Morgunblaðið - 07.09.1995, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 07.09.1995, Qupperneq 28
28 FIMMTUDAGUR 7. SEPTEMBER 1995 MORGUNBLAÐIÐ AÐSENDAR GREIIMAR Ágreiningur Sjálfstæðis manna á Suðurlandi 3. grein NOKKUÐ er um liðið frá því ég skrifaði aðra grein mína um þetta efni. Er rétt nú á síðsumri að halda áfram frá því sem frá var horfið. Ég vék í annarri grein minni að tveimur ungum mönnum, Árna Böð- varssyni og Gísla Gíslasyni, sem höfðu sent mér athuga- ' semd. Aftur voru þeir á ferðinni á ritvellinum í sumar og nú bregður svo við að þeir lýsa yfir því að stirt sam- band hafi verið með þremenningunum um árabil. í fyrri grein þeirra var að heyra að einungis væri til einn vondur maður. Bragð er að þá barnið frnnur. En hveijum bar helst að ganga í að leysa þann ágreining sem ekki var einum að kenna? Það var hægt wað leysa hann með því Eggert Haukdal mála 10,7 - 12,1 milljarði króna á verðlagi ársins 1994. Mark- visst hefur verið unnið af því af núverandi ríkisstjórn að lækka þessi útgjöld. Þau miklu áföll sem þjóðarbúið hefur orðið fyrir, valda því að enn harðar hefur verið gengið fram en ella hefði verið. Niðurstaðan er sú, að árin 1994 höfðu út- gjöldin lækkað um 34% miðað við meðaltal síð- asta kjörtímabils eða um 4,3 milljarða króna. Verulegur hluti sparnaðarins felst í af- námi útflutningsbóta og samdrætti í fram- leiðslu kindakjöts og mjólkur í kjölfar bú- vörusamningsins. Út- gjöld vegna búvöru- framleiðslu svo sem niðurgreiðslur eða beingreiðslur og út- flutningsbætur hafa lækkað um 35% en að reka og kljúfa, samanber Albert, en var það góð lausn? Það var samt endurtekið. Ungu mennirnir hrósa mjög Þor- steini Pálssyni. En um svipað leyti og grein þeirra birtist hrópuðu hundruð sjómanna Þorstein Pálsson niður á Austurvelli. Svo er nú kom- ið á landi hér (m.a. vegna aðgerða Þorsteins Pálssonar) að trillusjóm- aður má ekki lengur lifa, ekki held- ur búandi karl upp í sveit. Nú skal t allt fijáls, en ekki að allt sé jafnt. Frelsið skal aðeins vera í þágu hinna stóru. Þá er það að frétta frá því við skildum í sumar að sjálfstæðismenn hafa haldið tvo lokaða en fámenna fundi á Suðurlandi eftir kosningar. Efir því sem hefur frést vildu „haukamir“ taka á mér og stuðn- ingsmönnum mínum. Á miðöjdum notuðu menn ransóknarrétt. Á því herrans ári 1995 eiga slíkir menn enn bræður. Vissulega var ekki fé- leg skipulagning Þorsteins Pálsson- ar og Árna Johnsen gegn mér í kosningabaráttunni. Á öðrum fundinum kvartaði þó einn „haukurinn" yfir því að Þor- steinn Pálsson talaði aidrei um land- ►■búnaðannál. Þorsteinn bætti úr því með langri ræðu um málaflokkinn, en að sögn voru fundarmenn jafn- nær. Niðurskurður Eftirfarandi tilvitnun er tekin úr grein í Dagsskránni á Selfossi rétt fyrir kosningar. Greinin hét „Árang- ur í niðurskurði ríkisútgjalda". Höf- undur var Drífa Hjartardóttir, núver- andi formaður málefnanefndar Sjálf- stæðisflokksins um landbúnaðarmál. „Á árunum 1988 - 1991 námu heildarútgjöld til landbúnaðar- mikilverður árangur hefur einnig náðst á öðrum sviðum.“ Svo mörg voru þau orð. Spyija má í þessu sambandi: Hvar hefur landbúnaðamefnd Sjálfstæðis- flokksins verið að undanförnu? í vetur lýsti Ámi Johnsen því yfir á fámennum fundi sjálfstæðis- manna þar sem var verið að ræða framboð mitt, að það væri ekki margt bændafólkið á Suðurlandi sem styddi Sjálfstæðisflokkinn. Því þyrfti ekki mikið að hafa áhyggjur af því. Ummæli Drífu benda til þess að hún sé sama sinnis og Ámi. Nokkrar staðreyndir En hver er staða landbúnaðarins í dag eftir að lýsingar Drífu Hjartar- dóttur, sem vitnað var til hér að framan og hún fagnar, hafa náð fram að ganga. Það er rétt að það þurfti að draga úr ríkisútgjöldum og það þurfti einnig að draga úr framlögum til landbúnaðarins. En gagnvart landbúnaðinum var þetta gert of hratt, of mikið og rangt stað- ið að með ýmsum hætti. Staðan í dag er því allra sist til að hrósa sér af. Skulu þessi orð mín aðeins rök- studd. Helstu naglar sem negldir hafa verið í líkkistu landbúnaðarins með stjórnyaldsaðgerðum síðustu árin era: 1: Búvöralög 1985, þar sem út- flutningsuppbætur vora að fullu afnumdar 1992. 2. Búvörusamningur vinstri stjórnar 1991. 3. Vinstri stjórn sem gerði bú- vörasamningana gerði einnig- Jón Baldvin að utanríkisráð- herra. Jón Baldvin fékk að leika lausum hala í þeirri ríkisstjórn og var búinn að semja um 982 £ » S t U Guðsteins Eyjólfssonar Laugavegi 34, sírni. 551-4301 Yelrarííakkar úr ull og kasmír Vorum að fá sendingu af þýskum ullarkasmír- frökkum ásamt miklu úrvali af rykfrökkum með ullarfóðri. lllarflauelisbuxurnar sívinsælu einnig komnar. Ga‘ðavara á góðu verði Það er rétt að hafa það í huga í atvinnuleysinu, segir Eggert Haukdal, að fjöldi þéttbýlisbúa byggir afkomu og at- vinnu sína á tilvist sveitanna. vegna EES þegar vistaskifti urðu. Eitt verka hans í þeirri stjórn var að lama íslenska garð- yrkju. 4. Jón Baldvin fékk svo að full- komna EES með Sjálfstæðis- flokknum og hafði sömu henti- semi og hann hafði haft í vinstri stjórn. Um leið og ég nefni þessa fjóra punkta er rétt að undirstrika að Sjálfstæðisflokkurinn hafði lengi barist fyrir staðgreiðslu búvara til bænda og það tókst að nokkru með búvörulögunum að framfylgja því. Það var gert með því að nota hluta af niðurgreiðslum í beingreiðslur. En ýmsir stjómarliðar í þann tíð, þar á meðal ég, tóku ekki fegins hendi við öllum ákvæðum fram- varpsins. Einkum vora það ákvæðin um hversu hratt yrði dregið úr út- flutningsuppbótunum. Fyrir forystu þriggja stjórnarliða í landbúnaðar- nefnd Neðri deildar, Stefáns Val- geirssonar, Páls Dagbjartssonar (varam.) og undirritaðs, tókst að laga frumvarpið nokkuð í meðför- um. í þeim breytingum sem sam- þykktar vora, var sú mest að út- flutningsuppbótarétturinn skyldi standa árið 1990 og framvegis í 4% £n ekki 0 eins og var þegar frum- varpið var lagt fram. Mjög var ýtt á okkur þremenningana að afgreiða frumvarpið með hraði án breytinga en við því var ekki orðið. Við urðum því ekki vinsælir hjá fijálshyggju- mönnum allra flokka. Komið var fram í júní þegar frumvarpið varð að lögum. Því fé sem sparaðist við lækkun útflutningsuppbóta var beint í ref og mink. Einnig til ferða- þjónustu. Því miður var þessu fé ekki öllu vel varið og þjóðfélagið er enn í skuld, m.a. við bændur sem voru hvattir í loðdýrabúskap. Allar þjóðir styðja sína atvinnuvegi Rétt er að undirstrika þær stað- reyndir þegar rætt er um landbún- aðarmál, að það eru fleiri en bænd- ur sem nutu útflutningsuppbóta og niðurgreiðslna á landbúnaðarvörum. Mikið af fólki í bæjum og þorpum vítt og breitt um landið vinnur störf tengd landbúnaði, í sjálfri höfuð- borginni er einnig mikið af slíkum störfum. Það er aldrei of oft minnt á þetta í atvinnuleysinu, og einnig það að allar þjóðir styrkja sína at- vinnuvegi með miklum fjármunum. En hvað átti að gera við útflutn- ingsuppbæturnar annað en draga svo mjög úr þeim eins og gert var? Svo sem kunnugt er var það fyrir atbeina Ingólfs Jónssonar þáverandi landbúnaðarráðherra að útflutn- ingsuppbætur voru teknar upp 1959. Þessi aðgerð var mikil lyfti- stöng landbúnaðinum og lengi hald- reipi bændastéttarinnar. Engin verk mannanna geta lengi staðið óbreytt. Allt annað mál er að kasta þeim fyrir róða. Það eru margra mistök hvernig þeir fóra með sem tóku við arfi Ingólfs Jónssonar varðandi út- flutningsuppbæturnar. Þar eiga hlut að ríkisstjórnir, ráðherrar, alþingis- menn og bændasamtök. Fyrir mörg- um árum hefði átt að taka upp þá reglu að bæturnar yrðu ekki greidd- ar nema menn skiluðu ákveðnu út- flutningsverði. Það vantaði og sér- staklega þegar frá leið, að setja inn í þær þennan hvata til að afla mark- aðar. Enn þann dag í dag virðist markaðssókn landbúnaðarins ekki vera í lagi. Hversvegna hafa stóru sölusamtökin ekki verið notuð? Með því að við notuðum ekki útflutnings- uppbæturnar rétt þá tókst að gera þær óvinsælar með þjóðinni og skammsýnir stjórnmálamenn gáfu þeim naðarhöggið. Að lokum Árið 1958 tóku flokkarnir hönd- um saman um að afnema útflutn- ingsbætur. Það lá á að má út þenn- an merka þátt í lífsstarfi Ingólfs Jónssonar, mannsins sem öðrum fremur lyfti landbúnaðinum og ís- lenskum sveitum. í fararbroddi voru m.a. Jón Helgason þáverandi land- búnaðarráðherra og Þorsteinn Páls- son, þáverandi formður Sjálfstæðis- flokksins. Ekki spurði Þorsteinn Pálsson sjálfstæðismenn á Suður- landi um leiðsögn. Ekki talaði hann við mig frekar en fyrri daginn nema að heimta að við þremenningarnir væram ekki að teija frumvarpið í landbúnaðarnefnd og afgreiddum það óbreytt. Það má vel vera að forysta Framsóknar hafi verið ánægð, en hún var í stjórnarand- stöðu þegar útflutningsuppbótunum var komið á. En bændur almennt, hvar í flokki sem þeir stóðu, voru ekki ánægðir. En hvað hefði það þýtt í dag ef sá hluti af útflutningsbótum, sem okkur þremenningunum (Stefáni, Páli og undirrituðum) tókst að koma í veg fyrir að væri felldur niður 1985, væri enn til staðar? Þá væri hægt að hjálpa til að koma 2500 tonnum af dilkakjöti út af markaðn- um. Með slíkum smásjóði væri og hægt að hjálpa til í öðram greinum þ.á m. garðyrkju. Þá væri aðeins bjartara í íslenskum sveitum. Það þurfti að draga úr útflutningsupp- bótum, breyta reglum, en alls ekki að afnema þær. Höfundur er bóndi og fyrrverandi alþingismaður. Raunverulegur sigur! UNDANFARNAR vikur hefur fólk á veg- um FÍB hringt í bif- reiðaeigendur á höfuð- borgarsvæðinu. Til- gangurinn er að efla samtök bifreiðaeigenda og ná samstöðu um aðgerðir til að lækka iðgjöld bílatrygginga. Hringt verður í bíleig- endur í öllum landshlut- um á næstu vikum og mánuðum. Viðbrögðin era nán- ast öll á einn veg: Fólk er langþreytt á síhækk- andi bílakostnaði og er Árni Sigfússon tilbúið til að gera eitthvað í málinu. Rúmlega 4 af hveijum 10 sem hringt er í taka þá ákvörðun að ganga til liðs við FÍB og fela félaginu að bjóða út bílatryggingar sínar. í FÍB eru fyrir 7.000 félagsmenn og er þessa dagana verið að undirbúa boð til þeirra um þátttöku í tryggingaút- boðinu. FÍB hefur að undanförnu bent á að íslensku tryggingafélögin taka árlega milljörðum króna meira af bíleigendum en þarf til að greiða rekstur og tjónakostnað. Þetta gera þau með of háum iðgjöldum. Fullyrðingar sem standast ekki Þrátt fyrir ábendingar FÍB taka tryggingafélögin ekki í mál að draga úr sjóðasöfnun sinni á kostn- að bíleigenda. Mikil samstaða virð- ist ríkja milli þessara fyrirtækja um að halda í skýringar sínar um óvenju alvarleg slys hér á landi og óvenju háar bætur fyrir líkamstjón. Öndvert við þessar fullyrðingar hefur komið í ljós að alvarlegum slysum og dauðaslysum fer fækk- andi hér á landi og að víða erlendis eru umferðarslys fleiri en hér. Jón Steinar Gunn- laugsson hæstaréttar- lögmaður hrekur enn- fremur fullyrðingar tryggingafélaganna um óvenju háar bætur fyrir líkamstjón hér á landi í grein sem birtist í Morgunblaðinu 24. ágúst sl. Hann skýrir þar - frá könnun sem hann gerði á trygg- ingagreiðslum fyrir lík- amstjón í 10 Evrópu- löndum. Niðurstaða hans er sú að íslenskir tjónþolar era verr settir en tjónþolar í 9 af þess- um 10 löndum. Aðeins í Danmörku eru bætur rýrari en hér á landi. Að sjálfsögðu er það óþolandi í þessari umræðu að tryggingafélög- in skuli ekki geta rökstutt fullyrð- ingar sínar. Jákvæðar undirtektir bíleigenda Jákvæð viðbrögð við úthringing- um FÍB til bifreiðaeigenda hafa hvatt félagið til áframhaldandi bar- áttu, sem byggir á að bíleigendur sýni samstöðu. Því leggur FÍB í áðurnefndar aðgerðir og stefnir að því að ná saman 10 þúsund bíleig- endum — eða fleiri — á næstu mánuðum. Tilgangurinn er að fá tilboð í tryggingar þessa hóps, þannig að iðgjöldin verði mun lægri en þau sem bíleigendur greiða nú. Fyrirkomulag útboðsins Með því að fá svo stóran hóp bíleigenda verður það álitlegt fyrir erlent tryggingafélag — eða nýtt íslenskt tryggingafélag — að hefja starfsemi með bílatryggingar hér á landi. Ekki er heldur loku fyrir það skotið að eitthvert þeirra trygginga- Bíleigendur verða að standa saman, segir Arni Sigfússon, til að ná hliðstæðum tryggingakjörum og í grannríkjum. félaga sem hér starfa nú þegar hafi áhuga á þessum álitlega hópi viðskiptavina. Starfsemi trygginga- miðlara er ákveðinn lykill að því að gera þetta sameiginlega útboð mögulegt. FÍB semur við einn aðila um miðlun trygginga fyrir félags- menn eftir að hafa fengið umboð frá hveijum og einum bíleiganda til að fara með bílatryggingar hans þangað sem kjörin bjóðast best. Tryggingamiðlarinn flytur allar tryggingarnar fyrir hópinn til þess tryggingafélags sem býður bíleig- endum bestu kjörin. Bíleigandinn felur því FÍB og tryggingamiðlara á vegum þess að gæta hagsmuna sinna. Bíleigandinn getur dregið sig út úr þessu sam- starfi á sama hátt og í öðrum trygg- ingaviðskiptum. Það sem mestu máli skiptir ... Fyrir hinn almenna bíleiganda skipta umræður í fjölmiðlum ekki meginmáli. Það sem skiptir mestu er árangurinn af þeirri baráttu sem FÍB stendur nú fyrir. Raunverulegur sigur í þessu máli er fólginn í því að bíleigendur standi saman um það hvar þeir ætla að kaupa tryggingar sínar, á kjöram sem eru áþekk því sem ger- ist í nágrannalöndunum. Höfundur er formaður FÍB.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.