Morgunblaðið - 21.07.1995, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 21.07.1995, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. JÚLÍ1995 21 AÐSENDAR GREIIMAR Vegna ábendinga Sigiirgeirs Jónssonar SIGURGEIR Jóns- son, fyrrverandi hæstaréttardómari, gerir nokkrar athuga- semdir við bók mín, Indæla Reykjavík, í Morgunblaðinu 19. júlí sl. Hann tínir þar til ein sex atriði sem varða allstórt svæði sem lýst er í bókinni og færa má til betri vegar. Ég fagna auð- vitað réttmætum at- hugasemdum því að þá er’hægt í næstu útgáfu að lagfæra missagnir. Mér var hins vegar frá upphafi ljóst að smávillur hlytu að fljóta með í þeim mikla frumskógi sem bygginga- saga Reykjavíkur er. Mun ég út- skýra nánar hvernig sumar þeirra, sem Sigurgeir tínir til, eru til komnar. Bókin Indæla Reykjavík var aldrei hugsuð beinlínis sem strang- fræðilegt sagnfræðirit heldur fyrst og fremst til þess að fólk geti geng- ið eftir henni um Þingholt og sunn- anvert Skólavörðuholt og til þess að vekja áhuga þess á umhverfi sínu, ekki síst gróðri og arkitekt- úr, og því til skemmtunar. Hún er því hvorki saga allra bygginga og byggingalóða á svæðinu né ætt- fræði eða íbúaskrá. Engu að síður liggur gríðarleg rannsóknar- vinna að baki henni auk þess sem sérfróðir menn um hverfið, sem bókin lýsir, lásu yfir handrit hennar. Það er hins vegar vel þekkt um slík verk, bæði heima og erlendis, að þau verða seint dauð- hreinsuð af villum og það er eins og þurfi eina útgáfu slíkra verka til að kalla fram allar leiðréttingar og afla þeirrar þekkingar að ekki verði að fundið. Hitt er annað mál að ég hef feng- ið mjög jákvæð viðbrögð við bók- inni frá mörgum, ekki síst eldri Reykvíkingum og þegar er komin nokkur reynsla á að hún nýtist vel sem leiðsögubók um hverfið. Þær villur, sem fram hafa komið, er auðvitað skylt að leiðrétta og er ég því þakklátur ábendingum Sigur- geirs Jónssonar. Mun ég nú víkja að þeim atriðum sem Sigurgeir telur upp: 1. Frá því að ég fyrst man eftir mér heyrði ég talað um Laufásveg 33 sem hús Haralds kaupmanns Arnasonar, en hann bjó þar í aldar- fjórðung. Dró ég þá fljótfærnislegu Gríðarleg rannsóknar- vinna liggur að baki bókinni, segir Guðjón Friðriksson, auk þess sem sérfróðir menn um hverfið lásu yfir handrit hennar. ályktun að hann hlyti sjálfur að hafa byggt það enda gat það stað- ist vegna aldurs þess. 2. Um húsið Bergstaðastræti 67 stendur skýrum stöfum á frumteikn- ingum, sem varðveittar eru hjá byggingafulltrúanum í Reykjavík, að þetta sé hús Jóns Ólafssonar. Hann virðist því hafa átt það í upp- hafi þó að hann byggi þar e.t.v. aldr- ei sjálfur eins og Sigurgeir heldur fram. 3. Að snúa við húsnúmerunum við Hringbraut 8 og 10 kemur til af því að ég áttaði mig ekki á því að númer þessara húsa eru í öfugri röð miðað við húsnúmerin við Hringbraut að öðru leyti. Er það einsdæmi í Reykjavík. Af því kemur misskilningurinn. 4. Ég sá strax að hlynurinn á blettinum við Smáragötu 13 var eldri en húsið sjálft og taldi því víst að hann hefði verið gróðursettur á vegum Gróðrarstöðvarinnar sem er við hliðina. Það er greinilega mis- skilningur. 5. Guðmundur Hannesson pró- fessor skrifaði á sínum tíma um byggingarnýjungar í húsinu Lauf- ásvegi 70 og segir orðrétt: „Fyrsta húsið af þessari gerð í Reykjavík mun vera hús Kjartans Thors (Laufásv. 70), sem var byggt eftir forsögn Sig. Guðmundssonar húsa- meistara." (Iðnsaga íslands I, 258). Lái mér hver sem vill þó ég hafi dregið þá ályktun að Kjartan hafi sjálfur byggt húsið. 6. Ruglingurinn með „Sturlu- höll“ og „Friðriksborg“ skrifast al- gerlega á minn reikning en skýring- una tel ég að hluta vera ófullnægj- andi númerun þessara húsa. Að svo mæltu óska ég þess að Reykvíkingum og öðrum lands- mönnum verði bókin til nokkurs yndis og ánægju eins og ég hef orðið var við hjá flestum sem lesið hafa bókina og haft hafa samband við mig, en láti ekki fáeinar misfell- ur raska ró sinni. Þeirra leita ég og þær verða lagaðar í fyllingu tímans. Höfundur er sagnfræðingur. Guðjón Friðriksson FYRIR fimm árum tók bæjarstjórn- armeirihluti Fram- sóknarflokks og Sjálf- stæðisflokks við stjórnartaumunum í Kópavogi og mótaði nýja stjórnarstefnu sem má orða í stórum dráttum svona: Við kaupum land, við bijótum land til bygg- inga, við reisum ný hverfi, við reisum þau hratt og vel og stækk- um Kópavog um fjórð- ung á tíu árum. 800 manns á ári nægja. Til að hraða uppbygg- ingunni lánum við gatnagerðar- gjöldin og löðum þannig að nógu marga verktaka. Samhliða tökum við lán til að fullgera gömlu göt- Fari eins fyrir Kópa- vogi, segir Helga Sig- urjónsdóttir, munum við eiga í höggi við óvíg- an skuldaherinn langt fram á næstu öld. urnar sem eru Kópavogi til vansa, við ljúkum líka þeim verkum sem fyrri stjórnendur skildu við hálfk- öruð, svo sem Gerðarsafn og sund- laug. Við greiðum niður þessi lán á löngum tíma og um aldamótin verður Kópavogur orðinn 25 þús- und manna bær, fallegur og öflug- ur menningarbær þar sem atvinnu- líf blómstrar. Aldamótahátíðin verður með þeim glæsilegri á land- inu enda ástæða til að fagna. Þetta væri allt gott og blessað ef áætlanirnar hefðu staðist en það hafa þær ekki gert og voru senni- lega aldrei raunhæfar. Nú þegar hálfnaður er tíminn til aldamóta blasir þetta við: í stað mannfjölgunar um 800 manns á ári varð hún 255 manns fyrra. Kópavogsbúar eru nú liðlega 17.000. Það er með öllu útikolað að hér fjölgi um 8.000 manns á næstu fimm árum. Skuldir hafa vaxið meira en áætlað var, heildarskuldir voru um sl. áramót 4 milljarðar og afborg- anir af langtímalánum á þessu ári verða 430 milljónir. Tekjur bæj- arins hafa vaxið minna en ráð var fyrir gert, þær voru 100 milljónum und- ir áætlun sl. ár, urðu aðeins 1,5 milljarðar. Ekki er útlit fyrir mikla hækkun á næstu árum. Enn er ólokið nokkrum gömlum götum svo og fjárfrekum framkvæmdum í Hamraborg og á Engihjallasvæð- inu. Græna byltingin hefur aftur á móti gengið vel, gangstígar eru víða og vel gerðir og auðvelda umferð um opin svæði. Daglega dáist ég að dalnum mínum, Kópa- vogsdal, og þakka bæjaryfirvöld- um fyrir yndislega göngustíga. Er þetta ekki alls staðar svona? En er þetta ekki allt í góðu lagi? Eru ekki öll sveitarfélög landsins á hvínandi hausnum hvort eð er, sker Kópavogur sig þar nokkuð úr? Við skulum heyra hvað nokkr- ir vanir og til þess kvaddir sérfræð- ingar segja um málið. Guðniundur Snorrason og Sigurður Árnason eru endurskoðendur bæjarreikn- inga. Þeir segja þetta m.a. í um- sögn sinni um ársreikningana fyrir 1994: „Eins og ársreikningar bæj- arsjóðs Kópavogs fyrir árið 1994 bera með sér er skuldastaða bæjar- ins orðin mjög alvarleg. Bæjarsjóð- ur hefur verið rekinn með halla öll ár frá 1985. Svigrúm til að snúa af braut sívaxandi skulda er orðið mjög þröngt. Niðurgreiðsla skulda hlýtur því að verða megin- viðfangsefni bæjaryfirvalda á næstu árum“. Halldór Jónsson, skoðunarmaður meirhlutans á reikningum bæjarins, er líka svartsýnn. Hann segir þetta m.a: „Reikningarnir gefa tilefni til að velta fyrir sér skuldum og greiðslum þeirra. Eigi til dæmis að greiða niður 2 milljarða skuld á 10 árum kostar það með 9% vöxtum 0,3 milljarða. Eyði bæjarfélag 81% tekna í eigin rekstur af 1,6 millj- arða tekjum hefur það einmitt þessa uphæð til ráðstöfunar. Þetta bæjar- félag hefur ekkert til frekari vaxta- greiðslna af öðrum skuldum né til framkvæmda, menningarstarfsemi eða styrkveitinga". Hann bætir við og segir að bæjarstjómir séu „rétt- bærir ráðstöfunaraðilar fjármuna bæjarsjóðs og vinna störf sín eftir því sem þær hafa vit og farsæld til“. Hér er mikið sagt í fáum orð- um, við bæjarfulltrúar hljótum að skilja fyrr en skellur í tönnum. Logi Kristjánsson skoðunarmaður minnihlutans tekur í sama streng: „Ársreikningurinn lýsir vel mjög alvarlegri fjárhagsstöðu Kópavogs. Bæjarfulltrúar geta ekki lengur leyft sér að horfa framhjá þessari niðurstöðu ársreikningsins og hljóta að leita sameiginlegra leiða til að leysa þann vanda sem blasir við, en ætla það ekki komandi kynslóð- um“. Vilhjálmur Vilhjálmsson, for- maður Sambands ísl. sveitarfélaga, ræðir almennt um vanda sveitarfé- laga í Mbl. 9. júní 1995. Hann segir fjárhag þeirra fara almennt versnandi. „Margir sveitarsjóðir“, segir hann, „eru á ystu nöf og eiga ekki um annað að velja en rifa seglin. Hugsunarhátturinn er breyttur og það verður ekki unnt að halda áfram því háa atvinnu- stigi sem sveitarfélögin hafa gert með framkvæmdum sínum. Þetta kallar á ákveðinn samdrátt í at- vinnulífinu og hugsanlega aukið atvinnuleysi ef sveitarfélögin hafa gert meira en góðu hófi gegnir í atvinnumálum“. Óvígur skuldaher Allt ber að sama brunni. Grund- völlur nýju stjórnarstefnunnar í Kópavogi hefur reynst vafasamur. Það hefur verið ráðist í of mikið á of skömmum tíma og á of veikum forsendum. Meirihluti bæjarstjórn- ar vill samt ekki breyta um stefnu og hægja á framkvæmdum. Úr því að svo er hlýtur fyrr eða síðar að fara eins fyrir bæjarstjórninni og manninum sem byggði hús sitt á sandi. Húsið stóðst ekki steypi- regnið sem kom ofan, það féll og fall þess var mikið. Því lengur sem beðið er með að hægja á Grótta- kvörn verktakanna, sem átti að mala okkur Kópavogsbúum gull, þeim mun meiri er hættan á að hún fari að mala okkur ófögnuð eins og Fróði konungur mátti þola. í stað friðar og sælu sem hann taldi að sér myndi hlotnast var honum malaður óvígur her,- Þá var úti Fróðafriður. Fari eins fyrir okk- ur Kópavogsbúum munum við eiga í höggi við óvígan skuldaherinn langt fram á næstu öld. Höfundur er bæjnrfulllníi í Kópa- vogi. ÚTSALA - ÚTSALA Sumarúlpur- heilsársúlpur - vetrarúlpur \o<??HW5ID Mörkinni 6, simi 588 5518.- Næg bílastæði. Vafasöm stefna Helga Siguijónsdóttir Útsala 50% afsláttur Gott úrval skartgripir o.fl. Rauði Vagninn Borgarkringlunni 2. hæð. Bílamarkaöurinn Smiðjuvegi 46E v/Reykjanesbraut. Kopavogi, simi 567-1800 Löggild bílasala Opið laugard. kl. 10-17 og sunnudag kl. 13-18 Daihatsu Applause 4x4 '91, gráblár, 5 g., ek. 51 þ. km. Rafm. í rúðum o.fl. V. 980 þús. Vantar góða bíla á skrá og á staðinn. Takið eftir! Cadilac Braugham Limosien (langur) '88, einn með öllu t.d. sjónvarp, vídeó o.fl. V. 3.9 millj. Honda Civlc GTI ’89, steingrár, 5 g., ek. 104 þ. km., sóllúga o.fl. V. 695 þús. Nýr bíll! Renault Safrane 2.2 VI '94, steingrár, sjálfsk., ek. aðeins 1600 km., rafm. í öllu, fjarst. læsingar o.fl. V. 2.650 þús. MMC L-300 Minibus '90, grár, 5 g., 8 manna, ek. 101 þ. km. V. 1.280 þús. Suzuki Vitara JLXi '92, 5 dyra, rauður, sjálfsk., ek. 140 þ. km. (langkeyrsla), gott ástand. V. 1.390 þús. Honda Civic DX ’89, rauður, 5 g., ek. 78 þ. km. V. 580 þ. M. Benz 230 E ’83, grásans., sjálfsk., ek. 137 þ. km., sóllúga o.fl. Óvenju gott ein- tak. V. 650 þús. Toyota Corolla XL Sedan ’91, sjálfsk., ek. 71 þ. km. V. 750 þús. Grand Cherokee Laredo 4.0 I ’95, sjálfsk., ek. 8 þ. km., V. 3,8 millj. Nissan Sunny 2000 GTI '92, rauður, 5 g., ek. 70 þ. km., sóllúga, álfelgur, rafm. í öllu, ABS o.,fl. V. 1.190 þús. Range Rover 4ra dyra '87, grásans, 5 g., ek. 130 þ. km. Gott eintak. Tilboðsverö kr. 1.400 þús. M. Benz 230E ’91, svarblár, sjálfsk., ek. aðeins 41 þ. km., ABS-bremstur, fjarst. læsingar og þjófav., sóllúga, geislasp. o.fl. V. 3,3 millj. Sk. ód. Subaru Legacy 1800 st. ’90, 5 g., ek. 72 þ. km, rafm í rúðum o.fl. V. 1.180 þús. Volvo 740 GL ’87, grænn, sjálfsk., ek. 103 þ. km. Rafm. í rúðum o.fl. V. 980 þús. Toyota Corolla XLI Liftback S Series '94, rauður, 5 g., ek. 22 þ. km, rafm. í rúðum, þjófavkerfi, álfelgur o.fl. V. 1.250 þÚ9. Grand Cherokee Limited V-8 ’94, græn- sans, sjálfsk., ek. aðeins 9 þ. km, leður- innr., álfelgur, geislpasp., einn með öllu. Sem nýr. V. 4.550 þús. Toyota Carina E (2.0) '93, rauður, sjálfsk., ek. 35 þ. km, ABS bremsur, álfelgur o.fl. V. 1.590 þús. Saab 900i ’89, 4ra dyra, sjálfsk., ek. 100 þ. km. V. 780 þús. Nissan Primera 2000 SLX '92, blár, 5 g., ek. 70 þ. km, rafm. í rúðum og læsingum, álfelgur o.fl. V. 1.190 þús. Nissan Patrol diesel Turbo '90, 5 dyra, 33“ dekk, læstur að aftan. V. 2,4 millj. Ford Econoline 150 4 x 4, '84, innréttað- ur ferðabíll, 8 cyl. (35I), sjálfsk., ek. 119 þ. km. Tilboðsverð 980 þús. Daihatsu Charade TS ’91, 4 g., ek. 37 þ. km. V. 570 þús. Peugeot 405 1,9 GRX 4x4 '93, stein- grár, 5 g., ek. aðeins 39 þ. km, rafm. í rúðum, álfelgur, geislaspilari o.fl. V. 1.390 þús. t J

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.