Morgunblaðið - 21.07.1995, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 21. JÚLÍ 1995 9
FRETTIR
Veskisþjóf-
ar fundust
VEGFARANDI tilkynnti lögregl-
unni í Reykjavík um sexleytið í
fyrrakvöld að hann hefði séð tvo
menn taka peninga úr seðlaveski
og henda veskinu í ruslatunnu við
Vonarstræti.
Lögreglumaður fór út með mann-
inum að leita mannanna tveggja.
Þeir fundust, voru handteknir og
færðir á lögreglustöð. Þeir eru báð-
ir um fertugt.
Um svipað leyti kom maður á
miðbæjarstöð lögreglunnar og til-
kynnti að seðlaveski hans hefði
verið stolið. Hægt var að afhenda
honum seðlaveskið en að hans sögn
vantaði í það 20 þúsund krónur.
Mennirnir tveir voru ekki með
svo mikla peninga á sér en vegna
þess hve þeir voru ölvaðir var erfitt
að fá greinargóð svör hjá þeim.
Þeir voru færðir í fangageymslu.
DEMANTAHÚSIÐ
Borgarkringlunni, s. 588-9944
Doktor í líffræði
• STEFANÍA Þorgeirsdóttir varði
í febrúar doktorsritgerð í líffræði frá
örverufræðideild Boston University
í Bandaríkjunum.
‘Ritgerð Stefaníu
nefnist „Charact-
erization of Cd2+
effects on acid
soluble UTP po-
ols, microtubule
organization and
glutathione cont-
ent in 3T3 cells“
ogfjallar m.a. um áhrif þungmálm-
anna kadmíums og nikkels á bygg-
ingu frumugrindarinnar, einkum ör-
píplna, og hugsanlegt samband við
breytingar, sem verða á magni
ákveðinna núkleótíða í bandvefs-
frumum.
í ritgerðinni er leitast við að
bregða frekara ljósi á eiturvirkni
kadmíums, en þrátt fyrir að krabba-
meinsvaldandi áhrif þess séu kunn,
er enn ekki vitað nákvæmlega hvern-
ig virkni þess innan frumunnar er
háttað.
Niðurstöður ritgerðarinnar byggði
Stefanía á eigin rannsóknum, sem
hún hefur kynnt á alþjóðlegum ráð-
stefnum um eiturefna- og krabba-
meinsfræði víðs vegar um Bandarík-
in. Auk styrkja frá Boston Univers-
ity fékk hún styrki frá American
Scandinavian Foundation og úr
Minningarsjóði Helgu Jónsdóttur
og Sigurliða Kristjánssonar.
Stefanía lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum í Reykjavík árið
1982 og BS-prófi í líffræði frá Há-
skóla Islands árið 1987. Hún hóf
nám við Boston University árið 1988,
hefur unnið að rannsóknum þar frá
árinu 1990 og útskrifaðist þaðan
með doktorspróf síðastliðið vor. For-
eldrar Stefaníu eru Elín Ingólfsdóttir
kennari og Þorgeir K. Þorgeirsson
framkvæmdastjóri hjá Pósti og síma.
Hún er gift Karli Blöndal, stjórn-
málafræðingi og blaðamanni á Morg-
unblaðinu.
0 Útsalan
haftn
jp| T^f \ 30-50%
f ■ afsláttur
; 0 • « : ' ■ 2 1 rrr^i '
Laugavegi 4, sími 551 4473.
HARD ROCK HAMBORGARI.................
GRÍSASAMLOKA..........................
EFTIRLÆTI ROKKARANS lambagrillsteik..
HICKORY-REYKTUR BAR-B-QUE KJÚKLINGUR
Allir fá afmælistertu.
Afmælistónleikor þriðjudagskvöldið 25. júlí kl. 22
From koma hljómsveitirnor
GCD (Bubbi - Rúnar) og Cigarette.
Veriö velkomin á HARD ROCK CAFE. SÍMI 568-9888.
Franskar dragtir í stórum og litlum
stœröum • 40% afsláttur.
Bolir frá kr. 1.200.
ran ijl - Verið velkomin -
|J A 0 V neðst við OpMvirka^ga
, \ v Dunhaga, laugardaga
I \ sími 562 2230 kl. 10-14.
Travelpro
LOKSIMS Á ÍSLAHOI
Ferðatöskurnar á hjólum.
Má krækja 3 töskursamanog
draga meðannarri hendi.
Töskurfyrirþásem
ferðast mikið.
FRÁBÆR GÆÐI
FRÁBÆR ENDING!
"SKANDINAVÍU-VERÐ!"
VVlólasö'[ðúititj7' lOlVtbjlýatÁ, VVtml55!-5SI4-
Fólk er alltaf
að vinna
íGullnámunni:
80 milljónir
Vikuna 13. júlí til 19. júlí voru samtals 80.002.457 kr.
greiddar út í happdrættisvélum um allt land.
Þetta voru bæði veglegir Silfurpottar og fjöldinn allur af
öðrum vinningum. Silfurpottar í vikunni:
Dags. Staður Upphæö kr.
13. júlí Háspenna, Laugavegi........ 239.102
13. júlí Garðakráin, Garðabæ........ 106.611
15. júlí Háspenna, Laugavegi....... 72.090
15. júlí Pizza 67, Hafnarfirði........ 289.497
16. júlí Garðakráin, Garðabæ........ 64.642
18. júlí Háspenna, Hafnarstræti..... 317.416
18. júlí Háspenna, Hafnarstræti..... 70.605
18. júlí Háspenna, Laugavegi........ 50.960
19. júlí Kringlukráin................. 112.634 s
Staða Gullpottsins 20. júlí, kl. 10:30
var 10.210.029 krónur.
Silfurpottarnir byrja alltaf í 50.000 kr. og Gullpottarnir í 2.000.000 kr.
og hækka síðan jafnt og þétt þar tit þeir detta.