Morgunblaðið - 07.09.1995, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
FIMMTUDAGUR 7. SEPTEMBER 1995 29*"'
BJARNI
KARLSSON
+ Bjarni Karlsson trésmiður
fæddist í Reykjavík 19.
október 1936. Hann lést í
Reykjavík 19. ágiist síðastlið-
inn. Foreldrar hans eru Val-
gerður Helga Bjarnadóttir og
Karl Símonarson, d. í ágúst-
mánuði síðastliðnum, skipa-
smiður á Eskifirði. Stjúpfaðir
Bjarna er John W. Gott, kaup-
sýslumaður í Grímsby. Systir
Bjarna er Yvonne Gott, búsett
ý Grimsby.
Útför Bjarna fer fram frá Foss-
vogskapellu í dag og hefst at-
höfnin klukkan 10.30.
í DAG er Bjami frændi okkar
kvaddur hinstu kveðju. Fráfall hans
bar skjótt og óvænt að. Kallið kom
öllum að óvörum.
Við Bjarni erum systkinaböm og
ólst hann upp hjá afa (nafna sínum)
og ömmu okkar. Það var alltaf
gaman að hitta Bjarna. Glaðværð
hans, jafnaðargeð og fróðleikur um
menn og málefni vora rómuð. Hann
var laus við sleggjudóma og hafði
næma tilfinningu gagnvart þeim
sem minna máttu sín. Trygglyndi
og trúmennska voru Bjarna í blóð
borin,- hvort heldur var í starfi eða
í leik. Segir það meira en mörg orð
um það hvaða mann Bjarni hafði
að geyma að í vinahópi hans eru
einstaklingar sem hann hefur þekkt
allt frá unglingsárum sínum.
í kjallara hússins heima hjá afa
og ömmu var afi með trésmíðaverk-
stæði. Þegar Bjarni hafði vit og
þroska til fór hann að fylgjast með
afa við smíðarnar og aðstoða eftir
föngum. Það leyndi sér ekki að
Bjarni var efni í góðan smið og
hagleiksmann. Þar sem afi tók að
sér að smíða mörg verk bæði stór
og smá fékk Bjarni fjölþætta
reynslu í trésmíði sem nýttist hon-
um allar götur síðan. í fyllingu
tímans nam Bjarni trésmíði og
starfaði hann sem slíkur allt til
hinstu stundar. Síðustu árin vann
hann við trésmíðar við Háskóla ís-
lands.
THYRA
FINNSSON
+ Thyra Finnsson
(fædd Friis Ols-
en) fæddist í Slag-
else í Danmörku 30.
janúar 1917. Hún
lést á Droplaugar-
stöðum í Reykjavík
8. ágúst síðastliðinn
og fór útför hennar
fram frá Fossvogs-
kirlqu 15. ágúst.
THYRA Finnsson er
látin.
Með örfáum orðum
langar mig til að minn-
ast svilkonu minnar,
Thyra Finnsson, sem lést þegar ég
var stödd erlendis og gafst mér
ekki færi á að kveðja hana er hún
var jarðsungin. Mér finnst visst
tímabil í lífi mínu sé gengið nú er
þau hafa bæði kvatt Thyra og eigin-
maður hennar Sveinbjörn Finnsson.
Thyra og Sveinbjörn tóku á móti
mér af sinni alkunnu hlýju er ég
kom í Hvilftarfjölskylduna. Thyra
bjó yfir einstökum hæfileikum til
að láta fólki líða vel í kringum sig
og hafði sérstaka tilfinningu fyrir
því að skapa hátíðlega stemmningu.
Matargerðarlist hennar var og al-
þekkt innan fjölskyldunnar og trú-
lega víðar.
Thyra var mikilhæf kona og bjó
yfir næmri tilfinningu fyrir listum
og ber sérstaklega að nefna hve
vel hún var að sér í tónlist. Enda
tókst henni bærilega að skila þess-
um áhuga sínum af sér til afkom-
enda sinna. Blóm voru og hennar
yndi. Mér er minnisstæður garður-
inn sem þau Sveinbjörn sköpuðu á
Fáfnisveginum eftir að þau fluttu
þangað. Sérstaklega minnist ég
stolts þeirra yfir dalíuræktinni og
glaðhlakkalegrar ánægju Svein-
bjarnar.
Já, og nú era þessi elskulegu
hjón gengin til feðra sinna, þangað
sem við erum öll á leiðinni. Þau
voru svona hálfgert höfuð fjölskyld-
unnar, þar sem Sveinbjörn var elst-
Handrit afmælis- og minningargreina
skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða
tölvusett. Sé handrit tölvusett er æski-
legt, að disklingur fylgi útprentuninni.
Auðveldust er möttaka svokallaðra
ASCIl-skráa, öðru nafni DOS-texta-
skrár. Ritvinnslukerfin Word og Word-
perfect eru einnig auðveld í úrvinnslu.
Senda má greinar til blaðsins á netfang
þess Mbl@centrum.is en nánari upplýs-
ingar þar um má lesa á heimasíðum.
Það eru vinsamleg tilmæli að iengd
greina fari ekki yfir eina og hálfa örk
A-4 miðað við meðallínubil og hæfilega
línulengd — eða 3600-4000 slög. Höf-
undar eru beðnir að hafa skirnarnöfn
sín en ekki stuttnefni undir greinunum.
ur, giftist fyrstur og
stofnaði heimili í
Reykjavík og var öll
fjölskyldan ávallt jafn-
velkomin í heimsókn.
Já, ellefu systkini sem
smámsaman eignuðust
sína maka. Oft var
glatt á hjalla og mikið
talað um lax og aftur
lax og sinnti Thyra
gestunum af sinni
höfðinglegu lund.
Þar koma að Thyra
vildi ferðast líka og
eftir fortölur við sinn
ektamaka, sem vildi
frekar fara í laxveiði, fóru þau í
Skaftafell, um páska ef ég man
rétt. Þetta var Thyru ógleymanleg
ferð og þeim báðum til mikillar
ánægju.
Thyra nefndi oft við mig hvað
hún ætti yndisleg börn og það væri
ekki erfitt að .eldast, þegar hún
ætti þau að, en mikið fer þó þegar
heilsan bregst. Það er trú mín að
Thyra hafi kvatt þennan heim
ánægð, eftir skemmtilegan dag hjá
Arndísi sinni.
Vil ég nú kveðja Thyra mína með
þökk fyrir allt og veit ég að það
hefur verið tekið vel á móti henni
þar sem hún er nú.
Afkomendur Thyru og sérstak-
lega barnabömin munu búa vel að
þeirri ástúð, umhyggju og almennri
innrætingu sem hún hefur gefið
þeim.
Blessuð sé minning hennar.
Herdís Sigurðardóttir.
JHiOTgMtt ■ .blabib
- kjarni málsins!
ErftéyM Safnnðavheimili Háteigskirkju Simi: j n. ^ 5511 m 7 Jj | lw
Bjami var virkur félagi í Skotfé-
lagi Reykjavíkur. Hann gladdist
mjög þegar hann hafði safnað sam-
an, erlendis frá, hlutum í byssu og
fengið þá setta saman hlut fyrir
hlut. Á byssuna var nafn hans graf-
ið á áfasta málmplötu. Hlakkaði
hann til að nota byssuna á skotæf-
ingum en entust ekki lífdagar til
þess.
Við systur vottum elskulegri
móður Bjarna, stjúpföður og systur
hans okkar innilegustu samúðar-
kveðjur. Við biðjum þeim guðsbless-
unar og handleiðslu hans í þeirra
djúpu sorg. Guð blessi minningu
Bjarna Karlssonar.
Jónína, Rut og Guðmunda
Þorsteinsdætur.
Mig langar í fáum orðum að
minnast vinnufélaga og vinar, sem
horfinn er svo snögglega burt frá
þessari jarðvist.
Ég kynntist Bjarna sumarið 1990
er ég hóf störf hjá viðhaldsdeild
Háskóla íslands, þar sem Bjami
starfaði. Ég sá strax að þarna var
áhugaverður maður til að kynnast
enda kom fljótlega í ljós að þar var
góður drengur, sem vildi öllum vel.
Bjarni var trésmiður að mennt.
Hann var vandvirkur og fór honum
ávallt verk vel úr hendi. Hann var
fjölhæfur og kunni ýmislegt fyrir
sér.
Við Bjarni voram yfirleitt sam-
ferða úr vinnu og ræddum þá oft
um lífið og tilveruna, hvernig
ástandið í heiminum væri, stríðið í
fyrram Júgóslavíu og þær hörm-
ungar sem fólkið þar má þola bara
fyrir valdafíkn og hroka einhverra
ráðamanna. Hafði hann mjög
ákveðnar skoðanir á slíkum mönn-
um, mönnum sem telja sig yfír aðra
hafna. Hroka og mannvonska fyrir-
leit hann í fari manna.
Bjarni var mannblendinn að
eðlisfari. Þó hleypti hann mönnum
aldrei of nálægt sér, ekki veit ég
hvað það var í hans sálartetri sem
því olli, en hef lúmskan grun um
að það hafi verið honum erfið byrði
og til trafala í lífinu.
Bjami var ávallt tilbúinn að rétta
fólki hjálparhönd, og naut ég og
fjölskylda mín hjálpsemi hans og
góðvildar. Fyrir það hefði ég viljað
þakka honum á öðrum vettvangi
og við annað tilefni.
Segið það móður minni,
að mold sé farin að anga,
svali leiki um sali
og sólbrennda vanga.
Býst ég nú brátt til ferðar,
brestur þá veganesti.
En þar bíða vinir í varpa,
sem von er á gesti.
(Davíð Stef.)
Ég vil votta móður hans, nánustu
ættingjum og vinum mína dýpstu
samúð.
Jón Emil Kristinsson.
ERFIDRYKKJUR
P E R L A N sími 562 0200
Erfidrykkjur
Glæsileg kaffi-
hlaðbord, fallegir
salir og mjög
góð þjónusta
Upplýsingar
í síma 5050 925
og 562 7575
FLUGLEIÐIR
HÓTEL LOFTLEIÐIR
t
Eiginmaður minn,
KARL ÞORLÁKSSON,
Hrauni,
Ölfusi,
verður jarðsunginn frá Þorlákskirkju í
Þorlákshöfn laugardaginn 9. september
kl. 14.00.
Blóm og kransar eru vinsamlega af-
þakkaðir, en þeim, sem vildu minnast
hans, er bent á krabbameinsdeild Land-
spítalans.
Fyrir hönd aðstandenda,
Brynhildur Eysteinsdóttir.
t
Móðir mín og tengdamóðir,
GUÐRÚN GUÐMUNDSDÓTTIR,
Munaðarnesi,
Árneshreppi,
Strandasýslu,
verður jarðsungin frá Fossvogskapellu
föstudaginn 8. september kl. 13.30.
Friðbjörg Ingibergsdóttir,
Eysteinn Árnason.
t
Móðir okkar, tengdamóðir og amma,
MIMI HOVGAARD,
lést 29. ágúst.
Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey.
Sólvag Vágadal, Jörmund Vágadal,
Stefán Hovgaard,
Samúel Óðinsson.
t
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
PÁLL TORFASON
frá Garðsenda,
bóndi,
Naustum, Eyrarsveit,
verður jarðsunginn frá Setbergskirkju laugardaginn 9. september
nk. kl. 14.00.
Margrét Erla Hallsdóttir,
Ingibjörg Torfhildur Pálsdóttir, Eiður Örn Eiðsson,
Hallur Pálsson,
Hrafnhildur Pálsdóttir, Gunnar Ólafur Einarsson,
Sigríður Herdís Pálsdóttir, Höskuldur Reynir Höskuldsson,
lllugi Guðmar Pálsson,
barnabörn og barnabarnabarn.
t
Ástkær móðir mín, tengdamóðir, systir,
amma, langamma og langalangamma,
LÁRA JÓNASDÓTTIR,
Norðurbrún 1,
Reykjavík,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju
föstudaginn 8. september kl. 10.30.
Kristinn Ásgeirsson, Lína Þóra Gestsdóttir,
Albert Jónasson,
barnabörn, barnabarnabörn
og barnabarnabarnabörn.