Morgunblaðið - 21.07.1995, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 21. JÚLÍ 1995 17
ERLENT
London. The Daily Telegraph.
Var Kobbi kviðrista
bandarískur læknir?
ÞVI er haldið fram í nýrri bók, að
Kobbi kviðrista hafi í raun verið
bandarískur hómópati og skurð-
læknir að nafni Francis Tumblety.
Byggja höfundar bókarinnar, lög-
reglumennirnir Stewart Evans og
Paul Gainey, kenningu sína á áður
óbirtu bréfi, sem John Littlechild
lögregluforingi og yfirmaður sér-
deildar Scotland Yard skrifaði árið
1913.
í bréfinu segir, að Tumblety hafi
verið grunaður um að hafa myrt
fjórar vændiskonur í East End í
London árið 1888 en hann var hand-
tekinn eftir síðasta morðið þegar
kona, sem hann leigði hjá, fann
blóðbietti á skyrtunni hans. Var
hann ákærður fyrir kynferðisafbrot
en látinn laus gegn tryggingu.
Hataði konur
Tumblety flýði til Ameríku áður
en málið var tekið fyrir og Scot-
land Yard tókst ekki að hafa uppi
á honum eftir það. Manndrápunum
í London linnti en skömmu síðar
voru framin nokkur morð í Nic-
aragua og Jamaica, sem þóttu
minna á Lundúnamorðin. Við
rannsóknir sínar í Bandaríkjunum
komst Gainey að því, að Tumb-
lety, sem hafði ætlað sér að setja
upp hómópatastofu í Englandi,
hafði átt nokkurt safn af krukkum,
sem allar innihéldu leg úr konu.
Gainey komst einnig að því, að
Tumblety hefði fyllst hatri út í
konur þegar hann uppgötvaði, að
kona hans var farin að vinna á'
vændishúsi. Segir hann einnig, að
eina áreiðanlega lýsingin á Kobba
kviðristu eigi við Tumblety.
Klúðrið falið?
„Sá mikli áhugi, sem alltaf hefur
verið á gátunni um Kobba kvið-
ristu, hefur nærst á þeirri von, að
einhvers staðar fyrirfyndist gulnað
blað, sem gæti varpað nýju ljósi á
þessa atburði ársins 1888. Little-
child-bréfið gerir einmitt það,“ seg-
ir Gainey. „Að frátalinni beinni
játningu kemst það næst því að
upplýsa málið. Það sýnir, að lög-
reglan var nær því að leysa það
en nokkurn grunaði og hugsanlega
var þagað um það til að fela hvern-
ig því var klúðrað."
í bókinni, sem heitir „Leigjand-
inn“ og kemur út í næsta mánuði,
segir, að bréf Littlechilds hafí verið
sent blaðamanni að nafni George
R. Sims og síðan verið selt uppboðs-
fyrirtækinu Sotheby’s. Eftir það
safnaði það ryki í fornbókaverslun
í 40 ár en var þá selt konu nokk-
urri og bóksala í London. Hún átt-
aði sig á mikilvægi þess og í febr-
úar 1993 hafði hún samband við
Stewart Evans.
Leigiihúsnæðis-
hneykslið í París
Mál Juppe
rannsakað
París. Reuter.
DEILD innan franska dómsmála-
ráðuneytisins, sem fer með spill-
ingarmál, hefur hafið rannsókn á
ákvörðun Alains Juppes, forsætis-
ráðherra Frakklands, um að lækka
leigu á leiguíbúð í eigu Parísar-
borgar, sem hann hafði útvegað
syni sínum. Að sögn embættis-
manna takmarkast vald deildar-
innar við álitsgjöf og er óvíst hvort
niðurstaða rannsóknarinnar muni
leiða til formlegrar rannsóknar.
Hennar er að vænta undir lok sept-
embermánaðar.
í síðustu viku lýsti saksóknari
ríkisins því yfir að Juppe yrði ekki
sóttur til saka vegna þessa máls,
þar sem að ekki væri hægt að
sýna fram á að hann hefði sjálfur
hagnast á því. Hann mun taka
ákvörðun um hvort af málssókn
verður þegar honum berast niður-
stöður rannsóknar dómsmálaráðu-
neytisins.
Margir með lága leigu
Mál Juppe er hluti af enn stærra
máli sem hefur komið ríkisstjórn
hans afar illa. í ljós hefur komið
að fjölmargir stjórnmálamenn,
fjölmiðlafólk og listamenn fengu
íbúðir í eigu Parísarborgar á leigu
á lágu verði í borgarstjóratíð
Jacques Chiracs forseta.
Hjálpaði fjölskyldunni
Juppe hefur viðurkennt að þeg-
ar hann var embættismaður hjá
borginni fékk hann íbúð í einu af
bestu hverfum borgarinnar á
leigu, sem hann býr enn í. Þá
hefur hann ekki neitað fréttum
um að hann hafi útvegað börnum
sínum, fyrrverandi eiginkonu og
hálf-bróður sínum ódýrum leigu-
íbúðum. Neitar hann því að hafa
gert nokkuð rangt og lagasérfræð-
ingar hafa komist að þeirri niður-
stöðu að hann hafi ekki brotið
nein lög. Þó eru uppi efasemdir
um hvort að sú ákvörðun hans að
lækka leigu á íbúð, sem sonur
hans bjó í, um 1000 franka, um
13.000 kr., standist lög.