Morgunblaðið - 05.10.1995, Side 1

Morgunblaðið - 05.10.1995, Side 1
88 SIÐUR B/C/D 226. TBL. 83. ÁRG. FIMMTUDAGUR 5. OKTÓBER1995 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS SHOKO Asahara Gastilræðið í Tókýó Asahara játar á sig dráp Tókýó. Reuter. JAPANSKA ríkissjónvarpið NHK skýrði frá því í gær að Shoko Asa- hara, leiðtogi sértrúarsafnaðarins Æðsta sannleiks, hefði játað við yfirheyrslur að hafa fyrirskipað mannskætt gastilræði í neðanjarð- arlest í Tókýó og fleiri glæpi. Japanska fréttastofan Kyodo hafði hins vegar eftir lögfræðingi Asahara að lögreglan hefði knúið játninguna fram með hótunum um að starfsemi sértrúarsafnaðarins yrði bönnuð. Játningin hefði því ekkert sönnunargildi í réttarhöldun- um yfir Asahara sem hefjast 26. þessa mánaðar. Asahara hefur verið í fangelsi í fjóra mánuði, ákærður fýrir morð og morðtilraunir vegna gastilræðis- ins í mars sem varð ellefu manns að bana, auk þess sem 5.000 manns veiktust. Hermt er að margir af samstarfsmönnum hans hafí sagt að hann hafí lagt á ráðin um gastil- ræðið. Staðfesti Asahara játninguna í réttarhöldunum er talið að þeim ljúki á nokkrum mánuðum en ekki árum eins og spáð hafði verið. Verði hann fundinn sekur á hann yfir höfði sér dauðadóm. Reuter Styttu bjargað FRANSKIR fornleifafræð- ingar björguðu í gær 1500 ára gamalli grísk-róm- verskri styttu sem hefur leg- ið í sjónum á þeim stað þar sem vitinn á Faros-eyju við Alexandríu var þar til hann hrundi um 1300. Vitinn var 130 metra hár og talinn eitt af sjö undrum veraldar. Valdaráninu á Comoroeyjum lokið eftir íhlutun Frakka Málaliðarnir leysa forsetann úr haldi París. Reuter. MÁLALIÐAR undir stjórn franska ævintýramannsins Bobs Denards létu forseta Comoroeyja lausan í •gær eftir að hafa haldið honum í sex daga. Caabi Elyachroutu, for- sætisráðherra eyjanna, myndaði nýja þjóðstjórn eftir að um 600 franskir hermenn voru sendir til eyjanna í gærmorgun. Hermennirnir náðu fljótlega flug- vellinum, höfninni og nágrenni franska sendiráðsins á sitt vald. Fjórir eða fimm Comorobúar biðu bana í átökunum og tíu særðust, þeirra á meðal tveir franskir blaða- menn. Ekkert mannfall varð meðal frönsku hermannanna. Denard var í gærkvöldi í herbúð- um nálægt Moroni sem frönsku hermennirnir höfðu umkringt. „Ég Forsætisráðherr- ann myndar nýja þjóðstjórn iðrast einskis," sagði hann og kvaðst vera að semja við franska herinn um uppgjöf. Hann bjóst við því að gefa sig á vald hermönnunum í dag. Denard sóttur til saka Herve de Charette, utanríkisráð- herra Frakklands, sagði að Denard yrði handtekinn og leiddur fyrir rétt í Frakklandi. 33 málaliðar, flestir Frakkar, voru undir stjórn Denards, sem naut einnig stuðnings 800 her- manna frá Comoroeyjum. Her- mennirnir létu vopn sín af hendi og Elyachroutu forsætisráðherra veitti þeim sakaruppgjöf. Forsetinn óvinsæll íbúar Comoroeyja eru 450.000 og margir þeirra eru fegnir því að Said Mohamed Djohar forseta skuli hafa verið steypt af stóli þar sem hann er óvinsæll vegna tregðu sinnar til að efna til kosninga. Flest- ir íbúanna vilja hins vegar losna við Denard og málaliða hans. Svo virtist sem ekki væri gert ráð fyrir því að Djohar yrði áfram við völd. Hátt settur embættismað- ur í París sagði að honum yrði boð- ið hæli í Frakklandi sem pólitískum flóttamanni. Reuter FRANSKI ævintýramaðurinn Bob Denard (með gleraugu á myndinni) og Combo Ayouba kafteinn (t.v.) við höfuðstöðvar sínar nálægt Moroni eftir að franskir hermenn höfðu umkringt þær. Þýskur dómstóll fellst á framsalsbeiðni yfirvalda í Singapore Stríðið í Bosníu Tilboð um vopnahlé Sarajevo. Reuter. RICHARD Holbrooke, sendimaður Bandaríkjastjórnar, taldi í gær lík- urnar á friði í Bosníu hafa aukist vegna „mikilvægs vopnahléstil- boðs“ frá Bosníustjórn. Holbrooke vildi ekki skýra frá því hvað fælist í tilboði Bosníu- stjórnar en kvaðst ætla að ræða það strax við Slobodan Milosevic, forseta Serbíu. Hann kvaðst von- ast til að geta snúið aftur til Sarajevo í dag með svar Serba við tilboðinu. Nick Leeson áfrýjar Frankfurt. Reuter. HÉRAÐSDÓMSTÓLL í Frankfurt úr- skurðaði í gær að framselja bæri breska bankamanninn Nick Leeson til Singapore vegna ásakana um að hann hefði gert Barings-banka gjaldþrota með áhættu- viðskiptum sínum í útibúinu þar. Lögfræðingur Leesons sagði að úr- skurðinum yrði áfrýjað til þýska stjórn- lagadómstólsins á þeirri forsendu að hann gengi í berhögg við stjórnarskrána. Þýska stjórnin verður einnig að samþykkja framsalið. Af þessum sökum gætu liðið margir mánuðir og allt að tvö ár þar til ljóst verður hvort Leeson verður fram- seldur. Leeson, sem er 28 ára, hefur verið í fangelsi í grennd við Frankfurt frá því í mars þegar hann var handtekinn á flug- velli borgarinnar eftir sex daga leit að honum. Yfirvöld í Singapore vilja sækja hann til saka fyrir skjalafals og fjársvik vegna svokallaðra afleiðuviðskipta hans sem urðu til þess að bankinn tapaði sem svarar rúmlega 90 milljörðum króna. Leeson sagði í viðtali við BBC í síð- asta mánuði að hann hefði stofnað leyni- lega bankareikninga til að fela tapið og blekkt yfírmenn sína í því skyni að fá þá til að flytja fjármagn frá London til útibúsins í Singapore. Nick Leeson, maður- inn sem gerði Barings- banka gjaldþrota með áhættuviðskiptum. ■ Samkomulag um Slavoníu/23 Réttarhöldin yfir Q.J. Simpson Kviðdómarar út- skýra sýknunina Los Angeles. Reuter. BANDARÍSKA íþróttahetjan O.J. Simpson kvaðst í gær þurfa meiri tíma til að jafna sig á dauða fyrr- verandi eiginkonu sinnar eftir að kviðdómur hafði sýknað hann af morðinu á henni og vini hennar. Simpson kvaðst í símaviðtali við CNN vera ánægður með úr- skurð kviðdómsins. „Ég hef samt ekki haft tækifæri til að syrgja hana,“ sagði hann. „í gærkvöldi var mikill fögnuður heima hjá mér, en hafa ber í huga að börn- in mín hafa misst móður sína. Fólk virðist ekki skilja að ég elsk- aði þessa konu.“ Brenda Moran, ein í hópi níu blökkumanna í kviðdómnum, kvað saksóknarana ekki hafa lagt fram nægar sannanir til að sann- færa hana um að Simpson væri sekur. Dóttir hvítrar konu í kviðdómn- um sagði að hún hefði viðurkennt með tárin í augunum að Simpson væri „líklega" sekur en fallist á sýknunina vegna efasemda um vitnisburð lögreglumannsins Marks Fuhrmans, sem hún treysti ekki vegna kynþáttahaturs hans. ■ Margir hneykslaðir/21

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.