Morgunblaðið - 05.10.1995, Page 4
4 FIMMTUDAGUR 5. OKTÓBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Vátryggingaeftirlitið um uppgjör vegna líkamstjóns
Félögin skuli upplýsa
um rétt til lögmanns
VÁTRYGGINGAEFTIRLITIÐ hefur
komist að þeirri niðurstöðu að vá-
tryggingafélögin skuli upplýsa sér-
hvern þann er krefur þau um bætur
vegna líkamstjóns þar sem uppgjör
fer eftir skaðabótalögum um rétt
sinn tii að ráða sér lögmann til að
gæta hagsmuna sinna við uppgjörið.
I fréttatilkynningu frá Vátrygginga-
eftirlitinu segir að ágreiningur hafi
komið upp milli lögmanna og vá-
tryggingafélaganna um þetta efni
auk ágreinings um hver sé eðlileg
þóknun fyrir þau störf. Lögmannafé-
lag íslands sendi Vátryggingaeftir-
litinu erindi þar sem farið var fram
á athugun þess á málinu.
Sigmar Ármannsson, fram-
kvæmdastjóri Sambands íslenskra
tryggingafélaga, segir að félögin
muni að sjálfsögðu fara að tilmælutn
Vátryggingaeftirlitsins. Ágreining-
urinn hafí auðvitað ekki snúist um
það hvort tjónþola sé heimilt að leita
sér lögmanns eða ekki. Allir eigi
þann rétt. Álitaefnið snúist hins veg-
ar um-það hver kostnaðurinn við
slíkt eigi að vera og hver eigi að
bera hann. „Ég fæ ekki betur séð
en að Vátryggingaeftirlitið láti ógert
að blanda sér í það mál, og þar með
í kjarabaráttu lögmanna," sagði Sig-
mar.
„Félögin munu eftir sem áður leita
löglegra leiða og úrræða til þess að
ná niður þessum háa kostnaði vegna
sérfræðinga, sérstaklega lögmanna.
Tjónþolum mun verða bent á að leita
ráðgjafar lögmanns ef þeim sýnist
svo. Hins vegar er ekki gefið að
félagið greiði allan kostnað vegna
atbeina lögmanns í einfaldari mái-
um,“ segir Sigmar.
Mun hærri kostnaður en
í Danmörku
Sigmar segir þóknun lögmanna
oft hærri en vinnuframlag þeirra
gefi tilefni til. Tryggingafélögin hafi
þurft að greiða háar fjárhæðir til
lögmanna vegna uppgjöra á h'kams-
tjónum, iðulega fyrir litla vinnu.
Þann háa kostnað-verða neytendur
að. borga með iðgjöldum sínum.
„Með setningu nýrra skaðabótalaga
ætti að vera tækifæri til að lagfæra
þessa vitleysu," sagði Sigmar.
„Við höfum borið saman lög-
mannskostnað íslenskra trygginga-
félaga vegna slysamála við kostnað
danskra tryggingafélaga og hér á
landi er hann miklu hærri. Hér hafa
lögmenn sett fram kröfur um þókn-
un sína á grundvelli hundraðshlutar
af íjárhæðum bótanna en í Dan-
mörku byggist þóknunin á vinnu-
tímaframlagi þeirra,“ segir Sigmar.
Hann segir að í Danmörku sé jafn-
aðarlega litið svo á að í einfaldari
málum, þar sem ekki sé deilt um
ábyrgð, sök eða sakarskiptingu,
þurfi ekki atbeina lögmanns. Allir
stuðlar og viðmiðanir séu þekktir í
skaðabótalögunum, og því þurfi
fyrst og fremst þokkalega reiknivél
en ekki lögmann. í stærri málum
og flóknari, þar sem við álitaefni er
að etja, er atbeini lögmanns bæði
eðlilegur og nauðsynlegur.
Dómur genginn í einu máli
Þórunn Guðmundsdpttir, formað-
ur Lögmannafélags íslands, segir
að niðurstöður Vátryggingaeftirlits-
ins séu í samræmi við það sem lög-
menn hafi ætíð haldið fram. Áður
en farið hafi að reyna á nýju skaða-
bótalögin hafi vátryggingafélögin
ávallt greitt fyrir lögmannsþjónustu
tjónþola. Þegar farið hafi verið að
gera líkamstjón upp samkvæmt nýju
lögunum hafi félögin verið mjög treg
til þess að greiða fyrir þá þjónustu.
Þórunn segir að dómur hafí gengið
í slíku máli í héraði í vor þar sem
Héraðsdómur taldi að áfram ætti
að greiða venjulega innheimtuþókn-
un og félögin geti ekki einhliða
ákveðið þóknun til lögmanns. Málinu
hefur verið áfrýjað til Hæstaréttar.
Leit ber
enn engan
árangnr
Vestmannaeyjum. Morgunblaðið.
LEIT að Steinunni Þóru Magnús-
dóttur, sem hvarf í Vestmannaeyj-
um aðfaranótt síðastliðins sunnu-
dags, hefur enn engan árangur
borið. Fjölmennt lið björgunarfé-
lagsmanna hefur leitað síðan á
sunnudagskvöld bæði á landi og
eins hafa kafarar leitað í höfn-
inni. í gær beindist leitin eingöngu
að höfninni og voru tíu kafarar
við leit þar ásamt því sem neðan-
sjávarmyndavél var notuð við Ieit-
ina. Pjórir kafarar frá Varnarlið-
inu á Keflavíkurflugvelli komu til
Eyja í gær og aðstoðuðu við leit-
ina. Leitað var fram í myrkur í
gærkvöldi_ en leitin bar engan
árangur. í birtingu í dag verður
leit í höfninni haldið áfram.
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasspn
MIKIL leit fór fram í Vestmannaeyjahöfn í gær. Tíu kafarar leituðu í höfninni, auk þess sem
neðansjávarmyndavél var notuð við leitina.
Fráfarandi framkvæmdastjóri Alþýðuflokksins segist neyddur til afsagnar
„Uppspuni
frá rótum“
í BRÉFI sem Sigurður T. Björg-
vinsson, fyrrum framkvæmda-
stjóri Alþýðuflokksins, hefur skrif-
að fulltrúum í framkvæmdastjórn
flokksins og merkt er trúnaðar-
mál, segir að hann hafi ekki óskað
eftir að láta af störfum heldur
hafi hann verið neyddur til þess í
haust.
Bréfið, sem er undir fyrirsögn-
inni „Sannleikurinn um starfslok
framkvæmdastjóra", segir að mik-
ið hafí verið gert úr samstarfsörð-
ugleikum hans við ýmsa forystu-
menn flokksins. Þetta sé ekki rétt.
Hann hafi átt mjög gott samstarf
við formann flokksins, þingmenn
hans og flokksfólk almennt. Einu
samstarfsörðugleikarnir hafi verið
við Guðmund Oddsson, formann
framkvæmdastjórnar, og Sigurð
E. Arnórsson, gjaldkera flokksins,
þar sem „ég felldi mig ekki við í
hvaða farveg mér fannst þeir vera
að sveigja fjármálastjórn og
starfsmannamál flokksins."
Meinað að
sjá bókhald
í bréfinu segir Sigurður að hann
hafí ekkihaft aðgang að bókhalds-
gögnum fiokksins og telji sér ekki
fært að staðfesta ársreikninga
flokksins fyrir það tímabil sem
hann hafí verið starfandi fram-
kvæmdastjóri, eins og honum sé
þó skylt, nema hann fái fullan
aðgang að tilheyrandi bókhalds-
gögnum.
I bréfi sem Sigurður hefur ritað
gjaldkera flokksins 19. september
og fylgir bréfínu sem fylgiskjal,
fer hann fram á að fá fullan að-
gang að bókhaldi, færslulistum,
fylgiskjölum og yfirlitum allra
bankareikninga Alþýðuflokksins
frá 1992-94 og frá 1994-95, í
öðru lagi bókhaldi, uppgjöri og
yfirlitum bankareikninga kosn-
ingabaráttu Alþýðuflokksins 1995
og í þriðja lagi bókhaldi, færslulist-
um, fylgiskjölum og yfirlitum allra
bankareikninga Alprents hf.
1992-95.
Hagsmunaárekstrar?
Að lokum segir: „Er það eðlilegt
að fjármálum flokksins sé haldið
ieyndum fyrir framkvæmdastjóra
flokksins? Eru það ekki hags-
munaárekstrar að sami maður sé
kjörinn gjaldkeri, ráðinn fjármála-
stjóri og færi einnig bókhald bæði
fyrir flokk og blað? Er ekki tími
til kominn að forysta Alþýðu-
flokksins standi við stóru orðin
varðandi siðvæðingu í stjórnmál-
um og opnun bókhalds stjórnmála-
flokka? “
Guðmundur Oddsson kveðst
telja bréfið bera vott um „hugar-
óra“ Sigurðar og hann skilji ekki
aukatekið orð sem í því stendur.
Efni þess sé „uppspuni frá rótum“.
„Hann er að gefa eitthvað í
skyn varðandi fjármálin, en ég hef
aldrei fengið krónu eða verið að
vinna fyrir peninga í þessum
flokki. Sigurður fullyrðir að hann
hafí verið neyddur til að segja af
sér, en í bréfi sem hann skrifaði
Jóni Baldvini Hannibalssyni, for-
manni Alþýðuflokksins, 20. ágúst
sl., segir hann orðrétt: „Eins og
stundum hefur komið fram í sam-
tölum okkar á milli hef ég ekki
hugsað mér að vera í starfí á
flokksskrifstofunum um aldur og
ævi. Það er ekki óeðlilegt að eftir
fjögurra ára starf og að afloknum
kosningum komi nýjar áherslur í
flokksstarfið. Þess vegna óska ég
eftir því að fá að láta af störfum
fyrir Alþýðuflokkinn fljótlega, ef
þú og framkvæmdastjórn flokks-
ins getið sætt ykkur við það.“ Var
höfundur þessarar uppsagnar
neyddur til að segja af sér?“spyr
Guðmundur.
Ekki náðist f Sigurð E. Arnórs-
son í gærkvöldi.
Emerald Air
Fyrsta
greiðsla
enn ekki
borist
FYRSTA afborgun af láni sem
fyrrverandi framkvæmdastjóri
Lífeyrissjóðs bænda veitti flug-
félaginu Emereld Air án heim-
ildar stjómar sjóðsins hefur enn
ekki borist, en greiðsluna átti
að inna af hendi 15. september
síðastliðinn.
Að sögn Guðríðar Þorsteins-
dóttur, núverandi fram-
kvæmdastjóra lífeyrissjóðsins,
nemur fyrsta afborgunin 22,3
milljónum króna, en alls nemur
lánið rúmlega 90 milljónum
króna.
Næsti gjalddagi lánsins er
15. október næstkomandi og
nemur sú greiðsla tæplega 44,9
milljónum króna, og Emerald
Air á svo að inna lokagreiðsluna
af hendi 15. nóvember, en hún
nemur tæplega 27,7 milljónum
króna.
Guðríður sagði að afloknum
fundi stjórnar Lífeyrissjóðs
bænda í gær að ekkert væri í
hendi með hvort greiðslur bær-
ust, en allt sem mögulegt væri
yrði gert til að ná einhveiju til
baka frá Emerald Air.
„Það þarf að fá staðfestingu
á því hvort um einhverjar eign-
ir er að ræða þarna og það er
verið að vinna í því,“ sagði hún.
Júlíus AR enn
í Færeyjum
JÚLÍUS ÁR, sem var í sam-
fioti með Oddbjörgu sem var
yfirgefin úti á rúmsjó suðaust-
ur af íslandi í síðustu viku, er
ennþá í Færeyjum. Lárus Ingi
Lárusson bátasmiður í Noregi,
sem hugðist sigla bátunum til
Noregs, vildi ekki tjá sig um
um framvindu þessa máls í
samtali við Morgunblaðið í gær.
Oddbjörg varð aflvana um
90 sjómílur suðaustur af ís-
landi og fór tveggja' manna
áhöfn bátsins um borð í Júlíus.
Júlíusi var síðan siglt til Fær-
eyja þar sem hann er enn.
Varðskipið Týr tók Oddbjörg-
ina í tog og færði til hafnar á
Fáskrúðsfirði þar sem sjópróf
fara fram.
Hafsteinn Hafsteinsson, for-
stjóri Landhelgisgæslunnar,
segir að viðræður séu í gangi
við eiganda Oddbjargarinnar
um kostnað við björgun báts-
ins, Báturinn var tryggður og
nú sé verið að kanna allar hlið-
ar þessa máls.
Vestfirðir
Tveir dýra-
læknar til
starfa
IsaTirði. Morgunblaðið.
TVEIR dýralæknar, Höskuldur
Jensson og Laufey Haralds-
dóttir, hafa verið ráðnir til
starfa sem dýralæknar á Vest-
fjörðum frá og með næstu ára-
mótum, en eins og kunnugt er
hefur verið dýralæknislaust á
svæðinu frá miðju síðasta ári.
Höskuldur Jensson starfar
nú í Strandasýslu og mun
væntanlega flytjast til ísafjarð-
ar nú í haust, þegar hans starfi
lýkur þar. Laufey Haraldsdóttir
kemur aftur á móti ekki til
starfa fyrr en um áramót.