Morgunblaðið - 27.10.1995, Page 8
8 FÖSTUDAGUR 27. OKTÓBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
Hörð viðbrögð Alusuisse:
Máliðerámís-
skilningi byggt
W7
iGtSAjkJD-
Einar K, Guðfinnsson alþingismaður
Orð fá ekki
lýst aðstæðunum
Samkomu-
haldi víða
aflýst
SAMKOMUHALDI var aflýst
víða um land í gær í kjölfar
hinna hörmulegu atburða á
Flateyri í fyrrinótt. Jafnframt
var efnt til samverustunda í
flestum kirkjum landsins þar
sem beðið var fyrir Flateyring-
um, aðstandendum þeirra og
björgunarfólki.
Að sögn Baldurs Jónssonar,
markaðsstjóra auglýsinga í
hljóðvarpi RUV, var mikið
álag á símanum í gær því
hringt var víða að til að aflýsa
fundum, samkomum og
íþróttaviðburðum svo dæmi
séu tekin. „Um leið og fregnir
bárust af snjóflóðinu hringdi
fjöldi fólks og vildi fella niður
tilkynningar um mannfagnaði
af ýmsu tagi. Jafnframt báðu
margir viðskiptavinir okkar
um að auglýsingar á þeirra
vegum yrðu ekki lesnar upp í
dag.“
Baldur segir ennfremur að
auglýsingatíma Ríkisútvarps-
ins hafí verið breytt á þann
veg að lesa fyrst hefðbundnar
auglýsingar en síðan hafi til-
kynningar um bænahald
vegna snjóflóðsins verið lesnar
eftir stutta þögn.
Hætt var við útsendingu
síðdegisþáttar Rásar 1 í gær-
dag og tónlist leikin í staðinn.
Einnig var útvarpað frá minn-
ingarathöfn í Dómkirkjunni.
Kennarar og nemendur
Kvennaskólans í Reykjavík
efna til minningarathafnar við
kertaljós í skólanum í dag kl.
9.00 þar sem meðal annars
verða lesin Ijóð.
Ýmsum fundum og ráð-
stefnum hefur verið frestað.
Til dæmis frestaði Rauði kross
íslands aðalfundi sínum, sem
átti að hefjast í dag. Fyrirhug-
aðri ráðstefnu Sjálfstæðis-
flokksins um Evrópusamband-
ið og ísland, sem vera átti í
Valhöll á morgun, hefur verið
frestað og lokahófl þings
Verkamannasambands Is-
lands hefur verið aflýst.
„ÞAÐ er fyrst og fremst sorg sem
heltekur mann eftir þessi hörmu-
legu tíðindi frá Flateyri," sagði
Einar K. Guðfmnsson, 1. þingmað-
ur Vestfjarða.
Einar sagðist hafa fengið frétt-
ir af snjóflóðinu milli klukkan
fimm og hálf sex á fimmtudags-
morgun og þeir Einar Oddur
Kristjánsson alþingismaður, sem
búsettur er á Flateyri, fóru saman
í stjórnstöð Almannavarna í
Reykjavík.
„Þar höfum við dvalist í allan
dag og fylgst með framvindu
mála og þeim öruggu og fumlausu
vinnubrögðum sem hafa verið í
kringum björgunaraðgerðirnar.
Fyrir það eru auðvitað allir
hlutaðeigandi ákaflega þakklátir.
Sérstakar
aðstæður
Á þessari stundu vil ég fyrst
og fremst færa aðstandendum
þeirra látnu og öðrum sem eiga
um sárt að binda vegna þessara
hræðilegu atburða, mína dýpstu
hluttekningu og hugur okkar allra
er bundinn við aðstæðurnar á Flat-
eyri. Þarna þekki ég marga og í
hópi þeirra látnu eru vinir mínir
og kunningjar. Og þessi atburður
snertir mann ákaflega djúpt, ekki
síst vegna þess að þetta er í annað
skipti sem snjóflóð af þessu tagi
fellur á mínum heimaslóðum. Orð
fá ekki lýst þessum aðstæðum,"
sagði Einar.
Þegar Einar var spurður hvern-
ig horfði til vetrarins í ljósi þess-
í DAG spáir Veðurstofan norðan-
kalda eða stinningskalda og éljum
um norðanvert landið, en léttskýj-
uðu veðri um sunnanvert landið.
Síðdegis fer að lægja talsvert og
ara atburða, sagði hann að veður-
farsaðstæður síðustu daga hefðu
verið mjög sérstæðar. „Auðvitað
vonar maður að veðurskilyrði af
þessu tagi verði ekki aftur, en það
veit enginn hvað veturinn hefur
að geyma. Ég held þó að ég mæli
fyrir munn allra Vestfirðinga þeg-
ar ég segi að síðasti vetur hafi
reynt nægilega á okkur og við
eigum þá von að komandi vetur
fari mildari höndum um okkur,“
sagði Einar.
Sorgin og
björgunin
Snjóflóðið sem féll á Flateyri fór
langt niður fyrir áður skilgreind
hættumörk. Því hafa vaknað
spurningar um öryggi Vestfirð-
inga annarstaðar á svæðum sem
skilgreind hafa verið utan hættu-
marka. Um þetta sagði Einar, að
á þessari stundu hugsuðu menn
eingöngu um þessa atburði, sorg-
ina og björgunina.
„Það er ekki skynsamlegt að
reyna að sjá mikið fram í framtíð-
ina, en auðvitað er öllum ljóst að
stjórnvöld og fólkið hvar sem er í
landinu stendur með Flateyringum
í þeirra miklu sorg, albúið að tak-
ast á við framtíðina með þeim.
Hitt er það að þessir atburðir á
Flateyri vekja með manni nýjar
spurningar sem við erurti einfald-
lega ekki í stakk búnir að svara
hér og nú en að því viðfangsefni
hljótum við að einbeita okkur á
næstunni," sagði Einar K. Guð-
finnsson.
stytta upp á Vestfjörðum, en austan
til á Norðurlandi bætir heldur í vind
og verður norðan- og norðvestan
stinningskaldi eða allhvasst með
éljum þar undir kvöldið.
Síðdegis lægir og
styttir upp á Vestfjörðum
Snjóflóðafræðingur Veðurstofunnar
Oedlilegt aftaka-
flóð sem á sér
ekki hliðstæðu
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
JÓN Gunnar Egilsson
JÓN GUNNAR Egils-
son, snjóflóðafræð-
ingur á Veðurstof-
unni, segir að snjóflóðið á
Flateyri sé aftakaflóð og
mjög óeðlilegt miðað við
það sem áður hefur
þekkst. Mikill vindur og
snjóburður hefur verið á
fjallinu ofan Flateyrar frá
því um síðustu helgi. Ná-
kvæmar upplýsingar um
dýpt snjóflóðsins og um-
fang lágu ekki fyrir í
gær, en það er 300-400
metra breitt.
- Hvemig var flóðið
sem féll á Flateyri í nótt?
„Það er ljóst að þetta
var svokallað þurrt flóð
en hvers eðlis það var get
ég ekki sagt um enn sem
komið er.“
- Er þetta þekkt snjóflóðagil?
„Já, þetta er frægur snjóflóða-
farvegur og flóð hafa oft verið
að hlaupa þar niður. Vegagerðin
færði meðal annars veginn á sín-
um tíma vegna þess. Hins vegar
fer flóðið mun lengra núna en
nokkrar sagnir eru til um. Á
Flateyri var 4-5 stiga frost á
láglendi þegar flóðið féll en lík-
lega 9-10 stiga frost í fjallinu."
- Hvernig myndast þessar
aðstæður sem valda snjóflóðinu?
„Uppi á íjallinu er búinn að
vera stífur vindur af norðaustri
með ofankomu í langan tíma sem
hefur flutt mikið magn af snjó
þama fram. Ástæðan fyrir þessu
er því mikið snjómagn sem er
að koma á skömmum tíma.
Fannburður byijar þarna um
helgina og sunnudagseftirmið-
daginn byijar að blása að ein-
hveiju ráði. Á veðurathugunar-
stöðinni á Þverfjalli, sem er mitt
á milli ísafjarðar og Flateyrar,
hefur verið 50 hnúta vindur sam-
fellt síðan á mánudag og komist
í 85 hnúta, sem er mun meira
en 12 vindstig. Þetta er ástæðan
fyrir þessu snjómagni, en hvað
veldur því að snjóflóðið
fer svona langt þekki
ég ekki ennþá. Ég bíð
bara eftir því að kom-
ast vestur og gera
mælingar og skoða.“
- Er hægt að skýra hvað
gerðist?
„Það sem gerðist á Flateyri
er mjög óvenjulegt sérstaklega
á þessum árstíma. Snjóflóðið fer
svo langt fram yfir hættumarks-
línurnar, sem þó voru gerðar
eftir bestu vitund og þekkingu.
Þetta er eitthvað sem við getum
kallað aftakaflóð og það verður
mjög fróðlegt að reyna að finna
forsendur þess. í dag höfum við
þær ekki.“
- Er yfirleitt hægt að spá
fyrir um snjóflóð?
►Jón Gunnar Egilsson
fæddist í Reykjavík árið
1960. Hann lauk prófi í
byggingartæknifræði frá
Tækniskóla íslands árið
1987 og hefur starfað á si\jó-
flóðadeild Veðurstofu ís-
lands frá árinu 1989.
Hann er ógiftur og barnlaus.
„Það er hægt að spá fyrir um
snjóflóð að einhveiju leyti en
bitur reynslan hefur sýnt okkur
að margt í eðli snjóflóða er okk-
ur óþekkt. Með aukinni þekk-
ingu, athugunum og mælingum
nálgumst við það mark að geta
spáð fyrir um snjóflóð af auknu
öryggi en við eigum ennþá tölu-
vert í land að ná því marki.“
- Breytir þetta snjóflóð ein-
hverju um hættumat?
„Það er auglóst að snjóflóð
sem fer þetta langt fram yfir
hættumarkslínu kallar á að
menn endurskoði þau vinnu-
brögð sem notuð hafa verið.“
- Hvað tekur við?
„í augnablikinu er mjög erfitt
að hugsa skipulega um hvað
gerist í framtíðinni.
Eftir nokkra daga fara
menn að skoða hvaða
möguleikar eru í stöð-
unni og þá jafnframt
að raða hlutum í for-
gangsröð.“
- Erum við á eftir öðrum
þjóðum varðandi þekkingu á
snjóflóðavörnum?
„Já, við erum á eftir þeim
þjóðum sem lengst eru komnar
í þeim efnum en búum vel að
því að þangað getum við sótt
okkur þekkingu og nýtt okkur
reynslu þeirra manna sem sinna
þessum málum. Þetta höfum við
verið að gera undanfarin ár og
erum þar í samstarfi við Norð-
menn og aðrar Evrópuþjóðir.“
Endurskoða
vinnu við
hættumat