Morgunblaðið - 21.07.1995, Blaðsíða 12
FÖSTUDAGUR 21. JÚLÍ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
LANDIÐ
Raufarhafnarhreppur fagnar 50 ára afmæli
RAUFARHAFNARKIRKJA, höfnin í forgrunni.
Morgunblaðið/Helgi Ólafsson
Vegleg afmælis-
hátíð um helgina
Raufarhöfn - Raufarhafnarhreppur á fimmtíu ára af-
mæli um þessar mundir og verður mikið um dýrðir í
tilefni þess um helgina. Forseti íslands, frú Vigdís Finn-
bogadóttir, heiðrar íbúana með nærveru sinni á laugar-
dag.
Margt góðra gesta verður á hátíðinni auk frú Vigdís-
ar. Raufarhafnarbúar eru í vinabæjarsambandi við
Hólmvíkinga og er von á um 120 gestum þaðan. Sendi-
herra Rússlands mun koma ásamt fylgdarliði sem og
fulltrúar frá sendiráðum Dana, Frakka og Svía. Þá
munu þingmenn Norðurlandskjördæmis eystra, Guð-
mundur Bjarnason umhverfis- og landbúnaðarráðherra,
Halldór Blöndal samgöngumálaráðherra, Steingrímur
J. Sigfússon, Svanfríður Jónasdóttir, Tómas Ingi Olrich
og Valgerður Sverrisdóttir, verða meðal gesta.
Listrænir íbúar
Að sögn Gunnlaugs Júlíussonar, sveitarstjóra Rauf-
arhafnarhrepps, hafa margir lagt hönd á plóginn til
að afmælið verði sem eftirminnilegast. Hús hafa verið
máluð og umhverfí fegrað. Æfðir hafa verið einþátt-
ungar til sýninga og búið er að byggja risastóran hval
en í kjafti hans er hátíðarsviðið og miðpunktur hátíðar-
haldanna.
Framhlið Verslunarfélags Raufarhafnar hefur verið
klædd sextíu fermetra strigadúk og eru félagar í mynd-
listarklúbbnum Litrófi ásamt þremur listamönnum, þeim
Kristínu Geirsdóttur, Sigurði Þóri og Rut Rebekku,
búnir að mála á hann listaverk. Einnig verður opnuð
Morgunblaðið/Helgi Ólafsson
VERSLUNARFÉLAG Raufarhafnar klætt
striga. Félagar í myndlistarklúbbnum Lit-
rófi tóku sig síðan til og máluðu listaverk
á strigann.
myndlistarsýning, tónleikar verða haldnir, flutt verður
hátíðarmessa og margt fleira.
í tilefni afmælisins hefur verið gerður fyrri hluti
afmæliskvikmyndar og verður hann frumsýndur um
helgina. Myndin lýsir því þegar sjómaður kemur til
Raufarhafnar er bátur hans bilar. Hann staldrar við á
staðnum í 4-5 daga og kynnist fólkinu og andrúmsloft-
inu sem hann ella hefði ekki gert. Seinni hluti myndar-
innar verður síðan tekinn upp á afmælishátíðinni um
helgina. Handritshöfundur er Öm Ingi, ijöllistamaður
frá Akureyri, en hann hefur einnig stjómað undirbún-
ingi hátíðahaldanna.
Hátíðin hefst í dag, 21. júlí, og stendur fram á sunnu-
dagskvöid.
(O
s
Ath!
Fös. kl. 16. koma
Bubbi & Rúnar
og taka lagið.
ÚTSALA
Bolir Verð frá 190
Stuttbuxur 790
Skyrtur 990
Buxur 1690
Peysur 2490
Jakkar 2990
Kringlan s: 581 1944 Laugavegi 81 s: 552-1844
Morgunblaðið/Björn Blöndal
Fyrsta skóflustunga
að þjálfunarpotti
Keflavík - Um 100 gestir voru
viðstaddir þegar fyrsta skóflu-
stungan var tekin að áfanga að
uppsetningu nýs þjálfunarpotts
hjá Þroskahjálp Suðurnesja við
Ragnarssel í Keflavík um daginn.
Áætlaður kostnaður við þennan
hluta verksins er um 2,6 milljónir
króna og á því að vera lokið í
september.
I næsta áfanga er ætlunin að
byggja hús yfir þjálfunarpottinn
og er gert ráð fyrir að kostnaður
við það verði um 4,7 milljónir
króna, fullfrágengið að utan en
fokhelt að innan. Við þetta tæki-
færi var gestum, sem flestir voru
fulltrúar ýmissa félagssamtaka,
boðið til grillveislu en þeir hafa
sýnt þessu verkefni mikinn áhuga
og safnað fjármunum til þess.
Grillað var á nýju grilli sem Ásta
Sigurðardóttir af miklum höfð-
ingsskap færði Þroskahjálp að
gjöf nýverið.
Athöfnin var nokkuð frábrugð-
in hinni hefðbundnu fyrstu skófl-
ustungu, því það voru börn sem
sækja þjálfun til Þroskahjálpar
sem tóku hana sameiginlega.
Nýtt bílageymsluhús
á Bakkaflugvelli
Selfossi - Bflageymsla við flugvöllinn
á Bakka í Landeyjum var nýlega af-
hent eigendum. Það var Agnar Pét-
ursson, byggingameistari á Selfossi,
sem byggði bílageymslumar og kaup-
endur eru Vestmannaeyingar.
I bílageymsluhúsinu eru stæði fyr-
ir 16 bíla og er hvert stæði 2,60 x 7
metrar á stærð og hver eigandi hef-
ur lykil að hurðinni á sínu stæði.
Húsið er stálgrindahús og klætt með
galvaniseruðu próflljámi og gert til
að standast veður og vinda. Hvert
stæði í húsinu kostar 350 þúsund
krónur og er hægt að greiða þau á
fjórum árum. Agnar Pétursson bygg-
ingameistari sagði að mikill áhugi
væri fyrir stæðum í húsinu en nokk-
ur væru enn laus. Þeir sem keyptu
stæði í húsinu eru með bílana sína
uppi á landi yfir sumartímann og þá
gjarnan tjaldvagna og annað sem
tilheyrir sumarferðum. Einnig hyggj-
ast þeir geyma þar hjólhýsi og tjald-
vagna yfír veturinn þegar bíllinn
hefur verið tekinn heim í Eyjar. Með
því að hafa bílinn kláran á Bakka-
flugvelli er fólk í beinu vegasam-
bandi við Eyjamar því það tekur
ekki nema 7 mínútur að fljúga til
Eyja og oftast ekki nema 15 mínútna
bið á vellinum eftir að hringt hefur
verið frá Bakka í Flugfélag Vest-
mannaeyja eftir flugvél.
ÞURRKRYDDAÐ
BomíarneS