Morgunblaðið - 05.10.1995, Blaðsíða 20
20 FIMMTUDAGUR 5. OKTÓBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
ÚR VERINU
*
Svavar Armannsson aðstoðarf orsij óri Fiskveiðasjóðs
Ekki verri vaxtakjör en
í öðrum lánastofnunum
Ekki er líklegt að brugðist verði
sérstaklega við áskorun á Fisk-
veiðasjóð Íslands, sem var sam-
þykkt á aðalfundi Samtaka fisk-
vinnslustöðva, um að lækka vexti.
Það kemur fram hjá Svavari Ár-
mannssyni, aðstoðarforstjóra Fisk-
veiðasjóðs: „Það hefur ekki verið
þingað um þetta á stjórnarfundi,
en ég tel að sjóðurinn hafi þegar
gert það sem verið er að biðja um,
með vaxtalækkun 1. september sl.“
Svavar segist afskaplega undrandi
á þessari áskorun. „í fyrsta lagi
lækkuðum við vexti 1. september
úr 7,5 prósentum niður í 6,5 pró-
sent. Ég varð ekki var við annað
en að Arnar Sigurmundsson, for-
maður SF, fagnaði því mjög. Það
næsta sem gerist er að áskorun
kemur frá SF um að við lækkum
vexti. Það er eins og við höfum
ekkert gert. Vaxtalækkunin hafi
hreinlega farið framhjá mönnum
og formaðurinn muni ekki það sem
hann sagði.
í öðru lagi finnst mér skrýtið að
áskorunin er öll í fullyrðingastíl.
Opið hús hjá Hampiðjunni
OPIÐ hús verður hjá Hampiðjunni
í tilefni af degi iðnaðarins næstkom-
andi sunnudag. Verksmiðja fyrir-
tækisins í Bíldshöfða 9 verður opin
almenningi frá 13-17 og þar gefst
ágætis tækifæri til að sjá hvernig
veiðarfæri verða tii.
Þá mun Hampiðjan kynna nýtt
tóg sem nefnist Dynex, sýndar
verða myndir frá neðansjávarat-
hugunum, hönnun trolla í tölvu og
loks verður rannsóknarstofa fyrir-
tækisins opin. Auk þess munu börn
fá eitthvað til að dunda sér við.
Ég sé ekki nein dæmi um eða rök
fyrir því sem þar segir. Það er helst
að sjá af þessum fullyrðingum að
lánskjör séu mun betri hjá flestum
öðrum lánastofnunum en Fiskveiða-
sjóði, en þó er það ekki rakið eða
rökstutt sérstaklega."
Svavar segir að ef litið sé á heild-
ina haldi hann varla að sjávarút-
vegur njóti betri kjara í bönkum:
„Það er rétt að við höfum ekki
tekið upp svokallaða kjörflokkun
útlána, en við höfum ákveðið að
gera það frá næstu áramótum. Af
því getur hafa leitt að einstaka
fyrirtæki hafi fengið betri kjör
annarsstaðar én hjá okkur, en ég
tel líklegt að það breytist þegar
við tökum upp þessa kjörflokkun
um næstu áramót."
Hann segist vilja ítreka það að
sér finnist ályktunin illa rökstudd
og að hann sé sannfærður um, þeg-
ar á heildina sé litið, að menn hafi
ekki notið verri kjara hjá Fiskveiða-
sjóði en öðrum lánastofnunum.
SIEMENS
fSKAUTæSjjs
FRYSTIKISTUTILBOp.
Fjárfestu í öryggi og sofðu áhyggjulaus með
matarforðann í Siemens frystikistu.
GT 27B03 / 250 1 nettó... 47.400,- kr. stgr.
GT 34B03 / 318 1 nettó... 53-900,- kr. stgr.
GT 41B03 / 4001 nettó... 58.500,- kr. stgr.
Takmarkaö rnagn!
SMITH & NORLAND
NÓATÚNI 4 • SÍMI 511 3000
Viljiröu endingu og geeöi
., Akranes:
Rafþjónusta
CC Sigurdórs
Borgarnes:
Glitnir
<t Borgarfjörður:
Rafstofan Hvítárskála
Hellissandur:
X Blómsturvellir
Grundarfjörður:
Guðni Hallgrímsson
Stykkishólmur:
Búðardalur:
Ásubúð
O ísafjörður:
Póllinn
Hvammstangi:
Skjanni
Sauðárkrókur:
Z Ra^sJ3
Siglufjörður:
Torgið
2 Akureyri:
Ljósgjafinn
Húsavík:
LU Öryggi
Þórshöfn:
Norðurraf
§ Neskaupstaður:
Rafalda
Revðarfjöröur:
Rafvélaverkst. Árna E.
Egilsstaðir:
Sveinn
Ql Guðmundsson
Breiðdalsvík:
Höfn í Hornafirði:
Q Kristall
Vestmannaeyjar
Tréverk
CÚ Hvolsvöllur:
Kaupfélag Rangæinga
Selfoss:
J> Árvirkinn
Grindavík:
Rafborg
—^ Garðun
"■* Raftækjav. Sig. Ingvarss.
Keflavík:
Ljósboginn
Hafnarfjörður:
Rafbúð Skúla,
Álfaskeiði
\A
Morgunblaðið/Birgir Þórbjarnarson
MAGNÚS Árnason landar afla dagsins.
86 daga sóknarleyfi
hreinn dauðadómur
Smábátaeigendur á Austurlandi
vilja aflahámark fyrir alla báta
FÉLAG smábátaeigenda á Austur-
landi vill að við stjórn veiða smá-
báta verði tekið upp banndagakerfi
með aflahámarki fyrir alla smábáta.
Aflahámarkið miðist við 10 tonn
af slægðum þorski við hvert stærð-
artonn. Aðalfundur félagsins var
haldinn í lok september og voru
samþykktar þar margar ályktanir.
Orðrétt segir svo í greinargerð
með ályktun fundarins um stjórn
fiskveiða, sem fundurinn taldi koma
illa við helstu útgerðarstaði smá-
báta:
„Má öllum ljóst vera að 86 daga
sóknarleyfi, miðað við kvótaárið,
er hreinn dauðadómur þessara
staða. Stjórnmálamenn verða að
huga vel að þessu máli og gera
úrbætur. í því sambandi eru hér
nefnd ummæli hæstvirts forsætis-
ráðherra á fundi á Húsavík sl. vet-
ur, en þar taldi hann óhætt að ætla
til viðbótar úthlutun kvóta í þorski
10 þúsund tonn til trillubáta, enda
verði umrædd 10 þúsund tonn veidd
á handfæri. •
Það er nokkuð ljóst að veiðistofn
þorsks fer stækkandi. Hér verða
ráðamenn að sjá fram úr hvor leið-
in sé betri, aukning á þorskaflahá-
marki til handa smábátum eða enn
frekara atvinnuleysi og byggða-
röskun en nú er í þjóðfélaginu.“
Sóknin takmörkuð með 82
banndögum
Fundarmenn voru sammála um
að rétt væri að taka upp banndaga-
kerfi með aflahámarki á alla króka-
báta. Aflahámark yrði miðað við
stærð báta, þanpig að 10 tonna
þorskveiðiheimild væri á hvert
brúttótonn, sem yrði óframseljan-
legt með öllu. Þannig fengju
stærstu bátarnir 60 tonna þorsk-
veiðiheimild mælt í slægðu. Einnig
yrði sóknin takmörkuð með 82
banndögum. Veiðikerfíð yrði lög-
leitt fyrir alla krókabáta og afla-
marksbáta undir 6 tonnum sem það
kysu, enda væru þeir með óskerta
aflahlutdeild.
Veiðieftirlit
Fundurinn beindi því til Fiski-
stofu að hengdar yrðu upp upplýs-
ingar í öllum hafnarskrifstofum, til
dæmis innan á glugga, þar sem
fram kæmi allur afli sem landað
var daginn á undan. Þannig yrði
komið á óbeinu eftirliti. Þá hvatti
fundurinn alla félagsmenn til að
upplýsa hvers lags kvótasvindl er
þeir kynnu að verða varir við. Til
að ábendingar ættu greiðan aðgang
að Fiskistofu lagði fundurinn til að
þar yrði komið upp símsvara þar
sem koma mætti ábendingum um
kvótasvindl á framfæri. Þá töldu
fundarmenn einsýnt að herða yrði
verulega viðurlög við brotum á lög-
um um stjórn fiskveiða ef þau ættu
að ná tilgangi sínum.
Snurvoðarmál
Fundurinn ítrekaði þar fyrri sam-
þykktir um dragnótaveiðar og lýsir
yfir ánægju með þær jöfnunarað-
gerðir sem lögfestar voru með
breytingum er gerðar voru á lögum
um stjórn fiskveiða.
Nu hringi eg 1 Clinton!
1. október 1995 - þriggja stafa þjónustunúmer Pósts og síma
tekin í notkun til samræmis við önnur lönd Evrópu. 08 breytist í 114.
PÓSTUR OG SÍMI