Morgunblaðið - 26.09.1995, Page 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 26. SEPTEMBER 1995
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
Fornmaðurinn í Skriðdal hefur verið með hærri mönnum á sinni tíð
I
HÖFUÐKÚPA fornmannsins. Slit á tönnum hans sýnir að hann
hefur verið kominn um miðjan aldur.
Landnámsmaðurinn
Ævar gamli Þor-
geirsson fundinn?
Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson
SKJÓLIÐ hans Grétars frá
Húsatóftum.
Skjól fyrir
útígangs-
hross
Syðra-Langholti - Samkvæmt
hinum nýju lögum um dýravernd,
sem tóku gildi í fyrra, ber eigend-
um útigönguhrossa að hafa skjól
fyrir þau svo að líðan þeirra verði
betri í rysjóttum vetramíðrum.
Víða hafa verið sett upp einföld
skýli, óyfirbyggð, sem draga úr
vindi sem eru til verulegra bóta.
Grétar Guðmundsson frá Húsa-
tóftum á Skeiðum hefur hannað
nýja gerð af skjóli fyrir hross og
hefur eitt slíkt verið sett upp í landi
Húsatófta en þar býr Aðalsteinn,
bróðir Grétars, ásamt konu sinni,
Ástrúnu Davíðsson. Þau reka um-
fangsmikla hestaleigu sem þau
kalla Landhestar og þurfa því á
góðu skjóli að halda fyrir hesta
sína á veturna.
Þetta nýja skýli er byggt úr sex
límtrésbogum frá Límtrésverk-
smiðjunni á Flúðum og á toppinn
er fest segl frá seglagerðinni
Ægi. Síðan eru settir upp veggir
sem mynda þrjú hólf líkt og sums
staðar hefur verið sett upp. Fyrir
ofan veggina, sem eru úr kross-
viði, er tvöfaldur stillanstrigi til að
draga úr vindi.
Skýlið vel opið
Grétar sagðist hafa haft í huga
að skýli væri vel opið til að minni
hætta væri á að það fylltist af
snjó. Til að timbrið verði ekki nag-
að sem hross eiga til að gera er
ætlunin að bera hráolíu á það.
Eftir var að setja malarlag undir
og kringum skýlið þegar fréttarit-
ari leit á þetta sérstæða mannvirki
fyrir skömmu.
Grétar sagðist ekki vita með
vissu hvað svona skýli myndi kosta
enda færi það verulega eftir því
hve menn ynnu mikið við þetta
sjálfir, hvað flutningar á efni kost-
aði o.s.frv. Það ætti því að fara
vel um útigönguhrossin á Húsa-
tóftum í vetur þegar þeim verður
gefið rúllubaggahey í nýja skýlinu
og ef mannvirkið reynist vel verða
vafalaust fleiri sett upp víðsvegar
í framtíðinni.
Grétar sagðist að lokum einnig
vera með á teikniborðinu skjól fyr-
ir hross sem er þannig að veggirn-
ir sem ganga út frá miðjunni geti
lokast allir þrír í eina átt.
BEINAGRIND fornmannsins,
sem fannst í kumli sínu í Skrið-
dal, var tekin úr gröfinni um
síðastliðna helgi og flutt til Eg-
ilsstaða. Fyrsta athugun bendir
til að um sé að ræða góðbónda
frá landnámsöld, nánar tiltekið
fyrri hluta tíundu aldar, að sögn
Steinunnar Kristjánsdóttur, for-
stöðumanns Minjasafns Austur-
lands. Mælingar á lærlegg
mannsins sýna að hann hefur
verið að minnsta kosti 180 sm
að hæð, mun hærri en flestir
samtímamenn hans. Steinunn
vill að beinagrindin, ásamt öðr-
um þeim munum, sem í kumlinu
voru, verði til sýnis á Minjasafn-
inu er það verður formlega opn-
að næsta sumar.
Munir þeir, sem fundizt hafa
í kumlinu, eru úr ýmsum áttum.
Grýta, sem fannst heil í gröf-
inni, er úr norsku klébergi.
Hringprjónn eða sylgja er með
mynztri, sem gæti bent til kelt-
nesks uppruna og rafperla, sem
gæti verið úr hálsfesti, er ættuð
frá Danmörku eða Eystrasalts-
löndunum, en raf var mikilvæg
verzlunarvara á miðöldum.
Er Ævar Þorgeirsson fundinn?
Steinunn segir að sverð forn-
kappans sé sömu gerðar og
sverð, sem fundizt hafi sem
lausafundur í Hrafnkelsdal um
seinustu aldamót. Sverð af þess-
ari tegund séu algeng í Skandin-
avíu og bendi gerð sverðsins til
að það sé frá því snemma á tí-
undu öld. Steinunn segir að
menn hafi því getið sér þess til
að um landnámsmann sé að
ræða. Böndin berist að Ævari
gamla Þorgeirssyni, landnáms-
manni í Skriðdal, sem uppi var
á 9. og 10. öld og bjó á Arnalds-
stöðum, að því er segir í Land-
námu. „Þetta er samt bara ágiz-
kun og það á ekki að taka Land-
námu of bókstaflega," segir
Steinunn.
Lengd lærleggs fornmannsins
bendir til að hann hafi verið
a.m.k. 180 cm á hæð. Meðalhæð
íslenzkra karla á landnámsöld
var hins vegar um 170 sm. Stein-
unn segir að tennur mannsins
séu talsvert eyddar og hann hafi
því sennilega verið kominn á
miðjan aldur.
Lækur farinn aðspilla kumlinu
Bein fornmannsins hafa nú
verið tekin upp úr gröfinni og
flutt á Minjasafnið. Síðar í vik-
unni verða þau flutt á Þjóðminja-
safnið í Reykjavík til frekari
rannsóknar. Steinunn segist hins
vegar munu beijast fyrir því að
fá beinin aftur, og vill að kuml-
ið, með beinagrindum forn-
mannsins, hunds hans og hests
og munum þeim, sem fundust
með honum, verði þar til sýnis.
Nú í vikunni hyggst Steinunn
reyna að ljúka því að grafa upp
beinagrindurnar af skepnunum,
en hún telur að þær hafi færzt
til vegna þess að lækur hafði
brotið sér farveg í gegnum
kumlið neðanvert. Nokkurn tíma
hafi því tekið að átta sig á hvern-
ig þær hafi upphaflega legið í
gröfinni. Steinunn segir að eftir
nokkur ár til viðbótar hefði læk-
urinn sennilega grafið sig lengra
upp í kumlið og spillt beinum
fornmannsins.
Morgunblaðið/Anna Ingólfsdóttir
BEINAGRIND fornmannsins, sem hugsanlega er Ævar Þorgeirs-
son, landnámsmaður í Skriðdal, í þeirri stellingu sem hún fannst
i kumlinu.
KLÉBERGSGRÝTAN, sem fannst í kumlinu.
:
1«
i
i
€
i
Þú getur unnið
2 milljónir
i
i
€
strax