Morgunblaðið - 05.10.1995, Page 39

Morgunblaðið - 05.10.1995, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR FIMMTUDAGUR 5. OKTÓBER 1995 39 SVERRIR GUÐJON GUÐJÓNSSON + Sverrir Guð- jón Guðjóns- son fæddist á Norðfirði 3. apríl 1965. Hann lést í Namibíu 13. sept- ember siðastlið- inn. Minningarat- höfn um Sverri fór fram í Foss- vogskirkju 4. október. Til góðs vinar liggja gagnvegir, þótt hann sé firr farinn. (Hávamál.) Kæri vinur. Það var okkur mikið áfall þegar sú frétt barst að þín væri saknað, svo stutt síðan við kvöddumst á heimili ykkar Möggu á skemmtilegu kvöldi í góðum vinahópi. Þú að leggja í langferð til fjarlægs lands til að vinna við þróunaraðstoð í Namibíu. Ekki óraði okkur fyrir því að það kvöld yrði okkar síðasta sam- verustund. Þessi fregn var eitthvað svo óraunveruleg þar sem dauðinn er svo fjarlægur okkur, en samt svo nálægur. Nú hefur verið höggvið stórt skarð í vinahóp okkar. Minningarnar hrannast upp um þær stundir sem við höfum átt saman. Minningar um vinskap sem hófst er við vorum ungl- ingspeyjar og byggðist á trausti, gleði og virðingu hvers okkar til annars. Minningar um gleði og sorg sem við deildum saman og ávallt stendur upp úr minningunum, kær vinur sem var sannur vinur í raun. „Og til eru þeir sem gefa og þekkja hvorki þjáningu þess né gleði og eru sér ekki meðvitandi um dyggð sína. Þeir gefa eins og blómið í garðinum, sem andar ilmi sínum út í loftið." (Spámaðurinn) Þessi orð úr Spámanninum, sem var okkur stundum hugleikinn, fínnst okkur eiga vel við um þá vin- áttu sem þú gafst okkur. Vinátta sem lifir þó við kveðjum þig í dag. Kæra Magga, Una, systkini og aðrir aðstandendur, megi Guð styrkja ykkur í sorg ykkar og hjálpa ykkur í gegnum erfíða tíma. Minn- ingin um góðan dreng mun ávallt lifa. Deyr fé, deyja frændur, deyr sjálfur ið sama. En orðstír deyr aldregi hveim er sér góðan getur. (Hávamál) Bjarni, Guðni, Sig- mar, Þröstur og fjölskyld- ur. Það var bjart fram- undan þegar við bekkjar- félagarnir gengum út um dyrnar á Stýrimannaskólanum í Reykjavík sl. vor og út í framtíðina. Hvergi var ský að sjá því loks var skólinn búinn og lífið tilbúið að taka við okkur. En snögglega dró ský fyrir sólu þeg- ar okkur barst sú hörmungarfregn að hafið hefði tekið einn okkar. Sverrir var glaðlyndur drengur og fullur af ævintýraþrá. Hann hafði tekið stefnuna suður á Afríkustrend- ur þar sem ætlunin var að draga bein úr sjó undan Namibíu. Oft hafði hann rætt um fyrirhugaða ferð og margsinnis spurt okkur strákana hvort við vildum ekki slást með í för. Alltaf var hann til í ævintýri og vildi hiklaust deila þeim með öðr- um, enda mikil félagsvera. Því var það hann sem stakk hvað oftast upp á því að við félagarnir skryppum að fá okkur snarl í hádeginu og ekki sakaði að hafa eitthvað gott með. Enda var það vel við hæfi að hann kvaddi okkur félagana, sem vorum við útskriftina, með því að bjóða okkur heim í mat. Annars var Sverrir fagurkeri mik- ill sem naut þess að rækta sjálfan sig, hvort sem var með því að skreppa í ræktina eða með snyrti- legri framkomu. Hann var allavega sá af okkur sem hvað síst varð fyrir aðfinnslum vegna klæðaburðar. En svona var hann. Alltaf tilbúinn að leggja mikið á sig til að ná árangri og gilti það ekki síst um skólann þar sem hann lét sig aldrei vanta og var okkur hinum til fyrirmyndar í vinnusemi. Það er sárt fyrir lítinn bekk eins og okkar að missa góðan félaga og söknuðurinn vafalaust eftir að verða mikill þegar fram líða stundir. Við viljum votta eiginkonu og fjöl- skyldu Sverris samúð okkar alla og þökkum fyrir þau allt of stuttu kynni sem við höfðum af þessum góða dreng. Bekkjarfélagar á 3. stigi Stýri- mannaskólans í Reykjavík. Sverrir kom hingað til Namibíu í júní síðastiiðnum og voru því ekki margir mánuðir sem við nutum sam- vista við hann. En þennan stutta tíma sáum við að þar var góður drengur á ferð. Hann var mjög létt- ur í lund og ætíð böðinn og búinn að rétta hjálparhönd. Einnig var hann mjög barngóður og reyndist íslensku börnunum í Lúderitz sannur vinur. Þegar við fengum þessa harma- frétt setti okkur hljóð og spurðum hvert annað: Hvers vegna? Elsku Magga, við vottum þér okk- ar dýpstu samúð og biðjum Guð að styrkja þig. Kaar kveðja, Islendingarnir í Lúderitz. Örlögin eru grimm. Það er erfitt að trúa að Sverrir sé ekki lengur á meðal okkar. Hann var svo óijúfan- legur hluti af tilveru Möggu. Það var fyrir rétt um átta árum að leiðir okkar Möggu lágu saman er við hófum sameiginlegt háskóla- nám. Fljótlega fengum við að kynn- ast Sverri og höfum við átt með þeim margar eftirminnilegar stund- ir. Sverrir var mjög félagslyndur, opinn og einstaklega ljúfur en átti, það til að koma með beinskeyttar athugasemdir sem oft komu flatt upp á fólk. Hann var mjög rausnar- legur og einn af þeim mönnum sem kunna að gefa konunni sinni gjafir. Hann var ákaflega ófeiminn og átti því auðvelt með að samlagast hópn- um er hann kom með Möggu í bekkjarpartý. Það var öllum ljóst er umgengust Sverri og Möggu að milli þeirra ríkti einstakt og fallegt samband. Sam- band sem einkenndist af gagn- kvæmri virðingu, ást og einlægni. Þetta kann að hljóma hversdags- lega en milli þeirra var það sérstakt. Minningin er sterk. Elsku Magga, ættingjar og vinir við vottum ykkur okkar dýpstu samúð. Margrét og Berglind. GUÐMUNDUR ALFREÐ ERLENDSSON + Guðmundur A. Erlendsson var fæddur í Reykjavík 11. maí 1921. Hann lést á Landspít- alanum 23. september síðastlið- inn og fór útförin fram 2. októ- ber. LÁTINN er Guðmundur A. Erlends- son, ljósmyndari, á 75. aldursári. Hann var í sínum hópi virtur og vin- sæll ljósmyndari, enda mjög góður fagmaður á sínu sviði, og hafði trún- að stéttar sinnar. Við félagsbundnir bindindismenn sjáum nú að baki þeim félaga, sem lengst allra hefur átt samleið með félögum í stúkunni Einingu, innan vébanda góðtemplara. Þar hafði Guð- mundur verið félagi í hvorki meira né minna en 60 ár. Guðmundur var einkar vel gerður maður, sem ávallt vildi láta gott af sér leiða. Hann var ekki mikið fyrir það að trana sér fram, enda einstakt prúðmenni. Þó lét hann ekki á sér standa að taka að sér verkefni fyrir stúkuna. En oft var til hans leitað, hvort heldur sem var á hans sérsviði eða til að vera með atriði í kvöldvöku eða annað sem kallaði að. Það var því mikið happ fyrir Eininguna að hafa mann á borð við Guðmund inn- an sinna vébanda og hans ágætu konu, Auði Guðmundsdóttur, sem settu notalegan og hlýjan svip á hóp- inn þegar félagar komu saman. Tryggð Guðmundar og traust samfylgd um áratugaskeið var Ein- ingunni mikils virði. Þar átti hann góða fyrirmynd, móður sína, Maríu Guðmundsdóttur, sem lengst allra var dróttseti í stúkunni. Blessuð sé minning hennar. Þau störf leysti hún af hendi með sóma, svo að til þess var tekið, enda var einstök gæsla hennar um hag stúkunnar. María og Guðmundur voru bæði heiðursfélag- ar í Einingunni. Það var mikið ánægjuefni þegar Guðmundur brá á sýningartjaldið myndum frá eldri tíð af félögum regl- unnar í starfí og leik, bæði lifandi myndir og kyrrmyndir. Hann hafði verið iðinn við að taka slíkar myndir við ýmis tækifæri. Þá var ekki síður skemmtilegt þegar hann, eftir ferða- lag til fjarlægra landa, sýndi okkur á kvöldvöku skemmtilegar myndir og sagði frá ferð þeirra hjóna. Við Einingarfélagar söknum því góðs félaga, sem sýndi og sannaði með nærveru sinni og starfí sínu sérsaka tryggð og trúnað við félags- skap okkar og stefnumið. Við þökk- um honum fyrir allt það, er hann lét okkur í té með ljúfmennsku sinni og áhuga. „Sú myndin greypt í okkar hug af þinni fylgd, af þinni gerð af þínum bróðurlega dug“, en svo sagði m.a. í afmæliskveðju frá stúkunni til Guðmundar þegar hann varð sjötug- ur. Um leið viljum við senda Auði og öðrum ástvinum hans innilegustu samúðarkveðjur. Blessuð sé minning Guðmundar Eríendssonar. Einar Hannesson. KRISTBJORN PÉTURSSON + Kristbjörn var fæddur 5. júlí 1967 á Húsavík. Hann andaðist á heimiii sínu að- faranótt laugar- dagsins 23. september síðast- liðinn. Kristbjörn fluttist frá Húsavík ásamt foreldrum sínum og systkin- um 1982J Mývatns- sveit. Árið 1986 fluttist fjölskyldan siðan til Selfoss. Foreldrar Krist- björns voru Sigríður Sigurðar- dóttir og Pétur Hjálmarsson. Önnur börn þeirra eru Rík- harður og Sólveig. Útför Kristbjörns fór fram frá Selfosskirkju 30. septem- ber. KRISTBJÖRN Pétursson var okk- ur að góðu kunnur. Bibbi, eins og við kölluðum hann yfirleitt, hóf æfingar hjá okkur fyrir u.þ.b. tveimur og hálfu ári og varð með því hluti af okkar samrýndu æf- ingafjölskyldu. Hann var alltaf mjög vel liðinn og persónulega fannst mér honum alltaf líða mjög vel þegar hann æfði, bæði vegna þess hve vel æfingarnar áttu við hann og vegna þess jafnræðisanda sem ríkti á milli okkar allra. Ég ræddi oft við hann um austurlenska heim- speki, sem hann hafði mikinn áhuga á, og mátti þar sjá hve vel hann var inni í því sem hann talaði um. Einn- ig fundum við öll hve innræti hans var hreint er hann gekk inn í verkefni og naut þess að takast á við þau. Þess vegna gát- um við alls ekki trúað því að hann væri far- inn. Ég man, er ég heyrði þessar hræði- legu fréttir, hvað mér varð ofsa- lega þungt allt í einu. Það var eins og allur lífskraftur sem ég hafði væri sogaður úr líkamanum og ekkert stæði eftir nema brostið hjarta. Það er í raun ekki hægt að lýsa sumum tilfinningum með orðum vegna þess hve djúpt þær geta skorið líkama og sál. Og við getum í raun aldrei ímyndað okkur þá hræðilegu erfíðleika sem for- eldrar hans, systkini og nánustu ættingjar eiga við að stríða. Við getum einungis vottað þeim okkar dýpstu samúð og beðið guð almátt- ugan að geyma þessa blessuðu sál sem við fengum að kynnast á því stutta æviskeiði sem honum var úthlutað. Vertu blessaður, elsku vinurinn okkar, við gleymum þér aldrei. F.h. karatedeildar UMF Selfoss, Ingólfur Snorrason. STEFANÍA JÓHANNA STEINDÓRSDÓTTIR -4- Stefanía Jó- * hanna Stein- dórsdóttir var fædd á Skjald- þingsstöðum í Vopnafirði 18. júlí 1913. Hún andaðist á Fjórðungssjúkra- húsinu á Akureyri 24. september síð- astliðinn og fór út- förin fram 4. októ- ber. OKKUR systkinin langar, í örfáum orð- um, að minnast ömmu okkar sem við kveðjum í dag. Amma í Munk var afskaplega geðgóð og róleg kona og það hjálp- aði henni mikið í gegnum erfiðleika og veikindi sem hún átti við að stríða. Oft var notalegt að sitja í litlu stofunni í Munk og ræða um dag- inn og veginn við ömmu. Hún fyld- ist vel með og þegar við heimsótt- um hana spurði hún frétta af okk- ur og gat sagt okkur fréttir af frændum okkar og frænkum. Amma var afskastamikil og vandvirk pijónakona og nutum við ömmubörnin sannarlega góðs af því. Síðan fóru langömmubörnin að koma og ekki sló amma slöku við við pijónaskapinn. Sokkaplöggin og vettlingamir veittu hlýju á köldum vetr- um. Amma fór vel með sitt og var nýtin. Þennan eiginleika reyndi amma að kenna okkur og oft fannst henni við geta farið betur með það sem við höfðum á milli hand- anna. Sá tími sem okkur þótti amma vera ómissandi var sláturt- íðin og áttum við oft góðar stund- ir með henni í því stússi. Við biðjum Guð að geyma ömmu og þegar sárasta sorgin er liðin hjá munum við deila minningunum hvert með öðru. Blessuð sé minn- ing hennar. Þegar ævi röðull rennur rökkvar fyrir sjónum þér, hræðstu eigi, hel er fortjald hinu megin birtan er. Höndin sem þig hingað leiddi himins til þig aftur ber. Drottinn elskar, Drottinn vakir daga og nætur yfir þér. (F.Kr.P) Agnes, Þórður, Steindór, Anna, lngibjörg og Hjördís. t Móðir okkar, ÞORBJÖRG LÍKAFRÓIMSDÓTTIR, áðurtil heimilis í Sundstræti 21, ísafirði, sem lést á Hrafnistu í Reykjavík 27. september sl., verður jarð- sungin frá ísafjarðarkirkju laugardagin 7. október kl. 14.00. Rannveig Gisladóttir, Jón Gíslason, Guðrún Gisladóttir, Matthildur M. Gísladóttir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.