Morgunblaðið - 05.10.1995, Blaðsíða 34
34 FIMMTUDAGUR 5. OKTÓBER 1995
AÐSENDAR GREINAR
MORGUNBLAÐIÐ
Aukin nýsköpun nauðsyn-
v leg í íslensku atvinnulífi
í DAG vinna flestar þjóðir
markvisst að því að styrkja stoðir
atvinnulífsins. Mikilvægast er að
sjálfsögðu að skapa rétt umhverfi
þannig að fyrirtæki og einstakling-
ar hafi möguleika á að hrinda
hugmyndum sínum í framkvæmd.
En að auki nota flestir alla mögu-
leika til að styrkja stöðu sína í
vaxandi alþjóðlegri samkeppni.
^tuðningur við rannsóknir og
vöruþróun gegnir þar lykilhlut-
verki, því nýjar vörur, vörur sem
margar eru ekki til í dag, munu
ráða miklu um markaðsstöðufyrir-
tækjanna í framtíðinni. Ýmsar
leiðir eru notaðar til þess: Beinar
niðurgreiðslur, styrkir til vöruþró-
unar, kaup opinberra aðila á vör-
um sem ekki er búið að þróa, og
mjög athyglisverðar aðferðir sem
ýmis iönd hafa beitt með því að
veita þeim fyrirtækjum sem
stunda rannsóknir og vöruþróun
skattalega hvatningu. Sá árangur
sem náðst hefur með skattalegri
hvatningu er það góður, að íslend-
ingar ættu tvímælalaust að skoða
Jiþessa leið gaumgæfilega.
íslenskar aðstæður
Islendingar hafa um árabil reynt
að styðja við íslenskt atvinnulíf
með mjög mismunandi árangri. A
66*N MM
Mikiðúrval
af úlpum, göllum,
stungnum vestum,
flíspeysum og jökkum.
Einnig kuldafatnaðurinn
frááffN.
Opið á laugardag frá kl. 10-17.
BARNASTIGUR
Skólavörðustíg 8, sími 552 1461.
\
T
Iskaldur,
vandaðuro? sparneytinn
Þýskur hágæða kæli- og
frystiskápur frá LIEBHERR.
II f'v\ \T jf 1 I
mmms beimílistæki bí
Suöurlandsbraut 22 • 108 Reykjavík
Sími 588 0200 I
sama tíma er íslenska þjóðin í gegn-
um menntakerfið og Lánasjóð ís-
lenskra námsmanna búin að kosta
miklu til menntunar á ungu fólki,
sem margt hefur getið sér gott orð
við erlendar menntastofnanir. Ljóst
er að skapa þarf mun fleiri störf í
einkageiranum til þess að hægt
verði að bjóða þessu fólki störf við
þess hæfi, og nýta þannig þá miklu
fjárfestingu sem liggur í þekkingu
þess.
Rannsóknir á íslandi hafa stöð-
ugt verið að aukast undanfarin ár.
Við leggjum þó enn hlutfallslega
mun minna en nágrannaþjóðirnar
í rannsóknir og mikið vantar upp
á að rannsóknir í einkageiranum
hér séu sambærilegar við rann-
sóknir í þeim löndum sem við viljum
bera okkur saman við. Þegar þátt-
töku fyrirtækja skortir í hagnýtum
rannsóknum er erfitt að tryggja
nauðsynlega markaðstengingu og
líkur á hagnýtingu minnka.
Styrkir til rannsókna
í dag eiga íslensk fyrirtæki ýmsa
möguleika á að fá styrki til rann-
sókna og þróunar. Má þar helst
nefna sjóði Rannsóknarráðs Islands
sem hafa stutt ágætlega við hin
ýmsu vöruþróunarverkefni. Nú
hafa einnig opnast nýir möguleikar
í gegnum rannsóknasjóði Evrópu-
sambandsins. Eins og dæmin sýna
eiga styrkir sem þessir tvímæla-
laust rétt á sér, en þeim fylgja
ýmsir annmarkar fyrir þau fyrir-
tæki sem eru í harðri alþjóðlegri
samkeppni. Umsóknarferlið fyrir
þessa styrki er of langt til þess að
fylgja hraðri þróun og oft er ein-
göngu hægt að sækja um einu sinni
Skattaleg hvatning til
rannsókna er, að mati
Harðar Arasonar,
mikilvægur undanfari
nýsköpunar í atvinnu-
lífinu.
á ári. Erfitt er að breyta áherslum
í verkefnum eftir að þau hafa verið
samþykkt jafnvel þó svo að mark-
aðsforsendur breytist. Styrkirnir
nýtast því ekki sem skyldi í hraðri
þróun, sem er þjóðhagslega slæmt
því það verður að teljast mun auð-
veldara að bæta við vörum og störf-
um hjá starfandi fyrirtæki en að
stofna nýtt. Starfandi fyrirtæki
hefur yfir að ráða þekktu vöru-
merki og sölu-, þjónustu- og mark-
aðskerfi sem nauðsynlegt er til að
koma nýrri vöru á markað. Það er
því mjög æskilegt að finna leiðir
til þess að stuðla að aukinni ný-
sköpun innan fyrirtækjanna.
Skattaleg hvatning til
rannsókna
í vor heimsótti ísland dr. John
Bell, ráðgjafi áströlsku ríkisstjórn-
arinnar og skýrði hann frá því
hvaða aðgerðum hefði verið beitt
þar í landi til að auka þátttöku
einkaaðjla í rannsóknum og vöru-
þróun. Ástralir hafa glímt við sama
vanda og íslendingar, þ.e. einhæft
atvinnulíf sem byggir á nýtingu
náttúruauðlinda, of litla þátttöku
einkaaðila í rannsóknum og skort
á nýsköpun í atvinnulífinu. Þær
Kanebo
Art through Technology
Snyrtivörur frá Japan
sem njóta virðingar um víða veröld
KYNNING
Föstud. 6. oglaugard. 7. októberkl. 13-18
verður kynnig á Kanebo snyrtivörum í
Snyrti- og tískuhúsi Heiðars að Laugavegi 66.
lleiðar Jónsson snyrtir mun farða og
aðstoða við val á Kanebo snyrtivörum.
Sérfræðingur frá Kanebo verður til viðtals.
m, ■. mtrj’, ■
aðgerðir sem hann
lýsti fólu í sér að fyrir-
tæki, sem fjárfestu í
rannsóknum og þróun
máttu gjaldfæra 150%
af þeim kostnaði sem
þau báru, samanborið
við 100% á íslandi í
dag. Þetta þýddi að
framsækið fyrirtæki
sem skilaði hagnaði og
legði 50 milljónir í
vöruþróun á árinu,
fengi 8.25 milljónir af
því sem stuðning í
gegnum skattkerfið
(miðað við 33% tekju-
skatt fyrirtækja).
Þetta hefur skilað
mjög góðum árangri í Ástralíu, því
á þeim tíu árum frá því að kerfið
var tekið upp þá hafa rannsóknar
og þróunarstörf í einkageiranum
rúmlega tvöfaldast. Fram kom að
ýmis önnur lönd hafa sambærilegar
reglur og leyfa jafnvel að gjaldfæra
allt að 200% kostnað. En hveijir
eru helstu kostir svona kerfis?
1. Ákvörðun um hvaða rann-
sóknir ráðist er í er tekin í fyrirtæk-
inu sem hefur sterk markaðstengsl
og er jafnframt að ráðstafa eigin
fjármunum.
2. Viðbragðstími við að setja
verkefni í gang er mjög stuttur.
3. Auðvelt er að taka tillit til
breyttra forsendna á verkefnistím-
anum.
4. Fyrirtæki þurfa ekki að senda
inn umsóknir með trúnaðarupplýs-
ingum.
5. Þau fyrirtæki sem standa sig
vel í þróun og markaðsetningu fá
mesta ívilnun í þessu kerfi.
Fram kom hjá dr. Bell að þetta
þýddi vissulega minnkaðar skatt-
tekjur í Ástralíu til skamms tíma
séð, en reynslan hefði sýnt að á
næstu 2-3 árum fengi ríkið ríflega
þá upphæð til baka frá fyrirtækjum
sem hafa hagnast og fært út
kvíarnar. Dr Bell sagði jafnfamt
að þverpólitísk samstaða-væri um
þetta kerfi í Ástralíu, bæði stjórn
og stjórnarandstaða styddu þessar
aðgerðir og hann kvaðst hlakka til
þeirrar stundar er
rannsóknir einkageir-
ans í Ástralíu yrðu það
umfangsmiklar að
kerfið yrði svo dýrt að
það þyrfti að endur-
skoða það.
Aðgerðir
nauðsynlegar
Það er þörf á að-
gerðum til þess að
auka nýsköpun í ís-
iensku atvinnulífi.
Búið er að leggja
grunninn með miklum
ijárfestingum í þekk-
ingu ungs fólks. Áðrar
þjóðir nota hvert tæki-
færi til þess að styrkja samkeppnis-
stöðu atvinnulífsins með stuðningi
við rannsóknir og vöruþróun.
Það kerfi sem Ástralir og fleiri
þjóðir nota þar sem byggt er á
skattalegri hvatningu, hefur skilað
mjög jákvæðum niðurstöðum, svo
góðum að þverpólítísk samstaða
hefur náðst um það. Það verður
því að hvetja íslensk stjórnvöld að
skoða mjög alvarlega kosti þessa
kerfis og stuðla þannig að sam-
bærilegri aðstöðu til rannsókna í
fyrirtækjum á íslandi við það sem
tíðkast í öðrum löndum. Ef skatta-
leg hvatning til rannsókna yrði
tekin upp á Islandi má leiða sterk-
ar líkur að því að rannsóknir og
þróun í einkageiranum myndu
aukast með tilheyrandi aukningu
á störfum, nýjar vörur myndu
koma á markað og einnig þannig
verða til ný störf. Þau störf sem
til yrðu með þessum aðgerðum
yrðu eftirsóknarverð fyrir það
unga fólk sem hefur verið og er
að mennta sig. Aðgerðir á borð
við þessa gera einnig fjárfestingu
í fyrirtækjum sem stunda rann-
sóknir og vöruþróun áhugaverðari
og myndu þannig stuðla að lausn
eins stærsta vanda íslenskra ný-
sköpunarfyrirtækja, sem er áhug-
askortur fjárfesta.
Höfundur er deildarstjóri Vöru-
þróunardeildar hjá Marel hf.
Hörður
Arnarson
SPARAÐU
kr. 35.
á ári!
lenshrleiAh . 7
MEÐ EL-GENNEL
BRAUÐVÉLINNI
Ótrúlegt en satt: Ef þú bakar eitt brauð á dag, spárar þú
35.000 krónur á ári í heimilisrekstrinum og getur að auki
ávallt boðið fólkinu þínu upp á nýbakað, ilmandi og hollt
brauð án aukaefna!
Verð aðeins kr. 24.605 stgr.
Hefur þú efni á að sleppa 35.000 kr. sparnaði?
REYKJAVÍKURSVÆÐI: Byggt og búið, H.G. Guðjónsson, Suðurveri, Húsasmiðjan, Skútuvogi, Glóey, Ármúla 19,
Rafbúðin. Álfaskeiði 31. Hsfnarf., Mlðvangur. Hafnarfirðl. SUÐURNES: Staðafell hf„ Kcllavlk, Samkaup. Keflavlk,
Rafborg, Grlndavík. VESTURLAND: Rafþjónusta Sigurdórs, Akranesi, Trósmiðjan Akur, Akranesi, Kf. Ðorgfirðinga,
Borgamesi, Blómsturvellir, Hellissandi, Versl. Hamar, Grundarfirði, Versl. E. Stefánssonar, Búðardal. VESTFIRÐIR:
Kf. Króksfjarðar, Króksfjarðamesi, Skandi hf., Tálknafirði, Kf. Dýrfirðinga, Þingeyri, Laufið, Bolungarvík,
W Húsgangaloftið ísafiröi, Straumur hf., ísafirði, Kf. Stoingrimsfjaröar, Hólmavik. NORÐURLAND: Kf. Hrútfirðlnga,
Boröeyri, Kf. V-Húnvetinga, Hvammstanga, Kf. Húnvetninga, Blönduósi, Kf. Skagfirðinga, Sauðárkróki, KEA,
Akureyri, og útibú ó Noröurtandi, Kf. Þingeyinga, Húsavlk, Kf. Langnesinga, Þórshöfn, Versl. Sel, Skútustööum.
AUSTURLAND: Kf. Vopnfiröinga, Vopnafirði, Kf. Héraðsbúa, Seyöisfirði, Kf. Héraðsbúa, Egilsstöðum, Rafalda,
Neskaupstað, Kf. Héraðsbúa, Reyðarfirði, Kf. Fáskrúðsfjarðar, Kf. A-Skaftfellinga, Djúpavogi, Kf. A-Skaftfelinga,
Höfn. SUÐURLAND: Kf. Árnesinga, Vfk, Kf. Rangæinga, Hvolsvelli, Kf. Rangæinga, Ruðalæk, Versl. Mosfell, Hellu,
Reynistaður, Vestmannaeyjum, Kf. Árnesinga, Selfossi.
Einar
Farestveit&Co.lif.
Borgartúni 28, símar 562-2901 og 562-2900.