Morgunblaðið - 05.10.1995, Qupperneq 1
88 SIÐUR B/C/D
226. TBL. 83. ÁRG. FIMMTUDAGUR 5. OKTÓBER1995 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
SHOKO Asahara
Gastilræðið í Tókýó
Asahara
játar á
sig dráp
Tókýó. Reuter.
JAPANSKA ríkissjónvarpið NHK
skýrði frá því í gær að Shoko Asa-
hara, leiðtogi sértrúarsafnaðarins
Æðsta sannleiks, hefði játað við
yfirheyrslur að hafa fyrirskipað
mannskætt gastilræði í neðanjarð-
arlest í Tókýó og fleiri glæpi.
Japanska fréttastofan Kyodo
hafði hins vegar eftir lögfræðingi
Asahara að lögreglan hefði knúið
játninguna fram með hótunum um
að starfsemi sértrúarsafnaðarins
yrði bönnuð. Játningin hefði því
ekkert sönnunargildi í réttarhöldun-
um yfir Asahara sem hefjast 26.
þessa mánaðar.
Asahara hefur verið í fangelsi í
fjóra mánuði, ákærður fýrir morð
og morðtilraunir vegna gastilræðis-
ins í mars sem varð ellefu manns
að bana, auk þess sem 5.000 manns
veiktust. Hermt er að margir af
samstarfsmönnum hans hafí sagt
að hann hafí lagt á ráðin um gastil-
ræðið.
Staðfesti Asahara játninguna í
réttarhöldunum er talið að þeim
ljúki á nokkrum mánuðum en ekki
árum eins og spáð hafði verið. Verði
hann fundinn sekur á hann yfir
höfði sér dauðadóm.
Reuter
Styttu
bjargað
FRANSKIR fornleifafræð-
ingar björguðu í gær 1500
ára gamalli grísk-róm-
verskri styttu sem hefur leg-
ið í sjónum á þeim stað þar
sem vitinn á Faros-eyju við
Alexandríu var þar til hann
hrundi um 1300. Vitinn var
130 metra hár og talinn eitt
af sjö undrum veraldar.
Valdaráninu á Comoroeyjum lokið eftir íhlutun Frakka
Málaliðarnir leysa
forsetann úr haldi
París. Reuter.
MÁLALIÐAR undir stjórn franska
ævintýramannsins Bobs Denards
létu forseta Comoroeyja lausan í
•gær eftir að hafa haldið honum í
sex daga. Caabi Elyachroutu, for-
sætisráðherra eyjanna, myndaði
nýja þjóðstjórn eftir að um 600
franskir hermenn voru sendir til
eyjanna í gærmorgun.
Hermennirnir náðu fljótlega flug-
vellinum, höfninni og nágrenni
franska sendiráðsins á sitt vald.
Fjórir eða fimm Comorobúar biðu
bana í átökunum og tíu særðust,
þeirra á meðal tveir franskir blaða-
menn. Ekkert mannfall varð meðal
frönsku hermannanna.
Denard var í gærkvöldi í herbúð-
um nálægt Moroni sem frönsku
hermennirnir höfðu umkringt. „Ég
Forsætisráðherr-
ann myndar nýja
þjóðstjórn
iðrast einskis," sagði hann og
kvaðst vera að semja við franska
herinn um uppgjöf. Hann bjóst við
því að gefa sig á vald hermönnunum
í dag.
Denard sóttur til saka
Herve de Charette, utanríkisráð-
herra Frakklands, sagði að Denard
yrði handtekinn og leiddur fyrir
rétt í Frakklandi.
33 málaliðar, flestir Frakkar,
voru undir stjórn Denards, sem
naut einnig stuðnings 800 her-
manna frá Comoroeyjum. Her-
mennirnir létu vopn sín af hendi
og Elyachroutu forsætisráðherra
veitti þeim sakaruppgjöf.
Forsetinn óvinsæll
íbúar Comoroeyja eru 450.000
og margir þeirra eru fegnir því að
Said Mohamed Djohar forseta skuli
hafa verið steypt af stóli þar sem
hann er óvinsæll vegna tregðu
sinnar til að efna til kosninga. Flest-
ir íbúanna vilja hins vegar losna
við Denard og málaliða hans.
Svo virtist sem ekki væri gert
ráð fyrir því að Djohar yrði áfram
við völd. Hátt settur embættismað-
ur í París sagði að honum yrði boð-
ið hæli í Frakklandi sem pólitískum
flóttamanni.
Reuter
FRANSKI ævintýramaðurinn Bob Denard (með gleraugu á myndinni) og Combo Ayouba kafteinn
(t.v.) við höfuðstöðvar sínar nálægt Moroni eftir að franskir hermenn höfðu umkringt þær.
Þýskur dómstóll fellst á framsalsbeiðni yfirvalda í Singapore
Stríðið í Bosníu
Tilboð um
vopnahlé
Sarajevo. Reuter.
RICHARD Holbrooke, sendimaður
Bandaríkjastjórnar, taldi í gær lík-
urnar á friði í Bosníu hafa aukist
vegna „mikilvægs vopnahléstil-
boðs“ frá Bosníustjórn.
Holbrooke vildi ekki skýra frá
því hvað fælist í tilboði Bosníu-
stjórnar en kvaðst ætla að ræða
það strax við Slobodan Milosevic,
forseta Serbíu. Hann kvaðst von-
ast til að geta snúið aftur til
Sarajevo í dag með svar Serba við
tilboðinu.
Nick Leeson áfrýjar
Frankfurt. Reuter.
HÉRAÐSDÓMSTÓLL í Frankfurt úr-
skurðaði í gær að framselja bæri breska
bankamanninn Nick Leeson til Singapore
vegna ásakana um að hann hefði gert
Barings-banka gjaldþrota með áhættu-
viðskiptum sínum í útibúinu þar.
Lögfræðingur Leesons sagði að úr-
skurðinum yrði áfrýjað til þýska stjórn-
lagadómstólsins á þeirri forsendu að hann
gengi í berhögg við stjórnarskrána. Þýska
stjórnin verður einnig að samþykkja
framsalið. Af þessum sökum gætu liðið
margir mánuðir og allt að tvö ár þar til
ljóst verður hvort Leeson verður fram-
seldur.
Leeson, sem er 28 ára, hefur verið í
fangelsi í grennd við Frankfurt frá því í
mars þegar hann var handtekinn á flug-
velli borgarinnar eftir sex daga leit að
honum. Yfirvöld í Singapore vilja sækja
hann til saka fyrir skjalafals og fjársvik
vegna svokallaðra afleiðuviðskipta hans
sem urðu til þess að bankinn tapaði sem
svarar rúmlega 90 milljörðum króna.
Leeson sagði í viðtali við BBC í síð-
asta mánuði að hann hefði stofnað leyni-
lega bankareikninga til að fela tapið og
blekkt yfírmenn sína í því skyni að fá
þá til að flytja fjármagn frá London til
útibúsins í Singapore.
Nick Leeson, maður-
inn sem gerði Barings-
banka gjaldþrota með
áhættuviðskiptum.
■ Samkomulag um Slavoníu/23
Réttarhöldin yfir Q.J. Simpson
Kviðdómarar út-
skýra sýknunina
Los Angeles. Reuter.
BANDARÍSKA íþróttahetjan O.J.
Simpson kvaðst í gær þurfa meiri
tíma til að jafna sig á dauða fyrr-
verandi eiginkonu sinnar eftir að
kviðdómur hafði sýknað hann af
morðinu á henni og vini hennar.
Simpson kvaðst í símaviðtali
við CNN vera ánægður með úr-
skurð kviðdómsins. „Ég hef samt
ekki haft tækifæri til að syrgja
hana,“ sagði hann. „í gærkvöldi
var mikill fögnuður heima hjá
mér, en hafa ber í huga að börn-
in mín hafa misst móður sína.
Fólk virðist ekki skilja að ég elsk-
aði þessa konu.“
Brenda Moran, ein í hópi níu
blökkumanna í kviðdómnum,
kvað saksóknarana ekki hafa lagt
fram nægar sannanir til að sann-
færa hana um að Simpson væri
sekur.
Dóttir hvítrar konu í kviðdómn-
um sagði að hún hefði viðurkennt
með tárin í augunum að Simpson
væri „líklega" sekur en fallist á
sýknunina vegna efasemda um
vitnisburð lögreglumannsins
Marks Fuhrmans, sem hún treysti
ekki vegna kynþáttahaturs hans.
■ Margir hneykslaðir/21