Morgunblaðið - 05.10.1995, Page 60
OPIN KERFI HF.
Sími: 567 1000
WPMectr,apc
Afl þ<stiar þoif IgtíftjH'
RISC System / 6000
CO>
t
w >
I NÝHERJI
I
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN I, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181,
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBUaCENTRUM.lS / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 85
FIMMTUDAGUR 5. OKTOBER 1995
VERÐ I LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Columbia Aluminium Corporation skoðar aðstæður í Hvalfirði
Bygging álvers könnuð
Morgunblaðið/RAX
Himinninn
logaði
MIKIL flugeldasýning var haldin
á Valbjarnarvelli í Laugardal í
_ gaerkvöldi. Himininn logaði, gul-
Sft rauður, grænn og blár og sjálf-
sagt hafa einhverjir litið undrandi
á dagatalið og fullvissað sig um
að enn væru nærri þrír mánuðir
til áramóta. í ljós kom að það
voru skátar, sem sáu um að senda
flugeldana á loft, en tilefnið var
kynning á nýjum leik, Kínó.
-----------♦ ♦ ♦----
Girt með plasti
^ og netum
Rafmagnsgirðingarstaurar, úr
endurunnu rúllubaggaplasti og
netadræsum, er ein þeirra hug-
mynda, sem hrint hefur verið í fram-
kvæmd í kjölfar Snjallræðis, hug-
myndasamkeppni íslenskra uppfinn-
ingamanna.
Samkeppnin er haldin af iðnaðar-
ráðuneytinu, Iðnlánasjóði, Iðnþró-
unarsjóði og Iðntæknistofnun. Raf-
magnsgirðingarstaurarnir, sem Ein-
ar Harðarson hannaði, hafa komið
mjög vel út í prófunum og reynst
sterkari en hefðbundnir girðingar-
staurar, auk þess sem þeir hafa
meira einangrunargildi gagnvart út-
leiðsiu.
■ Kveikt á/4B
BANDARÍSKA álfyrirtækið Col-
umbia Aluminium Corporation hefur
óskað eftir að fram fari umhverfis-
mat í Hvalfirði í nágrenni Járn-
blendiverksmiðjunnar vegna bygg-
ingar álvers með 60 þúsund tonna
árlega framleiðslugetu sem hægt
yrði að auka í 180 þúsund' tonn.
Miðað er við að verksmiðjan geti
hafið framleiðslu í lok næsta árs,
en til þess þarf að ganga frá samn-
ingum og taka ákvörðun um bygg-
UMRÆÐUR fóru fram á Al-
þingi í gærkvöldi um stefnu-
ræðu forsætisráðherra.
Fremstir sitja sljórnarþing-
mennirnir Tómas Ingi Olrich
og Hjálmar Arnason, Guð-
inguna fyrir áramót. Fulltrúar fyrir-
tækisins eru væntanlegir til landsins
til viðræðna eftir 2-3 vikur, en fram-
kvæmdastjóri fyrirtækisins var hér
á landi í lok ágústmánaðar tii að
skoða aðstæður.
Bandaríska álfyrirtækið er ekki
stórt á bandarískan mælikvarða og
er í einkaeigu. Það rekur 165 þús-
und tonna álverksmiðju í Washing-
ton og hefur keypt álverksmiðju í
Þýskalandi sem það leitar nú að
mundur Hallvarðsson, þing-
maður Sjálfstæðisflokks og
Asta Þorsteinsdóttir, varaþing-
maður Alþýðuflokksins, sem
situr þing í fjarveru Jóns Bald-
vins Hannibalssonar, formanns
staðsetningu fyrir. Fjögur lönd
koma til greina, samkvæmt upplýs-
ingum Finns Ingólfssonar iðnaðar-
ráðherra;' ísland, Venesúela,
Kanada og Quatar, en valið stendur
fyrst og fremst milli tveggja fyrst-
nefndu landanna. í þeim báðum
hefur verið óskað eftir umhverfis-
mati. Byijunarstofnkostnaður
verksmiðju sem þessarar er 10-12
milljarðar króna og hún gæti veitt
um 120-150 manns atvinnu, sam-
flokksins. Aftast sést Geir H.
Haarde, formaður þingflokks
sjálfstæðismanna.
■ Viðræður/2
■ Stefnuræða/28
kvæmt upplýsingum Morgunblaðs-
ins.
Skjótur aðdragandi
Finnur Ingólfsson iðnaðarráð-
herra sagði að þetta mál hefði haft
skjótan aðdraganda, því í lok ágúst
hefði komið fyrirspurn til Markaðs-
skrifstofu jðnaðarráðuneytisins um
það hvort íslendingar treystu sér til
þess að afhenda orku til reksturs
30 þúsund tonna álvers fyrir árslok
1996. Því hefði verið svarað ját-
andi. Margt gerði það að verkum
að ákveðnar vonir væru tengdar við
að jákvæð niðurstaða yrði af þessum
viðræðum, m.a. að fyrirtækið ætti
verksmiðju sem það þyrfti að koma
í rekstur sem fyrst til að fjárfesting-
in gæti farið að skila tekjum.
Finnur sagði að vonir stæðu til
að niðurstaða varðandi stækkun ál-
versins í Straumsvík lægi fyrir í
nóvember. Þó svo að samningar
tækjust við bæði fyrirtækin um ál-
ver ætti að vera mögulegt að af-
henda næga orku til þeirra beggja.
Það yrði erfiðast í ársbytjun 1998
og fram á vor. Gufuaflsvirkjanir á
Nesjavöllum og í Svartsengi væru
nærtækastar ef auka þyrfti orku-
framleiðsluna, en tiltæk umfram-
orka væri nú um 100 megavött.
Bæjaryfirvöldum á Akranesi og
sveitarstjórnum í Borgarfirði verður
kynnt málið í dag, en þau eru eig-
endur hafnarinnar á Grundartanga.
Stjórnvöld eiga landsvæði í grennd
við Grundartangaverksmiðjuna,
sem gæti dugað undir nýju verk-
smiðjuna, en þó væri betra að afla
viðbótarlandrýmis, samkvæmt upp-
lýsingum iðnáðarráðherra.
Fleiri fyrirspurnir um fjárfesting-
arkosti hafa borist hingað að undan-
förnu en mörg síðustu ár og sagði
Finnur margt benda til að augu
manna beindust í auknum mæli
hingað vegna ijárfestinga.
Morgunblaðið/Kristinn
Hlýtt á stefnuræðuna
Friðrik leikur
á gítar í Evítu
FRIÐRIK Karlsson
gítarleikari hefur
fengið boð um að
leika á gítar í hljóð-
upptökum kvik-
myndarinnar Evítu,
sem byggð er á sam-
aefndum söngleik
Andrews Lloyds
Webbers og Tims
Rice. Brátt hefjast
tökur á myndinni,
sem skartar tveim-
ur kunnum stjörn-
um í aðalhlutverk-
um, Madonnu og
Antonio Banderas. I samtali við
Morgunblaðið segir Friðrik að
Nigel Wright, sem sér um tón-
listina í myndinni, hafi haft sam-
band við sig síðastliðinn þriðju-
dag.
Nigel þessi hefur undanfarin
ár stjórnað upptökum á allri
tónlist Lloyds Webbers og á sín-
um tíma stjórnaði hann upptök-
um á plötunni No Limifc. með
Mezzoforte, en sem kunnugt er
starfar Friðrik með þeirri hljóm-
sveit. Friðrik hefur starfað tölu-
vert með Nigel upp á síðkastið.
Er þetta ekki mikil viðurkenn-
ing fyrir Friðrik
sem tónlistarmann?
„Jú, þetta er mjög
gaman fyrir mig.
Þetta gæti hjálpað
mér í framtíðinni og
haft í för með sér
fleiri atvinnutæki-
færi erlendis," segir
hann.
Býst hann við að
hitta Madonnu?
„Nei, það hljóð-
rita allir sína parta
sér. Hún verður
væntanlega búin að
taka upp sönginn þegar ég kem
út.“
En hvað hefur Friðrik verið
að bralla upp á síðkastið?
„Við í Mezzoforte erum ný-
búnir að taka upp plötu sem
kemur út á næsta ári, en þessa
dagana er ég að spila með
Sljórninni hérna heima. Fram-
undan er stíf spilamennska í
Leikhúskjallaranuin, en fyrst
fer ég að sjálfsögðu út.“
Friðrik verður í London í
fimm daga, en hann leikur á
gítar á allri plötunni, sem kemur
út samhliða kvikmyndinni.
Nóbelsverðlaunahafinn Gary Becker í viðtali við Morgunblaðið
Kvótakerfi ávallt háð
geðþóttaákvörðunum
KVÓTAKERFI hafa m.a. í sér innbyggðan galla að því leyti að
úthlutun kvóta hlýtur ávallt að vera að einhveiju leyti óréttlát og
háð geðþóttaákvörðunum, að sögn bandaríska hagfræðingsins,
Gary Beckers. Hann hlaut Nóbelsverðlaunin í hagfræði árið 1992.
Búvörusamningur
kynntur bændum
FORYSTUMENN bænda, Halldór
Ásgrímsson, starfandi landbúnað-
arráðherra, og embættismenn í land-
búnaðarráðuneytinu munu kynna
nýjan búvörusamning í sauðfjárrækt
á almennum bændafundum næstu
daga. Fyrstu fundirnir verða í Ýdöl-
um í Aðaldal og á Selfossi í kvöld.
Ari Teitsson, formaður Bændasam-
takanna, verður í Ýdölum og Arnór
Karlsson, formaður Landssamtaka
sauðfjárbænda, kynnir samninginn
á Selfossi.
Á morgun verða fundir á Akur-
eyri og Heimalandi í V-Eyjafjalla-
hreppi. Á laugardag verða fundir
í Skagafirði og á ísafirði. Á sunnu-
dag verða fundir í Miðfirði, Búðar-
dal, Fellahreppi og á Höfn í Horna-
firði. Síðasti fundurinn verður síð-
an á mánudag í Borgarnesi. Á
þriðjudag kemur Búnaðarþing
saman til að fjalla um búvörusamn-
inginn.
■ Verri samningur/6
í samtali við blaðamann Morgun-
blaðsins mælir Becker með þvi að
lagður verði skattur á afla og renni
hann í sameiginlega sjóði lands-
manna. Hægt sé að ákveða auðlinda-
gjaldið með tilliti til stöðu fiskistofna,
hækka það til að draga úr veiði þeg-
-ar talin sé þörf á að hindra ofveiði.
„Þetta er réttlátara kerfi því að
allir sem veiða físk eru í sömu að-
stöðu, engum er hyglað sérstak-
lega,“ segir Becker. „Þetta er auðvit-
að ástæðan fyrir því að stundum er
erfitt að koma slíku kerfi á. Sjómenn
og útgerðir sem geta beitt öflugum
pólitískum þrýstingi vilja fá stærri
hlut af kökunni. Þetta er það sem
mér mislíkar við öll kvótakerfi.
Tökum dæmi af sjónvarpsrásum
og réttindum til kapalsendinga,
þessu þarf að skipta milli manna.
Ættum við að selja þessi réttindi eða
einfaldlega gefa vinum stjórnmála-
manna þau? Ég tel að við ættum að
selja þau.“
■ Veiðikvótahafar/31