Morgunblaðið - 05.10.1995, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 5. OKTÓBER 1995 21
FRÉTTIR: EVRÓPA
ERLEIMT
Aðildarríki reyna
að uppfylla
EMU-skilyrði
LAMBERTO Dini, forsætisráðherra
Ítalíu, ítrekaði í gær að hann vildi
sjá líruna í Gengissamstarfi Evrópu
(ERM) á ný. Hann sagði það nauð-
synlega forsendu þátttöku ítala í
sameiginlegum gjaldmiðli síðar á
áratugnum.
Italska líran var tekin úr ERM
árið 1992 eftir mikið írafár á gjald-
eyrismörkuðum. Samkvæmt skilmál-
um Maastricht ætti líran að vera
aðili að ERM í að minnsta kosti tvö
ár áður en Italía gæti orðið aðili að
sameiginlegum gjaldmiðli.
„Ef einhver er þeirrar skoðunar
að ítalir geta ekki komið ríkisfjár-
málum sínum í skikkanlegt horf í
tæka tíð fyrir peningalega samrun-
ann hefur hann á röngu að standa,"
sagði Dini.
Fjárlög í Belgíu
Stjóm Belgíu lagði í gær fram fjár-
lög er hafa það að markmiði að ná
niður fjárlagahallanum í þijú prósent
af vergri landsframleiðslu þannig að
Belgar geti orðið aðilar að peninga-
lega samrunanum.
í frumvarpinu sem Jean-Luc De-
haene forsætisráðherra kynnti í gær
er hallinn minnkaður um 112 millj-
arða franka frá því sem nú er með
nýjum óbeinum sköttum og niður-
skurði á félagslegri þjónustu.
Fjármálaráðherrar Þýskalands og
Bretlands, Theo Waigel og Kenneth
Clarke, létu í síðustu viku í ljós efa-
semdir um hvort Belgum tækist að
uppfýlla skilyrðin fyrir þátttöku í
EMU. Deheane sagði eftir að fjárlög-
in höfðu verið lögð fram að grunnur-
inn fyrir þátttöku Belga hefði verið
lagður.
Forsætisráðherrann sagði að einn-
ig yrði lögð mikil áhersla á að draga
úr skuldum hins opinbera en Belgar
eru skuldsettasta þjóð Evrópu.
Skuldir hins opinbera nema
130-140% af landsframleiðslu en
sama hlutfall er 120% á Ítalíu. Deha-
ene sagðist stefna að því að innan
fimmtán ára yrði þetta hlutfall kom-
ið niður í 60%.
Áform Finna
Yves-Thibault de Silguy, sem fer
með efnahagsmál í framkvæmda-
stjórninni, lýsti í gær yfír ánægju
sinni með áform Finna um að upp-
fylla skilyrði Maastricht.
Finnska stjórnin kynnti stefnu
sína í þessum efnum í síðasta mán-
uði og verður hún rædd á fundi fjár-
málaráðherra Evrópu þann 23. októ-
þer. De Silguy sagði framkvæmda-
stjórnina fagna því að Finnar stefndu
að því að fjárlagahalli yrði 3% að
landsframleiðslu á næsta ári og að
búist væri við að skuidir hins opin-
bera færu minnkandi úr þessu.
Skuldir hins opinbera (sem voru
einungis 10% af landsframleiðslu í
byijun þessa áratugar) eru nú um
64,9% af landsframleiðslu.
Reuter
Grænfriðungar vilja dómsmál
GRÆNFRIÐUN GAR hafa stað-
ið í meira en sólarhring fyrir
utan byggingu framkvæmda-
stjórnar Evrópusambandsins í
Brussel og dreift áróðri gegn
kjarnorkutilraunum Frakka í
Suður-Kyrrahafi til starfs-
manna. Markmið samtaka
þeirra, Greenpeace, er að fá
framkvæmdastjórnina til að
draga Frakkland fyrir Evrópu-
dómstólinn fyrir brot á sáttmá-
lanum um Euratom, kjarnorku-
samvinnustofnun Evrópu.
Bandaríkin vara ESB
við að semja við Kúbu
Washington. Reuter.
STJÓRNVÖLD í Bandaríkjunum
vara Evrópusambandið við því að
taka upp eðlileg samskipti við Kúbu
og gera viðskiptasamning við ein-
ræðisstjóm Fídels Kastró.
Utanríkisráðherrar ESB ákváðu í
Brussel á mánudag að „þríeykið"
svokallaða, þ.e. núverandi, fyrrver-
andi og næstkomandi formennsku-
ríki ráðherraráðsins, Spánn, Frakk-
land og Ítalía, ættu að hefja viðræð-
ur við stjórnina í Havana um framtíð-
artengsl. Ráðherraráðið hyggst að
þeim viðræðum loknum meta hvort
ástæða sé til að taka upp viðræður
um viðskiptasamning.
ESB hugsi sig
tvisvar um
Talsmaður bandaríska utanríkis-
ráðuneytisins, Nicholas Bums, sagði
í gær, aðspurður hvernig Bandaríkja-
,menn brygðust við frumkvæði ESB:
„Það leggst ekki mjög vel í okkur.
Við hvetjum bandamenn okkar í
Evrópu til að hugsa sig tvisvar um
áður en þeir taka upp eðlileg tengsl
við eitt síðasta einræðisveldi heims,
risaeðlu frá tíma kommúnismans og
valdaklíkui sem hefur farið hrotta-
lega með eigin þjóð.“
Bandaríkin hafa haft Kúbu í við-
skiptabanni siðastliðin 33 ár og eru
á móti því að vestræn ríki taki upp
eðlileg tengsl við Kúbu nema Fídel
Kastró forseti slaki á móti á klónni
og leyfí aukið fijálsræði heima fyrir.
Flækir framkvæmd
viðskiptabanns
„Skoðanir okkar á stjórn Kastrós
og eðli þeirrar stjórnar eru vel rök-
studdar og vel þekktar og þær hafa
ekkert breytzt," sagði Burns. Hann
sagði að færi svo að ESB gerði við-
skiptasamning við Kúbu, myndi það
augljóslega flækja framkvæmd við-
skiptabannsins, og því yrðu banda-
rísk stjórnvöld að eiga viðræður við
bandamenn sína í Evrópu um málið.
Nóbels-
verðlaun
í dag
KÍNVERSKT skáld í útlegð
og portúgalskur rithöfundur
eru meðal þeirra, sem taldir
eru líklegir til að fá Nóbels-
verðlaunin í bókmenntum en
úr því verður skorið í dag. Er
annars vegar um að ræða Bei
Dao, sem býr í París, og An-
tonio Lobo Antunes en á það
er bent, að Asíumaður, Japan-
inn Kenzaburo Oe, hafi fengið
verðiaqpin í fyrra og því sé
ekki líklegt, að Asíumaður fái
þau nú. Tilkynnt verður um
verðlaunin í læknisfræði, eðlis-
fræði, efnafræði og hagfræði
í næstu viku og norska nóbel-
nefndin mun skýra frá því
hver hlýtur friðarverðlaunin.
150.000 eld-
isminkar
drepast
MEIRA en 150.000 eldismink-
ar hafa drepist af völdum al-
varlegrar fóðureitrunar í
Rogalandi og Ögðum í Nor-
egi. Talið er að 200.000 mink-
ar drepist áður en yfir lýkur
og tjónið er metið á 300 millj-
ónir íslenskra króna. Eitrunin
hefur eyðilagt margra ára
vinnu í minkabúunum. Talning
leiddi í ljós að 95% allra mink-
anna á svæðinu hafa drepist
af völdum bótúlíneitrunar af
C-gerð.
Stjórn Dinis
heldur velli
UMRÆÐUR hófust á Ítalíu-
þingi á þriðjudag um framtíð
starfsstjórnar Lambertos Din-
is og efri deild þingsins sam-
þykkti í gær yfirlýsingu uni
stuðning við stjórnina. Tillaga
hægrimanna undir forystu
Silvios Berlusconis um að efnt
verði til kosninga sem fyrst
var hins vegar felld. Búist er
við að forsætisráðherrann
kynni brátt fjárlagafrumvarp
næsta árs þar sem gert er ráð
fyrir að dregið verði mjög úr
hallanum.
Gonzales
neitar frétt
um fjárkúgun
FELIPE Gonzales, forsætis-
ráðherra Spánar, sagðist í gær
hafa reynt að koma höndum
yfir skjöl leyniþjónustu lands-
ins en neitaði þvi að reynt
hefði verið að kúga út úr hon-
um fé vegna upplýsinga sem
var að finna í skjölunum. Þær
vörðuðu aðgerðir spænskra
dauðasveita gegn Böskum á
níunda áratugnum.
Georgadze
segist saklaus
FYRRUM yfirmaður öryggis-
lögreglunnar í Georgíu, Igor
Georgadze, neitar í blaðavið-
tali sem birtist í dag, að hafa
staðið að morðtilræði við Edú-
ard Shevardnadze forseta.
Georgadze er sakaður um að
standa á bak við tilræðið og
flýði því til Rússlands, þar sem
hann hefur verið í felum í rúm-
an mánuð.
Reuter
JOHNNIE Cochran, helsti veijandi Simpsons, veifar til fólks, sem
safnast hafði saman fyrir utan heimili Simpsons.
Viðbrögð við úrskurði kviðdómsins
Margir lýsa
hneykslun
Hon? Kong. Reuter.
MJOG skiptir í tvö hom í Bandaríkj-
unum með viðbrögð við þeim úr-
skurði kviðdóms í Los Angeles að
sýkna leikarann og íþróttamanninn
O.J. Simpson af ákæru um tvöfalt
morð. Blökkumenn fagna niðurstöð-
unni en flestir hvítir menn eru fullir
hneykslunar. Viðbrögðin annars stað-
ar um heim eru iíka yfírleitt hneyksl-
un, fýrst og fremst á bandarísku rétt-
arfari og á því, sem mörgum fínnst,
að réttlætið sé þar falt fyrir fé.
Víða um heim var úrskurðar kvið-
dómsins beðið með mikilli eftirvænt-
ingu og í Bretlandi datt rafmagns-
notkun niður í öllu landinu meðan
allra augu voru á sjónvarpsskjánum.
Það var aðeins í Frakklandi, sem
þessum atburði var lítið sinnt, ekkert
sjónvarpað eða útvarpað frá honum
og fréttin sjálf ekki sögð fyrr en
seint í fréttatímum.
Kom flestum á óvart
Sýknudómurinn kom flestum á
óvart, líka þeim, sem trúðu á sak-
leysi Simpsons. „Hvílíkur farsi —
Sirkusinn sleppti O.J. til að græða
milljónir" var fyrirsögnin í Today og
í Daily Mail sagði: „Þvílíkur brand-
ari. Peningarnir tryggðu O.J. frelsi.“
Die Presse í Austurríki skýrði frá
niðurstöðunni án athugasemda og
David Lange, fyrrverandi forsætis-
ráðherra Nýja Sjálands og lögfræð-
ingur, sagði, að vissulega væri betra
að láta sekan mann sleppa en dæma
saklausan.
í Ástralíu voru viðbrögðin flest á
þann veg, að sýknudómurinn væri
hneyksli en í Hong Kong og Kína
var hæðst að málinu öllu og sagt,
að um hefði verið að ræða lang-
dregna, ameríska sápuóperu, sem
hefði þó látið mörgum spumingum
ósvarað.
í öðrum Asíuríkjum, til dæmis
Japan, Suður-Kóreu og Tævan, voru
viðbrögðin minni og þar hefur yfir-
leitt verið lítið fylgst með málinu.
„Nú, var hann sýknaður?“ sagði
skrifstofumaður í Seoul. „Þetta mál
hefur vakið lítinn áhuga nema í
fyrstu þegar fram kom, að hann
væri kvæntur hvitri konu. Það þótti
hneykslanlegt hér.“
Frelsmu fagnað í
kampavínsveislu
Einn lögfræðinga Simpsons segir, að
vörnin hafi alið á kynþáttadeilum
Los Angeles. Reuter.
O.J. Simpson, fjölskylda hans og lög-
fræðingar, héldu upp á sigurinn og
sýknudóminn með kampavínsveislu í
fyrrinótt og fram undir morgun. Fjöl-
skyldur Nicole Brown, fyrrverandi
eiginkonu Simpsons, og Ronalds
Goldmans og stuðningsmenn kveiktu
hins vegar á kertum í minningu
þeirra og hrópuðu: „Sekur, sekur.“
Mikið var um dýrðir á heimili
Simpsons, sem var fagurlega skreytt
með blöðrum og borðum í tilefni af
heimkomu hans eftir meira en ár.
Móðir hans og börn hans af fyrra
hjónabandi föðmuðu hann að sér og
fólk, sem safnast hafði saman fyrir
utan húsið, fagnaði mjög þegar lög-
fræðingurinn Johnnie Cochran, veij-
andi Simpsons, kom til veislunnar.
Höfða einkamál
Ekki eru þó allir erfíðleikar að
baki hjá Simpson því búist er við, að
fjölskyldur Brown og Goldmans höfði
einkamál á hendur honum fyrir mann-
dráp. í slíkum málum má yfírheyra
Simpson sjálfan en hjá því komst
hann í málinu, sem ákæruvaldið höfð-
aði. Hann á hins vegar ekki yfír höfði
sér fangelsisdóm þótt hann verði
fundinn sekur, aðeins fjársektir.
Úrskurður kviðdómsins, sem var
skipaður níu blökkumönnum, tveim-
ur hvitum og einum manni af suður-
amerískum ættum, hefur mælst mis-
jafnlega fyrir í Bandaríkjunum.
Blökkumenn fagna honum en mikill
meirihluti hvítra manna er hneyksl-
aður.
Kynþáttatrompinu spilað út
Lögfræðingar Simpsons eru held-
ur ekki á einu máli um hvort vörnin
hafi haldið eðlilega á kynþáttamálun-
um. Robert Shapiro segir, að hans
afstaða hafi verið, að kynþáttamálin
ættu engu að skipta í málsvöminni
en reyndin hafí orðið önnur.
„Það var ekki aðeins að kynþátta-
trompinu væri spilað út, heldur var
spilið sótt undan stokknum," sagði
hann.
Johnnie Cochran, sem sjálfur er
blökkumaður, neitar því hins vegar,
að hann hafí gengið of langt þegar
hann skoraði á kviðdóminn að
„greiða kynþáttahatrinu þungt
högg“ með úrskurði sínum.
Dóttir Anise Aschenback, annars
hvítu kviðdómendanna, sagði í við-
tali við ABC-sjónvarpsstöðina í gær,
að móðir sín hefði talið Simpson sek-
an en ekki fundist sannanirnar vera
nægar.