Morgunblaðið - 27.10.1995, Page 12
12 FÖSTUDAGUR 27. OKTÓBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Snjóflóð myndaði 6-7 m flóðbylgju sem olli miklum skemmdum og drap fé við Súgandafjörð og á Suðureyri
„Hættuástand og bíðum
bara eftir næsta flóði“
Tíu íbúðarhús
rýmd í gær
STÓR flóðbylgja, sex til sjö metra
há að því að talið er, olli talsverðum
skemmdum á bátum og hafnargarð-
inum á Suðureyri við Súgandaflörð
á ellefta tímanum í gærmorgun. Þá
drapst fjöldi íjár frá bænum Botni
við Súgandafjörð í flóðinu. Flóð-
bylgjan myndaðist í kjölfar snjóflóðs
sem féll úr fjallinu handan fjarðarins
nokkrum kílómetrum innar í firðin-
um.
Æddi flóðbylgjan þvert yfir fjörð-
inn, og upp á land. Flæddi hún inn
í gamla sundlaug sem stendur í 4-5
km fjarlægð frá Suðureyri og dráp-
ust þar margar kindur sem höfðu
leitað skjóls í byggingunni. Einnig
drapst Qöldi fjár sem var á dreif í
fjörunni. Flóðaldan hélt hins vegar
áfram út með firðinum og stöðvaðist
ekki fyrr en hún brotnaði á hafn-
argarðinum við Suðureyri og inn í
höfninni en þar olli hún miklum
skemmdum, sleit frá tvo báta sem
þar voru og sökkti öðrum þeirra.
Ekki er vitað til þess að fólk hafí
slasast í þessum hamförum.
Ottast að flóð falli í
Norðureyrargili
Vonskuveður var á Suðureyri í
gær og sást ekki yfir fjörðinn. Var
því ekki unnt að meta nákvæmlega
hvar snjóflóðið sem olli flóðinu féll.
Óttast var að annað snjóflóð kynni
að falla úr gilinu fyrir ofan Norður-
eyri, sem er handan fjarðarins and-
spænis kauptúninu. Það gæti valdið
flóðbylgju sem færi bei'nt á þorpið.
Mun algengara er að snjóflóð falli
úr því gili. Að sögn Halldórs Her-
mannssonar sveitarstjóra ákvað al-
mannavarnanefnd að rýma tíu íbúð-
arhús sem standa næst sjónum og
jafnframt var öll umferð um neðstu
TALIÐ er að snjóflóðið sem
féll í gær hafi verið mjög
stórt og fallið úr 500 metra
háu fjallinu talsvert innar-
lega í firðinum. Flóðbylgjan
sem myndaðist á sjónum
æddi yfir fjörðinn og gekk
svo út eftir firðinum, jafnvel
nokkurra kílómetra leið,
flæddi yfir þjóðveginn og
hreif með sér 18 tonna jarð-
ýtu, sem stóð við hús Orku-
bús Vestfjarða, sem stendur
við lónið nokkur hundruð
metra frá þorpinu. Flóðald-
an brotnaði að lokum á hafn-
argarðinum við þorpið.
FLÓÐBYLGJAN brotnaði á hafnargarðinum og fór inn í höfnina
þar sem hún sleit upp tvo báta og sökkti öðrum.
götur þorpsins bönnuð. Einnig var
öllum börnum á Suðureyri bannað
að fara út úr húsi. „Við vitum ekki
hvernig aðstæður eru í Norðureyrar-
hlíðinni en þar er snjóflóðahætta,"
sagði hann.
Snjóflóð féll í Norðureyrarhlíðinni
handan fjarðarins sl. þriðjudag. Það
gekk niður í sjó en var þó ekki
nægilega stórt til að valda flóð-
bylgju. Annað flóð féll nokkru innar
í firðinum. „Ef þetta hefði gerst
beint á móti þorpinu vitum við ekki
hvað gerst hefði,“ sagði Halldór um
flóðið sem féll í gærmorgun.
Að sögn Jóhanns Bjarnasonar,
formanns björgunarsveitarinnar,
tókst að ná bátnum sem sökk á
þurrt eftir hádegi í gær og er hann
ekki talinn ónýtur en er mikið
skemmdur. Einnig urðu miklar
skemmdir á hafnargarðinum. „Það
er hættuástand hérna. Við bíðum
bara eftir næsta flóði. Það getur
komið hvenær sem er,“ sagði hann.
Eins og maður sér í
bíómyndum
„Ég var staddur í björgunarstöð-
inni á Suðureyri og sá þegar flóð-
bylgjan kom æðandi innan úr firðin-
um og gekk yfir varnargarðinn.
Þetta var bara eins og maður sér í
bíómyndum. Ég tel að hún hafi ver-
ið sex til sjö metra há. Hún gekk
hér inn í höfnina en hún brotnaði
þó að mestu á hafnargarðinum.
Uppfylling sem gerð hafði verið við
hafnarkantinn fór alveg í flóðinu en
gamli hlutinn braut flóðbylgjuna nið-
ur. Flóðið fór einnig á 18 tonna jarð-
ýtu rétt við orkubúshúsið, sem stend-
ur skammt frá þorpinu, og færði
hana eina 10 til 15 metra. Flóðbylgj-
an fór líka yfir veginn sem liggur
inn í þorpið og er hann nú þakinn
gijóti. Klæðningin flettist af vegin-
um á stórum hluta og lá hún eins
og teppadruslur út um allt,“ sagði
Jón Gestsson, björgunarsveitarmað-
ur á Suðureyri, þegar hann lýsti
hamförunum í gær.
„Það er ekki algengt að flóðbylgj-
urnar séu þetta kröftugar en við vit-
um af þessari hættu. Menn urðu
meira varir við þetta áður fyrr meðan
eyrin var óvarin en á síðustu þremur
árum hafa komið tvær kröftugar
bylgjur sem hafa valdið skemmdum,"
sagði Halldór Hermannsson.
ÓVÍÐA á landinu er meiri snjó-
flóðahætta en ofan Norðureyrar
norðan við Súgandafjörð and-
spænis kauptúninu. Rétt utan við
eyrina gengur mikið gil upp í
fjallshlíðina og falla oft mikil
snjóflóð úr því sem hafa myndað
flóðbylgjur þegar þau ganga í sjó
fram og hafa nokkrum sinnum
valdið miklu ölduróti og skemmd-
um á Suðureyri. Flóðið í gær féll
hins vegar mun innar í firðinum,
og gekk flóðaldan síðan út fjörð-
inn og brotnaði á hafnargarð-
inum á Suðureyri.
Fyrir þremur árum féll snjóflóð
í Norðureyrargili og myndaði
flóðbylgju sem gekk yfir fjörðinn
og inn í höfnina á Suðureyri.
Hvolfdi hún flotbryggju í höfninni
og olli skemmdum á bátum.
Flóðöldurnar geta orðið 6-7
metra háar
Þorleifur Guðnason, sem nú
býr á Suðureyri, ólst upp á Norð-
ureyri, en hún stendur fremst á
lítilli eyri, gegnt þorpinu. Bjó
hann þar á árunum 1955 til 1970
og þekkir vel flóðahættuna á
þessum slóðum, en Þorleifur seg-
ist ekki minnast þess að jafn stórt
flóð og féll í gær hafi fallið áður
svona snemma vetrar.
Hann sagði að oft hefðu fallið
snjóflóð ofan Norðureyrar sem
valdið hefðu miklum flóðbylgjum,
sem gætu orðið 6-7 metra háar.
„Þessi stóru flóð virðast falla á
vissu árabili eða á 10 til 15 árum,
sérstaklega á Norðureyrina
sjálfa,“ segir hann.
„Þegar flóðin falla fyrir ofan
bæinn á eyrinni gengur aldan
venjulega yfir fjörðinn og á höfn-
ina. En þó að hlaupi utan til við
Þorleifur Guðnason bjó á hættusvæðinu á Norðureyri til 1970
Aldrei heyrt um svo stórt
flóð á þessum tíma
Ljósmynd/Halldór Agúst Gunnarsson.
HÆTTUÁSTAND var á Suðureyri í gær þar sem óttast var að flóð félli úr gilinu ofan Norðureyrar
í fjallinu norðan Súgandafjarðar og að flóðbylgja myndi ganga þvert yfir fjörðinn og upp í byggð-
ina. Snjóflóð féll úr gilinu sl. þriðjudag.
gilið er sjaldgæft að ^það valdi
miklum skemmdum. Áður fyrr
kom þó nokkrum sinnum fyrir
að aldan kastaði til bátum á
kambinum. Þegar hefur fennt og
svellhúð er komin yfir snjóinn
verður krafturinn á flóðinu miklu
meiri. Ég hef sjálfur alveg slopp-
ið við flóðin," segir hann.
Stundum falla snjóflóð eftir
fyrstu snjóa
í ritinu Skriðuföll og snjóflóð
segir að oft hlaupi öll fjallshlíðin
sem er um 500 metra há, hjalla-
laus og brött. „Hlaupin á Norður-
eyri koma veivjulega úr spjó-
dyngjum, er safnast ofarlega í
fjallinu og helst í lok hríða. Fjalls-
brúnin er slétt og skefur fram
af henni, svo að þar verður mikil
snjósöfnun. Snjóflóð koma þarna
stundum eftir fyrstu snjóa, þótt
ekkert hjarn sé undir, en oftast
hleypur á gömlu hjarni. Ofarlega
í hlíðinni, þar sem upptök snjó-
flóðanna venjulega eru, vottar
víða fyrir dýjaveitum, og má
vera, að þær eigi einhvern þátt
í að hleypa snjóflóðunum af stað
eða geri svellbunka, sem srjórinn
skríður á. Stundum hleypur öll
hlíðin utan fyrir Norðureyri og
inn undir Selárdal," segir í ritinu.
4. febrúar 1946 féll snjóskriða
á Norðureyri sem olli mikilli flóð-
bylgju, sem braut bryggjur á
Suðureyri, tók báta, er stóðu þar
á kambinum, og færði þá upp á
götu. Rétt fyrir jól 1951 kom
hlaup úr gilinu utan við Norður-
eyri og gekk flóðalda undan því
þvert yfir fjörðinn og fast upp að
dyrum húsa sem neðst standa á
Mölunum Suðureyrarmegin. Ekki
hlutust þó miklar skemmdir af.