Morgunblaðið - 05.10.1995, Side 2
2 FIMMTUDAGUR 5. OKTÓBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Vestmannaeyjum. Morgunblaðid.
FYRSTA síldin á vertíðinni
kom til Vestmannaeyja í gær.
ísleifur VE kom þá með um
400 tonn, sem fengust í einu
kasti í Berufjarðarál.
Löndun úr ísleifi hófst síð-
degis í gær og í gærkvöldi
hófst vinnsla á síldinni hjá
Fyrsta síldin
til Eyja
Vinnslustöðinni. Síldin var fal-
leg sem lönduð var úr ísleifi
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
og var hún flökuð og fryst.
ísleifur er fyrsti Eyjabáturinn
sem hefur síldveiðar, en Kap
VE hélt til veiða á þriðjudags-
kvöld eftir lengingu og gagn-
gerar endurbætur sem fram
fóru á skipinu í Skipalyftunni
í Eyjum.
Sjö ára
vann tvær
milljónir
SJÖ ÁRA snáði á Akureyri, Jón
Birkir Jónsson, vann tvær milljón-
ir á skafmiða Happdrættis Há-
skóla íslands á þriðjudagskvöld.
Jón Birkir heimsótti langömmu
sína og þegar hann kvaddi gaf hún
honum 100 krónur og lét þess
getið að hann skyldi helst ekki
kaupa sér sælgæti. Hann fór í
næstu verslun og keypti sér
happaþrennu sem hann skóf á
staðnum.
■ Fékk 100 kr./14
Hafnarfjörður
Óska við-
ræðna
vegna upp-
sagna
UM 60 félagar Starfsmannafélags
Hafnarfjarðar, sem fengu uppsagnar-
bréf fyrir skömmu, mættu á fund sem
félagið boðaði til í gær, í því skyni
að ræða næstu skref í málinu. Á fund-
inum var ákveðið að skrifa bæjarráði
bréf og óska viðræðna.
Árni Guðmundsson formaður STH
segir það hafa verið afdráttarlausan
vilja fundarmanna að félagið færi
með forræði í málinu, í stað þess að
bærinn semji við einstaklinga.
Tæplega 100 starfsmenn Hafnar-
fjarðar fengu fyrir nokkru bréf þar
sem fastri yfirvinnu og bílastyrkjum
var sagt upp, í samræmi við bókun
bæjarráðs. Ámi segir ijóst að ekki
sé farið algjörlega eftir bókuninni,
þar sem einhveijir hópar hafi verið
teknir út úr, svo sem hluti starfs-
manna rafveitunnar í Hafnarfirði,
hafnarverðir o.fl., sem þurfi ekki að
sæta uppsögn. „Mönnum finnast
þessar aðgerðir mjög ónákvæmar og
illa undirbúnar. Fólki finnst það sett
í óþarfa óvissu sem snertir marga,
því allir hafa tekið á sig margvísleg-
ar skuldbindingar," segir Árni.
Mjólkursamlag Borgfirðinga
30 sagt upp störfum og
boðin vinna hjá Engiaási
Rnv*n*ovmnci IfnnmvnKloáiA
Borgarnesi. Morgnnblaðið.
HÚS Mjólkursamlags Borgfirðinga verður áfram í eigu Kaupfé-
lagsins, en Engjaás ehf. hefur starfsemi í húsinu um áramót.
KAUPFELAG Borgfirðinga sagði
þijátíu manns upp störfum hjá
Mjólkursamlagi Borgfirðinga um
síðustu mánaðamót.
Stofnað hefur verið nýtt hlutafé-
lag, Engjaás ehf., sem mun starfa
í húsnæði Mjólkursamlagsins við
ýmsa matvælavinnslu. Hefur KB
boðið öllum þeim sem sagt hefur
verið upp störfum að ráða sig hjá
hinu nýja fyrirtæki.
Allri mjólkurvinnslu verður hætt
í Mjólkursamlagi Borgfirðinga
(MSB) um næstu áramót. Nýtt fyr-
irtæki, Engjaás ehf., sem stofnað
var sl. vor, mun hefja starfsemi í
húsnæði Mjólkursamlagsins eftir
áramótin.
Að sögn nýráðins framkvæmda-
stjóra Engjaáss ehf., Indriða Al-
bertssonar, fráfarandi mjólkurbús-
stjóra, mun hið nýja fyrirtæki starfa
við ýmsa matvælavinnslu, en hann
sagði að of snemmt væri að greina
frá starfseminni í smáatriðum.
Það er Kaupfélag Borgfirðinga
sem á nýja fyrirtækið til helminga
á móti Osta- og smjörsölunni,
Mjólkursamsölunni og Mjólkurbúi
Flóamanna.
Vélar og húsnæði MSB voru aug-
lýst til sölu í samræmi við ákvæði
úreldingarreglugerðar. Ekkert til-
boð barst í húsið og aðeins eitt til-
boð barst í vélar og tæki sem síðan
var dregið til baka. Eignirnar munu
því verða áfram í eigu Kaupfélags-
ins.
Ný bílaleiga
Býður
jafnvel
leigufría
bíla
NÝ bílaleiga í eigu Hasso
Schiitzendorfs, Hasso-ísland
hf., tekur til starfa hér á landi
á næstunni og kemur fyrsti
bíllinn til landsins 11. októ-
ber, en hann er af gerðinni
Rolls Royce og verður vænt-
anlega aðeins leigður út með
ökumanni til aksturs við sér-
stök tækifæri.
I fréttatilkynningu frá
Hasso Schiitzendorf kemur
fram að aðrir bílar komi
væntanlega til landsins fyrir
næstu áramót. Til að byrja
með verða 6-10 bílar hjá
Hasso-ísland, en ef fyrirtæk-
inu verður vel tekið hér á
landi kveðst Hasso reiðu-
búinn til að senda allt að þtjú
þúsund bíla hingað.
í fréttatilkynningunni seg-
ir að verð bílaleigubílanna
verði það lægsta á íslenskum
markaði og muni fyrirtækið
jafnvel bjóða leigufría bíla ef
á þurfi að halda til þess að
standa undir nafni.
Vill taka þátt í
uppbyggingu
Hasso Schiitzendorf var
nýlega hér á Iandi en hann
þekkja margir íslendingar
vegna viðskipta við bílaleigu
hans á Mallorka á Spáni. Þar
fá allir íslendingar ókeypis
bíla hjá fyrirtæki hans til
ársloka 1996 og greiða aðeins
tryggingu og skatt. Hasso
segir að undanfarið hafi verið
unnið að markaðskönnun
vegna hugsanlegrar stofnun-
ar bílaleigu hér á landi og
hafi niðurstöðumar bæði ver-
ið neikvæðar og jákvæðar í
senn. Hann hafi ákveðið að
taka þátt í uppbyggingu
ferðamála á íslandi með
stofnun Hasso-ísland hf., en
fyrirtækið muni til að byija
með eingöngu reka bílaleigu.
Metafli hjá Guðbjörginni
Isafirði, Morcunblaðið.
Guðbjörg IS-46, hinn nýi frystitog-
ari Hrannar hf. á ísafirði, kom til
hafnar á sunnudag með um 415
tonn af fullunnum afurðum að verð-
mæti um 90 milljónir króna.
Aflinn fékkst allur á heimamið-
um og var til helminga þorskur og
karfi. Upp úr sjó var aflinn liðlega
800 tonn sem er mesti afli sem
skipið hefur komið með að landi til
þessa. Veiðiferð skipsins stóð I fimm
vikur og var skipstjóri Guðbjartur
Ásgeirsson. Guðbjörgin hélt aftur
til veiða á fimmtudag og var áætlað
að skipið yrði að veiðum í um tvær
vikur. Eftir það verður stefnan tek-
in á Akureyri þar sem skipið verður
tekið í slipp.
Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra í umræðum um stefnuræðu forsætisráðherra
Þarf viðræður um
nýjan siðferðis-
grunn samninga
HALLDÓR Ásgrímsson, formaður Fram-
sóknarflokksins og utanríkisráðherra, sagði
í umræðum um stefnuræðu Davíðs Odds-
sonar forsætisráðherra á Alþingi í gær-
kvöldi að efna yrði til viðræðna ríkisvalds-
ins og aðila vinnumarkaðarins um nýjar
leikreglur á vinnumarkaði.
„Ég tel að stjórnmálamenn, verkalýðs-
hreyfing og atvinnurekendur eigi að setjast
niður að ráða ráðum sínum, ekki til að
semja um krónur eða prósentur, heldur til
að reyna að finna siðferðilegan grunn, sem
kjarasamningar framtíðarinnar gætu byggt
á,“ sagði Halldór. „Er til dæmis hægt í
samfélagi ftjálsra samninga, að setja ein-
hverjar þær leikreglur, sem tryggja aukið
jafnrétti i launamálum? Geta allir aðilar
máls fallizt á að einungis verði um fastar
krónutöluhækkanir að ræða næstu árin?
Það verður erfitt að finna réttu svörin,
meira að segja að finna réttu spurningarn-
ar, en tilraun verður að gera.“
Halldór minnti á markmið flokks síns
að skapa 12.000 ný störf fram til aldamóta
og sagði að aðgerðir ríkisstjórnarinnar yrðu
til þess, einar og sér, að 9.200 störf yrðu til
á almennum vinnumarkaði samkvæmt spá
íjóðhagsstofnunar. „Sérstakar aðgerðir og
erlend ijárfesting geta skilað einhverjum
þúsundum starfa til viðbótar, svo það er lík-
legt að hægt sé að ná þessu markmiði."
Óréttmæt gagnrýni á GATT
Davíð Oddsson forsætisráðherra sagði
m.a. í stefnuræðu sinni að segja mætti að
réttmæt gagnrýni hefði komið fram á „ein-
stök smávægileg tæknileg atriði“ við fram-
kvæmd GATT-samningsins. Að öðru leyti
hefði gagnrýnin að mestu leyti verið órétt-
mæt og byggð á fölskum væntingum um
markmið og áhrif GATT-samningsins á
innflutning og verðlag búvöru. Samningur-
inn væri framkvæmdur í grundvallaratrið-
um eins hér á landi og annars staðar.
Rannveig Guðmundsdóttir, þingflokks-
formaður Alþýðuflokksins, benti á að í
nágrannaríkjunum hefði þegar tekizt að
lækka verðlag landbúnaðarvara langt um-
fram það, sem hér gerðist, og hefði því
verið brýnna hér að nýta tækifæri GATT
til verðlækkana.
Jóhanna Sigurðardóttir, formaður Þjóð-
vaka, boðaði tillöguflutning flokks síns um
afnám „forréttindasjóða, sem færa hæstu
embættismönnum, bankastjórum, alþingis-
mönnum og ráðherrum, margfaldan Iífeyri
á við aðra, beri að leggja niður.“ Jóhanna
stakk upp á að verkalýðshreyfingin skoðaði
breytingar á skipulagi kjaramála, til dæm-
is að sameina opinbera starfsmenn og
launafólk á almennum vinnumarkaði í
starfsgreinafélög, sem síðan yrðu lögform-
legir aðilar að samningum um kaup og
kjör með vinnustaði sem grunneiningu.
Einn ríkisbanki?
Margrét Frímannsdóttir, þingmaður Al-
þýðubandalags, varpaði fram þeirri hug-
mynd að hér yrði aðeins einn öflugur ríkis-
banki í stað tveggja, sem fylgdi þeirri
stefnu stjórnvalda að lána fé til lítilla og
meðalstórra fyrirtækja í nýjum rekstri.