Morgunblaðið - 07.09.1995, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 07.09.1995, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ LISTIR FIMMTUDAGUR 7. SEPTEMBER 1995 21 Dagskrá Kaffileikhússins í Hlaðvarpanum til áramóta Spennandi nýjungar og gamlir vinir DAGSKRÁ Kaffileikhússins í Hlaðvarpanum til áramóta hefur verið ýtt úr vör. Líkt og á liðnum vetri verða íslensk leikverk áberandi en að auki munu erlend verk og ýmsar nýjungar setja svip sinn á dagskrána. „Eg er ákaflega stolt af dagskránni sem er framundan. Við munum bjóða upp á spennandi nýjungar og gamla vini,“ segir Ása Richardsdótt- ir framkvæmdastjóri Kaffileikhússins. „Árangur síðasta vetrar bendir til þess að Kaffileikhúsið sé búið að festa sig í sessi. Viðtökurnar hafa verið frábærar." Sögukvöld Kaffileikhússins hófust á ný í gær og verða annað hvert miðvikudagskvöld í allan vetur. Sögukvöld eru samstarfsverkefni Rithöf- undasambands Islands og Kaffileikhússins og er tilgangur þeirra að fá fólk til að koma saman og hlýða á sögur og rækta þannig sagnahefðina sem býr með þjóðinni. Sagnamenn Sögukvölda munu koma úr ýmsum áttum en jafnframt stendur til að tengja kvöldin ákveðnum starfsstéttum, hópum og jafnvel landsfjórðungum og héruðum. Einu af fyrstu Sögukvöldunum verður stjórnað af prestum. Sápa eitt og tvö eru vinsælustu leikverk Kaffi- leikhússins til þessa og þann 7. október — á ársaf- mæli leikhússins — mun Sápa þijú líta dagsins Ijós. Höfundur er Edda Björgvinsdóttir en auk hennar munu Olafía Hrönn Jónsdóttir og Helga Braga Jónsdóttir leika stærstu hlutverkin. Leik- stjóri er Sigríður Margrét Guðmundsdóttir. Ása lætur efni verksins ekki uppi að svo stöddu en segir að það muni koma verulega á óvart. Margfaldir einleikir Upp úr miðjum október fer af stað nýstárleg sýningaröð en þá mun hópur leikara láta gamm- inn geisa í Margföldum einleikjum. Verða þeir af ýmsum toga, bæði gaman og alvara og víða leitað fanga. „Þarna munu margir af bestu leikur- um landsins vonandi gera það sem þá hefur allt- af langað til að gera en aldrei gert,“ segir Ása. Sumir einleikjanna verða sóttir í smiðju erlendra höfunda en íslenskir leikritahöfundar koma einn- ig talsvert við sögu. Leikstjóri er Þórhildur Þor- leifsdóttir. Leikararnir Gísli Rúnar Jónsson, Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir og Guðrún Þ. Stephensen frumsýna um mánaðamótin október/nóvember undir stjórn Bríetar Héðinsdóttur eitt frægasta verk Ionescos, einþáttunginn Kennslustundina sem er sígild lífsreynslusaga allra sem einhvern tíma hafa verið kennarar eða nemendur. í október hefst dagskrá sem helguð verður íslenskri leikhústónlist. Þá munu Atli Heimir Sveinsson, Hjálmar H. Ragnarsson, Jón Ásgeirs- son, Leifur Þórarinsson og Þorkell Sigurbjörnsson kynna verk sín á fimm sjálfstæðum kvöldum en þessi tónskáld hafa einmitt smíðað stóran hluta íslenskrar leikhústónlistar. Tónleikar og tónleikaraðir munu einnig setja svip sinn á dagskrána í vetur. Tónleikarnir verða af margvíslegum toga, allt frá klassískum tónleik- um til popps. Rithöfundurinn og myndlistarmaðurinn Hall- grímur Helgason hefur að undanförnu staðið fyrir skemmtun í Kaffileikhúsinu við miklar vin- sældir. Fyrirhugað er að standa fyrir fieiri slíkum skemmtunum í vetur og mun Hallgrímur verða á meðal þátttakenda. Kaffiieikhúsið er ekki einungis leikhús heldur einnig veitingastaður og nýverið tóku nýir vert- ar, Kristín Ingibjörg Pálsdóttir og Kristlaug María Sigurðardóttir, við veitingarekstrinum. Segir Ása að þær stöllur ætli sér að kitla bragð- lauka leikhúsgesta í vetur. „Aðaiáhersla verður lögð á góðan mat á góðu verði og verður reynt að tengja matséðilinn þeim leiksýningum sem boðið er upp á. Nýjar bækur Ljóð iindir suðrænni sól ÚT er komin ljóðabókin Samfella eftir Steinþór Jóhannsson. Þetta er fimmta ljóðabók skálds- ins. Áður hafa komið út; Hvert eru þínir fætur að fara 1975, Óhnepptar töl- ur 1976, Verslað með mannorð 1982 og Eigum við 1992. í kynningu segir: „í nýju ljóðabókinni tekst skáldið sterklega á við samneyti kynjanna. Það sem einkennir Steinþór er karlmannlegur kraft- ur. Hann er kröftugur líkamlega og hugrænt einkennast ljóð hans af sterkum sigurvilja karlmanns- ins. Hann vill sækja á brattann, Steinþór Jóhannsson klífa fjallið, komast á topp- inn. Það er hin goðum- borna karlmannlega ímynd.“ Bókin Samfella er að mestu samin á Spáni, en þar dvaldist skáldið haust- ið 1993. í henni eru 36 ljóð að langmestu leyti tengd Spánardvöl og sam- vistum við konu undir suð- rænni sól. Daði Guðbjörnsson listmálari gerði kápuskreytingu, Prent- myndastofan hf. annaðist filmu- gerð, ísafoldarprentsmiðja hf. prentun og Flatey hf. bókband. Fjölvi gefur bókina út. Verð 1.680 kr. • BANDARÍSKI ballettdansarinn Mark Morris hlaut á dögunum Hamada-verðlaunin, æðstu verð- laun Edinborgarhátíðarinnar, sem nú stendur yfir. Morris hefur ver- ið einn eftirsóttasti listamaður hátíðarinnar undanfarin þrjú ár. Sá sem gefur verðlaunaféð, um 50 milljónir ísl. kr. er japanski kaupsýslumaðurinn Zenya Ham- ada, sem ekki hefur látið sjá sig á hátíðinni frá árinu 1993 og er raunar ekkert vitað hvar hann heldur sig. • PORTÚGALSKA sljórnin hefur lýst því yfir að eigi að bjarga for- sögulegum hellamyndum sem fundist hafa í Foz Coa, muni það kosta ríkið sem svarar 21 milljarði kr. Myndirnar fundust á síðasta ári er framkvæmdir hófust við stíflugerð í nágrenninu og eru þær stærstu hellamyndir frá steinöld sem fundist hafa í Evrópu, að mati fomleifafræðinga. Talsmenn raforkufyrirtækisins sem byggir stífluna fullyrðir hins vegar að myndirnar séu ekki nema nokkur þúsund ára og vilja að stíflugerð- inni verði haldið áfram. Endanleg ákvörðun í máiinu bíður nýrrar ríkissljórnar Portúgals sem taka mun við í október. Ljós úr norðri ENDURMENNTUNARSTOFNUN hefur í samráði við Listasafn íslands ákveðið að efna til námskeiðs 12. og 14. september nk. um sýninguna Ljós 'úr norðri, þar sem verkin á henni verða skoðuð og skilgreind með aðstoð starfsmanna safnsins. Rakel Pétursdóttir safnakennari mun fjalla almennt um sýninguna og bak- svið hennar á Norðurlöndum, þjóðfé- lagsaðstæður og sögu, Júlíana Gott- skálksdóttir listfræðingur gaumgæf- ir viðhorf norrænna listamanna til einstaklingsins og Aðalsteinn Ing- ólfsson kannar tengsl þeirra við landslag og borgarmenningu. Sýningin Ljós úr norðri er mikils- vert tækifæri til að efna til náinna kynna við þekkt listaverk eftir marga helstu listamenn Norðurlanda á ár- unum um og eftir siðustu aldamót, en allt frá því farandsýningin Scand- inavia Today var send til Bandaríkj- anna árið 1982 hefur vegur þessara norrænu listamanna farið vaxandi víða um lönd. Hér er um að ræða listamenn á borð við Edvard Munch, Vilhelm Hammershöi, Helenu Scherfbeck, Akseli Gallen-Kallela, Richard Bergh, P.S. Kröyer, Önnu Aneher og Anders Zorn, auk margra annarra. Fulltrúar íslendinga á sýn- ingunni eru Þórarinn B. Þorláksson og Ásgrímur Jónsson. Sýningin Ljós úr norðri var upphaflega skipulögð af spænskum listasöfnum í því augnamiði að draga fram afstöðu norrænna aldamótalistamanna til mannlífsins og náttúrunnar í víðasta skilningi. Morgunblaðið/Knstmn ÁSA Richardsdóttir framkvæmdasljóri Kaffileikhússins ásamt nýju vertunum Kristínu Ingibjörgu Pálsdóttur og Kristlaugu Maríu Sigurðardóttur. Námskeið í Listasafni íslands Dagskrá RúRek í dag DAGSKRÁ RúRek í dag fimmtudag er eftirfarandi; Kl. 21.30: Philip Catherine og tríó Björns Thoroddsens í Leikhúskjallaranum. Kl. 22. Kvartett Reynis Sig- urðssonar á Fógetanum, Kjallarahljómsveit Péturs Grétarssonar á Horninu, Kvartett Sigurðar Flosasonar á Jazzbarnum og Kombó Ell- enar á Kringlukránni. Leikþátta- samkeppni STÚDENT ALEIKHÚ SIÐ hyggst eftir áramót setja upp einn eða fleiri leikþætti, sem dómnefnd og leikstjóri velja. Lengd og form verks eru frjáls. Eina skilyrðið er að höfundur hafi ekki áður átt verk í atvinnuleikhúsi. Pen- ingaverðlaun eru í boði, veitt af Búnaðarbanka íslands. Skilafrestur er til 1. nóvember 1995. Verkunum skal skilað vélrituðum, undir dulnefni, til skrifstofu Stúd- entaráðs í Félagsstofnun stúdenta við Hringbraut. Rétt nafn, kennitala og sími skulu fylgja í lokuðu umslagi. Sýningu Heid- iar að ljúka TEXTÍLSÝNINGU Heidiar Kristiansen í anddyri Safna- húss Vestmannaeyja lýkur nú um_ helgina. Á sýningunni eru 20 mynd- teppi, bæði lítil og stór, sem öll eru gerð undir áhrifum af íslenskri náttúru og dýralífi. Sýningin er opin á virkum dögum, jafnlengi og bóka- safnið, og um helgina frá kl. 14-17. Heidi verður sjálf á staðnum dagana 9. og 10. september. Leirlistasýn- ingu að ljúka SÝNING á verkum þriggja fremstu leirlistamanna Dana, Bente Hansen, Karen Benn- icke og Peder Rasmussen, sem staðið hefur yfir í sýning- arsölum Norræna hússins lýkur nú á sunnudag. Sýningin er opin daglega frá kl. 14-19.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.