú ákvörð-
un er ekki tekin á faglegum forsend-
um heldur eru forráðamenn spítal-
anna nauðbeygðir á grundvelli þess
fjárlagaramma sem þeim er gert að
starfa eftir.
í þessu máli er ekki réttlátt að
deila einungis á heilbrigðisráðherra,
þar sem fjárlagahalli ríkisstjórnar-
innar (þjóðarinnar) er eins og allir
vita töluverður og nauðsynlegt að
fara að ná fjárhagslegu jafnvægi í
þjóðarbúskapnum.
Málið snýst bara ekkert um það
heldur hvaða aðferðum menn beita
fyrir sig til þess að ná því markmiði.
Við verðum að fara að beita okk-
ur fyrir spamaði annars staðar en
í heilbrigðiskerfinu, þar verður ein-
faldlega ekki gengið lengra.
Persónulega fínnst mér það bera
vott um hugmynda- og úrræðaleysi
stjórnvalda að ganga sífellt nær
heilbrigðiskerfinu þegar skórinn
kreppir að, og ef menn eru hættir
að taka tillit til „einstakra tilfella“,
sem í raun eru ekki einstök heldur
fjölmörg, ber það vott um að þeir
séu ekki lengur í sambandi við raun-
veruleikann.
Ég sagði í síðustu grein minni sem
birtist í Mbl. sama dag og umrætt
viðtal við heilbrigðisráðherra að ég
ætlaði sjálfur ekki að koma með til-
lögur að spamaði þar sem við hefð-
um ríkisstjóm til þeirra starfa auk
þess sem við búum yfir fjöldanum
öllum af einstaklingum sem eru mun
hæfari til þess verkefnis en undirrit-
aður.
Samt langar mig til að benda á
að sífellt er verið að tala um fjár-
magn sem fer forgörðum í formi
skattsvika, og hafa þá verið nefndar
fjárhæðir sem eru margfaldar á við
þær sem verið er að kreista út úr
heilbrigðiskerfínu með miklum
harmkvælum.
Nýlega bar á góma að halli RÚV
var um 200 millj. Hvað skyldi það
vera í prósentum talið stór hluti af
veltu þessa ríkisfyrirtækis?
Ekki svo að skilja að ég sé ósátt-
ur við starfsemi RÚV heldur er ég
einungis að benda á að hægt er að
taka til hendinni á fjölmörgum stöð-
um í þjóðfélaginu, en til þess þarf
fólk að leggja sig fram, sýna áræði,
þor og dugnað. Ef ráðamenn þjóð-
arinnar gera ekki annað en að ráð-
ast á garðinn þar sem hann er lægst-
ur gætu a.m.k. sumir farið að draga
þær ályktanir að þeir væru vanhæfír.
Sjálfur ætla ég ekki að fullyrða
að svo sé, en menn munu dæmast
af verkum sínum.
Ég mótmæli sumarlokunum
þeirra geðdeilda landsins sem um
ræðir.
AXEL HAUGEN,
Austurbrún 2, Reykjavík.
Yarið ykkur á
vottorðunum
Smáfólk
TELL YOUR
RI6HT FIELDER.
TO STOP
WINK1N6 ATME..
[~zr~
MT CATCHER
5AV5 FOR YOU
TO 5T0P
W1NKIN6 AT MIMÍ
I CAN T HELP
IT.JT'5 A
5?ommos
REACTION..
6-10
\j0NK!
I L0\/E TM05E
5PONTANEOU5
REACTI0N5I
Segðu hægri vall- Kastarinn .minn Ég get ekki að
armanninum að segir að þú eigir þvi gert... þetta
hætta að blikka að hætta að eru ósjálfráð
mig... blikka hann! viðbrögð...
Ég elska þessi
ósjálfráðu við-
brögð!
Frá Sveini Indriðasyni:
ÞAÐ er full ástæða fyrir yfírdýra-
lækni að taka erlend vottorð lítt trú-
anleg, en sannreyna heldur uppruna
og gæði vörunnar.
Eitt sinn var ég staddur í Hol-
landi, að hitta _þar menn, sem ég
átti skipti við. Á þeim tíma var ný-
komið á þar innflutningsbann á vör-
um frá Suður-Afríku, vegna kyn-
þáttadeilna.
Sem ég er á gangi með starfs-
manni fyrirtækisins fram hjá at-
hafnasvæði annars heildsala kom ég
auga á vöru, sem ég þóttist viss um
að væri frá Suður-Afríku. Ég spurði
fylgdarmann minn hvort þetta væri
ekki bannað.
Hann játti því, en bætti við, að
reikningurinn væri frá Brasilíu, „en
mér kæmi ekki á óvart að varan
væri frá Suður-Afríku“.
Það orð fór af þar um slóðir, að
vottorð Iægju þar í stöflum til að
votta hvað sem var og einnig væri
hægt að láta vörureikninga hljóða
upp á þær upphæðir, sem þurfa
þætti.
SVEINN INDRIÐASON,
Árskógum 8, Reykjavík.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók verður framvegis varðveitt í
Gagnasafni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan,
hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu
efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari þar að lútandi.