Morgunblaðið - 21.07.1995, Qupperneq 14
14 FÖSTUDAGUR 21. JÚLÍ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
ÚRVERINU
FRÉTTIR: EVRÓPA
Aukin umsvif hjá Seaflower Whitefish í Namibíu
110 STARFSMENN starfa á hverri vakt í fisk-
iðju Seaflower Whitefish, þar sem er unninn
hausaður og slægður lýsingur og roðflett flök.
Alls starfa 300 manns hjá fyrirtækinu árið um
kring og allt að 600 manns á humarvertíðinni.
Morgunblaðið/Ómar Friðriksson
GUÐBRANDUR Sigurðsson framkvæmdastjóri
sýnir Davíð Oddssyni forsætisráðherra og
Hendrik Witbooi, aðstoðarforsætisráðherra
Namibíu, fiskafurðir í vinnsluhúsum Seaflower
í opinberri heimsókn Davíðs til Namibíu.
Endurnýja frystihús
og kaupa frystitogara
STJÓRNENDUR útgerðar- og
fiskvinnslufyrirtækisins Seaflower
Whitefish í Liideritz í Namibíu,
gera sér vonir um að kvóti fyrir-
tækisins á lýsingi verði aukinn í
haust og hafa ráðist í auknar fjár-
festingar til að auka gæði og verð-
mæti framleiðslunnar fyrir mark-
aði í Evrópu, Japan og Bandaríkj-
unum.
Nú er verið að vinna að endur-
bótum á frystihúsi fyrirtækisins
og hanna vinnslullnur sem gerir
fyrirtækinu kleyft að að fara út í
framleiðslu á verðmætari afurðum,
fyrst og fremst á roðlausum flök-
um og roðlausum og beinlausum
flökum að sögn Guðbrands Sig-
urðssonar, framkvæmdastjóra hjá
íslenskum sjávarafurðum hf., sem
eiga 20% hlut í fyrirtækinu á móti
Fishcor, sem er eignarhaldsfélag í
eigu namibíska ríkisins. Guðbrand-
ur var við stjómvölinn hjá Seaflow-
er til bráðabirgða undanfarna þijá
mánuði, eða þar til Magnús Guð-
jónsson, nýráðinn framkvæmda-
stjóri, kom til starfa.
Fjárfesta fyrir rúmlega 500
millj. ísl. kr.
Áætlað er að endurbótum frysti-
hússins verði lokið í október og
muni þær kosta um 12 millj. nam-
ibískra dala eða rúmlega 200 millj.
ísl. kr. og eru 2/3 kostnaðarins
fjármagnað með láni frá Norræna
þróunarsjóðnum.
Einnig hefur verið ákveðið að
ráðast I kaup á fullkomnum, 80
metra frystitogara fyrir 100
manna áhöfn, sem gerir fyrirtæk-
inu kleyft að fara út í samskonar
vinnslu út á sjó. Kaupverð skipsins
er um 18 millj. dala eða um 310
millj. ísl. kr.
Hifikepunye Pohamba, sjávarút-
vegsráðherra Namibíu, sagði í
samtali við Morgunblaðið telja að
samstarf Fishcor og íslenskra sjáv-
arafurða hf. hefði gengið mjög vel
til þessa og hann kvaðst sjá mögu-
leika á ennfrekara fyrirtækjasam-
starfi við íslenska aðila. íslending-
ar hefðu gerst beinir þátttakendur
í útgerð og rekstri Seaflower fyrir-
tækjanna og miðlað af sérþekkingu
sinni bæði varðandi framleiðslu og
stjómun í sjávarútvegi.
300-600 starfsmenn og 800
millj. velta á seinasta ári
Um 300 manns starfa hjá Sea-
flower Whitefish að jafnaði og eru
nokkrir íslendingar þar í stjórnun-
arstöðum í vinnsluhúsum í landi
og fimm íslendingar yfirmenn eru
á hveiju skipi fyrirtækisins. Á
humarveiðitímabilinu starfa sam-
tals um 600 manns hjá Seaflower
Whitefish og systurfyrirtækinu
Seaflower Lobster í Liideritz, sem
er sérhæft í humarveiðum. Það
lýtur einnig stjóm íslendinga en
er að fullu í eigu Fishcor.
Velta Seaflower Whitefísh á
seinasta fjárhagsári var rúmlega
40 millj. namibískir dalir eða um
800 millj. ísl. kr. en velta Seaflow-
er Lobster var 10 millj. dala. Um
90% af framleiðslu Seaflower
Whitefish er lýsingur og er það
með 9.906 tonna kvóta en stjórn-
völd Namibíu hafa ? ekki aukið
heildarkvóta lýsings sl. tvö ár
vegna sérstakra skilyrði í sjónum.
Tap varð af rekstri fyrirtækisins á
seinasta ári en að sögn Magnúsar
Guðjónssonar, forstjóra Seaflower,
gerir rekstraráætlun ráð fyrir
hagnaði á yfírstandandi ári.
Seaflower Whitefish á einn ís-
físktogara, Rex sem áður hét Rán
og var gert út frá Hafnarfirði, einn
línubát og tvo frystitogara af minni
gerðinni. Frá og með næsta ári er
stefnt að því að breyta öðrum
frystitogaranum í ísfiskskip og
mun fyrirtækið þá gera út tvo ís-
físktogara til að afla hráefnis fyrir
vinnsluna auk nýja frystitogarans
sem tekinn verður í notkun í upp-
hafi næsta fískveiðiárs. Fyrirtækið
fjárfesti fyrir 30 millj. namibískra
dala (rúmar 500 millj ÍSK) á sein-
asta ári.
Byggja upp gæðafiskvinnslu
Hlutverk Fishcor er að auka
þróun í sjávarútvegi landsins og
efla þátttöku hins álmenna
Namibíumanns í sjávarútvegi. Fyr-
ir dyrum stendur að auka hlutafé
félagsins síðar á árinu og skrá 49%
hlutabréfa á verðbréfamarkaði
Namibíu.
„Þátttaka okkar miðar að því
að aðstoða þá við að koma upp
gæða fiskvinnslu, ná árangri í veið-
um auk þess sem þeir fá mikilvæg
tengsl við markaði í gegnum sam-
starfið við Islenskar sjávarafurðir
hf.,“ segir Guðbrandur.
Skiptar skoðanir um sam-
eiginlegan gjaldmiðil
Brussel. Reuter.
ÍBÚAR Evrópusambandsins
skiptast í tvær nokkurn veginn
jafnstórar fylkingar þegar þeir
eru spurðir um áform um að
sameina gjaldmiðla Evrópu í
einn fyrir aldamót.
Kemur þetta fram í skoðana-
könnun sem framkvæmda-
stjórnin lét gera og voru niður-
stöður hennar birtar í gær.
Alls voru 47% hlynnt eða
frekar hlynnt sameiginlegum
gjaldmiðli en 45% íbúa aðildar-
ríkjanna voru andvíg eða frekar
andvíg sameiginlegum gjald-
miðli. Átta prósent höfðu hins
vegar ekki gert upp hug sinn.
I Belgiu, Spáni, Frakklandi,
Irlandi, ítaliu, Lúxemborg og
Hollandi voru rúmlega helming-
ur íbúa hlynntir sameiginlegum
gjaldmiðli. í Grikklandi og Port-
úgal voru fleiri hlynntir en and-
vígir en hlutfall óákveðinna var
12% og 20%.
f Austurríki, Danmörku,
Þýskalandi, Finnlandi, Svíþjóð
og Bretlandi var hins vegar af-
gerandi meirihluti andvígur
sameiginlegum gjaldmiðli og
hverfandi hlutfall íbúa var á
báðum áttum.
EVRÓPUÞINGIÐ þrýstir á Tyrki að bæta ástandið
í mannréttindamálum.
Tollabandalag við
Tyrkland ekki
tímabært
Aþena. Reuter.
FORSETI Evrópuþingsins, Klaus
Hánsch, sagði á þriðjudag að sam-
þykki við tollabandalagi ESB og
Tyrklands væri háð því að staða
mannréttindamála í Tyrklandi yrði
bætt.
Hánsch sagði fullljóst, að ef
samningurinn um tollabandalagið
yrði borinn undir atkvæði í Evr-
ópuþinginu nú, yrði hann felldur.
„Aðeins ef Tyrkland bætir ráð sitt
í mannréttindamálum mun Evr-
ópuþingið samþykkja samning-
inn,“ sagði Hánsch fréttamönnum,
en hann er nú staddur í þriggja
daga opinberri heimsókn í Grikk-
landi.
Samningurinn, sem þykir mjög
arðvænlegur og myndi veita Tyrkj-
um óheftan aðgang að Evrópu-
markaðnum, var undirritaður af
utanríkisráðherrum ESB-ríkjanna
í marz sl. Til stendur að bera hann
undir atkvæði í Evrópuþinginu
seinna á þessu ári.
Ólíklegt þykir, að samningurinn
hljóti hljómgrunn á þinginu að
óbreyttu, þar sem nokkrir hópar
innan þingsins hafa hótað að
hindra framgang hans vegna
mannréttindabrota stjórnvalda í
Ankara og innrásar Tyrkja í írak,
þar sem tyrkneski herinn reyndi
nýlega að uppræta kúrdíska
skæruliða.
Kýpurdeilan
verði leyst
Hánsch hvatti tyrknesk stjórn-
völd til að veita pólitískum föngum
frelsi, gera lýðræðislegar breyt-
ingar á stjórnarskrá Tyrklands og
vinna að lausn Kýpurdeilunnar.
Grikkland hefur árum saman
staðið í vegi fyrir tollabandalaginu
við Tyrkland vegna hinnar skiptu
eyjar í Miðjarðarhafinu og létu
fyrst af andstöðunni eftir að opnað
var fyrir samningaviðræður um
aðild Kýpur að ESB.
Meira utan af grálúðu
Forsætisráðherra Svíþjóðar
Aðild ekki orsök vandans
ÚTFLUTNINGUR á grálúðu hefur
aukist töluvert á þessu ári frá því
á sama tíma í fyrra. Þá hefur verð
á grálúðu hækkað um u.þ.b. 15
prósent. Útflutningurinn eykst,
þrátt fyrir minnkandi veiði.
Útflutningur á grálúðu fram í lok
maímánaðar á þessu ári hefur ver-
ið tæp 7.500 tonn að verðmæti
rúmra tveggja milljarða króna, en
á sama tíma í fyrra nam útflutn-
ingurinn rúmum 5 þúsund tonnum
að verðmæti rúmra tólf hundruð
milljóna króna. Heildarútflutning-
ur í fyrra var tæp 16 þúsund tonn
að verðmæti fjögurra milljarða
króna.
SH selur fyrir fleiri
grálúðuskip
„Við höfum flutt mun meira út
af grálúðu en í fyrra,“ segir Hall-
dór Eyjólfsson, markaðsstjóri Söl-
umiðstöðvar Hraðfrystihúsanna.
„Það kemur einkum til af þvi
að flein grálúðuskip hafa gengið
til liðs við okkur." Halldór segir
að grálúðan leiti stöðugt dýpra,
og þá séu öflugustu frystitogaram-
ir best fallnir til veiða á grálúðu.
Þá segir hann að verðin í ár sé
um 15 prósent hærri en á sama
tíma í fyrra og að auki flytji SH
út um tvöfalt meiri afla en á sama
tíma og í fyrra.
Visby, Goílandi. Reuter.
INGVAR Carlsson, forsætisráð-
herra Svíþjóðar, segir að Svíar
eigi ekki að kenna Evrópusam-
bandinu um hrakfarir sínar í Evr-
ópumálum. Þvert á móti eigi þeir
að nýta sér þau efnahagslegu
tækifæri, sem aðildin býður upp á.
„Ég vil taka þetta alveg skýrt
fram. Það er sjálfsblekking að
kenna um ESB um efnahagvanda
þjóðarinnar,“ sagði Carlsson í
ræðu á pólitískri ræðu á Gotlandi.
„Við gerðum aðilar að ESB
þann 1. janúar á þessu ári. Þá
voru vextir þegar háir, skuldir rík-
isins miklar og atvinnuleysi hræði-
lega útbreitt."
Carlsson sagði að aðild Svíþjóð-
ar að ESB gæti orðið til að Svíar
fyndu leið út úr efnahagsvanda
sínum.