Morgunblaðið - 26.09.1995, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 26. SEPTEMBER 1995 19
FRÉTTIR: EVRÓPA
Reuter
HELMUT Kohl,
Jacques Chirac og
Jacques Santer gera
að gamni sínu á
fundinum í Alcudia.
A minni myndinni
eru Santer og Felipe
Gonzalez, forsætis-
ráðherra Spánar, á
blaðamannafundi.
Leiðtogafundur ESB á Majorka
Mörgum spurn-
ingum ósvarað
Ítalía leggur til frestun efnahags-
og myntbandalags
Alcudia, Brussel, Frankfurt. Reuter.
MÖRGUM spurningum er ósvarað
eftir hinn óformlega leiðtogafund
Evrópusambandins á Majorka um
helgina. Framtíð efnahags- og
myntbandalags Evrópuríkja
(EMU) er í meiri óvissu en áður
og línur skýrðust lítið varðandi
dagskrá ríkjaráðstefnu ESB-ríkja
á næsta ári eða stækkun sam-
bandsins til austurs.
Ummæli Theos Waigel, fjár-
málaráðherra Þýzkalands, um að
Ítalía gæti ekki orðið á meðal
stofnríkja EMU, urðu tilefni mik-
illa umræðna á fundinum. Helmut
Kohl, kanzlari Þýzkalands, sagði
eftir fundinn að leiðtogarnir hefðu
verið sammálá um að framfylgja
skilyrðum fyrir þátttöku í EMU
með ströngum hætti, og Waigel
lýsti því yfir heima í Þýzkalandi
að hann hefði fullan stuðning
Kohls við þá stefnu að hleypa ekki
öðrum inn í myntbandalagið en
þeim, sem áreiðanlega uppfylltu
öll skilyrði Maastricht-sáttmálans.
Þýzk stjórnvöld telja sig verða að
treysta stoðir myntbandalagsins
til að tryggja fylgi almennings við
það.
Seinkun á gildis-
töku EMU?
Lamberto Dini, forsætisráð-
herra Ítalíu, gerði þá óvæntu til-
Iögu að gildistöku EMU, sem nú
er áformuð 1999, yrði frestað um
eitt eða tvö ár til þess að fleiri
ríki gætu verið með og bandalagið
yrði sterkara. Þýzki Bundesbank-
inn virðist styðja þessa tillögu,
miðað við ummæli stjórnarform-
anns hans, Hans Tietmeyer: „Þeg-
ar myntbandalagið kemur, verður
það að ganga vel. Við fáum aðeins
eitt tækifæri. Og þá er grundvöll-
urinn hinn afgerandi þáttur, ekki
tímaáætlunin."
Jacques Santer, forseti fram-
kvæmdastjórnar ESB, sagði hins
vegar að hvergi mætti hvika frá
markmiðinu um að koma EMU á
árið 1999. Evrópuríki ættu ekki
að láta undan þrýstingi spákaup-
manna annars staðar í heiminum.
John Major, forsætisráðherra
Bretlands, vildi ekki útiloka það
á fundinum í Alcudia að Bretland
gengi í EMU þegar þar að kæmi.
Hann sagði að ekki þyrfti að taka
ákvörðun í málinu nærri því strax.
Leiðtogarnir samþykktu á
fundinum í Alcudia að skora á
stríðandi fylkingar í Bosníu að
fallast á vopnahlé. Leiðtogarnir
lýstu sig bjartsýna á að friður
væri innan seilingar í landinu og
samþykktu að fjármagna aðgerðir
til endurreisnar Bosníu að einum
þriðja, á móti Bandaríkjum ann-
ars vegar og múslimaríkjum hins
'vegar.
Betri tengsl við
Rússland
Leiðtogarnir ræddu samskiptin
við Rússland og samþykktu að
reyna að nálgast rússnesk stjórn-
völd á nýjan leik til að koma í veg
fyrir einangrunartilfinningu hjá
Rússum. John Bruton, forsætis-
ráðherra írlands, lagði áherzlu á
að Rússland tæki þátt í gerð frið-
arsamninga í Bosníu og sagði ESB
myndu beita sér fyrir aðild Rúss-
lands að Evrópuráðinu.
Paavo Lipponen, starfsbróðir
hans frá Finnlandi, minnti á að
orð og gerðir vestrænna ráða-
manna gætu haft áhrif á innanrík-
ismál í Rússlandi. Forðast yrði að
koma Rússum á óvart fyrir þing-
og forsetakosningar, sem standa
fyrir dyrum í Rússlandi. Helmut
Kohl tók undir þetta.
John Major lagði áherzlu á að
Rússar myndu fá nógan tíma til
að venjast tilhugsuninni um að
fyrrverandi kommúnistaríki
gengju í ESB og NATO. „Ég held
að báðar stækkanir muni gerast í
þrepurn," sagði Major. „NATO
mun ekki stækka skyndilega einn
daginn.“
SUZUKI BALENO
ÁRGERÐ 1996
Vandaður og öflugur japanskur bíll á
verði sem kemur þægilega á óvart.
Komið og reynsluakið
$ SUZUKI
SUZUKI - Afl og öryggi
—✓///--------------
SUZUKI BÍLAR HF.
SKEIFAN 17 - SÍMI: 568 5100
INDESiT tNDESIT iNDESIT INDESIT INDESiT INDESiT iNDISIT iNDISiT iNDESIT iNDESIT iNDESIT iNDESIT
ja í Evrópu.
stærsta jEramleiðanda heimilis
Verðin éru einstök og kaupir þú heimilistækin M okkur, færðu
tryggingu fyrir góðri þjónustu við kaupin, á abyrgðatímabilinu
og í mörg, mörg ár eftir það. Því endingin er einstök.
Verii stgr.
'érðstgr. /* Verð stgr. \
.900,-J X39.995^X
49
Verð
43.9
▲ Þvottavél
/IV 860
Vindur 800 sn.
14 þvottakerfi.
Stiglaus hitastillir.
Orkunotkun 2,3 kwst.
HaeS 85 cm
Breidd 60 cm
Dýpt 60 cm
Verft kr. 52.527,-
▲ Uppþvottavél
D 4500
10 kerfa vél,
tekurl 2 manna matarstell,
6 falt vatnsöryggiskerfi
mjög hljóSlát og fullkomin.
HæS: 85 cm
Breidd: 60 cm
Dýpt: 60 cm
Verb kr. 63.153,-
Verö stgr.
32.95<l
Vertí stgr.
%Æ&1
►
Eldavél
KN 6046
Undir og yfirhiti.
Geymsluskúffa.
HæS: 85-90 cm
Breidd: 60 cm
Dýpt: 60 cm
Ver& kr.46.211,-
Kæliskápur
GR 1860
HæS: 117 cm
Breidd: 50 cm
Dýpt: 60 cm
Kælir:140 I.
Frystir: 45 I.
1.15 kwst/24 tímum.
Ver& kr.41.939,-
Kæliskápar með frystihólfi fyrir ofan
Þurrkarí SD 510
Tromlan snýst í báSar
áttir,tvö hitastig.
Kaldur blástur.
Klukkurofi.
Barki fylgir
Verð kr.37.517,-
Undirborðsofn ▲
C/ M2W - Blástur
undir oa yfirhiti, grill meS
eSa án bíásturs. Klukkurofi
Verb kr. 34.684,-
Véggofn Fl M1 - Blástur
undir oa yfirhiti, grill meS
eSa án blásturs. Klukkurofi
Verb kr. 29.950,-
Gerð HæðxBreiddxDýpt Kælir ltr. Frystir Hr Staögr.
GR 1860 117x50x60 140 — i 39.842,-
GR 2260 140x50x60 180 45 44.916,-
GR 2600 152x55x60 187 67 1 47.181,-
GR 3300 170x60x60 225 76 55.433,-
DJQRMSSON HF
Lágmúla 8, Sími 553 8820
Vesturland: Málningarþjónustan Akranesi,
Kf. Ðorgfiröinga, Borgarnesi. Blómsturvellir, Helllssandi.
Guöni Hallgrímsson, Grundarfiröi. Ásubúö.Búöardal
Vestfirðlr: Rafbúö Jónasar Þór.Patreksfirði.
Rafverk, Bolungarvík.Straumur.ísafiröi.
Noröurland: Kf. Stelngrimsfjaröar.Hólmavlk.
: Kf. V-Hún., Hvammstanga. Kf. Húnvetninga, Blönduósi.
( Skagfiröingabúö.Sauöárkrókl. KEA bygglngavörur,
Lónsbakka, Akureyri.KEA, Dalvík. Kf. Þingeyinga. Húsavík.
, Urð, Raufarhöfn.
Austurland: Sveinn Guömundsson, Egllsstööum.
i Kf. Vopnfiröinga, Vopnafiröl. Stál. Seyöisfiröi.
Verslunln Vík, Neskaupsstaö.
I Kf. Fáskrúðsfirðlnga, Fáskrúösfiröi. KASK, Höfn
Suðurland: Kf. Rangæinga, Hvolsvelli.
: Mosfell, Hellu. Árvirkinn, Selfossi. Rás, Þorlákshöfn.
Jón Þorbergs, Klrkjubæjarklaustri. Brimnes, Vestmannaeyjum.
) Reykjanes: Stapafell, Keflavik.
Rafborg, Grindavík. FIT, Hafnarliröi
SÍNDESIT INDESiT INDESIT iNDESIT INDESÍT iNDESIT INDESiT ÍNDESiT INDESIT INDESIT INDESIT INDESIT