Morgunblaðið - 27.10.1995, Page 16
16 FÖSTUDAGUR 27. OKTÓBER 1995
MORGUNBLAÐIÐ
___________________________________AKUREYRI______________________________________
Snjóflóð féllu í Ljósavatnsskarði og Fnjóskadal • Óveður olli rafmagnsleysi • Bændur misstu fé
Sumarhús gjöreyðilagðist
UM 800 metra breitt snjóflóð féll úr Króklækjar-
gili ofan við bæinn Birkihlíð í Ljósavatnsskarði í
fyrrinótt og hreif með sér nýlegan sumarbústað
sem stóð í hlíðinni skammt ofan bæjarins. Nokkur
minni flóð féllu úr giljum ofan við bæinn.
Hlíðin undirlögð í flóðum
„Við erum nú ekki alveg óhrædd, flóðið fór
óhugnanlega nálægt bænum,“ sagði Lára Svavars-
dóttir í Birkihlíð. Húsið var byggt fyrir fáum árum
og sagði hún að afi sinn, sem bjó alla sína tíð á
þessum slóðum, hefði bent á bæjarstæðið, sem
hann taldi ákjósanlegt m.a. vegna þess að þar
væri ekki snjóflóðahætta.
Lára sagði að öll hlíðin ofan við bæinn væri
Umtalsverðar skemmdir
í Þórðarstaðaskógi
undirlögð af flóðum. Eitt þeirra lenti á heimaraf-
stöð sem þjónaði tveimur bæjum, húsið slapp en
snjór komst inn í inntakið þannig að vatns- og
rafmagnslaust var á bæjunum. „Við vitum ekki
nákvæmlega hvernig ástandið er, við þorum ekki
að hreyfa okkur, það eru alltaf af og til að falla
smáspýjur úr fjallinu," sagði Lára en hvasst var
og rigning fram eftir gærdeginum. „Við verðum
að athuga með vatnið og rafmagnið seinna, það
er ekki þorandi að vera á ferli í hlíðinni, það er
engu að treysta Jón Óskarsson á Illugastöðum
í FnjóskadaÍ sagði að snjóflóð úr Belgsárfjalli og
Háafjalli handan orlofshúsabyggðarinnar hefðu
verið með meira móti. Algengt væri að spýjur
kæmu úr giljum á þessum slóðum en nú hefðu
flóðin einnig fallið milli þeirra. „Þau virðast hafa
hreinsað alveg hluta af Þórðarstaðaskógi, mér
sýnist sem umtalsvert tjón hafi orðið þar. Veðrið
er tvísýnt og því erum við ekkert að fara út að
skoða aðstæður strax,“ sagði Jón.
Hann sagði að Fnjóskáin hefði verið óvenju lít-
il um miðjan daginn, það væri greinilegt að flóð
hefðu fallið framarlega í dalnum og stöðvað rennsl-
ið.
í Þórðarstaðaskógi eru nokkur sumarhús og
taldi Jón í gær að flest þeirra hefðu sloppið.
Kindur krókn-
uðu úr kulda
ÓTTAST er að fjöldi kinda hafi
bæði drukknað í skurðum og
króknað úr kulda f Eyjafirði í óveðr-
inu sem gekk yfír á miðvikudag.
Brynjar Finnsson, bóndi á Litlu-
Brekku í Amarneshreppi, missti
um 30 ær, eða helming fjárstofns
síns í þessum hörmungum. Ær
hans höfðu hrakist undan óveðrinu
og leitað skjóls í skurðum, þar sem
þær annaðhvort drukknuðu eða
króknuðu úr kulda.
Albert Jensen, bóndi á Syðra-
Koti, var að aðstoða Brynjar við
að koma dauðu og hálfdauðu fé á
kerru, þegar blaðamaður hitti þá
að máli. Albert hafði sjálfur fundið
tvær af sínum ám dauðár í skurði
og fundust þær undir rúmlega eins
metra skafli. Albert og Brynjar
sögðu að nágrannar þeirra hefðu
einnig verið að leita kinda en vissu
ekki hvort eitthvað hafði drepist
hjá þeim.
Veðrið afleitt fyrir kindur
„Ég veit til þess að víða vantar
kindur og menn hafa verið að leita
þeirra. Ég óttast að þær hafi fennt
í kaf,“ sagði Ólafur G. Vagnsson,
ráðunautur hjá Búnaðarsambandi
Eyjafjarðar, í gær. Hann sagði að
einhveijir bændur hefðu sett fé sitt
í hús áður en veðrið skall á, en flest
hefði verið úti við. „Menn voru
ekki nógu duglegir að koma fénu
í hús miðað við þá eindregnu vonsk-
uspá sem lá fyrir,“ sagði Ólafur.
Veðrið á miðvikudag sagði hann
afleitt fyrir kindur, bleytuhríð og
hiti um frostmark. Snjórinn festist
í ullinni þannig að ærnargætu lítið
hreyft sig, væru kaldar og hraktar
og króknuðu því fljótt.
Samningur húsnæðisnefndar og Arki-
tekta- og verkfræðistofu Hauks
Skipulag og hönnun
72 íbúða við Snægil
SAMNINGUR milli Húsnæðis-
nefndar Akureyrar og Arkitekta-
og verkfræðistofu Hauks hf. um
skipulag og hönnun á 72 félags-
legum íbúðum í 18 húsum í Snæ-
gili 2-36 var undirritaður í gær.
Gert er ráð fyrir að húsin rísi á
næstu 6 árum og að heildarkostn-
aður við allt verkið nemi um hálf-
um milljarði króna.
Hagstæður samningur
„Við teljum að við höfum náð
afar hagstæðum samningi,“ sagði
Gísli Kristinn Lórenzson, formað-
ur húsnæðisnefndar, við undirrit-
un samningsins. Hann sagði að
um tímamótasamning væri að
ræða, þetta væri stærsta bygg-
ingasvæði sem nefndin hefði tekið
undir byggingar félagslegra
íbúða. Eftirspurn eftir slíkum
íbúðum hefur aukist til muna á
Akureyri á árinu og dregið úr
endursölu eldri íbúða. „Það hefur
sýnt sig að eftir að farið var að
byggja minni íbúðir í litlum húsum
hefur eftirspumin aukist, fólk kýs
heldur slíkar íbúðir en þær sem
byggðar hafa verið í stórum fjöl-
býlishúsum."
Hönnuðir byggingasvæðisins
eru systurnar Anna María og
Fanney Hauksdætur. Húsnæðis-
nefndin leitað eftir tillögum á liðnu
ári að skipulagi svæðisins og húsa-
gerð sem hentaði fyrir byggingu
félagslegra íbúða. Svæðið er í
Giljahverfi 111. Verkið verður boðið
út í tveimur áföngum, sá fyrri
verður boðinn út næsta vor og
byggður upp á tveimur til þremur
árum. Guðríður Friðriksdóttir for-
stöðumaður Húsnæðisskrifstof-
unnar á Akureyri sagði að mikill
áhugi virtist vera fyrir íbúðum á
þessu svæði en þegar væri byrjað
að spyijast fyrir um þær.
Morgunblaðið/Kristján
Morgunblaðið/Kristján
ÓTTAST er að fjöldi kinda hafi króknað úr kulda í óveðrinu í
Eyjafirði á miðvikudag. Ærnar lágu dauðar á víð og dreif þeg-
ar komið var að þeim.
NÝLEGUR sumarbústaður varð fyrir snjóflóðinu sem féll rétt
við bæinn Birkihlíð í Ljósavatnsskarði í fyrrinótt.
.í'v. . _
.. ^
Morgunblaðið/Kristján
STARFSMENN Rafmagns-
veitna ríkisins voru í önnum
við að tengja rafmagnslínur.
Mikil vinna
við að koma
línum í lag
VÍÐA var rafmagnslaust á Norður-
landi eystra í gær og voru starfs-
menn Rafmagnsveitna ríkisins önn-
um kafnir við að gera við línur og
staura. Þeir nutu aðstoðar björgun-
arsveitarmanna á svæðunum við
það verk. Rafmagn var skammtað
í Ólafsfirði en báðar línurnar þang-
að voru bilaðar. Á Sléttu, Öxarfírði
og Kelduhverfí var rafmagnslaust,
en díselvélar keyrðar á Þórshöfn,
Kópaskeri og Raufarhöfn.
Tryggvi Þór Haraldsson, um-
dæmisstjóri á Norðurlandi eystra,
átti von á að tækist að gera við lín-
una í gærkvöld og í dag á Sléttu
til Raufarhafnar. Búast mætti við
að lengri tíma tæki að gera við lín-
una til Þórshafnar.
í Eyjafirði var víða rafmagns-
laust í gærdag, m.a. á Hjalteyri,
hluta Arnamesshrepps og Árskógs-
hrepps. Eitthvað af bæjum á Sval-
barðsströnd og í Höfðahverfi voru
án rafmagns og einn í Eyjafjarðar-
sveit. Þess var vænst að tækist að
koma rafmagni á þessi svæði í
gærkvöld. Um 70 straurar voru
brotnir í Aðaldal og nánast allur
dalurinn straumlaus og hið sama
gilti um Tjörnes. Tryggvi sagði að
mikil vinna væri enn framundan við
að koma rafmagni á í umdæminu.
------------» ♦ ♦-----
Flutninga-
bíllinn enn á
hliðinni
FLUTNINGABÍLLINN sem fauk
útaf og valt við bæinn Rauðuvík á
miðvikudag, var enn á hliðinni í
gær. Félagar í hjálparsveitinni á
Dalvík aðstoðuðu við að flytja vörur
úr flutningabílnum upp á vörubíl.
Flutningabíllinn, sem er frá Flutn-
ingamiðstöð Norðurlands, var á leið
frá Akureyri til Dalvíkur með nauð-
synjavörur þegar óhappið varð. Eins
og fram kom í Morgunblaðinu slapp
bílstjóri flutningabílsins ómeiddur.
idJtu e kki af októberbókunum
ásútgáfan
Glerárgötu 28 - Akureyri
Áskriftarsími 462 4966