Morgunblaðið - 21.07.1995, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 21.07.1995, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. JÚLÍ 1995 19 LISTIR Símtal úr borginni BORGARBÚAR ættu að hafa augun hjá sér þegar þeir keyra undir brýr í borginni næstu tvær vikur því reistir hafa verið timb- urkofar undir þremur þeirra. Þeir eru hluti samvinnuverkefn- is þýsku myndlistarmannanna Frank Reitenspiess og Markus Strieder. Hinn hluti sýningarinnar á sér stað í sal Nýlistasafnsins þar sem þremur símum hefur verið stillt upp. Sýning þessi, sem ber heitið „Sól úti, sól inni“, verður opnuð næstkomandi laugar- dagskvöld í Nýlistasafninu við Vatnsstíg. Þeir Frank og Markus námu myndlist við Listaháskólann í Berlín og hafa sýnt verk sín víða. Þetta er fyrsta samvinnu- verkefni þeirra. „Við höfum þekkst lengi og oft hefur verið mikill samhljómur í verkum okkar. Við afréðum því að prófa að vinna saman að einhverju verkefni og þessi sýning hér á íslandi er afrakstur þess,“ sögðu þeir í spjalli við blaðamann. í námi sínu unnu þeir mikið með myndbönd og kvikmyndir og hafa einna helst sýnt verk unnin í þá miðla. Mark hefur einnig fengist við hljóð og út- færslu þess í myndlist og hafa símar verið honum hugleiknir. „Með símanum fæst ég við hljóð í tíma og rúmi, hann ber hljóð milli staða,“ sagði Markus. Skammgott skjól Tenging umferðarniðsins úr sí- manum við „brúarkofana", sem Frank sér um að reisa, er aug- ljós. „Þeir verða lokaðir. Það er ekki hægt að fara inn í þá nema með hörðu. Þeir eru hugsaðir fyrir vegfarendur sem keyra hjá, keyra undir brýrnar sem ég kalla skjól því þær veita bíl- unum skjól eitt sekúndubrot. Menn komast síðan ekki að því hvað kofinn geymir nema fara inn í Nýlistasafn og athuga hvað heyrist úr símtólunum,“ sagði Frank. Frank hefur verið hér á Iandi áður og síðast dvaldi hann hér í níu mánuði. „Mér líður vel hér og kann miklu betur við mig hér en í Berlín. Ég hef ákveðið að flylja hingað og setjast jafnvel að til frambúðar," sagði hann og óhætt er að segja að fengur verði í honum fyrir íslenskt lista- líf því hann er með ýmislegt á Morgunblaðið/Sverrir MARKUS Strieder og Frank Reitespiess. prjónunum og sér ýmsa mögu- leika til listsköpunar hér, jafnt innan dyra sem utan. Mikil ásókn erlendra listamanna Friederike Feldmann og Gunila Bandolin opna einnig sýningar í safninu á sama tíma. í stuttu spjalli við starfstúlku safnsins kom fram að sýningarhald í safn- inu er skipulagt út næsta ár og dagskráin þéttskipuð erlendum sem innlendum listamönnum. Fjöldi erlendra listamanna sem sýnir í safninu á næstunni vekur athygli og sagði hún að ásókn erlendra listamanna í að koma hingað með verk sín sé með ólíkinum mikil, sérstaklega ef tekið er tillit til þess hve kostnaður við slíkt sýningar- hald, leiga, flutningur og annað, er mikill. BRÚIN við Fornahvamm í Norðurárdal leit svona út nýmáluð í fyrrahaust. SVONA lítur brúin út í dag eftir að náttúran hefur sett mark sitt á hana. Fjarlægðin gerir brýrnar bláar MYNDLISTARMAÐURINN Finna B. Steinsson vakti þjóðarathygli fyrir tveimur árum þegar hún setti veifur á hólana „óteljandi“ í Vatns- dalnum í því skyni að reyna að festa á þeim tölu. Síðastliðið sumar fór Finna aftur á stjá og nú til fundar við þijár gamlar brýr í Norðurárdal í Borgarfírði sem hún málaði bláar. Nú hefur náttúran sjálf gripið í taumana og sett mark sitt á listaverkið því ein brúnna hrundi undan snjóþunga síðasta veturs. Tilviljun að brýrnar standa enn í samtali við blaðamann Morgun- blaðsins sagðist hún hafa málað brýmar síðastliðið haust að fengnu Ieyfi hjá Vegargerð ríkisins og landeigendum í Norðurárdal sem reyndist auðsótt því þessar biýr hafi löngu verið komnar úr umferð. „Það er í raun tilviljun að brýrn- ar standa ennþá því Vegagerðin hefur það að stefnu að rífa gamlar brýr eins og þessar þegar þær hafa lokið hlutverki sínu. Þessar brýr eru svotil eingöngu notaðar við fjárrekstur og enginn tekur eftir þeim lengur, gráum og göml- um,“ sagði Finna. Hún sagði að tilgangurinn með verkinu hafi verið að draga þær fram í dagsljósið á ný og heiðra þær. Aðspurð sagði hún að tiltækið hefði heppnast vel og fólk væri yfirleitt ánægt með verkið. Margir hafi verið hissa en þótt þó gaman að verkinu. Aðspurð um hvort ein- hver teldi illa farið með þessi gömlu mannvirki með því að mála þau sagði hún að enginn hefði tjáð sig um það við hana, líklega af því að enginn hafi tekið eftir þeim áður eða fólk hafi verið búið að stein- gleyma að þær væru til. Brúin hrynur „Brúin við Fornahvamm hrundi svo í vetur og mér fannst það svolítið magnað og merkilegt að það skyldi gerast svo stuttu eftir að ég mál- aði hana. Ég er fegin að hafa gert það og heiðrað hana á þennan hátt áður en hún lauk líftíma sínum á svo dramatískan hátt. Ég valdi bláa litinn á brýmar útaf táknrænunni við hann, sbr. fjarlægðin gerir fjöllin blá eða öllu heldur fjarlægðin gerir brýrnar blá- ar því þær eru komnar úr alfara- leið og fjarlægjast úr hugum þeirra sem þekktu þær einhverntíma. Auk þess fer blái liturinn vel í náttúr- unni.“ Finna sagði óvíst að hún héldi verkinu við, sérstaklega eftir að ein þeirra hrundi en hún tekur ekki fyrir að hún eigi eftir að gera eitt- hvað þessu líkt úti í náttúrunni í framtíðinni. SUMARLANDIÐ MYNPLIST List Gallcrí - List- húsinu Laugardal MÁLVERK Þorbjörg Höskuldsdóttir og Guð- rún Svava Svavarsdóttir. Opið alla daga kl. 13-18 til 23. júlí. Aðgangur ókeypis LÍKT og aðrar listgreinar má segja að myndlistin eigi sér ákveðnar árstíðir sem helstu sýningartímabil, en á öðrum tímum séu áherslurnar aðrar. Sumarið er almennt tími dreifð- ari og smærri sýninga, og þá nota margir tækifærið til að setja upp sérstakar sumarsýn- ingar, þar sem oft er að finna almennar kynningar á listafólki, örlítil innsýn í verklag þess og verkefni, eða gerð nokkur úttekt á ferli þess um ákveðið árabil. Sýning þeirra Þorbjargar Höskuldsdóttur og Guðrúnar Svövu Svavarsdóttur er af þessu taginu; í salnum hafa þær kom- ið fyrir nokkrum fjölda verka, sem gefa vissa innsýn í þeirra verklag og viðfangsefni síðustu ára. Báðar eiga þær stöllur langan feril að baki og hafa markað sín spor í myndlist síðustu áratuga, þannig að hér kemur fátt á óvart. Að þessu sinni hafa þær kosið að sýna fyrst og fremst verk sem tengjast landinu, bæði sem staðarlýsingar og almennar tilvísanir í þann svip, sem þær ljá því með vinnubrögðum sín- um. Þorbjörg sýnir bæði olíumál- verk og vatnslitamyndir, og eru flest verkin unnin á þessu ári, þó nokkur séu eldri. Sem fyrr byggir listakonan sínar lands- lagsmyndir á grunni tilvísana í klassískan myndheim; tígulgólf (á stundum æði skrautleg) eru í grunni flestra myndanna í stað grasbala og mela landsins, og í mörgum þeirra rísa upp tignar- legar jónískar súlur sem marka landið og loka myndfletinum. Þetta síðarnefnda er einkum áberandi í vatnslitamyndunum, eins og t.d. í „Snæfellsjökull" (nr. 12), þar sem súlurnar gegna ekki síður því hlutverki að tengja sýnina við æðri andleg máttarvöld. í olíumálverkunum eru vinnu- brögðin í nýjustu myndunum eilítið grófari en fyrr, og ef til vill meiri kvika í þeim fyrir vik- ið; hestar eru hér víða áberandi í myndfletinum, og gegna þar virku hlutverki bæði sem hluti náttúrunnar og andleg hold- gerving hennar, líkt og sjá má í myndinni „Hestar á ferð“ (nr. 19), þar sem landið sjálft er jafnframt voldugt og yfirþyrm- andi. Þorbjörgu tekst vel upp í þessum nýjustu verkum sínum og verður fróðlegt að sjá hvert þessar tilvisanir leiða hana í framhaldinu. Guðrún Svava sýnir hér ein- göngu landslagsmyndir unnar með vatnslitum, og hvíla þær á grunni sterkrar hefðar slíkra verka. Óbyggðir, jöklar, fjöll og eyðisandar eru uppistaðan í þessum myndum, þar sem tæknilegir hæfileikar listakon- unnar njóta sín einkar vel, þar sem hún tekst á við myndefnið. Það eru fyrst og fremst hug- hrif kyrrðar og lita, sem hér standa upp úr, og þar koma best út þær myndir sem njóta heildarinnar í fáum dráttum og litum. „Sandöldur við Veiði- vötn“ (nr. 36) er ein stærsta myndin á sýningunni, en jafn- framt ein sú besta; einnig er gott jafnvægi í myndinni „í óbyggðum 11“ (nr. 24.). í ýmsum smærri myndanna hættir lista- konunni hins vegar til að láta tæknina ná yfirhöndinni, þannig að leikurinn með liti náttúrunn- ar skyggir á viðkvæma mynd- bygginguna. Þær Þorbjörg og Guðrún Svava eru með þessari sýningu að veita áhorfendum nokkra innsýn í sumarlandið, sem við íslendingar lifum á og lifum fyrir á erfiðari árstímum; það er hlýja og kyrrð yfir þessum verkum, sem bera með sér ágæta tilfinningu þeirra beggja fyrir landinu, sem hefur orðið þeim að yrkisefni. Eiríkur Þorláksson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.