Morgunblaðið - 05.10.1995, Side 35

Morgunblaðið - 05.10.1995, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. OKTÓBER 1995 35 - AÐSENDAR GREINAR í; i1 > > : t > i i : ii i * i Skipulag og rannsóknir í í slenskri fer ðaþj ónustu Reiði FERÐAÞJÓNUSTA er geysilega flókin og margþætt atvinnugrein sem erfitt er að skilgreina þar sem hún skarast við nær allar hefðbundnar at- vinnugreinar, mismikið þó. Á sama tíma er hún heillandi vegna þess að hún snýst fyrst og fremst um fólk og mannleg samskipti. Maður _er jú manns gaman. íslenskri ferða- þjónustu vex stöðugt fiskur um hrygg eins og um heim allan og mun líklega skila Frið- rik og okkur hinum um 18 milljörðum. kr. í gjaldeyristekjur á yfir- standandi ári. Gisti- stöðum fjöigar og fjöl- breyttir afþreyingar- möguleikar spretta upp. Fag- mennska hefur aukist, s.s. á sviði markaðssetningar og sölu. Ferðamálaráð íslensk ferðaþjónusta er þó frum- stæð á margan hátt. Má þar nefna að enn hefur ekki tekist að mynda öflug hagsmunasamtök í greininni og að í yfír 20 ár hefur skipan Ferðamálaráðs verið nær óbreytt þrátt fyrir gjörbreyttar ytri aðstæð- ur. Brýnt er að löggjafinn, alþingis- mennirnir okkar, komi í gegn nýjum lögum fyrir ferðaþjónustuna á kom- andi þingi þar sem m.a. hlutverk Ferðamálaráðs verði endurskil- greint. í ráðinu sitja nú 23 fulltrú- ar, auk tveggja áheyrnarfulltrúa. Skilvirkara væri e.t.v. að mynda fagráð 4-6 manna er væri ferða- málaráðherra til ráðgjafar, ynni í náinni samvinnu við ferðamála- stjóra og hefði yfirumsjón með rekstri skrifstofu ferðamálaráðs sem þyrfti að stórefla, m.a. koma á fót tölfræði- og ráðgjafardeild og gestaþjónustudeild. Skrifstofa Ferðamálaráðs ætti áfram að hafa yfirumsjón með landkynningu og varða leiðina í hinum ýmsu málum og gegna ákveðnu eftirlitshlut- verki, s.s. á sviði gæða-, umhverfís- og upplýsingarmála í ferðaþjón- ustu. Hagsmunasamtök Á hinn bóginn er aðkallandi að stofna sterk hagsmunasamtök sem fengju til umráða, með ákveðnum skilyrðum, umtalsvert fjármagn frá hinu opinbera auk eigin framlaga félagsmanna. Hagmunasamtökin gætu verið deildarskipt (gisting, veitingar, samgöngur, ferðaskrif- stofur, afþreying). Oflug ferðaþing, er Ferðamálaráð og Hagsmuna- samtökin stæðu að í sameiningu, yrðu síðan haldin tvisvar á ári. Ferðamáladeild Þeim er stunda ferðaþjónustu og félagasamtökum innan greinarinn- ar er mikils virði að að geta gengið að fullrúum ferðamála vísum í sínu ráðuneyti. Fjárveitngu þarf til að gn KERFISÞRÓUN HF. “ Fákafeni 11 - Sfmi 568 8055 stofna ferðamáladeild innan sam- gönguráðuneytis er hefur verið á skipuriti þar á bæ um nokkra hríð. Ferðaþjónustan hefur margsannað sig sem alvöru atvinnugrrein og þar með á hún kröfu á öflugu baklandi í eig- in ráðuneyti. Rannsókna-og þróunarmiðstöð Öll rannsóknarstarf- emi í ferðaþjónustu er í lágmarki sem víðast hvar í samkeppnislönd- um okkar er lögð rík og sívaxandi áhersla á. Á íslandi er ekkert opinbert stöðugildi í rannsóknum í ferða- þjónustu og Ferða- málaráð veitir alls um 1 milljón kr. til rannsókna á árinu 1995. Á sama tíma eru reknar öflugar rannsóknarstofnanir í öðr- um atvinnugreinum með hundruð- um stöðugilda, s.s. Rannsóknar- stofnun landbúnaðarins, Hafrann- sóknarstofnun og Rannsóknar- stofnun byggingariðnaðarins. Ný- leg þarfagreining sem Félagsvís- indastofnun Háskólans vann fyrir Ferðamálaráð meðal hagsmunaað- ila í ferðaþjónustu sýnir að um 85% af svarendum töldu aðkallandi að auka rannsóknir og öflun tölfræði- legra gagna er auðveldaði þeim að gera sínar áætlanir um uppbygg- ingu. Talsverðar vonir eru bundnar við að Rannsóknarráð íslands styrki í auknum mæli einstök rannóknar- verkefni í ferðaþjónustu þótt þau séu oft á tíðum ekki jafntæknilegs eðlis og t.a.m. i iðnaði eða læknavís- indum. Koma þarf á fót Rannsókn- ar- og -þróunarmiðstöð ferðaþjón- ustunnar og tryggja að hæfir ein- staklingar með reynslu og menntun í rannsóknarstörfum í greininni veljist þar til starfa. Hlutverk henn- ar ætti að vera að semja markvissa rannsóknaráætlun til minnst 10 ára er fæli m.a. í sér reglulega endur- tekningu á nokkrum grunnrann- sóknum. Með því móti fengjust heildstæðar upplýsingar um þróun ferðaþjónustunnar og samanburður milli ára, landsvæða o.s.frv. sem nú finnast ekki nema í ósamstæðum brotum í þeim fáu rannsóknum sem gerðar hafa verið. Auk þess þarf að framkvæma ýmsar sértækar rannsóknir og úttektir fyrir grein- ina í heild t.d. er lúta að rekstrarum- hverfí, umhverfis- og gæðamálum Koma þarf á fót rann- sóknar- og þróunarmið- stöð ferðaþjónustunnar, segír Rögpnvaldur Guðmundsson, í grein í tilefni Ferðamála- ráðstefnu 1995. og hjálpa einstökum hagsmunaaðil- um/félögum að framkvæma stað- bundnar athuganir og úttektir. Rannsóknar-og þróunarmiðstöð ferðaþjónustunnar ætti að auðvelda bæði Ferðamálaráði og hagsmuna- samtökunum, sem vonandi verða stofnuð á næstunni, alla áætlana- gerð og skipulagningu í framtíðinni - íslenskri ferðaþjónustu og þjóðar- búi okkar til heilla. Höfundur er ferðamálafulltrúi i Hafnarfirði. EIN STERKASTA tilfinning þegar einstaklingur er órétti beitt- ur er reiðitilfinningin. Hún grípur ekki að- eins um sig í vitund- inni, heldur skekur hún allan líkamann og afskræmir andlitið. Hún safnar úr undir- vitundinni öllum ljót- um orðum og vondum og býr til úr þeim hár- beitt vopn sem skal særa og skera í nafni réttlátrar hefndar. Tæplega hefur nokkur maður gert reiðinni jafngóð skil og Jón biskup Vídalín, sem segir hana and- skotans verkfæri. Ef nánar er hugað að orð- um Jóns biskups, sem áttu að vera öllum til strangrar viðvörunar á þeim tíma, kemur flest það í ljós sem staðfestir að reiðin er slæm tilfinning sem eitrar sálarlífið og ormétur persónuleikann. Slíkt get- ur orðið að svo stóru sálarmeini að það safnar sífellt í sig og sýkir út frá sér. Þótt reiðihafinn verði fyrst o g fremst sjálfur þolandi stór- tækra kvala, geta þær brotist út úr vitundinni og orðið skaðvaldur hans í umhverfinu og mannlegum samskiptum öllum án minnsta til- efnis. Einstaklingur sem hins vegar hugsar vandlega ráð sitt, þegar honum finnst gert á hluta sinn og yfirvegar tilefnið frá báðum hlið- um, er ósjálfrátt að búa gæfusam- legum viðbrögðum rúm í vitund sinni. Stór og meiðandi orð missa því mátt sinn og þorstinn til hefnd- ar dvín, líkamleg viðbrögð verða mild og yfirbragð rólegt. Skynsem- in tekur smám saman að hreiðra um sig og virkni hennar fer að gæta í öllum athöfnum. Dómgreindin fær frið til að sinna JF sínu hlutverki: Að yfirvega orð og gerðir og koma því til skila sem best reynist - án áreitni eða niðurlæg- ingar. Gjörðum henn- ar fylgir beinskeytt hreinskilni blönduð góðvilja og skilningi. Innri líðan einstakl- ingsins virkar í sam- ræmi við slík viðbrögð og skyggni hans á mikilvægi jákvæðra, mannlegra samskipta - eykst. Geranda til- efnisins deyfast vopn í höndum - og stund- um eyðast. Eðlislæg góðvild, sem í byijun lífs virðist hveijum og einum í bijóst borin - þótt bæði sé hægt að slæva hana og murka - kemur í ljós sem hvati að þroskavænlegu, innra hegðun- Reiðin er slæm tilfinn- ing, segir Jenna Jens- dóttir, hún eitrar ^ sálarlífið og ormétur persónuleikann. armynstri, sem aftur skilar sér út í samfélagið til gæfu og eftirtektar sökum trausts og öryggis í návist við slíkan persónuleika. Á lífsferli hans verða það minn- ingar um hið góða og glaða sem fyrstar skjóta upp kollinum, af því að honum hefur auðnast að virða * lífið og finna mikilvægi þess, til farsældar, þegar litið er yfir farinn veg. Ritað 1991. . Höfundur er rithöfundur. AIR Titanium SÚ LÉTTASTA í HEIMI 2,8 GR Á morgun föstudaginn 6. okt. veitir Anna og útlitiS ráðgjöf viS val á umgjörSum í verlsun okkar frákl. 13-18. AIR Titanium er ótrúlega sveigjanleg og sterk í einfaldleika sínum. Olíkt venjulegum gleraugnaumgjörÖum er hún búin til með því einungis aÖ snúa og beygja titanium vír. AIR Titanium er handunninog sérsniöin fyrir not- andann úr óendanlegu safni forma, lita og stærða. AIR Titanium hefur unnið til fjölmargra virtra, alþjóð- legra verðlauna fyrir einstaka óg glæsilega hönnun. Þar á meðal má nefna Japönsku hönnunarverðlaunin, verðlaun hins alþjóðlega „iF"-dómstóls og Gullna bikarinn á SILMO-gleraugnahátiðinni í París 1994. Glerougnaverslunin í Mjódd Álfcibakka 14. Sími 587 2123 •c.. Rögnvaldur Guðmundsson Jenna Jensdóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.