Morgunblaðið - 01.09.1995, Qupperneq 42
42 FÖSTUDAGUR 1. SEPTEMBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
LYKILL að fallegum nöglum
Develop 10
Lykill lum
að fallegum nög
1. Furir neqlur sem klofna oq brotna.
2. Fyrir neglur sem bogna.
3. IVliaq qott undir- oq qfirlakk.
Útsölustaðir:
Reykjavfk: Snyrtistofan Gimli, Miðleiti; Libia, Þönglabakka; Hygea, Austurstræt;
Hygea, Kringlunni; Sara, Bankastræti; Regnhlífabúðin, Laugavegi; Sandra, Laugavegi;
Sigurboginn, Laugavegi; Gullbrá, Nóatúni; Glæsibæ, Álfheimum; Nana, Lóuhólum;
Árbæjarapótek; Grafarvogsapótek; Háaleitisapótek; Ingólfsapótek; Laugarnesapótek.
Seltjarnarnes: Snyrtist. Sigríðar Guðjónsd, Eiðistorgi. Garðabær: Snyrtihöllin, Garða-
torgi. Hafnarfjörður: Diesella, Fjarðargötu; Sandra, Reykjavikurvegi. Landsbyggðin:
Snyrtist. Ólafar, Selfossi; Gallerí förðun, Keflavík; Versl. Bjarg, Akranesi; Hafnarapótek,
Höfn; Snyrtist. Jenný Lind, Borgarnesi; Apótek Olafsvíkur; Snyrtist. Ariana,
Bolungarvík; Ynja, Akureyri; Siglufjarðarapótek; Nesapótek, Eskifirði, Reyðarfirði,
Neskaupstað; Rangárapótek, Hellu, Hvolsvelli; Snyrtist. Ólafar, Selfossi; Snyrtist. Anita,
Vestmannaeyjum; Apótek Vestmannaeyja.
Rannveig Stefánsdóttir, snyrtifræðingur, sími 565 3479.
Jr
CK&öCiíverðar matsecfiíí
Grafin villigæsarbringa á salatbeði
með vinagrettsósu.
Gráðuostafyllt kálfasteik með barolonsósu.
Rababaraís með vanillusósu.
Kr. 2.150
Spaghetti með hörpuskel
og sólþurrkuðum tómötum.
Tiramisu. ^
Kr. 1.510
JSSfJ
<r
kl.
%
LA PRIMAVERA
RISTORANTE
Húsi verslaunarinnar
ír
I oppskórinn
1 ÚTSÖLUAáARKAÐUR
AUSTURSTRÆTI 20 • SIMI 552 2727
HAIJSTSKÓll í MIKLU IJllVALI
I DAG
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 14-16 frá mánudegi til föstudags
Glataði
símanúmeri
MAGNÚS Blöndal Jó-
hannsson var staddur í
Valhöll á Þingvöllum
12.-13. ágúst sl. ásamt
Qölskyldu sinni og hitti þar
konu sem Asthildur heitir
og er píanóleikari. Hún var
þar stödd ásamt móður
sinni. Magnús fékk síma-
númer Asthildar vegna
fyrirhugaðs samstarfs
þeirra en var svo óheppinn
að týna því. Biður hann
Ásthildi vinsamlegast að
hafa samband við sig í
Valhöll í síma 482-2622
eða heimasíma 581-1446.
„Kæra amma“
MARGRÉT Skúladóttir
hringdi og hafði verið að
hlusta á rás 1 fyrir hádegi
sl. fimmtudag, þar sem
útvarpað var viðtölum við
fólk sem svarar í síma 03.
Þetta fólk talaði um að
margir hringdu í 03 til
þess að fá upplýsingar um
ýmis húsráð, en ekki ein-
ungis til að fá upplýsingar
um símanúmer. Guðrún
bjó í Bandaríkjunum í
mörg ár og þar var ákveð-
in þjónusta sem myndi ein-
mitt þjóna þessum hópi
fólks. Þessi þjónusta kall-
aðist „Dear Grandma“ eða
„Kæra amma“ og hægt var
að fá upplýsingar um alla
skapaða hluti viðvíkjandi
húsverkum, matseld o.fl.
Væri ekki tilvalið að koma
slíkri þjónustu á hérlendis?
Tapað/fundið
Karlmannsúr
fannst
KARLMANNSARM-
BANDSÚR fannst í nám-
unda við kirkjugarðinn í
Fossvogi. Uppl. í síma 554
4052.
Gleraugu fundust
TVÍSKIPT gleraugu með
gylltum örmum fundust
við bátana á Ægissíðu sl.
sunnudag. Gleraugun eru
á óskilamunadeild lögregl-
unnar.
Gleraugu töpuðust
SVART gleraugnabóx með
gleraugum í svartri stál-
umgjörð tapaðist sl. laug-
ardag í Þingholtunum eða
vesturbæ. Finnandi vin-
samlegast hafí samband
við Maríu Hebu í síma 552
0809 eða 552 3063.
Armband fannst
ARMBAND úr gervigulli
fannst á lóð Hagkaupa við
Eiðistorg sl. þriðjudag.
Eigandinn má vitja þess í
síma 551-3379.
Hjól í óskilum
TREK 800 fjallahjól, 18
gíra, fannst við Grænu-
mýri. Uppl. í síma 561
0072.
Gæludýr
Týndur
högni
ÁRSGAMALL högni grár
og svolítið loðinn hvarf frá
heimili sínu í Hveragerði
fyrir tæpum tveim mánuð-
um. Hann var með 61 sem
merkt var heimilisfangi
hans. Geti einhver gefið
upplýsingar um hann vin-
samlega hringið í síma
483-4424.
Páfagaukur
týndist
LÍTILL hvítur páfagaukur
slapp út um dyr á heimili
sínu í Engjaseli 77 í
Reykjavík sl. miðvikudag.
Geti einhver gefið upplýs-
ingar um hann vinsamlega
hringið í síma 557-7446.
Kettling vantar
heimili
MARGLIT tveggja mán-
aða gömul, falleg læða
þarf að eignast gott heim-
ili. Dýravinir eru beðnir að
hafa sarpband í síma
564-2554
Týndur köttur
HVÍTUR köttur, níu ára
gamall, hvarf frá heimili
sínu í Arnartanga, Mos-
fellsbæ, sl. sunnudag. Þeir
sem gætu gefið upplýs-
ingar um ferðir hans vin-
samlega hringi í síma
566-7527 eða 554-3799.
Köttur í
óskilum
GRÁBRÖNDÓTTUR
fressköttur með hvíta
bringu er í óskilum á
Austurbrún. Kötturinn er
með bláa, ómerkta ól um
hálsinn. Uppl. í síma 553
4305.
Hvolpur
óskast
HVOLPUR óskast gefins,
eða fyrir lítið verð. Helst á
hann að vera skosk-
íslenskur, en annað kemur
þó til greina. Uppl. í síma
551 4564.
ÞESSAR duglegn stúlkur þær Guðrún Helga
Kjartansdóttir t.d. og Klara Jónsdóttir ásamt
Adam ívari Emilssyni, sem gat ekki verið með á
myndinni, héldu hlutaveltu á dögunum og söfn-
uðu kr. 9.682 sem þær gáfu í söfnunarsjóð fyrir
Ástu Kristinu Árnadóttur vegna nýrnaaðgerðar.
Hlutavelta
SKAK
llmsjón Margeir
Pétursson
SVARTUR leikur
og vinnur
Staðan kom upp á opnu
móti í Hastings í Englandi
sem lauk um síðustu helgi
í viðureign tveggja nýbak-
aðra stórmeistara. John
Emms (2.485) var með
hvítt, en Tyrkinn Suat Ata-
lik (2.525) var með svart
og átti leik.
33. — Bxf4! (Þvingar fram
mjög hagstætt endatafl þar
sem svarti biskupinn
verður miklu öflugri en
hvíti riddarinn) 34.
Hxc5 - Bxd2 35. Hxc8
— Kxc8 36. Rxe6 —
Be3 37. Kg2 - Kd7
38. Rg7 - f4 39. Kf3
— fxg3 40. hxg3 —
Bd4 41. Rh5 - Be5!
Lokar riddarann inni.
Nú gæti hvítur gefist
upp) 42. g4 — Ke6 43.
Rf4+ - Bxf4 44. Kxf4
— h6 og hvítur gaf.
Þetta var úrslitaskákin.
Atalik sigraði á mótinu
og fær sæti á hefðbundna
Hastingsmótinu um ára-
mótin.
Friðriksmótið verður sett
í kvöld og dregið í töfluröð.
Fyrsta umferðin hefst á
morgun kl. 14 í Þjóðarbók-
hlöðunni.
Víkverji skrifar...
FYRIR skömmu dvaldi Víkveiji
nokkra daga í fríi norður í
landi. Eftir að hafa dvalið um tíma
á höfuðborgarsvæðinu í rigningu
og dumbungi var ekki annað til
ráða en leita upp góða veðrið og
það fannst við Eyjafjörðinn. Þetta
voru ánægjulegir dagar enda Akur-
eyringar góðir heim að sækja.
Hljóðið var gott í fólki og greinilegt
að flutningur á hluta af starfsemi
SH og dótturfyrirtækja til Akur-
eyrar hafði glætt atvinnulífið veru-
iega.
Heimamönnum varð einnig tíð-
rætt um veðrið, sem hafði leikið við
þá vikum saman. Þeim fannst þeir
eiga skilið að fá gott sumar eftir
fádæma snjóþungan vetur og höfðu
enga samúð með höfuðborgarbúum
þótt þar rigndi nánast hvern dag!
En Víkveiji fann á fólki nyrðra að
það kveið fyrir komandi vetri, svo
harður var sá síðasti.
XXX
VÍKVERJA þótti sjálfsagt að
bregða sér á sýninguna Iðn-
aður 95, sem haldin var á Hrafna-
gili í Eyjafjarðarsveit. Hin mikla
breidd sýningarinnar var athyglis-
verðust því þarna mátti sjá hlið við
hlið hinar stærstu verksmiðjur og
einyrkja sýna framleiðslu sína. Þá
var ekki síður athyglisvert að virða
fyrir sér þau miklu mannvirki sem
risið hafa á Hrafnagili á síðustu
árum. Stór skóli hefur verið byggð-
ur, íþróttahús, sundlaug og heima-
vist, sem að sögn er ekki lengur
notuð fyrir skólabörn á veturna
heldur aðeins sem sumarhótel. Víð-
ar mun þannig hátta, að heimavist-
ir eru ekki lengur notaðar nema á
sumrin. Bættar samgöngur hafa
gert það að verkum, að heimavist-
anna er ekki lengur þörf.
Á Hrafnagili er stórt félags-
heimili, Laugaborg. Þar skammt
frá er annað félagsheimili, Frey-
vangur, og í Eyjafjarðarsveit er
að finna enn eitt félagsheimilið,
Sólgarð. Víkveija sýnist að víðar
en í höfuðborginni sé byggt um-
fram þörf!
xxx
EIMSÓKN til Húsavíkur var
mjög eftirminnileg. Þangað
var komið í sérlega fallegu veðri.
Logn, heiðskírt og 20 stiga hiti. í
slíku veðri er Skjálfandaflóinn ægi-
fagur. Víkvetji minnist þess þegar
hann kom til Húsavíkur fyrir mörg-
um árum að honum þótti bærinn
hálfdraslaralegur. Nú er allt annað
uppi á teningnum sem betur fer og
Húsavík er með snyrtilegustu bæj-
um sem komið er til. Ekki spillti
að geta tekið hring á golfvelli þeirra
Húsvíkinga, sem er með skemmti-
legustu golfvöllum sem Víkveiji
hefur spilað á.
XXX
NÚ ER bundið slitlag komið á
alla leiðina milli Reykjavíkur
og Akureyrar. Mikill munur er að
aka þessa leið nú en áður. Munar
mestu um nýjan veg yfir Vatns-
skarð og Öxnadalsheiði. Það vakti
sérstaka athygli Víkveija að á leið-
inni norður mætti hann aðeins
tveimur lögreglubílum, báðum með
stuttu millibili í Hvalfirðinum. Og
á leiðinni suður mætti Víkveiji
ekki einum einasta lögreglubíl!
Hvernig má það vera að löggæzla
sé ekki meiri á svona fjölfarinni
leið?