Morgunblaðið - 21.07.1995, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 21.07.1995, Qupperneq 16
16 FÖSTUDAGUR 21. JÚLÍ 1995 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Fyrirhugaðar kjarnorkutilraunir Frakka í Kyrrahafi Hörðustu mótmæli Japana til þessa Tókýó. Reuter. SENDIHERRA Frakklands í Japan var í gær boðaður á skrifstofu jap- anska forsætisráðherrans, Tomiichi Murayama, þar sem honum var afhent formleg krafa frá japönsku stjóminni um að Frakkar hætti við fyrirhugaðar kjamorkutilraunir á Kyrrahafí. Þetta eru hörðustu mót- mæli Japana við fyrirætlan Frakka til þessa. Mikilvægi aðgerða Japana er fólgið í formi afhendingar kröfunn- ar fremur en innihaldi hennar. Hefðbundin aðferð við afhendingu mótmæla sem þessara er að boða erlendan sendiherra í utanríkisráðu- neytið þar sem hann hittirlágt sett- an embættismann. Hyggjast nota hvert tækifæri Franski sendiherrann var boðað- ur á fund Kozo Igarashi, ráðuneyt- isstjóra í japanska forsætisráðu- neytinu. „Japan mun á fundi Sambands ríkja suðaustur Asíu (ASEAN) og við öll þau tækifæri sem gefast hvetja Frakka til þess að endur- skoða áætlanir sínar um að hefja kjamorkutilraunir á ný,“ sagði Iga- rashi að loknum fundinum. „Ákvörðun [Frakka] er ákaflega sorgleg og mun rýra traust á Sam- komulaginu um takmörkun á út- breiðslu kjarnavopna. Japanir, líkt og margar aðrar þjóðir, vona að Frakkar muni, heiðurs síns vegna, draga ákvörðun sína til baka,“ sagði Igarashi við fréttamenn. Frökkum hefur ásamt Japönum verið boðið til árlegs fundar ASEAN sem haldinn verður í Brúnei í byrj- un næsta mánuðar. Á miðvikudag stóðu Japanir, ásamt Áströlum og Nýsjálending- um, að ályktun á vettvangi Samein- uðu þjóðanna þar sem þess var far- ið á leit að Frakkar létu af áformum sínum. Leiðtogar samsteypustjóm- ar Murayamas hafa samþykkt að samskonar ályktun verði borin upp á japanska þinginu. Sniðganga franskar vörur? Masayoshi Takemura, fjármála- ráðherra og leiðtogi eins af stjómar- flokkunum þrem, lagði ennfremur til í kosningaræðu fyrr í vikunni að Japanir sniðgengju franskar vör- ur í mótmælaskyni. Frakkar sendu Japönum í gær viðvömn þess efnis að ef japanska stjómin hvetti til að franskar vömr yrðu sniðgengnar myndu góð samskipti ríkjanna vera í hættu. Igarashi sagði að ríkis- stjórnin hygðist ekki boða slíkar aðgerðir. I síðasta mánuði átti Murayama fund með Jacques Chirac, forseta Frakklands, í París og bað hann þá að hverfa frá áætlununum. Þá svaraði Chirac því til að hann skildi vel tilfínningar japönsku þjóðarinn- ar, sem væri sú eina sem hefði mátt þola afleiðingar kjarnorku- sprengingar. Synt við Mururoa LEIÐTOGI Frönsku Pólynesíu, Gaston Flosse, stóð í gær við loforð sitt um að fá sér sund- sprett á Mururoa-rifi skammt frá þeim stað sem Frakkar hyggjast gera kjarnorkutilraun- ir sínar á. Lýstu andstæðingar hans því þegar yfir að um ómerkilega brellu væri að ræða. Að sundspetti loknum sté Flosse á land og gæddi sér á humri og skelfiski sem veiddur var við Mururoa en rifið er annar tveggja staða sem Frakkar hafa gert um 190 kjamorkutilraunir á. Frakkar hafa lagt allt kapp á sýna fram að tilraunir þeirra séu hættulausar og lýstu því yfir í gær að geislunin á Mururoa hefði aðeins mælstþriðjungi hærri en á geislarannsóknarstöð Frakka nærri París. Samtök Grænfriðunga hafa vísað því á bug að tilraunirnar séu hættu- lausar og segja að þær kunni að verða til þess að undirstaða rifs- ins bresti. Fjölmiðlar mynduðu Flosse, sem hér syndir í sjónum við Mururoa ásamt öryggisvörðum, í bak og fyrir í gær. I baksýn er borpallur Frakka við rifið en þar er nú unnið að því að koma kjarnorkusprengjum fyrir neð- ansjávar. Öldungadeildin heiðrarekkju Chang Kai-sheks ávarpaði báðar deildir þingsins 1943 í boði Franklins D. Roose- velts, þáverandi forseta. Arftaki Roosevelts, Harry Truman, gagn- rýndi Chiang hjónin fyrir harð- stjóm. Þátttaka Dóles, sem er einn af væntanlegum forsetaframbjóð- endum úr röðum repúblikana, þyk- ir benda til breytinga sem séu að verða á afstöðu flokksins til Kína. Newt Gingrich, forseti fulltrúa- deildar þingsins og flokksbróðir Dole, segir nú að sér hafi ekki verið alvara þegar hann mæltist til þess að Bandaríkin viðurkenndu sjálfstæði Tævans, sem er mikill þymir í augum Kínveija. Tveir fyrrverandi utanríkisráðherrar, Henry Kissinger og Alexander Haig, ráðlögðu Gingrich að taka til baka tilmælin um viðurkenning- una á Tævan. Washin^ton. The Daily Telegraph. ÁKVORÐUN öldungadeildar Bandaríkjaþings um að heiðra ekkju Chiang Kai-sheks, sem Mao Zedong bolaði frá völdum í Kína 1949, hefur enn aukið spennuna í samskiptum Bandaríkjanna og Kína. í næstu viku verður tekið á móti ekkjunni í Þinghúsinu í Was- hington, að undirlagi Bobs Doles, leiðtoga repúblikana í Öldunga- deildinni, og Pauls Simons, leið- toga demókrata. Ekkja Chang Kai-sheks hefur búið í New York um árabil, en maður hennar lést 1975. Hún ...blabib Dregur Gonzalez sig í hlé? MIKLAR vangaveltur era nú á Spáni um að Felipe Gonzalez forsætisráðherra muni ekki bjóða sig fram í næstu þing- kosningum sem flestir búast við að verði næsta vor. El País sagði í gær Gonzalez hafa tjáð nánum samstarfsmönnum í sósíalistaflokknum að hann hefði ekki hug á að leiða flokk- inn í næstu kosningum. Suu Kyi fær viðvörun MYND Aung San Suu Kyi, leiðtogi lýðræðisaflanna í Búrma, var á forsíðum allra ríksreknu blaða blaðanna í landinu og í sjónvarpi á mið- vikudag í fyrsta sinn frá því að herforingjastjórnin batt enda á sex ára stofufangelsi hennar. Jafnframt var þó birt grein þar sem fram kom lítt dulin gagnrýni á Suu Kyi fyrir að hvetja erlenda fjárfesta til að huga vel að stjómmála- ástandinu í landinu áður en þeir hæfust handa í Búrma. Var rætt um athæfí „innlendra svikara" í þessu sambandi. Viðræður út um þúfur SKÆRULIÐAR í Kasmír, sem halda fimm Vesturlandabúum í gíslingu og hóta að taka þá af lífí ef indversk stjómvöld sleppi ekki 20 félögum þeirra úr haldi, sögðu í gær að við- ræðum um lausn gíslanna hefði verið hætt. Samkomulag á Ítalíu SAMKOMULAG náðist í gær á fundi fulltrúa tveggja helstu stjórnmálafylkinga á Ítalíu, Ólífutrés-sambands vinstri- og miðjumanna og Frelsisfylking- ar Silvios Berlusconis, um víð- tækar umbætur á framkvæmd kosninga, m.a. verða settar reglur til að tryggja jafnræði í fjölmiðlum. Talið hafði verið að kosningar yrðu í nóvember en þurfi þingið lengri tíma til að fjalla um tillögurnar verða kosningamar síðar. AGFA Ljósmynúa- samkeppni sumarsins! A háskerpufilmur Þátttökuseðlar fást á öllum útsölustöðum AGFA. Skilafrestur á myndum og seðlum (ein mynd meö hverjum seðli) er tll 31. ágúst 1995. Öllum þátttökuseðlum skal skilað til Heimilistækja hf. Sætúni 8, 105 Reykjavlk, merkt nSumargleði“. AGFA DREIFINGARAÐILAR: HEIMILISTÆKI HF. • SÆTÚNI 8 • SlMI 569 1500 OG O. JOHNSON & KAABER • SÆTÚNI 8 • SlMI 562 4000

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.