Morgunblaðið - 27.10.1995, Síða 7

Morgunblaðið - 27.10.1995, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. OKTÓBER 1995 7 FRÉTTIR Morgunblaðið/Þorkell Beðið fyrir syrgjendum BEÐIÐ var fyrir Flateyring- um, aðstandendum þeirra og björgunarfólki víðs vegar um land í gær. Voru flutt huggun- arorð í flestum kirkjum að beiðni biskups, til dæmis í Dómkirkjunni í Reykjavík. Meðal annarra syrgjenda í kirkjunni voru forseti íslands, frú Vigdís Finnbogadóttir, og Vestfjarðaþingmennirnir Ein- ar Oddur Kristjánsson, sem búsettur er á Flateyri, og Ein- ar K. Guðfinnsson frá Bolung- arvík. Athvarf íDrottni Séra Hjalti Guðmundsson flutti huggunarorð og gerði meðal annars að umtalsefni ógnarsmæð mannsins og van- mátt gegn ofurefli náttúrunn- ar. Séra Hjalti sagði að á sörgarstundu sem þessari ætti manneskjan ekkert annað at- hvarf en Drottin. „Hann veitir okkur kjark og kraft. Reisir okkur við og bendir fram á veginn til lífsins.“ Ennfremur sagði hann að þjóðin væri sem einhuga á slík- um stundum og þeir sem ættu um sárt að binda væru í bænum allra. Bað hann einnig Guð að blessa þá sem nú þjást. Kirkju- gestir sungu nokkra sálma ásamt Dómkórnum, þar á með- al sálm nr. 43, Ó, þá náð að eiga Jesú, en athöfninni lauk með sálmi nr. 523, Föður and- anna, eftir Matthías Jochums- son, sem séra Hjalti benti á að þjóðin hefði margoft leitað huggunar í á erfiðri stundu. Patr eksfj ör ður Stöðugt eftirlit ALMANNAVARNANEFND Pat- reksfjarðar hélt uppi stöðugu eftir- liti vegna snjófljóðahættu í gær og í nótt að sögn Þórólfs Halldórssonar sýslumanns. •Veður hafði gengið niður á Pat- reksfirði um fimm leytið í gær. Allt skólahald hafði fallið niður um dag- inn en rafmagn hafði ekki farið af bænum. Jónas Sigurðsson, aðalvarðstjóri lögreglunnar á Patreksfirði og nefndarmaður í almannavarnanefnd, sagði að rutt hefði verið frá Tálkna- firði til að koma björgunarveitar- mönnum til Patreksfjarðar í gær- morgun. Aðrir björgunarsveitar- menn komu frá Bíldudal og Patreks- firði og hélt 19 manna flokkur með Sléttbaki til Flateyrar kl. 11 um morguninn. Einn leitarhundur fór með mönnunum. Jónas sagði að eins margir björgunarsveitarmenn hefðu verið sendir frá Patreksfirði til Flat- eyrar og þorandi hafi verið að senda með tilliti til ástandsins á Patreks- firði. Jónas sagði að starfað væri sam- kvæmt viðbúnaðarstigi almanna- varna og stöðugt eftirlit haft með snjóflóðhættu. Hann sagði að Pat- reksfirðingar væru slegnir yfir at- burðunum á Flateyri og eflaust hefðu margir áhyggjur af ættingjum og vinum. Lögreglan beindi því til almennings að halda sig innan dyra nema sérstök nauðsyn kræfi. -----» ♦ ---- Tálknafjörður Tímaklukkan gengið aftur Tálknafirði. Morgnnblaðið. TÁLKNFIRÐINGAR fengu sinn skerf af óveðrinu í fyrrinótt. Það var upp úr miðnætti, sem hvessti og fylgdi mikil ofankoma. Venjulega þegar hvessir af norðaustan gengur á með hvössum byljum og hægir á milli en í fyrrinótt var stöðugt hvas- sviðri og fór ekki að hægja fyrr en um tíuleytið í gærmorgun. Þokkalegt veður var komið á um kaffíleytið í gær. Rafmagnsleysi var viðloðandi í gær því einn rafmagnsstaur lagðist á hliðina. Rafmagn komst á aftur um hádegi. Kennsla féll niður í grunnskólanum annan daginn í röð. Allar götur í þorpinu voru kol- ófærar og hafa menn það á tilfinn- ingunni að tímaklukkan hafi gengið afturábak um nokkra mánuði og að við séum að upplifa óveðrin í janúar og febrúar í fyrra. Herra Ólafur Skúlason biskup KIRKJAN VEITIR AÐSTOÐ HERRA Ólafur Skúla- son biskup segir að kirkjan sé reiðubúin að veita alla þá aðstoð sem hún getur vegna atburð- anna á Flateyri. „Við erum að ljúka Kirkjuþingi og undan- farna morgna hef ég í bænagjörðinni beðið sérstaklega fyrir þeim sem eru á hættusvæðum. í morgun var bænastund Kirkju- þings helguð þessu fólki og von- um þeirra um að fleiri fyndust. Kirkjan er reiðubúin að veita alla aðstoð sem hún getur með því að prestar komi og tali við fólk, en stundum er best þegar fólk hefur prest hjá sér þótt ekki fari mörg orð á milli,“ sagði Ólafur við Morgunblaðið í gær. Biskup bað presta um að hafa sérstakar bænasamkomur í gær- kvöldi vegna atburðanna á Flat- eyri og urðu prestar um allt land við þeirri beiðni. Helaum und Aðeins eru 10 mánuðir liðnir síðan 14 létust í snjóflóði sem féll í Súðavík. Ólafur Skúlason sagði að sárin eftir þá atburði væru ekki nærri gróin og ýfð- ust við harmleikinn á Flateyri. „Nú verður allt við- kvæmara, ekki aðeins hjá þeim sem nánast stóðu heldur einnig hjá okkur öllum sem vorum fjær. Það hefur svo margt gerst undanfarið, svo sem rútuslysið í Hrútafirði, að þjóðin er eins og helaum und vegna allra þess- ara tíðinda,“ sagði Ólafur. Prestar veita stuðning Þegar Ólafur var spurður hvort þeir sem misstu ættingja sína í Súðavík og víðar hefðu getað sótt styrk til kirkjunnar sagði hann engan vafa leika á því. Kirkjan hefði reynt að að- stoða eftir megni, bæði með því að senda presta vestur og einnig hefðu prestar fylgst með fólki síðan, bæði því sem flutti frá Súðavík og því sem enn býr fyr- ir vestan. # Leikur að eigin vali! Þú ræður upphæðinni sem þú spilar fyrir (frá 50 kr. uppí 250 kr.) og hve margar tölur þú velur, minnst eina og mest sex, en sjö tölur eru dregnar út. Þú getur einnig notað sjálfval. # Leikurinn endurgreiddur! Ef þú velur 6 tölur og færð enga rétta tölu í útdrætti. # Mikill fjöldi vinninga! # Kínó er selt á öllum sölustöðum íslenskrar getspár (lottósölustöðum) # Útdregnar tölur birtar í Sjónvarpinu laust fyrir kl. 20:00. Upplýsingar um úrslit í símum 568 1511 og Grænu númeri 800 6511, Textavarpinu, Morgunblaðinu og DV. # Sölukerfinu lokað fyrir Kínó-sölu kl. 19:00. mNHINGA R1 » | ALl JAÐ

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.