Morgunblaðið - 05.10.1995, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 5. OKTÓBER 1995 11
FRÉTTIR
Trésmiður á Selfossi vinnur dómsmál
gegn Reykjavíkurborg
Búseta utan
borgar ólögmæt
ástæða uppsagnar
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur hefur dæmt Reykjavíkurborg til að greiða
trésmið, sem starfaði hjá Húsnæðisnefnd borgarinnar en var sagt upp störf-
um vegna búsetu sinnar á Selfossi, um 330 þúsund krónur í skaðabætur,
auk vaxta og 120 þúsund króna í málskostnað.
Framkvæmdastjóri Húsnæðis-
nefndar Reykjavíkur sagði fjórum
trésmiðum upp störfum í febrúar
1993, en allir voru þeir búsettir á
Selfossi. Einn fjórmenninganna mót-
mælti uppsögninni með bréfi til
Markúsar Amar Antonssonar, þá-
verandi borgarstjóra, einkum þar
sem hann taldi búsetu sína hafa
ráðið úrslitum um að til uppsagnar
var gripið gegn honum.
Borgarstjóri svaraði manninum
með bréfi þar sem sagði að þyngst
hefði vegið hvar viðkomandi yrðu
skráðir atvinnulausir ef þeir hefðu
ekki önnur störf að ganga að og
hveijar félagslegar skyldur sveitar-
félög hefðu við íbúa sína þegar á
reyni.
Stéttarfélög iðnaðarmanna hefðu
ítrekað skorað á borgaryfirvöld um
aðgerðir í atvinnumálum til að skapa
félagsmönnum á atvinnuleysisskrá
ný atvinnutækifæri.
„Reykjavíkurborg ver miklum
fjármunum til atvinnuskapandi að-
gerða með sérstöku tilliti til ríkjandi
aðstæðna. Engu að síður eru rúm-
lega 2.600 Reykvíkingar skráðir at-
vinnulausir hjá Ráðningarstofu
Reykjavíkurborgar. Með hliðsjón af
þessu skyti skökku við ef Reykjavík-
urborg léti iðnaðarmenn af Selfossi
hafa forgang að vinnu hjá húsnæðis-
nefnd borgarinnar en segði reykvísk-
um iðnaðarmönnum, sem yrðu
skráðir atvinnulausir hér og bættust
á þann langa lista sem viðkomandi
stéttarélög gera síðan kröfur um að
borgaryfirvöld vinni bug á beint eða
óbeint," segir í bréfi borgarstjóra.
Endurskoðun hafnað
Trésmiðurinn óskaði síðan eftir
því að húsnæðisnefnd endurskoðaði
uppsögnina þar sem forsendur henn-
ar hefðu verið ólögmætar en þeirri
málaleitan var hafnað. Þá höfðaði
maðurinn dómsmál.
í niðurstöðum héraðsdóms segir
að er Húsnæðisnefnd Reykjavíkur
tók ákvörðun um uppsögn trésmiðs-
ins hafi hún farið með hluta fram-
kvæmdavalds sem fjölskipað stjórn-
vald. Enda þótt nefndin kæmi þá
fram sem vinnuveitandi mannsins
verði að líta til þess að stjórnvöld
þurfi ætíð að gæta efnisreglna í
hveiju sem ákvarðanir þeirra lúti að
og þau séu ávallt bundin af málefna-
legum sjónarmiðum, jafnt um stjórn-
valdsathafnir og aðrar ákvarðanir.
Engin lagafyrirmæli hafi kveðið á
um rétt Reykvíkinga umfram aðra
landsmenn til vinnu í þágu borgaryf-
irvalda. Við ákvörðun um uppsögn
hafi Húsnæðisnefnd því ekki getað
byggt á því að fyrir hendi væru laga-
fyrirmæli sem kvæði á um þann
rétt heldur hafi hún þurft að meta
það hveija átti að velja úr.
í ljósi þeirrar meginreglu að
stjórnvöld þurfi ætíð að byggja
matskenndar ákvarðanir sínar á
málefnalegum sjónarmiðum hafi
mat Húsnæðisnefndar ekki verið
frjálst þegar ákvörðun var tekin um
uppsögnina heldur bundið af grund-
vallarreglum stjórnsýslunnar.
Rökstuðningur borgarstjóra gefi
til kynna að úrslitum hafi ráðið að
trésmiðurinn var búsettur á Selfossi
en ekki í Reykjavík og yrði skráður
atvinnulaus á Selfossi án þess að
Reykavíkurborg hefði sömu skyldur
gagnvart honum og atvinnulausum
Reykvíkingum.
Omálefnaleg sjónarmið
„Þessi sjónarmið, sem lágu til
grundvallar mati Húsnæðisnefndar
Reykjavíkur um uppsögn stefnanda,
verður að telja ómálefnaleg og
ákvörðun byggða á þeim brot á jafn-
ræðisreglu stjórnsýsluréttar. Því
verður að telja ákvörðun Húsnæðis-
nefndar Reykjavíkur um uppsögn
stefnanda ólögmæta og bera honum
bætur af þeim sökum,“ segir í niður-
stöðum Ingveldar Einarsdóttur setts
héraðsdómara.
Maðurinn hafði gert kröfur um
380 þúsund króna bætur auk 300
þúsund króna miskabóta og máls-
kostnaðar. Með dóminum"voru hon-
um dæmdar um 330 þúsund krónur
auk vaxta og málskostnaðar en
kröfu um miskabætur var hafnað.
Fyrsti flugöryggisfundur vetrarins
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
FJÖLMENNI mætti til fundarins.
Hættur samfara veðra-
brigðum vetrarins
FYRSTI flugöryggisfundur vetr-
arins var haldinn fimmtudaginn
28. september. Loftferðaeftirlit-
ið, Flugmálafélag íslands, Flug-
björgunarsveitin og fleiri aðilar
standa fyrir flugöryggisfundun-
um sem haldnir eru annan hvern
mánuð að vetri til.
Á fundinum var farið yfir at-
burði sumarsins og minnt á hætt-
ur þær sem felast í veðrabrigðum
vetrarins.
Gestir kvöldsins voru Unnur
Ólafsdóttir og Hörður Þórðarson
veðurfræðingar. Þau greindu frá
nýjungum í upplýsingamiðlun
Veðurstofunnar og framtíðarsýn
í þeim málum. Unnur minnti á
mikilvægi þess að leita eftir veð-
urupplýsingum áður en haldið
væri af stað í flugferðir og nauð-
syn þess að flugmenn kæmu boð-
um til Veðurstofunnar um frávik
í veðurbrigðum. Slík boð gætu
komið að gagni við veðurlýsing-
ar.
Amerískir
-dagar
3.-15. október
Yooh!!
steikarhlaðborðiö
er hlaðið
stórsteikum á
ameríska vísu
GlæWíTegt steíkarhlaöJborð í Lóní
Verö kr 1.950.- á fullorðinn og kr. 700,-
fyrir barn 11 ára og yngra. l 'W' a
* ★ ^ ★ ■
A Ja carte í Lóni og Blómásat★ jr
Amerísk súpa dagsins
Californíu sjávarréttir í tómathumarsoði
Maryland krabbakaka á salati
með tartarsósu
Salatbar
T- Bone steik 300 gr.
Entrecote steik 250 gr.
Amerískur hamborgari 150 gr.
Grillaður lax
Eplapie með vanilluís og rjóma
Pecanpie með rjóma
Vanilluís með heitri súkkulaðisósu
Ekta Amerísk súkkulaðikaka með rjóma
350,-
600,-
390,-
390,-
1.990,-
1.990,-
990,-
1.250,-
250,-
250,-
250,-
350,-
Krabbaveisla ++■
S. -6.-7. októáer
Á matseðlinum bjóðum við ....
Rjómalagaða krabbasúpu
Maryland krabbaköku með tartarsósu
Coleslaw salat
Corn on the cob
Maryland krabba
Eplapie með vanilluís og rjóma
Pecanpie með rjóma
Vanilluís með heitri súkkulaðisósu
Browny's með rjóma
Verö kr. 2.800,-
Matargestir verða sjálfkrafa
þátttakendur í ferðaleik/
Verðlaun: ferð fyrir tvo til Baítimore
Dixelandhljómsveitin The Gang Piank Band frá Maryland
spilar og skemmtir fólki.
SCANDIC
LOFTLEIDIR
Borðapantanir í símum
5050 925 og 562 7575