Morgunblaðið - 27.10.1995, Qupperneq 3

Morgunblaðið - 27.10.1995, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. OKTÓBER 1995 3 FRETTIR Sléttbakur með björg- unarlið og hund NITJÁN björgTjnarsveitarmenn með hund til leitar í snjóflóðum voru sendir frá Patreksfirði til Flateyrar með togaranum Sléttbak EA, sem leitað hafði vars utan við Vatneyri. Skipið lagði af stað frá Patreks- firði um klukkan 10 í gærmorgun, að sögn Ivans Brynjarssonar, 1. stýrimanns á Sléttbaki, og var væntanlegt til Flateyrar um klukkan 17 og var áætlað að vegna veðursins tæki siglingin 7 tíma í stað um þriggja og hálfs tíma við venjulegar aðstæður. ívan Brynjarsson sagði að Slétt- bakur hefði ieitað vars utan við Vatneyri eftir að hafa lónað á Hamp- iðjutorginu í rúman sólarhring. Hann sagðist gera ráð fyrir því að þegar björgunarmennirnir væru komnir á áfangastað gæfi áhöfnin á Sléttbak sig fram til aðstoðar við þau störf sem óskað væri eftir, hvort sem um yrði að ræða aðstoð við að lýsa upp Flateyri, fólksflutninga eða annað. Hópur lækna og hjúkrunar- fræðinga til Flateyrar AÐ MINNSTA kosti sautján læknar og sextán hjúkrunarfræðingar voru sendir áleiðis til Flateyrar í gær. Frá ísafírði fóru strax tveir lækn- ar, auk tveggja hjúkrunarfræðinga. Með varðskipinu Ægi fóru frá Reykjavík fjórir læknar, einn hjúkr- unarfræðingur og fjögurra manna áfallahjálparhópur, auk þriggja lækna og hjúkrunarfræðings frá Landspítala. Varðskipið Óðinn flutti frá Grund- arfirði tvo lækna og tvo hjúkrunar- fræðinga frá Stykkishólmi og Ólafs- vík, auk þriggja lækna, hjúkrunar- fræðings og þriggja manna áfalla- hjálparhóps frá Landspítala. í ráði var einnig að flytja þijá lækna frá Borgarspítala, hjúkrunar- fræðing og tvo úr áfallahjálparhópi flugleiðis um leið og færi gæfist. Ennig var sendur tíu manna hóp- ur á vegum Rauða kross íslands til fjöldahjálpar frá Reykjavík, ísafírði, Bolungarvík og Akranesi. - ellefu manns úr sérþjálfaðri sveit Slökkviliðsins í Reykjavík voru flutt- ir frá Grundarfirði til Flateyrar. -------» » ♦------- Veðurofsinn tafði Baldur Björgunarlið safnaðist saman í Grundarfirði Grundarfirði. Morgunblaðið. FJÖLDI björgunarmanna safnaðist saman í samkomuhúsinu í Grundar- firði í morgun til að bíða eftir flutn- ingi vestur til Flateyrar. Almannavarnanefnd Grundar- fjarðar var kölluð á fund og var falið að skipuleggja skráningu björgunarmanna en Slysavarnafé- lagið og Rauði krossinn sáu um framkvæmdir. Um það bil 80 björg- unarmenn fóru með varðskipinu Óðni ásamt með tveimur læknum og fleira hjúkrunarfólki og lét skip- ið úr höfn upp úr kl. 11. Um tutt- ugu manns, björgunar og áfalla- hjálparlið frá Landspítalanum og stjórnendur sérþjálfaðra hunda, komu með þyrlu til Grundarfjarðar og fóru þaðan á flugvöllinn á Rifi, áður en flogið var vestur. í samkomuhúsinu var afdrep fyr- ir fleiri björgunarsveitarmenn af Vesturlandi sem biðu átekta frekari fyrirmæla frá Almannavörnum rík- isins. FERÐIR Breiðafjarðarfeijunnar Baldurs lágu niðri frá sunnudegi þangað til í gær. „Veðurofsinn kom illa niður á okkur, því Baldur gat ekki lagst að bryggju á Bijánslæk. Eg hef aldrei vitað annan eins veður- ofsa jafnsnemma hausts," sagði Guðmundur Lárusson, fram- kvæmdastjóri Baldurs, í samtali við Morgunblaðið. í gær gat Baldur loksins lagst upp að á Bijánslæk þar sem vindur var orðinn meira af norðan sem er hag- stæðari átt við Bijánslæk. Með skip- inu í eær fóru frá Stykkishólmi tveir flutningabílar, mjólkurbíll með vagni, þrír jeppar og einn fólksbíll. Talsvert af fólki hafði gefist upp á að bíða að gæfi til að sigla yfír að Bijánslæk. Á heimleiðinni átti að koma við í Flatey og taka farþega. Guðmundur sagði að ófært væri um Klettsháls, svo fólk yrði að ,treysta á Baldur. „Ég veit að menn reyndu að fara hálsinn á jeppum á þriðjudag, en komust ekkert áleiðis. Fiutningabílarnir fara hálsinn enn síður en jeppar, þar sem sú ferð er mjög hættuleg í snjó og svona miklu hvassviðri," sagði Guðmundur. um Island á stéttarfélagsverði Sérkjör á innanlandsflugi, gistingu, rútuferðum og bílaleigubílum fyrir félagsmenn stéttarfélaganna Fljúgandi á félagsverði 12. okt. ’95 - 26. maí ‘96 eiugleiöir* inn»nland, Sjö þúsund sæti í innanlandsflugi á einstöku verði kr. 5.630 - rrfteð skatti, fram og til baka frá Reykjavík til eftirtalinna staða: Akureyrar, Egilsstaða, Hornafjarðar, Húsavíkur, ísafjarðar, Patreksfjarðar, Sauðárkróks og Þingeyrar. (Til Vestmannaeyja: kr. 4.630 ) Sofandi á sérkjörum Vetrarorlof Lyk.il-hótelanna Dæmi: 2 manna herbergi með baði og morgunmat aðeins kr. 5.000 Regnbogahótelin um allt land Gisting í 2 manna herbergi með morgunverði og baði: Verð: 2.750 kr. á mann í tvíbýli Hótel Borgarnes • Reynihlíð, Mývatni • Selfoss Verð: 2.000 kr. á mann í tvíbýli Flugleiöabótelin Dæmi: 2 manna herljergi með baði og morgunmat aðeins kr. 4.700 Vestmannaeyjar Dæmi: 2 manna herbergi með baði og morgunmat aðeins kr. 2.000 Akandi á afslætti Merkir um afslátt Europcar og Hertz Við bjóöum _ ■ | ■ | — ‘ • - -ero'. Bilaleigubílar stéttarfélagsv Afgreiðslustaðir um allt land! Bílar af öllum stærðum og gerðum. Dæmi um verð (Hertz - Bílaleiga Flugleiða s: 569 0458). Bílaleigubíll af S-flokki (Volkswagen Polo) með tryggingu og sköttum: Daggjald 3.400 kr. (m.v. 100 km). Dæmi um verð (Europcar Interrent - Höldurhf. s: 568 8663). Bílaleigubffl af 1-flokki með tryggingu og sköttum: Daggjald 3.150 kr. (m.v. 100 km). Afsláttarkjör með langferöabílum Sparfar 4 L- A Sparfar er fullt fargjald á áætlunarleiðum með 50% afslætti. Kaupa verður far fram og til baka með tveggja daga fyrirvara. Það er ekki hægt að breyta farmiða og þeir eru ekki endurgreiddir. Sölustaðir: B.S.Í. - Umferðarmiðstöðinni í Reykjavík sími: 552 2300, sérleyfishafar og Umferðarmiðstöðin á Akureyri sími: 462 4442 Aðilar að þessu tilboði: Austfjarðaleið Guðmundur Jónasson SBA Sérleyfisbílar Helga Péturssonar Austurleið Norðurleið SBK Sérleyfisbílar Suðurfjarðar BSH Sæmundur Sigurmundsson Vestfjarðaleið MikiU Jjöldi þjónustustaða um allt land býður aðildarfélögum sérstakt verð á þjónustu sinni. Þetta litla skilti þýðir að stéttarfélagsverð er í boði og það er um aðgera að nýta sér það! Að Ferðanefnd aðildarfélaganna standa: Alþýðusamband íslands Bandalag háskólamanna Bandalag starfsmanna ríkis og bæja Farmanna- og fiskimannasamband íslands Samband ísl. bankamanna Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga Landssamband aldraðra Blaðamannafélag íslands Kennarafélag Islands Vélstjórafélag Islands Stéttarfélag tæknifræðinga Stéttarfélag verkfræðinga Félag bókagerðarmanna Samvinnuferðir - Landsýn Hafið beint samband við þá þjónustuaðila sem að tilboðinu standa. Ferðanefndin hefur nú samið við nokkra af stærstu ferðaþjónustuaðilum innanlands um verulegan afslátt og sérkjör fyrir félagsmenn sína veturinn ‘95-’96. Markmiðið er að auka möguleika íslendinga til þess að ferðast um eigið land og um leið stuðla að aukinni atvinnu í ferðaþjónustu á landinu. Það er von okkar að þessir samningar auki áhuga landsmanna á ferðalögum innanlands, bæði sumar og vetur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.