Morgunblaðið - 08.09.1995, Síða 52
MORGUNBLAÐID, KRINGLAN I, 103 REYKJA VÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181,
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBUSCENTRUM.IS / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 85
FÖSTUDAGUR 8. SEPTEMBER 1995
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
'./53*
Ök á þrjá
vegavinnu-
menn
ÞRIR menn, sem unnu við mal-
bikun á Reykjanesbraut, slösuð-
ust í gærkvöldi þegar bifreið
var ekið á þá. Meiðsli þeirra eru
þó ekki alvarleg, að sögn lög-
reglunnar í Keflavík.
Mennirnir voru að malbika á
Reykjanesbraut við fyrirtækið
Ramma, þegar bifreið var ekið
í gegnum hindranir sem settar
höfðu verið upp á veginum og
á þá. Ökumaðurinn gaf þá skýr-
ingu að hann hefði blindast af
sólinni, en að sögn lögreglu er
hann einnig grunaður um ölvun.
Mennirnir þrír voru fluttir á
sjúkrahús. Einn þeirra reyndist
brákaður á ökkla, annar fingur-
brotinn og allir voru þeir marð-
ir og skrámaðir.
Vísindamenn gera nákvæmar mælingar með aðstoð gervihnatta
^ Landbreytingar á
Islandi rannsakaðar
NÆSTU þijú ár munu vísindamenn frá ijórum
löndum í Evrópu taka þátt í umfangsmiklu rann-
sóknarverkefni sem lýtur að því að fylgjast með
breytingum á landslagi á Suðurlandi.
Dr. Ulrich Munzer, jarðfræðingur við Háskól-
ann í Munchen, sem stýrir verkefninu, segir að
ísland sé einstaklega áhugavert rannsóknarsvæði
því nánast hvergi í heiminum ættu sér stað eins
miklar náttúrulegar breytingar á landi.
Aðeins 2,5 cm frávik
Við rannsóknirnar er beitt nýrri tækni sem
gerir vísindamönnum kleift að gera nákvæmari
mælingar á öllum breytingum sem verða á lands-
lagi. Nákvæmnin er það mikil að ekki skeikar
nema innan við 2,5 sentimetrum. Notaðir eru
tveir gervihnettir við rannsóknirnar, ERS-1 og
ERS-2, en þeir senda radargeisla til jarðar og
með þeim eru búnar til myndir. Geislarnir fara í
gegnum ský og þess vegna er hægt að fá mynd-
ir af jörðinni óháð skýjafari.
Munzer sagði að íslenskt landslag tæki stöð-
ugum breytingum. Jöklar væru að skríða fram,
hopa og hækka og lækka. Eldvirkni á íslandi
gerði það að verkum að mikið væri um jarðsig
og landris og ár og vatnsföll tækju stöðugum
breytingum. Allt þetta gerði ísland að einstaklega
áhugaverðu rannsóknarsvæði.
A milli 15 og 20 vísindamenn í Þýskalandi,
íslandi, Póllandi og Bandaríkjunum taka þátt í
rannsóknunum. Rannsakaðar verða breytingar á
jöklum, jökuljaðrar verða skoðaðir sérstaklega og
allt sem lýtur að jökulhlaupum. Gerðar verða
mælingar á jarðsigi og landrisi og sérstök áhersla
lögð á að fylgjast með eldvirkni í Heklu, Kötlu
og Grímsvötnum. Loks verða svo allar breytingar
á farvegi vatnsfalla skoðaðar.
■ ísland einstaklega/26
Svíar vilja
smíða skó á
Akureyri
SÆNSKA fyrirtækið Gapap co. vill
starfrækja skóverksmiðju á Akur-
eyri, sem veitt gæti 30-40 manns
atvinnu.
Guðjón Hilmarsson, talsmaður
fyrirtækisins, segir að fyrirtækið bíði
nú svara bæjaryfirvalda um hvort
það fái fyrirgreiðslu, s.s. aðstoð í
bankaviðskiptum.
■ Verksmiðjan/12
-----4 » «-----
Réttir að
hefjast
FYRSTU réttir á þessu hausti hefj-
ast um helgina.
Á morgun, laugardag, verður rétt-
að í Hrútatungurétt í Hrútafírði,
Auðkúlurétt í Svínavatnshreppi, Mið-
fjarðarrétt í Miðfirði og Skarðarétt
í Gönguskörðum.
Um fímmtíu réttir verða um land
allt, ef aðeins þær helstu eru taldar,
auk um tugar stóðrétta.
■ Fyrstu réttir/10
„Bakkaði
á fullu en
of seint“
Morgunblaðið. Ólafsvík.
DRAGNÓTARBÁTURINN
Auðbjörg IISH kom með
óvenjulegan feng að landi í
Ólafsvík í gær, er hann kom
með trilluna Björn Kristjóns-
son SH í togi. Áuðbjörgin
hafði verið að kasta nótinni
er Björn, sem var á landleið,
festist í belg hennar.
„Ég var á heimleið á 25
mílna siglingu í góðu veðri og
tók hreinlega ekki eftir nót-
inni fyrr en of seint. Ég brást
við með því að bakka bátnum
á fullu en það var of seint,“
segir Jóhann Steinsson eig-
andi og skipstjóri Björns Kris-
Ijónssonar, sem er 2-3 tonna
Sómabátur.
Gerist iðulega
Steinþór Guðlaugsson skip-
stjóri á Auðbjörgu II, sem er
70 tonn að stærð, kveðst ekki
telja þetta atvik mjög frétt-
næmt og iðulega gerist að
smábátar festist í nótum
skipa. „Ég dró bara nótina að
skipinu, dró síðan bátinn í
land og hífði hann upp að aft-
an til að hægt væri að losa
úr Birni. Þetta var sáraeinfalt
og ég fór strax út aftur,“ seg-
ir Steinþór.
Jóhann Steinsson brá sér í
flotbúning og var myndin tek-
in þegar hann var að ná drag-
nótarpokanum úr skrúfu trill-
unnar, sem gekk greiðlega.
Engar skemmdir hlutust af
þessum óförum, hvorki á
skrúfubúnaði Björns né á
dragnótarbelgnum. Má því
segja að betur hafi farið en á
horfðist.
Reykjavík-Keflavík
Hagkvæmni hrað-
lestar könnuð
NÝSKÖPUNARSJÓÐUR hefur
styrkt fjóra verkfræðinema við
Háskóla íslands til að reikna út
hagkvæmni þess að reka farþega-
lest milli Reykjavíkur og Keflavík-
urflugvallar.
Daglega fara um fimm þúsund
bílar og rútur á milli Reykjavíkur
og Keflavíkur og hefur farþega-
fjöldinn verið áætlaður um 15
þúsund manns. Hugmyndin um
rekstur lestar á þessari leið hefur
verið rædd áður, en nú er í fyrsta
skipti verið að reikna út arðsemi
slíks rekstrar.
Að sögn verkfræðinemanna
fjögurra þarf lestin að vera hrað-
skreið, ekki lengur en 20 mínútur
á leiðinni. Brautin þyrfti að vera
tvöföld og best að önnur stöðin
væri við Keflavíkurflugvöll og hin
við Mjóddina í Reykjavík.
Ekki reiknað með hagnaði
Ekki er áætlað að hagnaður
verði af fyrirtækinu, en heildar-
áhrifin yrðu að sögn verkfræði-
nemanna jákvæð. Þar nefna þeir
t.d. gjaldeyrissparnað þar sem
lestin yrði knúin rafmagni auk
þéss sem kostnaður við breikkun
Reykjanesbrautar myndi sparast.
Hann er talinn munu nema 50
milljónum á hvern kílómetra.
■ Hraðlestin/B8