Morgunblaðið - 07.09.1995, Page 48

Morgunblaðið - 07.09.1995, Page 48
OPIN KERFI HF. Sími: 567 1000 fjp Vectra ffgnnfclitfetfe Afl þegar þörf krefur! RISC System / 6000 <□> NÝHERJI vv I MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN I, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBL<SCENTRUM.IS / AKUREYRl: HAFNARSTRÆTI 85 FIMMTUDAGUR 7. SEPTEMBER 1995 VERÐ I LAUSASOLU 125 KR. MEÐ VSK Jón Páll Ásgeirsson Hornbjargsviti var reistur 1930 í Látravík sunnan undir Horn- bjargi. íbúðarhúsið er bak við vitann á myndinni. Hætt verður við framkvæmdir í heilbrigðismálum Ekki samið um nýj- ar sjúkrabyggingar INGIBJÖRG Pálmadóttir heilbrigð- isráðherra hefur ákveðið að fresta öllum byggingaframkvæmdum í heilbrigðisþjónustu, öðrum en þeim sem búið var að gera skriflegan samning um við verktaka. Sveitar- stjórnum Búðahrepps, Fáskrúðs- fjarðarhrepps og Stöðvarhrepps hef- ur verið tilkynnt að ekki verði af áformum um byggingu tólf rúma hjúkrunarheimiiis á Fáskrúðsfirði. Engum fjármunum verður heldur varið til framkvæmda við K-bygg- ingu Landspítalans á næsta ári. Fjármálaráðherra og fyrrverandi heilbrigðisráðherra sömdu við sveit- arfélögin þrjú 4. apríl í vor um bygg- ingu hjúkrunarheimilis á Fáskrúðs- firði. Búið var að bjóða verkið út og opna tilboð þegar ákvörðun var tekin um að fresta framkvæmdum. Heildarkostnaður við bygginguna var áætlaður áttatíu milljónir króna. Þórir Haraldsson, aðstoðarmaður heilbrigðisráðherra, sagði að heil- brigðisráðherra teldi ekki rétt að setja á stofn nýjar heilbrigðisstofn- anir meðan ekki væru til fjármunir til að reka þær stofnanir sem nú störfuðu. Hann sagði að áætlað væri að hægt yrði að spara um 400 milljónir króna með því að hætta við framkvæmdir í heilbrigðismálum. Hann sagði að ráðherra hefði mark- að þá stefnu að leggja fyrir Alþingi áætlun um forgangsröðun í heil- brigðismálum haustið 1996. Steinþór Pétursson, sveitarstjóri á Fáskrúðsfírði, gagnrýnir ákvörðun heilbrigðisráðherra harðlega og seg- ir að leitað verði allra leiða til að fá henni breytt. Hann segir mikla þörf á hjúkrunarheimili á Fáskrúðsfirði. ■ Byggingu/25 Líklegt að Slysavarna- félagið fái húsin á Hornbjargi SLYSAVARNAFÉLAG íslands hefur sýnt áhuga á því að fá húsakostinn í Látravík undir Hornbjargi til umráða. Að sögn Halldórs Blöndals samgönguráð- herra gerir hann sér vonir um að samkomulag takist við Slysa- varnafélagið og að það hafi svo samstarf við Ferðamálafélag ísa- fjarðarsýslu um nýtingu hús- anna, en það hefur jafnframt sýnt áhuga á þeim. 1. júní sl. fór Hornbjargsviti í eyði, en sjálfvirk ^•«»/eðurathugunarstöð verður þar ** framvegis. Við Hornbjargsvita er tvílyft íbúðarhús með kjallara, skemma og önnur útihús. „Þarna eru líka dýrmæt tæki; vitinn, veðurathug- unartæki, fjarskiptatæki og ann- ar búnaður, og þessar eignir verða að vera í góðri umsjá. Við lítum svo á að það væri ipjög góður kostur ef samkomulag tækist um það við Slysavarnafé- lagið,“ segir Halldór. Mögulegt að hýsa ferðamenn Morgunblaðið/Júlíus . ELLEFU ára drengur varð fyrir bíl á Bústaðavegi um hádegisbil í gær, en slapp án alvarlegra meiðsla. Umferðaróhöpp í höfuðborginni Hann segir að samkomulag ji ahafi á sínum tíma verið milli Vita- málastofnunar og Slysavarnafé- lagsins á ísafirði um að það ann- aðist þjónustu við vitavörðinn á meðan hann var í Hornbjargsvita í Látravík. „Slysavarnafélagið er með mörg skýli um land allt, en reynslan hefur því miður sýnt að erlendar ferðaskrifstofur hafa jafnvel gert út á skýlin til að lækka dvalarkostnað ferða- langa hér á landi, sem er auðvit- að ekki æskilegt. Þarna fyrir vestan er hins vegar möguleiki *■ á því, vegna þess hve rúmgott húsið er, að loka þeim hluta húss- ins sem er undir þá nauðsynlegu starfsemi sem þar fer fram, en hýsa ferðalanga í öðru rými. Ég geri ráð fyrir að þar yrði hús- vörður á sumrin til að þjónusta ferðamenn og hafa umsjón með húsakostinum," segir Halldór Blöndal. Fengu 170 tonn af góðri loðnu HÓLMABORGIN fékk 170 tonn af loðnu í tveimur köstum um 94 mílur norður af Horni í gær. Loðn- an veiddist innan grænlensku lög- sögunnar. Þorsteinn Kristjánsson skipstjóri sagðist ekki vera tiltak- anlega bjartsýnn á framhaldið þrátt fyrir þessi köst. Lítið væri um loðnu á svæðinu. Loðnuskipin Hólmaborg, Gull- berg og Börkur hafa leitað loðnu síðan á mánudag. Þorsteinn sagði að skipin hefðu ekki orðið vör við mikla loðnu. Hólmaborgin hefði hins vegar hitt á litla loðnutorfu í gær. Hann sagðist síðdegis í gær ekki sjá að meira væri að hafa að sinni. Skipin þijú ætla að leita áfram að loðnu í Grænlandssundi. ELLEFU ára drengur meiddist á höfði þegar hann varð_ fyrir bíl á Bústaðavegi móts við Ásgarð í há- deginu í gær. Hann var fluttur með sjúkrabíl til aðhlynningar á slysa- deild en meiðsli hans virtust ekki alvarleg við fyrstu skoðun lækna, að sögn lögreglu. Pjöldi óhappa varð í umferðinni í höfuðborginni í gær. Sem dæmi má nefna að síðdegis var bifreið ekið á ljósastaur á Kringlumýrar- braut, á móts við Nesti í Fossvogi. Ökumaðurinn var fluttur á slysa- deild til aðhlynningar. Bifreið hans skemmdist mjög mikið og var dreg- in á brott með kranabíl. Þá varð mjög harður árekstur tveggja bifreiða á mótum Skeið- holts og Þverholts í Mosfellsbæ um kl. 19 í gærkvöldi. Þar fór betur en á horfðist, því ökumennirnir sluppu við meiðsli. Umferðarþungi eykst Umferðarþungi hefur aukist í höfuðborginni nú í september, líkt og ávallt gerist í þeim mánuði. Það má rekja til þess að hjól atvinnulífs- ins snúast á nýjan leik af fullum krafti eftir sumarfri og umferð til og frá skólum hefst á ný. Lögreglan hefur bent vegfarendum á að ætla sér nægan tíma til að komast leiðar sinnar á morgnana og siðdegis, þegar umferðin er mest.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.